Dagblaðið - 06.04.1977, Page 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1977.
15
Small Faces
taka upp
þráðinn
aðnýju
Hver man ekki eftir lögum
eins og Sha La La La Lee, All
Or N'othing eða Lazy Sunday
sem urðu geysilega vinsæl um
og eftir miðjan sjöunda áratug-
inn? Öll áttu þessi lög það sam-
merkt að vera flutt af hljóm-
sveit sem kallaði sig Small
Faces. Sú hljðmsveit hætti
störfum árið 1969 en hefur nú
verið endurreist.
Small Faces eru nú sem
óðast að búa sig í hljómleika-
ferð um Bretland og í næsta
ntánuði kemur úl plata með
þeim. Tveir af stofnendum
Small Faces eru í nýju hljóm-
sveitinni, þeir Steve Marriott
og Kenny Jones. Einnig er þar
Ian McLagan orgelleikari sem
lék með gömlu Small Faces um
tíma og loks bassaleikarinn
Rick Willis, sem hefur unnið
sér það til frægðar að leika
með Roxy Muzic og Peter
Frampton.
Þrír þeirra, þeir Kenny,
Steve og Ian, komu saman á
síðasta ári og ákváðu þá að
halda eina hljómleika í nafni
Small Faces sem skyldu. vera
kvikmyndaðir og hljóðritaðir.
Þeir skemmtu sér hins vegar
svo vel á æfingum fyrir þessa
hljómleika að þeir ákváðu að
endurreisa hljómsveitina um-
svifalaust er þeir hefðu allir
tækifæri til þess. Sú stund er
nú runnin upp.
Kveikjan að þessu öllu var
þó sú að eitt af gömlu lögun-
um, Itchycoo Park, var endur-
útgefið í fyrra og hlaut mjög
góðar viðtökur, — svo góðar að
það rauk hátt upp á brezka
vinsældalistann.
Poker
kemur
fram ífyrsta
skipti
íkvöld:
Trúlega hefur engin íslenzk
hljómsveit lofað jafngóðu og
Poker síðan Trúbrot var að
fæðast fyrir nærri átta árum.
Verður sannarlega fróðlegt að
fylgjast með framgangi og þró-
un hljómveitarinnar á næstu
vikum og mánuðum, á meðan
liðsmenn hennar „spila sig sam-
an“, eins og sagt er.
Poker kemur fram í fyrsta
skipti í Sigtúni í kvöld — ef frá
er talið sl. föstudagskvöld,
þegar hljómsveitin lék fyrir
bandaríska hermenn á Kefla-
víkurflugvelli við fádæma
undirtektir.
Poppsíða DB fylgdist með á
Keflavíkurflugvelli á föstu-
dagskvöldið og telur sig geta
fullyrt, að þar var á ferðinni
einstaklega frískleg hljómsveit.
Vissulega vantaði nokkuð upp á
að allt væri eins og bezt verður
á kosið, en alla galla má rekja
til þeirrar staðreyndar, að um
var að ræða fyrsta skipti, sem
hljómsveitin " lék utan skúr-
byggingarinnar í Þingholtun-
um, sem þjónar sem æfinga-
salur hennar.
Framlínan, þ.e. söngvararnir
Pétur Kristjánsson, Pálmi
Gunnarsson og Jóhann Helga-
son, er hreinasta dynamít. Þar
eru samankomnir mögnuðustu
rokksöngvarar okkar, hver á
sínu sviði, sem saman mynda
skemmtilega og óvenjulega
heild. Líklega hefur Pétur
Kristjánsson aldrei notið betri
meðsöngvara. Um getu þeirra
hvers um sig þarf ekki að fjöl-
yrða.
Ekkert þarf að efast um, að
engin íslenzk hljómsveit kemst
með tærnar þar sem Poker
CIRKUS skiptir um
hljómborðsleikara
Guðbrandur Einarsson,
annar hljómborðsleikara
hljómsveitarinnar Cirkus er
hættur. Á meðan hinir fimm
bíða eftir að fá nýjan mann í
hans stað, hyggjast þeir halda
áfram að leika einum færri.
„Við vorum farnir að slaka of
mikið á við æfingar og það var
algjör einhugur hjá okkur
öllum sex að Guðbrandur
hætti," sagði Sævar Sverrisson
söngvari Cirkus, er hann ræddi
við Dagblaðið í vikunni.
„Guðbrandur býr í Keflavík og
það er talsvert erfitt fyrir hann
að þeytast stöðugt á milli. Þar
við bættist," hélt Sævar áfram,
,.að við erum nú farnir að æfa
af krafti frumsamin lög og því
cr enn meiri þörf á en áður að
allir seu með.“
Bjartasta vonin
síðan Tníbmt leið
hefur hælana. Skýringin er
náttúrlega fyrst og fremst sú,
að í hljómsveitinni leiða saman
hesta sína hljóðfæraleikarar,
sem allir hafa miklu meiri
reynslu en aðrir rokkarar sem
nú standa í eldlínu íslenzku
öldurhúsamenningarinnar.
Þeir eru þar með elztir — þeir
Pétur og Kristján Guðmunds-
son, sem eru yngstir í hljóm-
POKER: Frá vinstri eru
Björgvin Gíslason, Jó-
hann Helgason.Pi
W. Kristjánsson,
Kristján Guð-
mundsson.
Sævar vildi ekkert tjá sig um
hver maðurinn væri sem hefði
verið boðið í Cirkus í stað
Guðbrands, en kvað það vera
ágætis náunga. Það kemur von-
andi í ljós á næstunni hver sá
ágæti maður er.
Fyrir nokkru var tekinn upp
sjónvarpsþáttur með Cirkus og
þar flytur hljömsveitin tvö af
frumsömdu lögunum. Einnig
hefur furðuhljómsveitin Árblik
og sjálfsagt einhverjar fleiri
verið festar á filmu í sjónvarps-
sal að undanförnu. -ÁT-
sveitinni, verða báðir tuttugu
og fimm ára á þessu ári. Aldur
hinna hefur ekki fengizt stað-
festur, en fullvíst er þó að eng-
inn er orðinn þrítugur. Ennþá.
Hljómsveitin Poker var
stofnuð að verulegu leyti með
hliðsjón af hugsanlegri hljóm-
leikaferð um Danmörku og
Þýzkaland, sem áður hafði
verið rætt um að Paradís tækist
á h ndur. Þeir sex hljóðfæra-
leil arar, sem skipa Poker, hafa
allir lengi lagt mikið á sig til að
koma sér og sinni tónlist á
framfæri erlendis, þar sem
meiri breidd ríkir í smekk
rokkara. Vonandi verður nú af
því, því eins og einn hermaður-
inn á Vellinum sagði við DB á
föstudagskvöldið: Þetta er sko
almennilegt! - ÓV
Pálmi
Gunnars-
son og Sig-
urður Karls-
son. DB-mynd:
Árni Páll.
CIRKUS í æfingabúðum sínum. Guðbrandur
Einarsson er þriðji frá hægrí ó myndinni.
iBIAÐIÐ
vantar umboðsmann
íVogum
Upplýsingar hjá Svanhildi Ragnars-
dóttur Heiðargerði 6 — sími 92-6515
og hjá afgreiðslunni í Reykjavík —
sími 22078.
HREYFILL
Sími 8-55-22
Byggingarlími:
14 dagar
Byggingartími er aðeins hálfur mánuður og
verðið mjög hagstætt, en áratuga reynsla
sannar endingu og gæði. Þessi einbylishús
hafa verið byggð í bæjum og sveitum lands-
ins í hundraðatali. Þau falla á látlausan
hátt inn í ólíkasta umhverfi, hlý og traust. Súðarvogi 3, Reykjavík. Sími 86365.
HÚSASMIÐJAN HF