Dagblaðið - 06.04.1977, Síða 33
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. APRlL 1977..
37
Sjónvarp kl. 20,35 á föstudaginn langa:
Vel leikin og gerð
kvikmynd á skjánum
—Var mánudagsmynd í Háskólabíói fyrir rúmu ári
Aö kvöldi föstudagsins langa
kl. 20.35 er á dagskrá sjónvarps-
ins þýzk bíómynd frá árinu
1974 er nefnist Öttinn etur sál-
ina (Angst essen Seele auf).
Leikstjóri er Rainer Werner
Fassbinder. Aðalhlutverk leika
Birgitte Mira, E1 Hedi Salem og
Barbara Valentine.
Þessi mynd var sýnd hér sem
mánudagsmynd i marz á síðasta
ári. Þorsteinn Ulfar Björnsson
skrifaði m.a. um þessa mynd í
DB:
„Tiltölulega ungur Marokkó-
maður er í vinnu í Þýzkalandi.
Hann kvænist eldri ekkju sem
vinnur sem ræstingakona. Þau
berjast saman við alls konar
fordóma og eru nokkuð ánægð
saman. Að lokum, þegar for-
dómarnir fara að minnka fær
Ali, en svo kallast Marokkó-
maðurinn, magasár og verður
að fara á spítala.“
Síðar segir Þorsteinn Ulfar:
„Fassbinder er sá þýzkur
kvikmyndagerðarmaður sem
hvað skærast skín um þessar
mundir. Hann hefur fengið orð
fyrir mjög hart og kalt raunsæi.
Hann byrjaði að gera myndir
árið 1969 og hefur síðan gert 22
langar myndir. Frá byrjun
hefur Fassbinder fjallað um
kúgun og fráhverfu hliðar lífs-
ins. Hann segist sjálfur gera
myndir sem hafi sinn eigin
persónuleika. Eftir að hafa séð
Óttann get ég ekki annað en
verið þessu fyllilega sammála.
Óttinn er mjög sterk mynd sem
lætur mann ekki í friði eftir að
hafa séð hana og maður hugsar
mikið um persónur myndar-
innar.“
Loks segir Þorsteinn Ulfar:
„Myndin er vel leikin og vel
gerð og góð dægradvöl fyrir þá
sem hafa gaman af kvikmynd-
um."
Þessi kvikmynd fékk hvorki
meira né minna en fimm stjörn-
ur hjá Þorsteini Ulfari, þannig
að engum ætti að leiðast fyrir
framan skjáinn á föstudags-
kvöldið. A.Bj.
Sjónvarp laugardag kl. 21,45:
Hugljúf dans- og söngvamynd
Laugardag fyrir páska sýnir
sjónvarpið kvikmyndina Lang-
leggur pabbi, kl. 21.45. Þetta er
bandarísk dans- og söngvamynd
frá árinu 1955. Aðalhlutverkin
leika Fred Astaire og Leslie
Caron.
I kvikmyndahandbókinni
okkar fær þessi mynd þrjár og
hálfa stjörnu og þar segir að
þetta sé ágætis, rómantískur
söngleikur. Fred Astaire hefur
sjaldan haft betri dansfélaga
en Leslie Caron og eru dansat-
riðin hápunktur myndarinnar.
Efni myndarinnar er nútíma-
legt ævintýri um bandarískan
milljónamæring sem kynnist
franskri, munaðarlausri stúlku,
Hann vill gjarnan styrkja hana
til náms 'gegn því skilyrði að
nafni hans verði haldið leyndu.
Hann krefst þess einnig að
hún skrifi honum reglulega.
Sýningartími myndarinnar
er ein klukkustund og fimmtíu
mfnútur. Þýðandi er Dóra Haf-
steinsdóttir.
Sjónvarp laugardag kí. 20,55:
Sjaldan hlýzt gott af gestum
Útvarpið á páskadagskvöld kl. 22,15: Smásaga eftir Thomas Mann
Sjónvarp kl. 17,00 á föstudaginn
langa: Bíómynd endursýnd
Austan Eden
Frábær mynd eftir sögu Steinbecks
Á föstudaginn langa kl. 17.00 Julie Harris og Burle Ives.
er á dagskrá sjónvarpsins Leikstjórinn Elia Kazan sá
myndin Austan Edens, East of James Dean í smáhlutverki á
Eden, bandarísk bíómynd frá Broadway og réð hann fyrir 18
árinu 1954. Myndin er byggð á þúsund dollara til þess að leika
hluta úr sögu eftir John Stein- hlutverk Cals. I einni af kvik-
beck. Leikstjóri er Elia Kazan. myndabókunum okkar segir að
I kvikmyndahandbókinni Elia Kazan hafi ofstjórnað
okkar fær þessi mynd fjórar James Dean í þessari mynd.
stjörnur og segir þar að þetta sé Hann var kosinn bezti leikari
stórkostleg mynd! myndarinnar af kvikmyndahús-
James Dean fer með aðal- gestum.
hlutverkið, en hann lézt í bíl- Þessi bíómynd var sýnd fyrir
slysi ári eftir að myndin var fáum árum í Austurbæjarbíói
tekin. Aðrir sem fara með stór og hún var einnig sýnd áður í
hlutverk í myndinni eru sjónvarpinu 20. september árið
Raymond Massey, Jo Van Fleet 1969. Þýðandi myndarinnar er
og fékk hún Óskarsverðlaun Stefán Jökulsson.
fyrir leik sinn í hlutverkiKate, A.Bj.
Sjaldan hlýzt gott af gestum,
er fremur kuldalegt nafn á
skemmtiþætti, en páska-
skemmtiþáttur Sjónvarpsins,
sem er á dagskrá kl. 20.55 á
laugardagskvöldið, ber samt þá
yfirskrift.
Þátturinn er að sögn stjórn-
andans, Helgá Péturssonar
blaðamanns, byggður upp á
þann hátt að nokkrir valin-
kunnir menn koma til spjalla
og draga m.a. málshætti upp úr
stóru páskaeggi. Nafnið á þætt-
inum varð eiginlega til er hann
var tekinn upp því einn gest-
anna dró upp þennan málshátt.
Ekki vildi Helgi gefa upp
frekari upplýsingar um það
hverjir kæmu þarna fram, en
bætti því við, að þarna yrði rætt
við marga kunna íþrótta- og
listamenn og sagðist hann hafa
verið ánægður með það
hversu frjálslegt form varð á
þættinum.
Treysti hann sér, þótt málið
væri honum skylt, til þess að
Sverð Guðs
Thomas Mann er talinn ein-
hver mesti höfundar sinnar
tíðar en hann fæddist árið 1875
í Þýzkalandi og lézt árið 1955.
Bækur hans hafa verið þýddar
á fjölmörg tungumál. I kvöld
heyrum við eina smásögu eftir
Mann, Sverð Guðs, sem Þor-
björg Bjarnar Friðriksdóttir
les.
Ilann fæddist 6. júní inn í
aðalsmannafjölskyldu sem í
voru bæði kaupmenn og þing-
menn í Ltibeck. Móðir hans var
mikilhæf ur tónlistarmaður, sem
var kominn al p>Auiu og
portúgölskum ættum. I Mann
toguðust á hin heita, latneska
skapgerð og hin yfirvegaða,
þýzka. Þegar hann var 19 ára
gamall (án þess að ljúka skóla-
göngu sinni) settist hann að
með móður sinni í Milnchen.
Eftír það átti hann eitthvað við.
nám í háskóla en fór siðar til
Ítalíu til þess að búa með
bróður sínum. Þar skrifaði
hann eitt af sínum stóru snilld-
arverkum „Buddenbrooks“,
sögu um fjölskyldu sem líktist
hans eigin. Þegar Mann var 25
ára var hann þegár orðinn einn
af leiðandi rithöfundum Þýzka-
lands.
Saga hans, Der Zauberberg,
varð til þess að hann vann til
Nóbelsverðlauna árið 1929.
Innblástur af því verki fékk
hann þegar hann heimsótti
konu sína á berklahæli í Davos
1913 og segir sagan frá brjóst-
Krlstín Jónsdóttir og Stefán Jónsson fara með aðaiblutverkin.
DB-mynd Bjarnleifur.
Útvarp laugardag kl. 17,30:
Finnska barnaleikritið er
eftir Walentin Chorell
Á laugardag fyrir páska kl.
17.30 verður annað leikritið í
flokki norrænna barnaleikrita
á dagskrá útvarpsins. Er það
framlag Finna og nefnist leik-
ritið Lars Hinrik og er eftir
Walentin Chorell. Leikstjóri er
Bríet Héðinsdóttir og þýðandi
er Silja Aðalsteinsdóttir.
Með aðalhlutverkin í finnska
leikritinu fara Stefán Jónsson,
Kristín Jónsdóttir, Guðrún
Ásmundsdóttir. Einnig leika
Helgi Hjörvar, Sif Gunnars-
dóttir, Jóhann Hreiðarsson,
Guðný Sigurjónsdóttir og
Hrafnhildur Guðmundsdóttir.
Walentin Chorell er þekkt
ljóðskáld og mikilvirkur
leikritahöfundur og hafa verk
hans bæði verið sýnd á sviði og
leikin í útvarpi. Meðal
nokkurra verka hans sem flutt
hafa verið í íslenzka útvarpinu
má nefna Samtal við glugga,
þýðandi og leikstjóri Þorsteinn
ö. Stephensen, flutt 1953 og
1975. Fabían opnar hliðin, í
þýðingu Bjarna Benedikts-
sonar frá Hofteigi. Það var flutt
árið 1951 og árið 1961, Nornin, í;
þýðingu Áslaugar Árnadóttúr
flutt árið 1966, Markeeta, í
þýðingu Torfeyjar Steins-
dóttur, flutt 1968 og loks
Hefðarfrúin i þýðingu Sigur-
jóns Guðjónssonar sem flutt,
var á síðasta ári. Leikritið
'I^æðurnar eftir Chorell var sýnt
1 Þjóðleikhúsinu.
Fyrsta leikritið í þessum nor-
ræna leikritaflokki var eftir
Odd Björnsson, Rauða höllin,
og var það flutt sl. laugardag.
Þá er eftir að flytja framlag
Danmerkur, Svíþjóðar og
Noregs, en þau leikrit verða
flutt næstu laugardaga.
-A.Bj.
mæla með því að fólk fengi sér
sæti fyrir framan sjónvarp til
þess að horfa á þáttinn sem er
eins og áður sagði á dagskrá kl.
20.55 laugardagskvöld fyrir
páska. A.Bj.
veikisjúklingi.
í íslenzkri þýðingu hafa
komið út tvær bækur eftir
Thomas Mann, Tonio Krtiger og
Smásagnasafn. evi
Ingunn Einarsdóttlr og Hreinn
Péturssonar I páskaþættinum.
Halldórsson eru meðal gesta Heiga