Dagblaðið - 12.04.1977, Blaðsíða 17
HEHSON
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUK 12. AmiL
DAGBLADIÐ. ÞKID.JUDAGUH 12. APKÍL 1977
iþróftir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Standard í
fjórða sæti
— Ásgeir skoraði gullfallegt mark
Við hjá Standard sigruðum Beringen
á heimavelli 3-2, Charleroi tapaði fyrir
I efsta liðinu í deildinni, FC Brugge, 0-1 í
Charleroi, en Royale Union gerði ekki
I nema jafntefli í Brussel í 2. deildinni
við Berchem, sagði Ásgeir Sigurvinsson,
I þegar Dagblaðið ræddi við hann i gær.
Þetta var fjörugur leikur framan af
I við Beringen, sagði Ásgeir ennfremur.
Standard komst strax í 1-0 með marki
1 Riedi — og mér tókst að skora annað
mark liðsins. Það var fallegt mark eftir
I hornspyrnu. Knötturinn kom fyrir mark-
ið og ég skallaði knöttinn efst í markið
) — alveg upp í samskeytin. Beringen
minnkaði muninn í 2-1 eftir mistök Piot,
I belgíska landsliðsmarkvaróarins hjá
Standard, en það stóð ekki lengi. Við
) fengum aftur hornspyrnu. Knötturinn
var skallaður út úr vítateignum og þar
I kom Geretz bakvörður. Spyrnti viðstöðu-
laust á markið og boltinn flaug í mark.
Sannkallaður þrumufleygur efst í mark-
ið út við stöng. Marteinn Geirsson horfði
I á leikinn og hann sagði á eftir, að þetta
væri eitt fallegasta mark, sem hann
I hefði séð.
Aftur minnkuðu leikmenn Beringen
I muninn eftir misheppnað úthlaup Piot.
Staðan 1 hálfleik 3-2 og fleiri mörk voru
| ekki skoruð í leiknum. Við leikum í
Frakklandi á morgun — æfingaleik við
| Lyon, en á laugardag á Standard
þýðingarmikinn leik í 1. deiid gegn
Lokeren á útivelli. Standard er nú í
fjórða sæti og allar líkur eru á, að fjórða
I sætið gefi rétt í UEFA-keppnina næsta
leiktímabil. Við keppum um það sæti við
Lokeren og Beerschot. Eins og er hefur
Standard tveimur stigum meira — en þá
| er ekki reiknað með leikjum Lokeren og
Beerschot í gærkvöld, sagði Ásgeir,
| þegar við töluðum við hann í gær-
morgun.
Guðgeir Leifsson var varamaður
Charleroi í leiknum gegn FC Brugge —
| en Charleroi-liðinu tókst ekki að skora í
leiknum. Union lék við Bersehem í
I Brussel — lið, sem féll niður úr 1. deild í
fyrra. Jafntefli varð 1-1. Berschem skor-
i aði á undan úr vítaspyrnu, en Stanley
jafnaði fyrir Union. Marteinn Geirsson
I lék allan leikinn, en Stefán Halldórsson
kom inn á eftir leikhléið. Öll efstu liðin í
I 2. deild gerðu jafntefli, svo þar er staðan
óbreytt. Boom efst með 34 stig, Eisden
hefur 32 stig og Uníon 31 stig.
Urslit í 1. deild.
Antwerpen-Waregem 0
Charleroi-FC Brugge 0
Standard-Beringen 3
Beveren-Liege 3
Winterslag-Ostende 2
Maiinois-Lierse 0
CS Brugge-Molenbeek 1
1 bikarkeppninni leika í undai
úrslitum FC Brugge-Waregem annars .
vegar, en Anderlecht-CS Brugge hins'
vegar.
í gærkvöld sigraði Courtrai Beerschot1
2-0 i 1. deild.
Enn sigrar Björn
Sænski tennisleikarinn Björn Borg I
vann yfirburðasigur á miklu tennismóti
í Monte Carlo, sem lauk á sunnudag. Til I
úrslita iék Björn við Cirrado Barazzutti,
italíu, og vann með 6-3, 7-5 og 6-0.
Björn Borg er fluttur frá Svíþjóð —
vegna skatta — og hefur búsetu í Monte
Carlo.
Heimsmet
Sovézki lyftingamaðurinn. Alexander
Kozlov setti nýtt heimsmet á móti í
Volzhzky 9. apríl. Hann snaraði 170
kílóum og bætti heimnsmet Sergei
Arakelov, Sovétríkjunum, úm tvö kíló.
Kozlov er í 100 kg flokki.
Efstu liðin sigra
Úrslit í 29.umferð í 1. deild spænsku
knattspyrnunnar urðu þessi.
Atl. Madrid-Las Palmas 1
Betis-Racing í
Espanol-'Malaga 1
Sociadad-Salamanca 1
Celta-Bilbao <
Valencia-Barcelona <
Zaragoza-Hercules 1
Burgos-Sevilla 1
Elche-Real Madrid 1
Atletico Madrid er efst með 41 stig. |
Barceiona hefur 37 stig, Biibao 33 og
Real Madrid, sem selt hefur Paul |
Breitner til Brunswick fyrir 370 þúsund
sterlingspund, er með 31 stig ásamt |
Valencia, Espanol og Bilbao.
Sigurður Haraldsson — þrefaldur Islandsmeistari.
UH-myna svp.
SIGURÐUR K0NGUR-
INN í BADMINT0N!
Sigurður Haraldsson, TBR, var
meistarinn mikli á íslandsmótinu
í badminton, sem háð var i
Laugardalshöll um páskana. Varð
þrefaldur íslandsmeistari og
varði titla sína frá í fyrra með
glæsibrag. Þátttakendur voru um
90 og var keppt í meistarafiokki
og A-fiokki. Margir skemmti-
iegir leikir sáust á mótinu og
áhorfendur voru allmargir.
1 einliðaleik karla lék Sigurður
til úrslita við félaga sinn Jóhann
Kjartansson. Þar var minni
keppni, en reiknað hafði verið
með. .Jóhann náði sér aldrei á
strik og Sigurður vann 15-6ogl 5-6.
í undanúrslitum lék Sigurður við
Sigfús Ægi Árnason, TBR, og
vann í þremur lotum 15-4, 2-15 og
15-9. Að öðru leyti var leið hans í
úrslitin greið. Jóhann sigraði
Friðleif Stefánsson, KR, í þremur
lotum 15-7, 10-15 og 15-6, og vann
svo Harald Kornelíusson, TBR, í
undanúrslitum í þremur lotum,
15-6, 6-15 og 15-9.
1 úrslitum í tvíliðaleik karla-
léku Sigurður og Jóhann við
Harald og Steinar Petersen. Það
var skemmtilegasti úrslitaleikur-
inn. Þeir Sigurður og Jóhann
unnu í þremur lotum 15-6, 8-15 og
15-4.
í einliðaleik kvenna sigraði
Lovísa Sigurðardóttir, TBR,
Hönnu Láru Pálsdóttur, TBR, í
úrslitum 11-1 og 11-7 og hlaut
Lovísa bikar til eignar. I úrslitum
í tvíliðaleik kvenna léku Lovísa
og Hanna við Vildísi Kristmanns-
dóttur, KR, og Önnu Njálsdóttur,
TBR, og sigruðu með 15-4 og 15-7.
Þær unnu bikara til eignar.
1 tvenndarkeppninni sigruðu
Sigurður Haraldsson og Hanna
Lára. Léku til úrslita við Lovísu
og Steinar og unnu 15-11 og 15-5.1
Old boys keppninni unnu þeir
Ríkharður Pálsson og Jón Árna-
son, TBR, þá Ragnar Haraldsson
og Gísla Guðlaugsson í úrslitum
15-7 og 15-3.
I einliðaleik karla í A-flokki
sigraði Víðir Bragason, IA, Reyni
Guðmundsson, KR, í úrðltum 15-
12 og 15-12. í einliðaleik kvenna,,
A-flokki, sigraði Sigríður M. Jóns-
dóttir, TBR, Ásu Gunnarsdóttur,
Val, í úrslitum 11-2 og 12-9. t
tvíliðaleik karla sigruðu Víðir og
Björn Björnsson, ÍA, Ágúst
Sigurðsson og Gylfa Óskarsson,
Val, í úrslitum 15-7 og 17-15.
I tvíliðaleik kvenna sigruðu
Sigríður M. Jónsdóttir og Jórunn
Skúladóttir, TBR, þær Kristínu
Aðalsteinsdóttur og Jakobínu
Steindórsdóttir, IA, í úrslitum 15-
11 og 18-16 og í tvenndarkeppni
A-flokks sigruðu Guðmundur
Adolfsson og Sigríður M. Jóns-
dóttir, TBR, Víði Bragason og
Kristínu Aðalsteinsdóttur, lA, í
tvísýnasta leik Islandsmótsins
með 18-13, 9-15 og 18-17.
Áhugalaust úrvalslið varð
Fredricia auðveld bráð!
—Fredricia KFUM fór héðan ósigrað eftir sigur í gær gegn úrvalsliði—25-22
Dönsku meistararnir
Fredricia KFUM léku við úrvals-
lið að mestu skipað þeim leik-
mönnum er léku með íslenzka
landsliðinu í Austurríki en þar
vantaði þó stærstu nöfn fslands
— þá Geir Hallsteinsson og
Björgvin Björgvinsson. Fredricia
sigraði 25-22 — og áhugi íslenzka
liðsins virtist sáralítill. Danirnir
gátu nánast gengið að vild í gegn
um vörn íslenzka liðsins — og
sðknarleikur úrvalsliðsins var
lengst fálmkenndur og tilviljana-
kenndur.
íslenzku leikmennirnir virtust
hafa sáralítinn áhuga á verkefni
Watson vann
gullbjörninn
Tom Watson sigraði í gær
í US Masters — einu af
mestu golfmótum heims.
Watson, sem er kunnur golf-
maður, sigraði eftir
hörkukeppni við gullbjörn-
inn Jack Nicklaus, fræg-
asta golfmann heims.
Þegar síðasta umferðin
hófst hafði Watson þriggja
högga forskot á Nicklaus —
en stóri Jack hafði farið
hægt í sakirnar framan af. í
lokaumferðinni setti hann
hins vegar á fullt og hafði
jafnað við Watson á 14.
holu. Á þeirri 15. náði
Nicklaus forustu og allir
reiknuðu með sigri hans. En
hinir fjölmörgu áhorfendur
virtust hafa slæm áhrif á
Nicklaus lokaholurnar.
Hann lék ekki jafn vel og
áður, en Watson, sem var í
næsta hóp á eftir Nicklaus,
náði sínu bezta á ný.
Watson náði forustu á 17.
holu — og Nicklaus þurfti
að leika þá síðustu á
„birdie“ til að jafna, en
tókst ekki. Lék hringinn á
66 höggum — eða sex undir
pari. Frábært afrek, þótt það
nægði ekki. Watson lék •
hringinn á 67 höggum og
sigraði á 276 höggum. Nick-
laus varð annar á 278 högg-
sínu í gærdag — vörn íslenzka
liðsins nánast gatasigti og sóknar-
leikur slakur. Áhorfendur er í
Höllina fóru áttu von á að
fá að sjá Geir Hallsteinsson og
Björgvin Björgvinsson — þá leik-
menn er draga íslenzka áhorf-
endur að leikjum hér á landi —
en þeir urðu fyrir miklum von-
brigðum er báða þessa snjöllu
leikmenn vantaði. Furðulegt að
úrvalslið skuli tilkynnt, án þess
að því er virðist, að athugað sé
fyrst hvort leikmenn geti leikið.
Nú, en jafnræði var með
liðunum í byrjun — um miðjan
fyrri hálfleik var jafnt 5-5 — en
þá komu 5 dönsk mörk í röð, 10-5,
og það bil náði íslenzka liðið
aldrei að brúa. Staðan í leikhléi
var 14-10 en mestur varð
munurinn í síðari hálfleik 6 mörk,
16-10, síðan 20-14 og öruggur
sigur Dana í lokin, 25-22. _____
Fredricia er að stofni til danska
landsliðið í dag — ákaflega sterkt
félagslið og árangur þess undan-
farin ár sannar það — í fyrra var
liðið í úrslitum Evrópukeppni
meistaraliða, og í ár í undanúrslit-
um. Fredricia hefur nýlega tryggt
sér danska meistaratitilinn þriðja
árið í röð. Sannarlega góður
árangur — og þar hefur danska
stórskyttan Fleming Hansen leik-
ið aðalhlutverk. Hann hefur
ávallt verið markhæsti leikmaður
liðsins — auk þess að vera undan-
farin ár markhæsti leikmaður í
dönsku deildinni. Fremur lítið
bar á Fleming Hansen í íslands-
reisunni — þó sáust af og til
þrumuskot hans. Fleming beitti
fyrir sig hnefum — en þar er
hann mun lakari en handknatt-
léiksmaður. Hann reyndi að slá
Þorberg Aðalsteinsson með
krepptum hnefa — en hitti ekki.
Atvik sem raunar fór framhjá
dómurum leiksins — þeim Ölafi
Steingrímssyni og Gunnari
Kjartanssyni — en þeir áttu ákaf-
lega dapran dag.
Þeir Ólafur Einarsson og Þor-
björn Guðmundsson voru
markhæstu leikmenn íslenzka
liðsins með 6 mörk hvor.
Fredricia lék á fimmtudag við
Víking — og sigraði danska liðió
37-32 eftir að Víkingur hafði leitt
fyrri hálfleik lengst af. Víkingur
var án þeirra Ölafs Einarssonar
og Björgvins Björgvinssonar. Á
laugardag lék Fredricia við
íslandsmeistara FH og sigraði 23-
19.
h halls.
'Þorbjörn Guðmundsson — sKor-
aði sex mörk.
Sveit Akureyrar, sem sigraði í flokkasviginu.
DB-mynd Karl Pálsson.
Halldór Matthíasson, Reykjavík, og Magnús Eiríksson, Siglufirði. Einvígi þeirra í
skíðagöngu voru einn af hápunktum skíðalandsmótsins — og vöklu langmesta spennu
meðal áhorfenda. Halldór varð sigurvegari í 15 km göngunni og í boðgöngunni, en
Magnús sigraði í 30 km skíðagöngunni með glæsibrag eftir siórskemmtilega keppni
við Halldór, DB-mynd Karl Pálsson.
Reykjavík með flesta skíðameistara
Frá Karli Pálssyni, fréttaritara
Dagblaðsins á Siglufirði. Skíða-
landsmótið hér á Siglufirði hófst
í fegursta veðri — en eftir því
sem á mótið leið gekk á ýmsu.
Hvassviðri um tíma og varð að
fresta einni grein af þeim sökum
um nokkurn tima. í heild gekk
mótið þó vel fyrir sig og var
þeim, sem að því stóðu, tii
sóma. Keppt var um 14 meistara-
titla Reykvíkingar urðu sigursæl-
astir með fern gullverðlaun.
Akureyringar, ísfirðingar og Sigl-
firðingar hlutu þrenn 'gullverð-
laun og Ólafsfirðingar ein.
Halldór Matthíasson, Reykja-
vík, varð sigurvegari i fyrstu
grein mótsins, 15 km skíðagöngu
eins og áður hefur verið skýrt frá
hér í blaðinu. Á miðvikudag var
keppt í stökki í Dalabakka. Mæli-
lengd í flokki 20 ára og eldri var
49 metrar en 45 m í flokki 17-19
ára. Urslit urðu þessi í keppni
fulloróinna.
1. Marteinn Kristjánsson, Sigluf.
49.0—56.5 = 215.0
2. Björn Þór Ölafsson, Ölafsf.
47.0—47.5 = 208.5
3. Ásgrímur Konráðsson, Ólafsf.
43.5—50.0 = 204.0
Flokkur 17-19 ára
1. Guðmundur Garðarsson, Ölafsf.
43.5—48.5 = 219.9
2. Jóhann Sigurðsson, Ólafsfirði,
36.5—43.5 = 183.2
3. Helgi Ástvaldsson, Ólafsf.
35.0—42.5 = 176.6
I norrænni tvíkeppni varð
Björn Þór Ölafsson, Ölafsfirði,
'Islandsmeistari, hlaut samtals
486.9 stig. Þorsteinn Þorvaldsson,
Ólafsfirði, varð annar með 399.67
stig. I flokki 17-19 ára sigraði
Guðmundur Garðarsson, Ölafs-
firði, með 495.29 stigum.
Á fimmtudag var keppt í stór-
svigi karla og kvenna. Rásmark
var ofan við Hólshyrnu. Braut
karla var 1150 m löng. Fallhæð
450 m og hlið 52, en í síðari ferð
var hliðum fækkaó í 48. Kvenna-
brautin var 800 m. Fallhæð 350 m
og hlið 37. Ursiit í karlaflokki.
1. Einar Valur Kristjánsson, Isaf.
69.81—66.56 = 136.37
2. Haukur Jóhannsson, Akureyri
69.13—67.25 = 136.38
3. Hafþór Júlíusson, tsafirði,
70.03—66.50 = 136.52
4. Gunnar Jónsson, tsafirði,
69.23—67.90 = 137.13
5. Bjarni Sigurðsson, Húsavík,
72.00—67.23 = 139.23
6. Benedikt Jónsson, Húsavík,
71.90—67.39 = 139.29
Þetta var jafnasta keppni móts-
ins. Aðeins einn hundraðasti úr
sekúndu munur á fyrsta og öðrum
manni, Sigurður Jónsson, Isa-
firði, var ekki skráður til keppni í
mótið — en hann mun vera er-
lendis.
Urslit í kvennaflokki.
1. Steinunn Sæmundsd. R.vík.
57.51—58.66 = 116.17
2. Jórunn Viggósdóttir, R.vík.
58.69—58.75 = 117.44
3. Margrét Baldvinsd. Akureyri.
60.37—58.78= 119.15
4. Asdís Alfreðsdóttir, R.vlk.
60.59—60.75 = 121.34
Sveit Reykjavíkur sigraði í
3x10 km boðgöngu. I sveitinni
voru Ingólfur .Jónsson, 39.16 min.
Guðmundur Sveinsson, 40.42 mín.
og Halldór Matthíasson 35.42 —
samtals 115.40. Sveit Ölafsfjarðar
varð í öðru sæti á 115.54 mín.
Jón Konráðsson 38.16 — Guðm.
Garðarsson 40.34 og Haukur
Sigurðsson 37.04 mín. Sveit Siglu-
fjarðar var i þriðja sæti á 117.32
mín. Gunnar Guðmundsson 41.53
— Björn Ásgrímsson 39.31 og
Magnús Eiríksson 35.58 mín.
Á föstudag var haldið skiða-,
þing. Þar var ákveðið að næsta
landsmót verði í nágrenni Reykja-
víkur. Hákon Ölafsson var endur-
kjörinn formaður Skíðasam-
bandsins — og nýr maður i stjórn
er Hreggviður Jónsson, Reykja-
vík.
Á laugardag var keppt í svigi
karla og kvenna á sama stað og í
stórsviginu. I karlaflokki var
brautin 600 m og fallhæð 220 m.
Hlið 57. I síðari ferðinni var
brautin stytt í 580 m og hlið þá
55.31 keppandi mætti til leiks og
17 luku keppni. Urslit urðu þessi.
1. Hafþór .Júlíusson, ísafirði
59.21—56.17 = 115.38
2. Tómas Leifsson, Akureyri,
’ 60.18—56.20 = 116.38
3. Jónas Ölafsson, Reykjavík,
61.15—55.94 = 117.09
4 Árni Öðinsson, Akureyri,
57.95—59.76 = 117.71
5 Árni Þór Árnason, Reykjavík,
60.58—57.56 = 118.14
6. Björn Sigurðsson, Húsavík,
59.63—58.76 = 118.39
Kvennabrautin var 470 m.
Fallhæð 180 m og hlið 47 í fyrri
umferðinni, en brautin var lengd
í 490 m í síðari umferð og hlið þá
50. Her Skogstad, Noregi, lagði
brautina. Steinunn Sæmundsdótt-
ir, sigurvegarinn í stórsviginu,
varð fyrir áfalli í fyrri umferð-
inni, en í þeirri síðari náði hún
langbeztum tíma. Náði þó ekki
nema sjötta sæti í keppninni.
Urslit urðu þessi.
1. Margrét Baldvinsd. Akureyri,
49.17—50.22 =99.39
2. Jórunn Viggósdóttir,
Reykjavík,
49.26—50.55 = 99.81
3. Sigríður Jónasdóttir, Akureyri,
52.21—50.67 = 102.88
4. María Viggósdóttir, Reykjavík,
52.67—50.59 = 103.26
5. Guðrún Leifsdóttir, Akureyri,
51.64—51.79 = 103.43
6. Steinunn Sæmundsdóttir,
Reykjavik,
57.15—47.45 = 104.60
Asunnudag var keppt i30 km
göngu. 11 keppendur og þar tókst
Magnúsi Eiríkssyni, Siglufirði, að
sigra Halldór Matthíasson.
Þeir voru í sérflokki. Gengnir
voru fjórir hringir. Magnús var
ræstur mínútu á eftir Halldóri og
dró strax á Halldór á fyrsta hring.
Gekk á 22.26 en Halldór á 22.48
mín. Eftir 15 km hafði Magnús
alveg náð Halldóri — saman-
lagður tími hans þá 45.32, en
Halldórs 46.30 — og á þriðja
hring skiptust þeir á um
forustuna. Eftir hann var Magnús
með 59 sek. betri tíma — 69.11
gegn 70.10 og á síðasta hringnum
fór Magnús vel framúr Hajldóri
ákaft studdur af fjölmörgum
áhorfendum. Úrslit.
1. Magnús Eiríksson 92,46
2. Halldór Matthíasson, 95.04
3. Haukur Sigurðss. Ö. 104.12
I flokki 17-19 ára urðu úrslit
þessi.
1. Guðm. Garðarsson, Ól. 48.38
2. -Jón Konráðsson, Ól. 49.35
3. Björn Ásgrímsson, S. 50.11
Norski unglingameistarinn gekk
á 44.57 mín.
I flokkasvigi karla sigraði sveit
Akureyrar. Tími 321.96 sek.
Haukur Jóhannsson 79.42 —
Björn Víkingsson 81.19 — Tómas
Leifsson 80.94 og Árni Óðinsson
80.41. Sveit Reykjavíkur varð
önnur á 469.97 sek., en sveitir
ísafjarðar og Húsavíkur luku
ekki keppni.
1 flokkasvigi kvenna sigraði
einnig sveit Akureyrar á 263.83
sek. Guðrún Leifsdóttir 87.35 —
Sigríður .Jónsdóttir 89.70 og
Margrét Baldvinsdóttir 86.78 sek.
Önnur varð sveit Reykjavíkur á
268.52, Ásdís Alfreðsdóttir 90.00
— Jórunn Viggósdóttir 89.83 og
Steinunn Sæmundsdóttir 88.69.
I tvíkeppni í göngu, 15 og 30
km. varð Magnús Eiríksson sigur-
vegari með 513.43 stig. Halldór
Matthíasson annar með 507.46 og
Haukur Sigurðsson þriðji með
417.65. í flokki 17-19 ára
Guðmundur Garðarsson, Ölafs-
firði, með 519.49 stig. Björn
Ásgrímsson, Siglufirðí, varð
annar með 483.97 stig. I alpatví-
keppni karla sigraði Hafþór
Júlíusson, Isafirði, en í alpatví-
keppni kvenna Jórunn Viggós-
dóttir, Reykjavík. Verðlaunaaf-
hending var um kvöldið á páska-
dag og mótinu þá slitið, en um
nóttina var dansleikur frá 12-4.
Rögnvaldur Þórðarson, formaður
Skíðafélags Siglufjarðar, afhenti
verðlaun.
Maður mótsins var Guðmundur
Garðarsson. Hlaut fern gullverð-
laun og ein silfurverðlaun.
KP.
íþróttir