Dagblaðið - 05.05.1977, Page 9

Dagblaðið - 05.05.1977, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. MAl 1977. Voriðerkomið: Astalffl er fjörugt þessa dagana —Álftin verpir ífyrsta sinn ítjarnarhólmanum Flosi Jónsson var að byrja að tina saman rusl i Hljömskála- garðlnum. Hann er orðinn 79 ára gamall og var áður fyrr bsði bóndi og kennari. DB- mynd Bjarnleifur. Hvert sem augum er litið þessa dagana má sjá fólk sem er að huga að gróðri. í hlýjunni og góða veðrinu í gær hittum við Flosa Jónsson, sem var að byrja að hreinsa til í Hljómskálagarð- inum. „Jú, trén eru aðeins byrjuð að springa út og ef þessi góða tíð helzt áfram fer gróðrinum fljótt fram,“ sagði Flosi. Astalífið I garðinum er lfka fjörugt þessa dagana, aðallega þó úti á tjörninni og í hólmun- um. Fuglarnir eru búnir að para sig fyrir löngu og eru sem óðast að búa sig undir fjöl- skylduaukningu. Það er meira að segja fjölgað hjá einni fjöl- skyldunni f garðinum. Álftin er búin að verpa f litla hólmanum í suðurenda stóru tjarnarinnar. „Þetta er f fyrsta sinn sem álftin verpir hér,“ sagði Flosi. „Hún er vön að halda til fjalla og verpa nálægt fjallavötnun- um. Það er gaman að fylgjast með því hve karlinn passar vel upp á „frúna“ og gætir þess að enginn geri henni mein,“ sagði Flosi Jónsson. A.Bj. * Álftarfrúin og steggur hennar hafa komið sér upp miklu „hreiður- mannvirki" f litla hólmanum. Það stendur tii að fjölgi hjá þeim á næstunni. — DB-mynd Hörður. Erfitt nám í þrjá mánuði — hvað svo? Þessir hressu strákar voru í gær í einu prófi námskeiðsins. Hverjir verða hinir heppnu ' Af um það bil tuttugu mönn- um sem núna eru að ljúka nám- skeiði fyrir flugumferðarstjóra- starf eru átta öruggir með að fá við það vinnu. Hinir sem lokið hafa þriggja mánaða stffum skóla verða að öllum lfkindum sendir heim án nokkurra rétt- inda. Það mikil vinna liggur i námskeiðinu að nemendur hafa allir neyðzt til að hætta að vinna og helga sig náminu ein- göngu. Flestir hafa þó unnið fram á sfðasta mánuðinn en þó hafa nokkrir hætt fyrr. Að sögn eins af nemendum skólans eru þeir ekki nemend- ur I venjulegum skilningi þess orðs. Til dæmis njóta þeir engrar lánafyrirgreiðslu né styrkja. Barnaheimili stúdenta eru þeim einnig lokuð. Á móti kemur þó það að allur bðka- kostur er lagður til af stjórn skólans og nemendum að kostnaðarlausu. Hjá flugmálastjóra fengum við þær upplýsingar að þetta námskeið væri fyrst og fremst byrjunin. Þeir menn sem ráðn- ir væru yrðu fleiri mánuði eða jafnvel ár i nokkurs konar nemastarfi úti f flugturni. Fuil starfsréttindi fengju menn ekki fyrr en eftir nokkur ár. Þeir sem sækja um þátttöku f svona námskeiði hafa lokið námi í ólfklegustu greinum. Góður árangur f fyrra námi þarf ekki nauðsynlega að þýða að menn nái einnig góðum árangri f flugumferðarstjórn. Þvf þótti rétt að leyfa þeim mönnum sem helzt komu til greina vegna fyrri menntunar og starfsreynslu (f þetta sinn 27 af 40) að reyna sig f nám- skeiðinu. Þeir sem bezt standa sig fá svo að halda áfram. Enginn er skyldugur til að fara á þetta námskeið og allir hafa jöfn tækifæri til að halda áfram, sögðu þeir hjá flugmála- stjórn. DS. Korchnoi Hollands- meistari Victor Korchnoi varð Hollands- meistari í skák í gær. Hlaut hann 11 vinninga af 12 mögulegum. Hann sigraði Fred van der VÍiet f lokaumferðinni f gær. Korchnoi baðst hælis I Hollandi f fyrra, sem kunnugt er, þegar hann tefldi þar á frægu skákmóti fyrir Sovétrfkin, þar sem hann fæddist og átti heima. Korchnoi teflir við landa sinn Polugajevski f undanúrslitum áskorendakeppninnar um heims- meistaratign í skák. Spassky keppir aftur við Ungverjann Portisch um réttinn til að skora á Karpov. Korchnoi Samkvæmt reglum á þessum undanúrslitum að vera lokið fyrir 1. ágúst næstkomandi. Sýnt þykir að einhver frestun verði á þeim. FIDE hefur enn ekki tilkynnt breytta tilhögun. BS Lögmenn stof na ábyrgðarsjóð Guðjón Steingrfmsson hrl. f Hafnarfirði var endurkjörinn formaður Lögmannafélags Islands á aðaifundi félagsins hinn 1. apríl sl. Aðrir i stjórn eru: Gylfi Thorlacius hrl., Hjalti Steinþórsson hdi., Hákon Árnason hrl. og Jón E. Ragnars- son hrl. Félagar f Lögmannafélaginu eru nú 207, þar af 141 sem rekur lögmannsskrifstofu eða hefur lögmannsstörf að aðal- starfi. Um sl. áramót var stofnaður Ábyrgðarsjóður lögmanna. Markmið sjóðsins er að gera 1,1 fært að bæta að öllu leyti það tjón sem skjólstæðingur lög- manns kann að verða fyrir vegna fjárþrots lögmanns. Féð verður þó að hafa komizt i hendur lögmanns vegna stöðu hans og honum að hafa borið skylda til að varðveita það vegna trúnaðarskyldu sinnar sem lögmaður. Tekjur sjóðsins eru hluti af svokölluðu málagjaldi sem lög- menn. greiða sjálfir við þing- festingu mála. Sjóðseignin er nú rúmar 5 milljónir króna. BS.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.