Dagblaðið - 05.05.1977, Qupperneq 13
DAC.BLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. MAl 1977.
13
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Ingvar Viktorsson, formaður Handknattleiksdeildar FH, Auðunn Óskarsson, Janus Guðlaugsson, Viðar Símonarson, Geir
Bikarmeistarar FH í þriðja sinn: Talið frá vinstri: Ingvar Viktorsson, formaður Handknattleiksdeildar FH, Auðunn Oskarsson, Janus Guðlaugsson, Viðar Símonarson, Geir
Hallsteinsson, Sæmundur Stefánsson, Jón Gestur, Arni Guðjónsson, Þórarinn Ragnarsson og Júlíus Pálsson. Neðri röð: Reynir Óiafsson, þjálfari, Guðmundur Arni Stefánsson,
Birgir Björnsson, Muggur, Guðmundur Ólafsson, Guðmundur Magnússon, Olgeir Sigmarsson og Ragnar Jónsson, liðsstjóri. DB-mynd Bjarnleifur.
f|JS| I;
Mmmk V'&W'M M i : * #éeik
.1 w
Leikreynsla FH f ærði þeim
þriðja bikarsigurinn í röð
FH tryggði sér sigur í bikar-
keppni HSÍ er Hafnarfjarðarliðið
sigraði Þrótt 24-17 suður í
Hafnarfirði í úrslitum í gær-
kvöld. Sigur FH var sanngjarn —
ekki fór á milli mála hvort liðið
var sterkara þó jafnræði hafi
verið með iiðunum í byrjun — og
Þróttur raunar komizt tvö mörk
yfir.
Já, Þróttur byrjaði leikinn af
krafti. — Barátta var góð í liðinu
— vörnin mjög þétt og mark-
varzla Kristjáns Sigmundssonar
mjög góð. Hann lokaði beinlínis
markinu í byrjun. Þróttur náði
forustu 3-1 en sóknarleikurinn
var ákaflega máttlaus hjá liðinu.
Hinir leikreyndu leikmenn FH
fundu sig bókstaflega ekki til að
byrja með og eftir 13 mínútna
leik hafði Þróttur yfir 3-1. Þá fóru
FH-ingar hins vegar að finna
leiðina i netmöskva Þróttar. Eftir
20 mínútna leik hafði FH náð
forustu 4-3 — en Þróttur náði að
jafna 4-4 eftir 25 mínútna leik.
Fram að þessu hafði leikurinn
verið skemmtilegur á að horfa —
barátta mikil þó ef til vill hafi
handknattleikurinn ekki verið
ákaflega góður. En þær mín-
útur sem voru til leikhlés misstu
Þróttarar leikinn alveg úr
höndum sér — ekki var heil brú í
leik liðsins. Þar kom ýmislegt til
— leikmenn Þróttar voru of
bráðir á sér í sókninni. —
Ótímabær skot, lánlausir og síðast
en ekki sízt — engu líkara var en
Hannes Þ. Sigurðsson væri orðinn
áttundi maðurinn í liði FH. Dóm-
gæzla hans á þessum tíma var
ákaflega slök — og kom bikar-
meisturunum greinilega til góða.
Við þetta mótlæti var engu lík-
ara en lið Þróttar brotnaði. FH
náði góðri forustu í leikléi 8-4 —
og fjögur fyrstu mörk síðari hálf-
leiks voru FH — 12-4 og stefndi í
öruggan sigur FH. Þróttur náði
sér aðeins á strik eftir þennan
slæma kafla og náði að minnka
muninn í 15-19 þegar um 10 mín-
útur voru til leiksloka en allt var
um seinan. Leikreynsla FH og
góður leikur tryggðu öruggan
sigur, 24-17.
Það fór ekkert á milli mála
hvort liðið var sterkara í gær-
kvöld — FH. Leikmenn voru hik-
andi í sóknaraðgerðum sínum í
byrjun enda Kristján mjög góður
í marki Þróttar. Þá virtist stefna í
óvænt úrslit — að minnsta kosti
hafði maður það á tilfinningunni.
En slæmur kafli í lok hálfleiksins
varð Þrótti að falli.
Að öðrum ólöstuðum kom
Auðunn Óskarsson bezt út í liði
FH — og áttisinn bezta leik eftir
að hann sneri aftur nú í lok
keppnistímabilsins. Góður
varnarmaður — en í gærkvöld var
hann ekki síður drjúgur sóknar-
maður. Hann skoraði 5 mörk —
þar af þrjú sem fleyttu bikar-
meisturunum yfir erfiðan kafla í
byrjun leiksins. — Hann beinlinis
hélt þeim á 'floti. Eftir að fór að
ganga vel hjá FH náði Geir Hall-
steinsson sér vel á strik — og 6
mörk hans í síðari hálfleik
tryggðu örugga forustu FH.
FH vann sinn þriðja bikarsigur í
gærkvöld — sannarlega góður
árangur. Sigurinn í gærkvöld var
hinn þriðji í röð í bikarnum — en
aðeins eitt lið hefur utan FH
sigrað í bikarkeppni HSÍ —
íslandsmeistarar Vals.
Mörk FH skoruðu: Geir Hall-
steinsson 7, Auðunn Öskarsson 5,
Janus Guðlaugsson og Viðar
Símonarson 3. Jón Gestur og
Guðmundur Magnússon 2, Olgeir
Sigmarsson og Sæmundur
Stefánsson 1 mark hvor.
Kristján Sigmundsson mark-
vörður Þróttar var bezti maður
liðs síns — en einnig var Konráð
Jónsson drjúgur þó hann gengi
alls ekki heill til skógar. Sveinn
Sveinsson skoraði mjög skemmti-
leg mörk með góðum skotum —
en í heild náði 2. deildarlið
Þróttar sér ekki á strik.
Mörk Þróttar skoruðu: Konráð
Jónsson 7, Halldór Bragason 4,
Sveinn Sveinsson 3, Sveinlaugur
Kristinsson 2 og Jóhann Frí-
mannsson 1 mark.
Leikinn dæmdu þeir Karl
Jóhannsson og Hannes Þ. Sigurðs-
son og fórst þeim hlutverk sitt illa
úr hendi — ónákvæmir en
frammistaða Hannesar í leiknum
var kapítuli út af fyrir sig. h halls.
VAÐ-
STÍGVÉL
Verð
1495.-
Stærðir:
27-34
BREIÐHOLT
BREIÐHOLT
Strigaskór
Verð frá513.-
Leikföng
hestamenn
Æfingagallar
Verð frá 3995.-
Veiðivörur
Fótboltar
frá kr. 440.-
Viðleguiítbiínaður t.d.
svefnpokar frá kr. 4.800.-
Fótboltaskór
Sportvöruverzlun Póstsendum
Ingólfs Oskarssonar Lóuhóium 2-6 - sími 75020