Dagblaðið - 06.06.1977, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. JUNl 1977.
rr:: Hátíð í skjólgóðum
lautum Nauthólsvíkur
Mikill inannfjoldi fylgdist með hatioanoidunum i Nauthólsvik i gær.
Jt ). *v h tó M tlSi* /m/ , iijt •Ht -' 'í&r *, ^ f
®ll 0M nrt
Aldrei meira iírval af r
LOFT- OG VEGGUOSUM
Utanbæjarmenn! Lrtiö við íleiðinni
Landsins
mesta
lampaúrval
UÓS & ORKA
Sudurlandsbraut 12
sími 84488
Ekki fylgdust margir með ávarpi sjávarútvegsráðherra, Matthíasar
Bjarnasonar, sem hann flutti í Nauthólsvík í gær. DB-myndir Ragnar Th.
Mikill mannfjöldi fylgdist með
hátíðahöldum sjómannadagsins í
Nauthólsvik í gærdag. Veður var
bjart og sólskin en andvarinn af
norðri var nokkuð svalur. Þrátt
fyrir það var víða gott skjól í
Nauthólsvíkinni og mannfjöldinn
undi sér hið bezta.
Hátíðahöldin voru með hefð-
bundnu sniði, aldnir sjómenn
voru heiðraðir og sjávarútvegs-
ráðherra flutti ávarp. Siðan fór
fram kappróður karla og kvenna.
Hlutskarpastir karla voru sveit
Slippfélagsins, en af hálfu kvenn-
anna var sveit Sláturfélags Súður-
lands hlutskörpust. Hraðbátaeig-
endur sýndu listir sínar og
reyndu með sér og hin nýja þyrla
Landhelgisgæzlunnar flaug yfir
svæðið. Fyrirhugaður hafði verið
koddaslagur en það hafði fjarað
svo mikið út að hætta varð við
slaginn.
í fyrradag var vígt hið nýja
dvalarheimili DAS í Hafnarfirði.
Viðstaddir voru m.a. sjávarút-
vegsráðherra og biskup íslands.
Sjómannadagurinn var haldinn
hátíðlegur út um allt land í gær
og var það gert með hefðbundnu
sniði. -JH
BREYTINGAR A
LEIÐAKERFISVR
í BREIÐHOLTI
Breytingar á leiðakerfi SVR í
Breiðholti tóku gildi 1. júní.
Leiðir 14 og 15 voru lagðar niður,
bætt við vagni á leið 11, leið 13
verður gerð að hraðferð allan dag-
inn með 30 mín. tíðni er ekur að
Lækjartorgi og hættir viðkomu á
Hlemmi.
Leið 11 hættir þannig að aka
Arnarbakkahringinn og í stað
þess ekið inn að Breiðholtskjöri:
Síðan verður ekið upp að Öldm
selsskóla annars vegar og Flúða-
seli hins vegar. Vagninn verður á
15 mín. tíðni fyrir Breiðholt I.
Leið 12 verður eins og nú nema
biðtimi verður styttur í Suður-
hólum, en lengdur á Hlemmi.
Ekið verður um Stekkjarbakka,
Alfabakka-Reykjanesbraut í stað
Stekkjarbakka-Breiðholts-
brautar-Reykjanesbrautar.
Leið 13 ekur f gegnum
Breiðholt I á leið í Breiðholt III
og hefur tímajöfnun við Suður-
hóla. Hætt verður að láta vagninn
aka Hverfisgötu að Hlemmi og
suður Snorrabraut. í staó þess aki
vagninn Lækjargötu-Vonar-
stræti-Suðurgötu-Hringbraut.
Með akstri um Suðurgötu næst
tenging við Háskólasvæðið og
hluta af vesturbænum.
Hér er um reynsluakstur að
ræða á tímabilinu 1. júní— 1. okt.
Ný leiðabók er væntanleg, en yfir-
vinnubannið tefur hana nokkuð.
- JH
Hópferðin austur á
Þjórsárbakka yf irsjón
—segir forstöðumaður
Upptökuheimilisins í Kópavogi
„Ákvörðunin um að leyfa
hópi stráka frá Upptökuheimil-
inu í Kópavogi að fara undir
eftirliti til hvítasunnumótsins á
Þjórsárbökkum var yfirsjón.
Það sjáum við nú eftir á,“ sagói
Kristján Sigurðsson forstöðu-
maður Upptökuheimilis ríkis-
ins í Kópavogi er hann ræddi
málið við DB vegna fréttar um
þessa för. „Við reiknuðum ekki
með að mótshaldið yrði svona
laust í reipunum. Áður hefur
tekizt vel með ferðir unglinga
frá heimilinu til útiskemmtana,
t.d. á skátamótið á Úlfljótsvatni
í fyrra.“
Kristján vildi koma fram
skýringum við tvennt í frásögn
DB frá ferð vistmanna á Upp-
tökuheimilinu. Hann kvað föi-
ina ekki farna á kostnað skatt-
borgara. Ávísunin frá Upptöku-
heimilinu sem aðgangseyririnn
var greiddur með, er að hluta
til ógreidd vinnulaun til ung-
mennanna, en heimilinu er
leyft að greiða þeim kaup fyrir
vinnu sem þeir inna af
höndum, t.d. málningarvinnu
og lagfæringu á lóð. Kaupið er
þá 170 kr. á tímann. Að hluta
var svo um lán að ræða til ein-
stakra vistmanna.
I öðru lagi vildi Kristján taka
fram að stúlkan sem tekin var
eystra og komið fyrir i
Kópavogi aðfaranótt laugar-
dags fyrir hvítasunnu og var
aftur komin austur daginn
eftir, er ekki vistmaður á Upp-
tökuheimilinu. Sagði Kristján
það leiðan misskilning að ætla
að „lokaða deildin" í grennd
Upptökuheimilsins væri eigin-
legur hluti þess. Þessari lok-
uðu gæzlustöð hefði verið
troðið upp á forráðamenn heim-
ilisins. Þar væri aðeins um að
ræða gæzlu unglinga sem eng-
inn vildi taka við og lögreglan
væri í vandræðum með. Væru
þeir þar sjaldnast nema
nokkrar klukkustundir og væru
leystir út að morgni eins og
tiðkaðist þá er fólk lenti í
fangageymslum lögreglu.
Kristján sagði að þvi miður
hefði hvítasunnuferðin verið
mistök. Brotlegum eftirlits-
mönnum hefði verið refsað. Oft
væri starfið erfitt því til heim-
ilisins kæmu vistmenn ekki
fyrr en flest ánnað hefði verið
reynt án árangurs, og vanda-
málin væru mörg.
DB hefur haft af því spurnir
að menntamálaráðuneytið. sem
Upptökuheimilið heyrir undir.
rannsaki nú sérstaklega atburö-
ina unt hvítasunnuna.
-ASt.