Dagblaðið - 21.06.1977, Blaðsíða 1
9
3. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1977 — 129. TBL. BIT.STJÓRN SÍÐUMÚLA AUGLVSINGAR ÞVERHOLTI II,- AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 2 — Al)ALSlMI_2702j*
áháð
dagblað
Samningamenn ímorgun:
„Samningamir era búnir”
eða að klárast
Byggingarmenn lögöu í nótt
fram tillögur, þar sem þeir gefa
nokkuö eftir um álög í upp-
mælingu. Helgi taldi, að þessar
tillögur mundu leiða til sátta í
dag. Ekki er frágengið um
fyrirkomulag um bónus í
frystihúsum, en talið er að þar
náist saman í dag og einnig hjá
rafvirkjum og fleiri. Samninga-
menn töldu í morgun, að nú
mundi ganga saman um það,
sem eftir er, nema kannski í
kjaradeilunum í álverinu.
„Samningarnir hljóta að verða
undirritaður á þessum sólar-
hing,“ sagði Helgi Guðmunds-
son.
„Samningarnir eru búnir,"
sagði einn af helztu samninga-
mönnunum í morgun. „Þetta er
allt á lokastigi hjá okkur," sagði
Helgi Guðmundsson, formaður
samninganefndar b.vgginga-
manna, en kjaramál þeirra hafa
verið versti hnúturinn í
samningum síðustu sólar-
hringa.
Fundum lauk klukkan sex í
morgun.
Öll pappírsvinna er eftir, en
það er mikið fyrirtæki.
Vinnuveitendur neituðu í gær
að skrifa undir aðal-
samninginn. sem er tilbúinn,
fyrr en gengið hefði verið frá
einstökum málum félaga.
Hætt var við alisherjarverk-
fallið, sem átti að- verða í dag,
eftir tilmæli frá aðalsamninga-
nefnd Alþýðusambandsins.
Yfirvinnubann hefur víðast
verið afnumið.
Rétt er að taka fram, að
samkomulag um, að verzlunar-
ménn fengju jafna aðild að líf-
Jon Skaftason alþingismaður og sáttanefndarmaður er hér að lesa
kröfur byggingamanna hafa verið versti hnúturinn í samningunum.
son, Benedikt Davíðsson, formaður Sambands bvggingamanna,
Stephensen og Grétar Þorleifsson. Mynd. Sv. Þ.
byggingamönnum lexiu i nött og ýta þeim til samninga. Deilur um
Fulltrúar þeirra sitja við kaffiborðið. Frá vinstri: Grétar Þorsteins-
Helgi Guðmundsson, formaður samninganefndarinnar, Magnús
eyrissjóði verzlunarmanna í
haust, var skilyrt af hálfu
vinnuveitenda. Jöfn aðild mun
byggjast á þvi, að einróma sam-
komulag verði um endurskipu- sameiginlegri
lagningu lífeyrissjóðsins í verður skipuð.
nefnd,
sem
-HH.
Sólarhringsverkfall íStraumsvík:
STARFSMENN ÍSALS SJÁ
FRAM Á HARÐNANDIÁTÖK
Sólarhringsverkfall í ál-
verinu í Straumsvík hófst á
miðnætti sl. Kjaradeilu starfs-
manna þar við stjórn Isals var í
gær vísað til sáttasemjara.
Hefur það aldrei fyrr gerzt í
sögu álversins að ekki hafi
tekizt beinir samningar Isals og
þeirra tíu verkalýðsfélaga serh
aðild eiga að samningum í
Straumsvík.
Á samningafundi á fimmtu-
daginn í síðustu viku óskaði
samninganefnd ísals eftir
frestun á boðuðu verkfalli. Var
því svarað á þann veg, að sögn
heimildarmanns DB úr hópi
verkfallsmanna, að það mætti
vel skoða ef til kæmu ákveðin
tilboð af hálfu stjörnar
álversins. Á öðrum samninga-
fundi í gær kom ekkert slíkt
fram og var deilunni vísað til
sáltasemjara rikisins að ósk
ísals.
Hófst verkfall síðan á
miðnætti. Sjá starfsmenn
álversins fram á harðnandi
átök. Liggur í loftinu að annað
verkfall, ótímasett, verði boðað
i næstu viku, að sögn heimildar-
manns blaðsins í morgun.
Isal gerði í gærkvöld tilraun
til að fá verkfallinu aflýst á
þeirri forsendu að um samúðar-
verkfall með öðrum fyrir-
huguðum verkföllumhefði verið
að ræða. Haldinn var fundur
með sáttasem.iara seint í gær-
kvöld. Hófst verkfallið að
honum loknum. Gera starfs-
menn álversins sér nú vonir um
að ekki verði skrifað undir
heildarsamningana fyrr en
samið hefur veriö við álverið.
ÓV
Starfsmenn álversins i Straumsvík ganga út á miðnætti i nótt pegar
sólahringsverkfallið hófst. Liggur í loftinu að annað verkfall verði
boðað þar suður frá i næstu viku. DB-mynd: Sveinn Þorm.
2400f uglar og meira
en 650 kettir skotnir f
Reykjavík ífyrra
Sjábls.4
Avísanir eru enn bannfærðar
— en útsölust jdrar ÁTVR hafa allt að 200
þúsund á mánuði ímistalningarfé
_______________________ Sjábls.9
Elzta veðurathuganastöð
íheimi er í Stykkishólmi
________________________Sjábls.8
Hvergi fleiri hestöfl
saman komin í f ærri
tryllitækjum
Sjá frásögn af sandspyrnukeppni á bls. 4