Dagblaðið - 21.06.1977, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 21.06.1977, Blaðsíða 12
n DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. JUNÍ 1972. Ármanntók bæði stigin á Selfossi Ármann þokaði sér nær forustuliðum 2. deildar með sigri á Selfossi fyrir austan fjall. Ileldur var leikur liðanna rislítill — samleikur í lágmarki og lítil hugsun i leik beggja liða. Ármenningar voru heldur grimmari í fyrri hálfleik — og skoruðu þá sitt eina mark — en ódýrt var það. Jón Hermannsson tók hornspyrnu. Sendi knöttinn fyrir — þar fór hann framhjá fjölda leikmanna og lullaðist inn í hornið fjær. Ákaflega ódýrt mark. Þrátt fyrir að Ármenningar hafi verið meir með knöttinn gekk þeim illa að skapa tækifæri. Selfyssingar sóttu sig í síðari hálfleik — byrjuðu af krafti. Þeir léku á móti vindinum og yirtist það koma betur út. Þeim tókst að skapa sér nokkur tækifæri sem ekki tókst að nýta. Upp úr miðjum síðari hálfleik komst ungur nýliði, Kári Jónsson, inn fyrir vörn Ármanns. Honum var brugðið illa innan vítateigs en einhver lélegasti dómari sem sézt hefur austanfjalls dæmdi ekkert — hafði ekki kjark til að dæma vítaspyrnu. Það var sama hvort menn voru Selfyssingar eða Ármenningar — allir voru sam- mála um augljósa vítaspyrnu. Ármann fór því með tvö stig frá Selfossi — og hefur nú hlotið 8 stig — aðeins stigi á eftir forustu- liðum 2. deildar. Gísli Sigurðsson dæmdi leikinn — nánast eyði- lagði hann með slakri dóm- gæzlu. Það er lítill fengur að fá slíkan dómara — til þess eins að eyðileggja leik. Heldur dapurt sýnishorn af dómgæzlu hans var þegar Selfyssingur braut greini- lega á Ármenningi — þá var dæmt á Ármann. Selfoss spilaði úr aukaspyrnunni — þá var illa brotið á Selfyssingnum — og þá var dæmt á Selfoss. Hreint voða- legt. Selfyssingar ætla að senda um- sögn um dómgæzlu Gísla til dómarasambandsins — og það að dómarinn skyldi vera með Ármenningum í búningsklefa fyrir og eftir leikinn og einnig í leikhléi hefur aldrei gerzt hér á Selfossi. Nei, Gisli dæmdi með endemum hér á Selfossi. BG Staðaní 2. deild Staðan í 2. deild íslandsmótsins eftir sigur Ármanns 1-0: á Selfossi, Ilaukar 6 3 3 0 8-3 9 KÁ 6 4 1 1 9-5 9 Þróttur, R. 6 4 1 1 10-6 9 Ármann 6 4 0 2 11-4 8 Reynir, S. . 6 3 1 2 9-8 7 Völsungur 6 2 1 3 6-8 5 Isafjörður 6 2 1 3 6-9 5 Selfos's 6 2 0 4 5-7 4 Þróttur, N. . 6 0 3 3 4-9 3 Reynir, Ar, 6 0 1 5 3-12 1 íþróttir HALLUR SlMONARSON 'Það gaf góðan byr á 17. júni. Hér eru þeir Finnur Torfi Stefánsson og Gísli Arni Eggertsson fyrir þöndum seglum en þeir höfnuðu í öðru sæti á Fireball. Mynd: Karl Jeppesen. Góðan byr gaf í segl á 17. júní — Keppt íþremur flokkum. Skozkur landsliðsþjálfari leiðbeinir siglingamönnum Gæfan brosti sannarlega við siglingamönnum er þeir héldu siglingakeppni á kænum í Skerja- firði á 17. júní, þjóðhátíðar- daginn. Þá var keppt i þremur flokkum og var keppnin for- gjafarkeppni. Sigurvegarar i 1. flokki urðu þeir Jón Ölafsson og Sigurður Hjálmarsson en i 1. flokki tóku þátt seglbátar af Fireball, Flipper og Bullet gerðum. I öðru sæli í 1. flokki urðu þeir Finnur Torfi Stefánsson og Gísli Árni Eggerts- son á Fireball — eða eldhnetti eins og tegundin hefur iðulega verið kölluð á íslenzku. í 2. flokki var keppt á bátum af Wa.vfarar, GB 14 og Enterprise gerðum. Þar urðu sigurvegarar Jóhann Gunnarsson og Anna Hrönn Jóhannsdóttir. í þriðja flokki var keppt á bátum af Mirror og Optimist gerðum og urðu sigurvegarar Kristján Oddsson og Gréta Björg- vinsdóttir. Undanfarið hefur dvalizt hér á landi skozki landsliðsþjálfarinn i siglingum — Alister Mitchell. Hann hefur verið hér á vegum Siglingasambands tslands við þjálfun siglingamanna. Mitchell stjórnaði keppninni 17. júní — en alls tóku 35 bátar þátt í keppninni. Ragni ÍPÍI — Hörðogjö Pierre Robert-keppninni lauk a Nesvellinum á sunnudagskvöld. Hörkukeppni var í flestum flokk- um og þurfti að leika bráðabana um hin ýmsu sæti. Endanleg úrslit í mótinu urðu sem hér segir: Meistaraflokkur: karla: 1. Ragnar Ólafsson, GR, 2. Loftur Ólafsson, NK, 3. Jón Haukur NK, 141 143. Guðlaugsson, 144. 145. 4. Sigurður Pétursson, GR, 1. flokkur karla: 1. Tómas Árnason. GR, 38-37=75. 2. Pétur Antonsson, NK,37-39 = 76. 3. -4. Björn Víkingur Skúlason, Pressa í Argc „Hvernig getum við staðið upp- réttir þegar knattspyrnumenn eins og Daniel Bertoni, sem sló Trevor Cherry og Vincente Pernia, sem hrækti á og sló Willie Johnstone, smána nafn Argent- ínu fyrir úmheiminum og þar með setja spurningamerki um hvort við séum færir um að halda næstu heimsmeistarakeppni í knattspyrnu" eru spurningar sem argentínsku blöðin spyrja nú eftir landsleikina gegn Englend- ingum og Skotum. Mikil reiði rikir í Argentínu vegna framkomu þessara tveggja leikmanna og setja Argentínu- menn alla sök á sína menn. Það er Argentínumönnum mikið áhyggjuefni að dómurum í þess- um tveimur leikjum mistókst hrapalega aö dæma vel — og eins hin slæma framkoma argentinsku leikmannanna. Blöðin segja að dómararnir í þessum tveimur leikjum hafi ekki gert Argentínu- mönnum neinn greiða að reka þá Trevor Cherry og Willie John- stone af velli. Þeir hafi alls ekki átt það skilið — og þetta setji Vcrðlaunahafarnir í GR, sem ma'ttir voru á fimmtudagskvöld, ásamt Sigurði Ag. Jenssyni, (lengst til vinstri), sem afhenti verðlaunin. (I)B-mynd Jim). GOLFFRÉ GRAFARI Fimmtudaginn 16. þessa mánaðar fór fram i Grafarholti síðasta „fimmtudagsmót" Golf- klúbbs Reykjavikur. Þá um kvöldið voru afhent verðlaun fyrir öll fimmtudagsmótin fjögur, svo og ýmis önnur mót og fara úrslitin hér á eftir: Þjóðhátíðarmót, (fimmtudagsmót): 1. Markús Jóhannsson, 81-14 = 67. 2. Gunnar Ólafsson, 80-13 = 67. 3. Einar Þórisson, 76-7 = 69. Bezta skor: Óskar Sæmundsson 74. Hvítasunnuhikarinn: Undirbún: Halldór Kristjánsson 81-15 = 66. Guðmundur Vigfússon 86-20 = 66 Urslit: Svan Friðgeirsson vann Eirík Þ. Jðnsson 5-3. Bezta skor: Ragnar Ölafsson 72. Jason Clark: Lárus Arnórsson 81-15 = 66. Johann Sveinsson 89-21=68. Oli Laxdal 79 9=68 68. Bezta skor: Óskar Sæmundsson 75. Arneson-skjöldurinn: F.inar B. Indriðason Hilmar Þórðarson Ragnar Ólafsson Bezta skor: Ragnar Ólafsson 75. Bezta skor kvenna: Jóhanna Ingólfsdóttir 88. 81-14 = 67. 81-9 = 72 75-3 = 72

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.