Dagblaðið - 22.06.1977, Qupperneq 3
1>ACBLAtm). MIÐVIKUDACUU 22. JUNI 1977
3
Veljum íslenzkt — en
svo er það ekki til
— Þeir sem nota yf irstærðir af fötum
eiga í vandræðum með að f á
fötásig
Pétur Vndrésson, Bjarnarstíg
7. hringdi:
Hvimleitt er að heyra sífellt
auglýst veljið íslenzkt en síðan
geta vissir hópar alls ekki valið
íslenzkt því það er ekki til. Hér
á ég við fatnað á stóra og
þrekna tnenn og einnig skófatn-
að. Eg er hár vexti, 1,98 m
á hæð, og þrekinn og nota skó
nr. 47. Sl. 15 ár hef ég engin föt
fengið á tnig nema sérsaumuð.
Eg vildi gjarnan komast i
samband við þá sem hafa föt á
stóra menn, þ.e. yfirstærðir af
skyrtum, bolum, buxum og
skóm. Eg hef leitað víða en ekki
fundið föt við mitt hæfi. Stöku
sinnum hefi ég fengið erlend
föt sem passa mér en það er þó
sjaldgæft og skór. ef þeir fást,
eru mjög dýrir.
OFÆRÐ OG
SJÓNVARPS-
TRUFLANIR
ÁSÚGANDA-
FIRÐI
Rúnar Hallsson, Hjallavegi 17
Suðureyri, hringdi:
Er Súgandafjörður ekki til á
:landakorti Vegagerðarinnar og
Sjónvarpsins? Hvernig stendur
á þvi að við fáum ekki nema
lélega mynd á sjónvarpstækin
vikum saman? Sé hringt í 26000
(skiptiborð) fær maður þau
svör að viðgerð standi yfir'en
ekki batnar ntyndin. Sama á við
sé hringt í viðgerðarmanninn á
ísafirði. Er ekki kominn tími til
að skipta um þá aðila sem eiga
að sjá um þetta? Eg trúi því
ekki að ekki sé hægt að laga
þetta.
Og þá eru það vegamálin. Um
daginn þurfti ég að fara til tsa-
fjarðar nokkra daga í röð og sá
ég þá veghefil við vinnu á veg-
inum, enda var vegurinn eins
og hefluð fjöl. En þessi heflaða
fjöl kom að litlu gagni því á
einni viku fóru tveir demparar
í spað á Botnsheiðinni. Hvers
eiga Súgfirðingar að gjalda í
samskiptum við Vegagerðina?
Af hverju má ekki hefla heið-
ina frá vegamótum á Botns-
heiði út á Suðureyri nema í
úrhellisrigningu? Er þetta lög-
möl s**m Súgfirðingar verða að
Þelr sem nota yflrstærðir af fötum þurfa gjarnan að láta sersauma
á sig föt þar sem þau eru ófáanleg i verzlunum.
sætta sig við eða er þetta ein-
göngu ákvörðun yfirmanns
Vegagerðarinnar á ísafirði?
Mér finnst satt að segja tími til
kominn að sá mæti herra fari
að segja af sér. Við sem búum
hér á Suðureyri förum fram á
það við Vegagerðina og Sjón-
varpið að við séum ekki alger-
lega sett út í kuldann. Við sætt-
um okkur ekki lengur við slíkt
ófremdarástand.
Ég óska þess vegna éftir svör-
um frá vegamálastjóra við
eftirfarandi spurningum:
1. Hvaða maður ræður heflun á
vegum til Suðureyrar?
2. Hvað kostar einn veghefill í
vinnu í einn dag hjá Vega-
gerðinni?
3. Hvað kostaði vegarspottinn
frá vegamótum Botnsheiðar
til Suðureyrar í viðhaldi og
snjómokstri sl. ár?
Eftirfarandi spurningum
vildi ég fá svarað frá Pósti og
sima:
1. Hefur Póstur og sími ekki
nægilega góða tæknimenn í
viðgerðum á endurvarps-
stöðvum sínum úti á landi og
er þá sérstaklega átt við
Stykkishólm og Bæ?
2. Er verra að finna bilanir i
endurvarpsstöð að sumri til
en að vetrinum þegar allt er
á kafi i ófærð?
Suðure.vri við Súgandaf jörð.
Spurnirsg
Hvernig er að verzla í
kaupfélaginu?
— viðskiptavinir Kaupfélags
Borgnesinga teknir tali.
Jenný Halldórsdóttir húsmóðir:
Það er ágætt. Það er allt á sama
stað, matvörur og annað.
Afgreiðslan er yfirleitt góð. Það
vantar þó stundum ýmislegt og þá
verður að fá það frá Reykjavik.
Ragnar Hallsson bóndi, Hallkels-
' staðahlið Kolbeinsstaðahreppi:
Mér finnst það ágætt. Verzla helzt
ekki annars staðar. Ég hef haft
mín aðalviðskipti við kaup-
félagið, enda er ég bóndi. Ég kann
vel við að kaupa allt á sama stað.
Guðbjörg Guðjónsdóttir
húsmóðir: Mér finnst það ágætt.
Það sem er helzt að er að stundum
er litið og ekki nógu gott vöru-
úrval.
Elísabet Jónsdóttir húsmóðir:
Alveg prýðilegt. Hér er gott vöru-
úrval og alls ekki síðra en í
Reykjavík.
Sigurþór Helgason. verkstjóri hjá
Borgarneshreppi: Mér finnst
ágætt að verzla í kaupfélaginu.
Það fæst yfirleitt alltaf það sem
beðið er um.
Gislina Agústsdóttir nemi: Mjög
gott. Góð afgreiðsla. Það mætti þó
vera meira af fötum. Það er ekki
nóg úrval af tízkufatnaði. Þó
kaupi ég yfirleitt þau föt sein fást