Dagblaðið - 24.06.1977, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 24.06.1977, Blaðsíða 9
DACBI.AÐH) KÓSTUDACUK 24. .)UNÍ 1977. Flatey á Breidafirdi: Ferðamenn vaða inn í öll Kús og eru mjög forvitnir — Rætt við Hafstein Guðmundsson þorpið sjálft sé að mestu komið i eyði. í vetur bjugftu þar tveir bændur, en annar mun vera að flytja bú sitt til Skáleyja. Haf- steinn Guðmundsson hefur búið í Flatey í 12 ár og er aðalbústofninn sauðfé. Að sögn Hafsteins eru helztu hlunnindi selur og æðarvarp, annars er varpið einna minnst í Flatey af þeim e.vjum, sem búið hefur verið í á Breiðafirði. „Það er óhætt að sega að lífs- afkoma sé sæmileg hér i Flatey, þótt tilkostnaður sé náttúrlega mikill. Að vetrinum er nóg starf í kringum búskapinn auk undirbúnings undir vorið þar sem hugað er að netum og þess háttar. Annars ættum við að hafa það þannig að við ættum frí yfir veturinn. Við bændur vinn- um alla daga jafnan 16 tíma á sólarhring. Venjulegur iðnaðarmaður er með 140 daga í frí á • ári, þar sem ekki er unnið laugardaga og sunnu- daga. Það væri því ekkert bónda íFlatey linn er búið í Flatey á Breiðafirði góðu búi, þótt Hafsteinn Guðmundsson bóndi í Flatev. Þorpið í Flate.v hefur mikil áhrif á ferðamenn og það er sem menn færist áratugi aftur í timann að heimsækja það. Enn má þó sjá merki um líf og starf, t.d. bát í vör. DB-myndir Hörður Vilhjálmsson. meira þótt við fengjum frí i fimm mánuði að vetrinum." Eyjan er mjög vinsæl af ferðamönnum og nú er verið að byggja tvo sumarbústaði í eyjunni. Annan á starfsmanna- félag Stjórnarráðsins. Þessi hús eiga að falla inn í umhverfið, enda byggð í gömlum stíl með háu risi og litium gluggum." Hafsteinn sagði að sum húsin I þorpinu væri friðuð, en ekki þorpið í heild. „Mörg húsanna hafa ekki neina sérstöðu í sjálfu sér, nema þau eru orðin gömul. Á þeim er enginn sér- stakur stíll og þau eiga sér enga sérstaka sögu eða mjög litla. Hér er mikill fjöldi ferða- manna á sumrin og þeir vaða inn í öll hús og eru forvitnir. Það er þó mikill munur á Islendingum og útlendingum hvað þetta snertir. Útlending- arnir eru mun kurteisari. Þeir eru að vísu forvitnir líka, en framkoma þeirra er allt önnur og betri,“ sagði Hafsteinn þóndi í Flatey að lokum. -JH. Giænland Ferð til Grænlands - þó stutt sé - er engu Jík. í Grænlandi er stórkostleg náttúrufegurð og sér- kennilegt mannlíf, þar er að finna hvor tveggja í senn nútíma þjóðfélag eins og við þekkjum það - og samfélagshætti löngu liðins tíma. Færeyjar Það sem gerir Færeyjaferð að ævintýri er hin mikla náttúrufegurð, ásamt margbreytilegum möguleikum á skemmti- og skoðunarferðum um eyjamar, og síóast en ekki síst hið vingjamlega viðmót fólksins. Ef þú ert einhvers staðar velkominn erlendis - þá er það í Færeyjum. Stórskemmtilegar ferðir sérstaklega fyrir fjölskyldur - starfshópa og félagasamtök. Spyrjið sölufólk okkar, umboðsmenn eða ferðaskrifstofumar um nánari upplýsingar. FLUCFÉLAC /SLAJVDS LOFTLEIDIR V \ i BS I ,rferóir 1 sinm ' Áætlunarferðir 4 sinnum i viku ■ ■

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.