Dagblaðið - 24.06.1977, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 24.06.1977, Blaðsíða 24
Útflutningur Búvörudeildar SÍS á lambakjöti: RÍKIÐ BORGAR 2 MILLJÖN- IR Á DAG MEÐ KJÖTINU Norðmönnum „gefnar” 430 millj. með kjötinu og öðrum þjóðum 330 miilj. Búvörudeild SlS flytur á þessu ári út samtals 4600 tonn af lambakjöti. Fara 2900 tonn til Noregs en 1700 tonn til Sví- þjóðar, Færeyja og til annarra landa. Nú sem fyrr greiðir ríkissjóð- ur þann mismun sem er á sölu- verðinu til hinna ýmsu þjóða og því verði sem bændum er reiknað þá er þeir leggja lömb sín inn til slátrunar að hausti til. Verðið sem fæst fyrir lamba- kjötið er langhæst í Noregi en þar fást 384 kr. fyrir hvert kíló. I öðrum löndum fæst mun lægra verð fyrir hvert kíló af lambakjötinu og fer það allt niður í 295 krónur fyrir kílóið, samkvæmt upplýsingum Búvörudeildar SlS. Bændur fengu i haust sem leið 532 kr. fyrir hvert kiló af 1. flokks kjöti en 470 krónur fyrir kjöt sem fór í annan flokk. Ber þarna mikið á milli sölu- verðs til útlanda og þess verðs sem kalla má kostnaðarverð kjöts. Sé reiknað með að allt kjöt sem til Noregs fer sé 1. flokks kjöt nemur „meðgjöfin" með kjötinu þangað rétt um 430 milljónum króna. Sé sömuleiðis reiknað með að allt kjöt sem til annarra landa fer en Noregs sé 1. flokks kjöt, en reiknað með meðalverði milli norska verðsins og hins lægstá er fæst, eða m.ö.o. 340 krónum á kíló, nemur „með- gjöfin" með kjöti sem selt er til Svíþjóðar, Færeyja og annarra landa en Noregs um 330 milljónum. Mikill meiri hluti kjötsins sem út er flutt er 1. flokks kjöt. Alls greiðir því ríkissjóður með útflutningi Búvörudeildar SlS á lambakjöti frá hausti 1976 til hausts 1977 um 760 milljónir króna, — eða rúmar tvær milljónir á dag hvern einasta dag ársins. —A.St./BH fagmannlega aðverki Þegar verið var að huga að bandarísku sjóvélinni, sem kom hingað til lands á þann sögulega hátt að finnsk flugkona nauðlenti ' henni í sjónum alllangt frá landi og hafrannsóknaskip veiddi hana svo upp úr sjónum og flutti til Reykjavíkur, kom í ljós, að þjófar höfðu látið greipar sópa um vélina. Er hún geymd í skýli 3 á flug- vellinum ásamt mörgum öðrum vélum, en ekki er vitað til að neinu hafi verið stolið úr öðrum vélum. Var mælum og siglinga- tækjum stolið og mun þar ekki hafa verið staðið fagmannlega að verki. Lauslega áætlað munu þessi tæki kosta yfir eina og hálfa milljón ný. Ekki liggja flugvirkjar eða flugmenn undir grun bæði vegna handbragðs og þar sem mælarnir bera allir framleiðslunúmer svo þeir fyndust innan árs, væri reynt að nota þá í aðrar flugvélar hér. Sjóvélin er nú í eigu finnsks tryggingafélags. Tómar augntóftir mælaborðsins göptu við ljósmyndaranum er myndað var inni i vélinni i morgun. Litla -G.S. myndin er af vélinni sem búið er að lagfæra eftir volkið í sjónum. DB-mynd: Ragnar Th. TÆKJUM FYRIR 1,5 MILLJ. RÆNT ÚR FINNSKRIFLUGVÉL Á REYKJAVÍKURVELLI — ekkistaöid Vængir taka upp fast áætlunar- flug til Mývatns — Einnig er flogið til Grímseyjar og miðnætursölin skoðuð Flugfélagið Vængir hefur tekið upp fast áætlunarflug til Mývatns. Flogið er daglega og er brottför frá Reykjavíkur- flugvelli kl. 19, en frá Mývatni er farið kl. 21. Fastar flugsam- göngur hafa ekki verið áður milli Reykjavíkur og Mývatns. Að öðru jöfnu verða notaðar Twin Otter skrúfuþotur á flug- leiðinni, en þær taka 19 far- þega. Einnig munu Vængir i sumar.meðan sól er hæst á lofti, fljúga miðnætursólarflug. Flogið er frá Reykjavík kl. 20 og flogið norður fyrir land. Viðdvöl er í Grímsey þar sem menn geta farið í skoðunarferð og horft á miðnætursólina. Svo er drukkið kaffi í félagsheim- ilinu og að því búnu afhent skírteini sem staðfestir að við- komandi hefur stigið norður fyrir heimskautsbaug. Síðan er flogið til Reykjavíkur og veitingar bornar fram i vélinni á heimleiðinni. -JH. Slys á Hafnarfjarðarvegi Umferðarslys varð á Hafnarfjarðarveginum í gær, skammt sunnan við Kópavogsbrúna. Þar ók fólksbifreið aftan á pilt sem var á hjóli. Kastaðist pilturinn upp á vélarhús bílsins og i götuna. Var allljótt um að litast á slysstað en pilturinn hlaut skurði við höggin. En er á slysadeild kom reyndust meiðsli hans ekki alvarleg og minni en við mátti búast. Pilturinn var óbrotinn en mikið skorinn. DB-mynd Sveinn. fijálst, óháð dagblaá FÖSTUDAGUR 24 JTTNl 1977. Upplagseftirlit dagblaðanna: AÐEINS TVÖ BLÖÐ HAFA UNDIRRIT- AÐ SAMN- INGANA —væntanlega gengiðúr skugga um hinínæstu viku Fyrir röskum fimm vikum undirrituðu fulltrúar Dag- blaðsins og Morgunblaðsins samning við Verzlunarráð tslands þess efnis að ráðið kannaði raunverulegar upp- lagstölur blaðanna og dreif- ingu með því að kanna sölu- tölur. Vonir stóðu til að öll blöð tækju þátt 1 þessu en fram- kvæmdastjóri Þjóðviljans hefur sagt í viðtali við DB að Þjóðviljinn verði ekki aðili að þessu. Fulltrúar hinna blaðanna þriggja, Vísis, Alþýðublaðs- ins og Tímans, hafa ekki enn undirritað en fulltrúar tveggja fyrrnefndra lýstu yfir áhuga sínum á því fyrir röskum hálfum mánuði. Þorvarður Elíasson, for- maður Verzlunarráðsins, sagði i gær að hann hafi frestað þessu máli fyrir sitt leyti framyfir samningana, vegna þátttöku sinnar í þeim, en í næstu viku hygðist hann reyna að fá fram skýrar línur um hver ætlaði að vera með og hver ekki. Skýringin á þessari framkvæmd Verzlunarráðs er m.a. að skjólstæðingar þess telja feng í að vita dreifingu blaðanna og sjá þannig mismunandi auglýs- ingagildi eftir blöðum. G.S. Brendan á skammt íNý- fundnaland Nú styttist óðum í Ameríkusiglingu Brendans og skv. upplýsingum flug- umsjónar Loftleiða, en vélar félagsins heyra af og til skeyti frá honum, var hann staddur um 200 sjómílur eða 370 km norðaustur af Nýfundnalandi þann 21. sl. Var þá allt í stakasta lagi. Sfðan hafa eKki heyrzt skeyti, en það þarf ekki að vera óeðlilegt. Miðað við þessa staðsetningu á Brendan enn eitthvað ófarið til Nýfundnalands jafnvel þótt hann hefði hreppt hinn hagstæðasta byr sfðan. -G.S.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.