Dagblaðið - 02.07.1977, Side 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. JULÍ 1977.
5
Ráðuneytið ógildir
nýjar verndunaraðgerðir
Hafrannsóknastofnunar
telur ráðu-
neytið eitt
eiga að hafa
lokaorðið
„Það eru því fyrirmæli ráðu-
neytisins að framangreindar
viðmiðunarreglur komi ekki til
framkvæmda og að fyrri við-
miðunarreglur skuli vera
óbreyttar nema ráðuneytið
ákveði annað,“ segir í niðurlagi
tilkynningar frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu í gær.
Tilefnið er að fyrr í vikunni
tilkynnti Hafrannsóknastofn-
unin að 1. júli skyldu taka gildi
reglur sem kvæðu á um að ef
hlutfall þorsks undir 64 cm
yrði meira en 43% í afla skuli
gripið til skyndilokunar. Fyrri
viðmiðun var 58 cm og 40%.
Gerði stofnunin þetta til að
vernda þriggja ára þorsk sem
vonir eru bundnar við að geti
orðið sterkur stofn, svo og til að
takmarka sem mest sókn í 4 ára
þorsk.
Var starfsmanni
ráðuneytisins tilkynnt þetta
símleiðis en virðist hafa láðst
að láta ráðherra vita.Brást hann
illur við er hann heyrði um
ákvörðunina fyrst í útvarpi.
I fyrrnefndri tilkynningu
ráðuneytisins frá í gær segir
einnig: „Ráðuneytið telur að
slíkar ákvarðanir Haf-
rannsóknastofnunarinnar eigi
að berast ráðuneytinu í tillögu-
formi ásamt rökstuðningi.
Síðan myndi ráðuneytið eiga
viðræður og hafa samráð við
heildarsamtök sjómanna og út-
vegsmanna, auk Fiskifélags
íslands, og að þvi loknu gefa út
reglugerð ef ráðlegt er talið að
gera slíkar breytingar.“
-G.S.
Stuðkvöld — f jöl-
breyttar skemmtanir
um allt land
— með bingói, töfrabrögðum,
eftirhermum og fleiru
Nektardans, eftirhermur,
bingó, töfrabrögð og fleira verður
á dagskránni á svokölluðum
„stuðkvöldum" sem skjóta upp
kollinum víða um land í sumar.
Auk þess verður að sjálfsögðu
dansað á eftir af feikilegu fjöri,
að sögn Alfreðs Alfreðssonar,
mannsins sem stendur á bak við
þessar skemmtanir.
„Við erum búnir að ráða okkur
út um allt land á föstudags- og
laugardagskvöldum fram í
september,“ sagði Alfreð. „Það er
hljómsveit Stefáns P. sem sér um
danstónlistina, Guðmundur Guð-
mundsson hermir eftir og mælir
nokkur orð með búknum, Baldur
Brjánsson töfrar og galdrar og
Villta fílabeinið — öðru nafni
Ivory Wild — dansar.“
A bingóunum er spilað um
utanlandsferðir með Samvinnu-
ferðum. — Stuðkvöldin hófust í
síðustu viku. 1 gærkvöld hafði
hópurinn viðdvöl í Árnesi en í
kvöld verður troðið upp á
Kirkjubæjarklaustri. -ÁT-
Þau sjá um stuðið á
stuðkvöldunum: Frá vinstri eru
Ivory Wild, Baldur Brjánsson,
Guðmundur Guðmundsson,
Gunnar Bernburg, Tarnús og
Alfreð Alfreðsson. Fyrir framan
er Stefán P. hljómsveitarstjóri.
Krakkarnir, sem eru með á mynd-
inni, eru óþægir Þinghyltingar.
DB-mynd Árni Páll.
Höfn í
Homafirði:
Arekstur í
kappakstursbeygju
á hærri og lægri
um 80-90 sentímetrar
I beygjunni frægu. Við áreksturinn fór annar bíllinn, Land Rover
jeppi, á hliðina. Skemmdir urðu taisvert miklar á báðum bilunum
en fólk siapp með skrámur. DB-mynd Vigsteinn Vernharðsson.
Sem betur fer urðu ekki slys
á fólki í þessum árekstri
skammt utan við Höfn í Horna-
firði en bílarnir skemmdust
talsvert. Árekstur þessi varð í
vikunni i beygju einni allsér-
stakri í svonefndri Stekka-
keldu. Annar vegarkanturinn
er allmjög siginn i gljúpan
jarðveg en hærri kanturinn er
allur ein iausamöl.
„Ég hygg að hæðarmunur á
hærri og lægri vegarhrúninni
sé um það bil 80-90 senti-
metrar," sagði Guðmundur Kr.
Svavarsson lögreglumaður á
Höfn í samtali við DB. „Þetta er
því sannkölluð kappaksturs-
beygja, sem við höfum þarna.
Það er orð að sönnu. Horn-
firzkur ökuþór tjáði Dag-
blaðinu.í trúnaði að sjálfsögðu,
að hann æki þessa beygju á 120
kílómetra hraða þegar hann
væri viss um að enginn sæi til.
Oft er búið að aka ofaníburði
í beygjuna til að rétta hana af
en ekkert dugar. Mölin sekkur
niður í undirlagið aftur. Bæjar-
búar kannast orðið við aksturs-
skilyrðin og gæta sín í tíma. Er
þessi árekstur varð voru báðir
bílarnir á um 40 kílómetra
hraða. Annar billinn mun hins
vegar hafa runnið til i lausa-
mölinni. -Vígsteinn/ÁT-
KÍSILIÐJAN VERÐLAUNUÐ
FYRIR SLYSAVARNIR
—hagnaður varð 22,7 milljónir í f yrra
Þorsteinn Olafsson framkvæmdastjóri. tilvinstriá myndinni, tekur við verðlaunum úr höndum fulltrúa
Johns Manvilie Corp. — Ljósmyndastofa Péturs, Húsavfk.
Á nýafstöðnum aðalfundi
Kísiliðjunnar afhenti fulltrúi
Johns Manville Corp. í Banda-
ríkjunum fyrirtækinu fyrstu
verðlaun fyrir beztan árangur í
slysavörnum í þeim fyrirtækjum
sem Johns Manville á í utan
Bandaríkjanna. Er þetta annað
árið í röð sem verksmiðjan fær
þessi verðlaun.
A fundinum kom fram að
reksturinn gekk vel á síðasta ári
og varð hagnaður 22,7 milljónir
eftir að búið var að afskrifa 97
milljónir. Siiluverðmæti afurða
verksmiðjunnar í fyrra varð 865
milljónir. Framleidd voru 21688
tonn af kísilgúr sem var tæpum
10% minna en áætlað hafði verið.
Stafaði það af sölutregðu sem
nú virðist úr sögunni. Var heldur
hægt á framleiðslunni á meðan.
Sem kunnugt erskemmdust þrær
verksmiðjunnar talsvert i
jarðhræringum i vetur en þær
verða allar endurbættar.
Fratnkv:eindastjóraskipti urðu
á árinu er Þorsteinn Olafsson
viðskiptafr:eðingur tók við af
Birni Friðfinnssyni lögfræðingi.
Stjórnarform. er Magnús Jónsson
bankastjóri og tæknilegur fram-
kvæmdastjóri er Vésteinn Guð-
mundsson.
-G.S.