Dagblaðið - 04.07.1977, Side 1
3. VRG. — IVfÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 1977 — 140^TBL. jntSTJÓRN SlÐUMÚLA 12,. AJJGLÝSINGAR ÞVpRHOLTI 11, AFGREIÐ^LA Þ VERHOLTI 2 — ! AÐALSÍMI 2702Í/
Tveir ungir menn sluppu
naumlega úr logandi bíl
— lögreglu-
maðurhlaut
brunasár
Tveir ungir menn áttu fótum
fjör að launa í gærkvöldi kl. 22.24
er eldur kom upp í Moskvitch-
bifreið þeirra rétt við Kópavogs-
brúna.
Eldurinn gaus upp í mælaborði
bílsins og áður en numið varð
staðar var bíllinn kominn út af
háum vegarkantí. Mennirnir tveir
komust með naumindum út úr
bifreiðinni áður en hún varð al-
elda. Sprakk benzíntankur bílsins
rétt eftir að eldurinn gaus upp og
bíllinn logaði „stafna á milli".
Mennirnir sluppu óbrenndir en
farþeginn meiddist i baki og var
fluttur í slysadeild. Lögregla kom
fljótt á vettvang og reyndi að
slökkva eldinn, en við það
brenndist iögreglumaður, hlaut 1.
til 2. stigs brunasár á höndum.
Var gert að sárum hans í slysa-
deild. -ASt.
1»
DB var á staðnum örfáum andar-
tökum eftir að eldurinn kom upp
í bílnum. Lögreglumaður reynir
hér að slökkva eldinn — ár-
angursiaust, en sjálfur hlaut
hann brunasár.
DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
Kortsnoj
fer vel af
stað
vann Polugajevsky
ífyrstu skákinni
Skákeinvígin tvö milli
stórmeistaranna, sem fram
fara til þess að finna áskor-
anda gegn Karpov um
heimsmeistaratitilinn eru
nú hafin. í Frakklandi tefla
Kortsnoj og Polugajevsky
en í Genf tefla Spassky og
Ungverjinn Portisch.
Kortsnoj fór vel af stað og
vann fyrstu skákina gegn
landa sínum, eftir að hún fór
fyrst í bið.
Rólegra var hjá Spassky
og Portisch. Lauk tilþrifalíf-
illi skák þeirra með jafntefli
eftir 21 leik.
-ASt.
Niðurgreiðslurnar:
Ágreiningi í ríkisstjórn lauk
með „málamiðlun”
Samkomulag um „málamiðl-
un“ náðist í ríkisstjórninni
eftir miklar deilur um niður-
greiðslurnar, sem átti að auka
til að stuðla að lausn kjaradeil-
unnar. Framsóknarflokkurinn
og SÍS vildu auká mjög mikið
niðurgreiðslur á kjöti, en
forystumenn Alþýðusambands-
ins voru lítið hrifnir af því.
Sjálfstæðismenn í ríkisstjórn-
inni höfðu nokkuð svipaðar
skoðanir og forysta ASt í þessu
máli.
ASÍ-menn vildu fyrst og
fremst auka niðurgreiðslur á
verðlækkuná
búvörum ídag
mjólk. Pað kæmi jafnast niður.
Eftir talsvert þóf í rlkisstjórn-
inni hefur nú orðið ofan á að
auka niðurgreiðslur á kjöti, en
þó minna en Framsóknarmenn
vildu. Einnig hafa niðurgreiðsl-
ur verið auknar á mjólk og
smjöri.
„Ég er þersónulega al-
mennt á móti niðurgreiðslum.
Tel þær vera nokkurs konar
blekkingu," sagði Karl Steinar
Guðnason, varaformaður
Verkamannasambandsins, í
viðtali við DB. Hann ræddi um
möguleika verzjunarinnar að
svíkja undan söluskatti. „Ég
býst við, að fleiri séu sama
sinnis og ég,“ sagði Karl. „Með
niðurgreiðslupólitík er bara
verið að taka úr öðrum
vasanum og setja í hinn.“
Með auknum niðurgreiðslum
lækkar verð á sumum helztu
landbúnaðarvörum í dag.
Kindakjöt lækkar um allt að
15%. Hvert kíló af súpukjöti
lækkar úr 758 krónum i 667.
Mjólk í lítra púkkum lækkar
um 4 krónur, og fernan úr 160
krónum í 152 krónur. Heild-
söluverð kindakjöts í heilum og
hálfum skrokkum lækkar úr
555 krónum kílóið í 472, og smá-
söluverðið úr 719 krónum í
636. Kílóið af 1. flokks smjöri
lækkar úr 1189 krónum í 1096.
Verð á nautakjöti verður
óbreytt. Hins vegar hækkar
verðið á rjóma, osti og undan-
rennu, í framhaldi kjara-
samninganna. Kvarthyrnan af
rjóma hækkar úr 181 krónu í
189, kílóið af 45% osti úr 1010
krónum í 1040 og undanrennu-
lítrinn úr 42 í 44 krónur.
HH
Megum viðkynna:
BÍSI0G KRIMMI
— ný teiknimyndasaga á bls. 2
Dagblaðið hefur fengið
einkarétt á nýrri íslenzkri
teiknimyndasögu eftir Sigurð
Örn Brynjólfsson og hefur hún
göngu sína í blaðinu í dag.
Nefnist hún Bisi og Krimmi og
fjallar hún um tvo fanga og líf
þeirra innan veggja fangelsis-
ins. Þeir kumpánar sleppa þó
stundum út fyrir múrana, en
eru yfirleitt komnir inn aftur
daginn eftir. Ýmsar aukaper-
sónur koma siðan fram bæði
innan og utan fangelsisveggj-
anna. Hver saga er sjálfstæð
heild.
Sigurður Örn lauk prófi frá
auglýsingadeild Myndlista- ög
handiðaskóla íslands og fór síð-
an til framhaldsnáms í Hol-
landi. Hann hefur teiknað fyrir
sjónvarp, t.d. auglýsingu Iðnað-
arbankans um krónuna og hann
vinnur nú að fyrstu löngu ís-
lenzku teiknimynþinni, um
Þrymskviðu, og fékk til þess
starfslaun listamanna árið
1975. Sigurður starfar nú sem
teiknari hjá Auglýsingaþjón-
ustunni.
Sigurður örn byrjaði að
skapa þá Bísa og Krimma sl.
haust. Hann sagði í viðtali við
Dagblaðið að svona fígúrur þró-
uðust í vinnslu. Hugmyndir
sagðist hann fá hér og þar, en
einnig settist hann niður og
upphugsaði eitthvað sniðugt
sem hann festi á blað. Þessar
hugmyndir útfærði hann síðan
í næði síðar meir.
Þess má geta að lokum að
Sigurður Örn mun taka að sér
aðalkennslu við auglýsinga-
deild Myndlista- og handíða-
skólans næsta vetur.
-JH.
Bísi og Krimmi ásamt skapara
sínum, Sigurði Erni Brynjólfs-
syni, utan múranna í gær.
DB-mynd Bjarnleifur.