Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 7
| DACBLAÐIÐ. MANUDAC.UK 15. Ar.UST 1977.
7
Amnesty Intemational:
Áhyggjur vegna heilsufars
Baader-Meinhof skæruliða
— fólkiö er íhungurverkfalli til aö leggja áherzlu á
kröfur sínar um aö fá aö vera saman
Lundúnadeild mannréttinda-
samtakanna Amnesty
International hefur lýst yfir
áhyggjum sínum vegna heilsufars
um þaó bil þrjátíu meðlima
Baader-Meinhof samtakanna
þýzku. Fólkið er nú allt i hungur-
verkfalli til að leggja áherzlu á
kröfur sínar um að fá að vera
saman í klefum.
Amnestymenn telja að líf
fólksins kunni að vera í hættu.
Það hóf aðgerðir sínar í síðustu
viku. Upphafið áttu átta fangar í
Stammheimfangelsinu t Stutt-
gart. Þeir voru settir í
einangrunarklefa eftir átök við
fangaverði.
Meðal þeirra sem neita að eta
og drekka eru forsprakkar
hópsins, Andreas Baader, Jan-
Carl Raspe og Gudrun Ensslin.
Amnesty International sagðist
hafa sent dómsmálaráðherra
Vestur-Þýzkalands, Hans-Joehen
Vogel, skeyti þar sem farið var
fram á sem nákvæmastar upp-
lýsingar um líðan fanganna.
Sömuleiðis var dómsmála-
ráðherra Baden-Wuerttemberg,
dr. Traugott Bender, beðinn um
upplýsingar. Mannréttindasam-
tökin tóku það fram í skeytum
sínum til ráðherranna að
áhyggjur þeirra væru einungis til
komnar af mannréttindaá-
stæðum.
Það þykja nú varla tiðindi lengur þótt Andreas Baader sé í
hungurverkfaili. Nú hafa Amnesty International hins vegar lýst
yfir áhyggjum vegna hcilsu hans, og fieiri í liðinu.
Leðurstígvél
á hagstæðu
verði
Litur:
Brúnt og
svart.
Verð
kr. 8.760
SKÓSEL
Laugavegi 60
Sími 21270
Litur:
Brúnt
Verð
kr. 9.400.-
Þessi hœll er 9 cm.
Eru líko til
með 6V2 cm.
Fyrsti farþeginn
og fyrsti
flugmaðurinn hittust
Fyrsti flugmaður og fyrsti far-
þegi svissneska flugfélagsins
Swissair hittust i Genf á laugar-
daginn. Þeir höfðu ekki sézt í 55
Erlendar
fréttir
ár, eða síðan þeir urðu samferða
frá Genf til Niirnberg í Vestur-
Þýzkalandi.
Eftir mikla leit tókst Swissair
seint og um síðir að hafa upp á
fyrsta farþega sínum, Jean-Louis
Moriaud, í Buenos Aires. Honum
var síðan boðið til Genfar, þar
sem hann hitti Henry Pillichody
flugmann.
Það varð að vonum fagnaðar-
fundur hjá gömlu mönnunum.
Moriaud er 71 árs og Pillichody
84ra. I tilefni dagsins bauð
Swissair þeim upp á kampavín úti
við flugvélina
Fimmbura-
fæðing ííran
Dagblað í Iran skýrði frá því í
morgun að kona nokkur í þorpi í
norð-vesturhluta landsins hefði
nýlega fætt fimmbura. Öll lifðu
börnin við fæðinguna og heilsast
nú vel. Sömuleiðis kvað blaðið
móðurina vera hressa eftir at-
vikum.
Tvö barnanna eru drengir og
stúlkurnar þrjár. — Fátítt er að
fimmburar lifi aiiir af fæðinguna,
en þó eru þess dæmi.
REUTER
4, sími 14350
PÓSTSENDUM
0KKAR STÓRK0STLEGA
HAUST
ÚTSALA
HÓFSTÍDAG
GÍFURLEG
VERÐ-
LÆKKUN
r
A
ÖLLUM
VÖRUM
Biipgi/ii'j Gíslassfj
SG-hljónjplötur
Nýfrábærplata:
BJÖRGVIN GÍSLAS0N
Þá erhiín komin, platan sem beðið hefur verið eftir. „Sóló-plata” Björgvins Gíslasonar:
Tónskáldið Björgvin og hljóðfæraleikarinn Björgvin. Mikill fjöldi þekktustu söngvara
og hljóðfæraleikara aðstoðar Björgvin Gíslason á þessari stórkostlega góðu plötu hans
— þetta er platan sem talað verður um og hlustað verður á aftur og aftur og aftur.
Mynd á hljómplötuumslagi gerði listamaðurinn Alfreð Flóki. SG-hljómplötur