Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 28
Kflgur gerast stöðumæla verði
Það bíður hans smáglaðningur þegar hann kemur út. DB-mynd R.Th. Sig.
Enn ryður kvenfólkið sér
braut í nýjum starfsgreinum.
Um mánaðamótin júni/júlí hóf
Þuríður Kristjánsdóttir störf
sem stöðumælavörður í Reykja-
vík. Við hittum hana á götu
fyrir helgi og ræddum stuttlega
við hana.
— Hvað kom til að þú hófst
einmitt þetta starf, Þuríður?
„Ég hef núna undanfarna
vetur unnið sem gangbrauta-
vörður inni við Langholtsskóla
en þar er náttúrlega ekkert að
gera á sumrin svo ég sótti um
afleysingar sem stöðumæla-
vörður. Ég er búin að vera lengi
í gangbrautavörzlunni, eina 6
eða 7 vetur, og er líklega einna
elzt í því starfi af þeim sem‘
vinna núna.“
— Hvernig tóku svo karlarn-
ir þér þegar þú byrjaðir í
þessu?
„Þeir hafa tekið mér ágæt-
lega. Ég þarf ekki að kvarta
yfir því. Borgararnir hafa líka
lítið sagt en einn og einn lætur
mann þó heyra það. Flestir
glápa svolítið á mig og eru að
reyna að sjá hvaða merki það er
sem er á húfunni minni.“
— Eru ekki eingöngu konur í
gangbrautavörzlunni ?
„Jú, það held ég megi segja.
Upphaflega var auglýst eftir
konum og þá sótti ég um. Nú
má víst ekki auglýsa svoleiðis
lengur."
— Er það ekki dálítið kalsa-
samt starf á veturna?
„Nei, nei, læt ég það allt
vera. Ég vil allt til vinna að geta
verið úti við. Maður verður svo
hraustur á þessu, fær aldrei
kvef eða neitt.“
— Verðurðu lengi í stöðu-
mælavörzlunni?
„Nei, ég verð út ágúst og þá
hef ég aftur störf við gang-
brautirnar."
- DS
Ekkert lát á
hitabylgjunni:
Sama hitastig á Galtarvita og Mallorca ímorgun
Hitabylgja gekk yfir landið um
helgina, — og stendur raunar enn
yfir. í morgun kl. 6 var sama
hitastig á Galtarvita og á Palma
Mallorca, 15 stig! Mesti hiti um
helgina mældist 24 stig á Staðar-
hóli í Aðaldal kl. 18 í gær. Þá var
19 stiga hiti á Hveravöllum sem
er hæsta hitastig sem þar hefur
mælzt frá upphafi hitamælinga
þar. Svipaða sögu er að segja frá
Sandbúðum, þar var hiti 18 stig
kl. 18.
í Reykjavík komst hiti í 20 stig
um miðjan dag í gær. Samkvæmt
upplýsingum Guðmundar Haf-
steinssonar veðurfræðings hald-
ast hlýindin áfram. Bjóst hann
við að hiti færi kannski upp í 16
stig í Reykjavík í dag en norðan
heiða fer hiti yfir 20 stig. Attin
verður áfram austlæg, kannski
einhver rigning sunnanlands en
bjart fyrir norðan. Þetta hlýja
loft er komið sunnan úr iðnaðar-
héruðum Evrópu og er að sögn
veðurfræðingsins mengað brenni-
steini og öðrum stórhættulegum
efnum. Strekkingsvindur fylgdi
menguninni, 5-6 vindstig í
Reykjavík í gær og 8-9 vindstig á
Stórhöfða í Vestmannaeyjum.
Það er hlýtt veður sunnanlands,
— bara beðið eftir sólinni. Kannski rofar til fyrir haustið, hver veit?
-DB-mynd Hörður.
H jalteyringar á lokuðum f undi:
HELZT Á FÆRIKEA AÐ
GÆÐA EYRINA LÍFIÁ NÝ
Hreppsnefnd Arnarnes-
hrepps mun á næstunni leita
eftir stuðningi Kaupfélags Ey-
firðinga (KEA) til kaupa á
Kveldúlfseignum Landsbanka
tslands á Hjalteyri. Var gerð
samþykkt þar um á almennum
hreppsfundi nyrðra á laugar-
dagskvöldið.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem DB hefur aflað sér af
fundinum, sem var lokaður ut-
anhreppsmönnum, er hug-
myndin sú að leita eftir þvi við
KEA að kaupfélagið beiti sér
fyrir atvinnurekstri af ein-
hverju tagi á Hjalteyri, en
hreppsfélagið eignist a.m.k.
landið ofan verzlunarlóðarinn-
ar Hjalteyrar, þ.e. Eyrarinnar
sjálfrar.
Meðal heimamanna er mikill
áhugi á að hreppsfélagið eign-
ist allar eigur Landsbankans í
hreppnum en sú skoðun mun
hafa verið ráðandi á fundinum
á laugardagskvöldið, að það
væri helzt á færi KEA að gæða
Eyrina lífi á ný.
Á fundinum kom fram að
hreppsnefnd hefur áður hreyft
því við stjórn KEÁ hvort kaup-
félagið væri fúst til viðræðna
um framtíð Hjalteyrar. Hefjast
nú á næstunni alvarlegar við-
ræður þar um. Verður boðað til
annars almenns hreppsfundar
þegar málin hafa skýrzt.
Landsbanki tslands hefur
auglýst eignir sínar á Hjalteyri
og í Arnarneshreppi til sölu og
vilja heimamenn með öllu móti
koma í veg fyrir að þær eignist
ótilgreindir „fjármálaspekúl-
antar".
-ÓV.
fijálst, úháð dagblað
MANUDAGUR 15. AGUST 1977.
Flutt
slösuð
íflugvél úr
Kerlingar-
fjöllum
Ung stúlka var sótt í f\ug-
vél inn í Kerlingarfjöll á
laugardaginn. Hafði htjn
hlotið höfuðmeiðsli og þótti
réttara að hún kæmist fljótt
undir læknishendur. Er í
bæinn kom varð ljóst að
meiðslin voru minni háttar
og mun stúlkan halda aftur
inn til fjalla eftir nokkra
daga, en þar dvelur hún í
hópi fólks er nýtur sumars
þar innra.
DB fékk þær upplýsingar
hjá skíðaskólanum í Kerl-
ingarfjöllum að um 90 börn
væru þar nú við skíðaiðkun
hjá skólanum. I fjöllunum
væri einnig hópur frá Ferða-
félaginu og þó nokkuð mikið
af fólki sem ferðast og dvel-
ur þarna á eigin vegum.
Kerlingarfjöllin eru því fjöl-
mennur og vinsæll sumar-
dvalarstaður.
- ASt.
Norðurkolla
í Norræna
húsinu
„Þetta er í fyrsta sinn,
sem mót ?.f þessu tagi er
haldið hér á íslandi og enn-
þá eru Grænlendingar ekki
með,“ sagði Jónas Eysteins-,
son hjá Norræna félaginu í
viðtali við Dagblaðið í morg-
un. Kl. 9 var sett fyrsta
Nordkalottenráðstefnan hér
á landi og er hún haldin í
Norræna húsinu.
Þingfulltrúar eru um 100
talsins og allir frá þeim hér-
uðum Finnlands, Svíþjóðar
og Noregs, sem liggja við eða
fyrir norðan heimskauts-
baug. Hafa þeir haldið með
sér reglulegar ráðstefnur
um vandamál þessara hér-
aða allt frá árinu 1960, en
eins og gefur að skilja eru
þau um margt lík þeim erfið-
leikum í atvinnu- og menn-
ingarmálum sem við eigum
við að glíma.
-HP
Slegizt og
sparkaðá
Akranesi
Til blóðugra átaka kom á
dansleik í hótelinu á Akra-
nesi aðfaranótt sunnudags-
ins. Aðkomumaður á hótel-
inu varð fyrir allmiklum
meiðslum er sparkað var í
háls hans eftir átök. Blæddi
mikið og leit þetta illa út.
Gert var að sárum mannsins
í sjúkrahúsinu. Atti hann þó
erfiða nótt en mun nú vera á
góðum batavegi.
- ASt.