Dagblaðið - 18.08.1977, Blaðsíða 24
frýálst, óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 18. ÁGUST 1977.
Eldur laus
í skemmu
hjá KEA
Vaktmaður í skemmum
KEA á Oddeyrartanga varð í
nótt var við reyk í húsinu og
kom í ljós að hann stafaði
frá eldi er kviknað hafði við
kynditæki. Slökkvilið réð
fljótt niðurlögum eldins í
kyndiklefanum.
Nokkur reykur fór vítt um
húsið en tjón er talið óveru-
legt því þarna var lítið um
verðmæti. I húsinu er tekið
á móti fiski af smábátum og
honum dreift svo til jafn-
óðum til fisksala í bænum og
nágrenni. A.St.
Líkfundurvið
Akurey
Er togarinn Þormóður
goði var að sigla inn til
Reykjavíkur í gærdag sáu
skipverjar lík í sjónum
nálægt Akurey. Beið skipið
komu tollbáts með lögreglu-
menn innanborðs sem sóttu
fundinn. Ekki var enn [
morgun vitað hvers lík þetta
var. Málið er í rannsókn.
ASt.
Dollarinn
yfir 200
króna
strikiðstrax
í næstu viku
„Dollarinn er á kr. 198.50.
Það er okkar skráða gengi.“
sagði hagfræðideild Seðla-
bankans í gær. Nýtt gengi
verður ekki skráð fyrr en á
hádegi í dag. 198.50 er sama
gengi og skráð var á hádegi í
gær. í fyrradag var það
198.10.
Þrátt fyrir erfiða stöðu
dollarans undanfarið hefur
íslenzka krónan sigið í
gengi gagnvart honum. Ef
þetta sig heldur áfram eru
allar horfur á því að Banda-
ríkjadollar fari í kr. 200.00 í
næstu viku ef aðrar og
meiriháttar breytingar
verða ekki á gengi íslenzku
krónunnar. BS._
Að sögn Einars og Kristins
Kristinssonar, forstjóra og eig-
enda fyrirtækisins, mun
vinnsla ekki hefjast aftur fyrr
en síldveiði hefst I haust.
Sögðu þeir að ætlunin væri
að vinna loðnu á vertíðinni
eftir áramót. Frekari vinnsla
væri ekki ákveðin næstkom-
andi vetur.
„Ástæðan fyrir stöðvun
frystihússins er erfið rekstrar-
afkoma," sagði Kristinn Krist-
insson.
„Ökleift er að reka hrað-
frystihús með árangri eins og
er og við tókum því þá ákvörð-
un að stöðva nú og athuga okk-
ar gang. Við höfum lengi átt við
hráefnisskort að stríða og nú
eftir hækkað fiskverð og launa-
hækkanir er því miður enginn
grundvöllur undir rekstrin-
um,“ sagði Kristinn ennfremur.
„Annars er enginn bilbugur
á okkur hjá Sjöstjörnunni, við
teljum að núverandi erfiðleikar
í sjávarútveginum muni ganga
yfir og með auknu fiskmagni á
komandi árum mun það sýna
sig að hraðfrystihús eins og Sjö-
stjarnan mun mala þjóðarbú-
inu gull,“ sögðu Einar og Krist-
inn Kristinsson að lokum.
Nýlega seldi fyrirtækið vél-
bátinn Hilmi og væntanlega
verður gengið frá sölu skuttog-
arans Dagstjörnunnar til fyrir-
tækjanna Keflavíkur hf. og
Miðness hf„ Sandgerði, sem
bæði reka fiskvinnslu.
-ÓG
„Ósvífín fullyrðing”
— segir Björn Jónsson forseti ASÍ
„Ég hef varla heyrt öllu
ósvífnari fullyrðingu og á varla
orð til að lýsa vanþóknun minni
á slíkum ummælum og þeim
hugsanagangi sem að baki þeim
liggur," sagði Björn Jónsson
forseti Alþýðusambands
Islands í viðtali við DB í gær.
Orð þessi viðhafði hann
vegna ummæla Arna
Benediktssonar forstjóra
Kirkjusands hf. um afstöðu
samningamanna í júlísamning-
unum.
Kom þetta fram í viðtali
Árna við DB í gær og var
þannig:
„Ég tel þó víst að flestir þeir
sem að samningunum um
launin stóðu þá hafi treyst á að
samningarnir yrðu meira og
minna ógiltir í raun.“
„Við fulltrúar launþega töld-
um okkur vera að semja um
launakjörin við nokkurn veg-
inn heiðarlega menn og vorum
að sjálfsögðu í góðri trú um að
verið væri að gera raunveru-
lega samninga sem tryggja
mundu umbjóðendum okkar
raunverulegar kjarabætur,"
sagði Björn Jónsson.
Hann benti á að útreikningar
Þjóðhagsstofnúnar hefðu sýnt
fram á getu atvinnuveganna til
að bera umsamdar kjarabætur í
það minnsta þetta ár. Hins
vegar hefðu verið deildar
meiningar um framtíðina eins
og eðlilegt væri.
„Eg tel þess vegna afskap-
lega furðulegt að fara allt í einu
að rjúka í að fullyrða núna að
allt sé að fara í kaldakol í at-
vinnurekstrinum," sagði Björn
ennfremur.
Um afkomu sjávarútvegs
sagði hann að ekki væri hans
að svara úm en hann efaðist
aftur á móti ekki um að sjávar-
útvegur á Suðurnesjum stæði
verr heldur en annars staðar á
landinu.
„Þetta er ekki nein ný bóla
og hefur raunar verið augljóst
mál undanfarin ár,“ sagði
forseti ASÍ.
Gengislækkunarkröfu for-
ráðamanna sjávarútvegs
sagðist Björn Jónsson telja
vafasama, ekki sízt fyrir sjávar-
útveginn sjálfan.
„Ég veit ekki betur en að mjög
margir kostnaðarþættir við
útgerð og fiskvinnslu séu af er-
lendum toga að miklu leyti.auk
þess sem flest lán eru gengis-
tryggð.
Gengisfelling er því engir.
lausn fyrir sjávarútveg, í það
minnsta ekki til langs tíma
séð.“ ÓG
Allri fiskvinnslu verður hætt
næsta föstudag í frystihúsi Sjö-
stjörnunnar í Njarðvík. Undan-
farið hafa unnið þar 50—70
manns en eftir næstu helgi
verður starfsfólk 10—12.
Sjöstjarnan var afkastamesta
frystihús á Suðurnesjum síðast-
liðið ár og er eitt stærsta og
fullkomnasta fiskiðjuver hér á
landi. Er þetta fyrsta stóra
frystihúsið sem lokar nú en
hraðfrystihúsaeigendur telja
ekki neinn grundvöll fyrir
rekstri húsanna.
Jónas Haralz bankastjóri Landsbankans:
„AFK0MA SiAVARUTVEGS GÓÐ
FRAM Á ÞETTA ÁR” -SK3K2T
„Sú almenna mynd, sem við
okkur blasir varðandi afkomu
fiskiðnaðarins, er að reksturinn
hefur gengið vel á undanförn-
um árum og meira að segja
óvenjulega vel síðastliðið ár og
fram á þetta sem nú er að líða,“
sagði Jónas Haralz bankastjóri
Landsbankans í viðtali við DB í
gær.
„Ljóst er að tíminn síðan
erfiðleikaskeiðið árið 1974
hefur verið sjávarútveginum
hagstæður í heild,“ sagði Jónas
ennffemur.
„Að vísu er alltaf mismunur
á afkomu fyrirtækja á vissum
svæðum, einnig mismunur á af-
komu einstakra fyrirtækja af
ýmiss konar ástæðum. Slíkt er
mjög algengt hér á landi.
Rétt er, að vegna hækkunar á
launum og hærra fiskverðs
skapast ný viðhorf en það er
ekki í verkahring Landsbank-
ans að álykta hvað þessi nýju
viðhorf bera í skauti sér,“ sagði
bankastjórinn.
Hann sagði að viðskiptafyrir-
tæki Landsbankans í fiskiðnaði
á Suðvesturlandi hefðu komið
að máli við bankann og sagt að
þau mundu neyðast til að
stöðva rekstur 29. þessa
mánaðar miðað við óbreyttar
rekstraraðstæður.
Um frekari lánafyrirgreiðslu
vegna þessara umtöluðu erfið-
leika væri ekki að ræða af hálfu
Landsbankans. Aukin fyrir-
greiðsla af því tagi mundi ekki
byggjast á neinum heilbrigðum
viðskiptagrundvelli og einnig
væri lausafjárstaða bankanna
þannig og reglur um „útlána-
þak“ að frekari lán væru úti-
lokuð.
„Við munum halda áfram
lánafyrirgreiðslu til sjávarút-
vegsins samkvæmt þeim regl-
um sem gilt hafa undanfarin
ár. Þær reglur hafa reynzt vel
og hefur Landsbankinn ekki
orðið þess var að þörf væri
breytinga þeirra.
Erfiðleika vegna hækkaðs
fiskverðs og launa hefur ekki
gætt i viðskiptum bankans við
viðskiptafyrirtæki hans, í það
minnsta ekki ennþá, þó svo að
auðvitað geti forráðamenn
þessara fyrirtækja séð þá erfið-
leika fyrir í sínum áætlun-
um,“ sagði Jónas Haralz
bankastjóri að lokum.
ÓG
Demantssfld á Snæfellsnesi:
FYRSTA SÍLDIN í 10 ÁR
TIL GRUNDARFJARÐAR
Snæfellsnesbátar mokveiða
demantssíld í reknet suðvestur
af öndverðarnesi. Steinunn frá
Ólafsvík fékk 200 tunnur, sem
landað var á Akranesi í gær.
Matthildur frá Ólafsvík landaði
170 tunnum í heimahöfn í gær
og Siglunes frá Grundarfirði
fékk 170 tunnur. Saxhamar
landaði 100 tunnum í Rifi og
Halldórn Jónsson talsvert
minni afla í Rifi.
Sjávarútvegsráðuneytið
veitti leyfi til þessara veiða til
20. ágúst en eftir það þarf ekki
leyfi sérstaklega.
Að sögn Brynjars Krist-
mundssonar, skipstjóra á Hall-
dóri Jónssyni frá Ölafsvík,
virðist talsvert magn vera af
síld í sjónum. Eins og fyrr segir
er þetta mjög falleg síld, svo-
kölluð demantssíld. Síldin er
fryst.
Það veldur vonbrigðum að
frystihúsið hér í Ólafsvík er
vanbúið að taka á móti þeim
afla sem heimabátar veiða.
Verða þeir því að landa annars
staðar þeim afla sem ekki er
hægt að taka við hér. Með þess-
ari síld vaknar þó meira líf en
hér hefur verið um nokkurt
skeið í atvinnu.
Til Grundarfjarðar hefur síld
ekki borizt i 10 ár og rúmlega
það þó. Þangað kom Siglunesið
með 70 tunnur sem fóru í fryst-
ingu hjá Hraðfrystihúsi
Grundarfjarðar.
- Bárður-Bæring-BS-