Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 22.08.1977, Qupperneq 5

Dagblaðið - 22.08.1977, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ MANUDAGUR 22. AGUST 1977. . 5 Sköverzlun Þörðar Péturssonar Póstsendum Kirkjustræti 8 v/Austurvöll - Sími 14181 Wew»y>’11' Daglegar tízkusýningar stórkostlegt gestahappdrætti Fallegar stúlkur og tízkufatn- aður hefur jafnan mikið aðdráttarafl. Þegar einnig stendur til boða að kynnast öllu því nýjasta og helzta sem á markaðnum er af hlutum fyrir heimilið má búast við að margir leggi leið sína í Laugardalshöll- ina til þess að skoða sýninguna Heimilið '77 sem opnuð verður, föstudaginn 26. ágúst. Sýningin stendur til 11. september. Sýningaraðilar eru um hundrað talsins. Þar af eru sjö- tíu og þrír með sýningarbása í aðalsalnum. Landssamband hjálparsveita skáta kynnir starfsemi sína á útisvæðinu austan við sýningarhöllina þar sem m.a. getur að líta sjúkra- hús í tjaldi. Á útisvæði vestan við höllina kynna nokkur fyrir- tæki starfsemi sína. Þar er m.a. fullbúið sumarhús og nýjustu bílategundir. Tízkusýningarnar verða tvær til þrjár daglega, síðdegis og á kvöldin. Eru það Hanna Frí- manns, Unnur Arngrímsdóttir og Pálína Jómundsdóttir sem annast undirbúning og stjórn- un tízkusýninganna. Sögðu þær í viðtali við DB að mikill áhugi væri á þátttöku í sýningunum og eru það bæði fataverzlanir og innlendir framleiðendur sem sýna fatnaðinn. Sýningar- fólkið verður á milli 20 og 30 og verða það bæði stúlkur og piltar, auk þess sem börn sýna það nýjasta í barnafatatízk- unni. Ekkert hefur verið til sparað að gera þátt tízkusýningarinnar sem veglegastan. Sérstakur pallur hefur verið hannaður og settur upp í áhorfendastúk- unni. Geta milli sex og sjö hundruð manns í sætum horft á tízkusýninguna samtímis. Sýndur verður tízkufatnaður og yfírleitt allur fatnaður sem á boðstólum er, einnig brúðar- kjólar og baðföt að ógleymdum lopafatnaði. Á sýningunni Heimilið ’77 verður stórkostlegt gestahapp- drætti og að kvöldi hvers hinna sautján sýningardaga verður dregið í því. Vinningar eru sautján litasjónvarpstæki — dregið um eitt tæki á dag. Þá verður einnig dregið um „stóra vinninginn” í lok sýningarinn- ar en það er fjölskylduferð fyrir tvo fullorðna og tvö börn til sólarlandsins Flórida. Þetta er eitthvert viðamesta gesta- happdrætti sem nokkru sinni hefur verið hér á landi og verð- mæti vinninga er á sjöttu millj- ón króna. Þetta er þriðja heimilis- sýningin sem Kaupstefnan gengst fyrir hér á landi. Gífur- legur fjöldi fólks hefur komið á hinar fyrri sýningar sem voru árin 1970 og 1973. Forr'áðamenn Kaupstefn- unnar eru Bjarni Ölafsson framkvæmdastjóri, Gísli B. Björnsson og Ragnar Kjartans- son. - A.Bj. v's ■' , '■ ’ III A tizkusýningunum verða sýnd baðföt. Margs konar tízkufatnaður, auk alls almenns fatnaðar, verður á tízkusýningunum á Heimilinu ’77. Ungar stúlkur ganga i dag með baskahúfur sem sýndar verða í Laugardalshöllinm. Þægmdi i hverju spori Soft LADY ■■■ + Leðurtöfflur í sérflokki með sérstaklega vönduðu, stoppuðu echtfussbelt innleggi, mjúkar og þægilegar að stíga i Stærðir: Nr. 36—42 Verð: Kr. 4.975,- Teg. 451 Litir: Beige leður eða hrúnt leður Teg. 452 Litur: Brúnt leður Teg. 440 Litur: Beige leður Teg. 700 Litir: Hvitt. brúnt eða beige leour Stærðir: Nr. 36—42 Verð: Kr. 3.995,- Stærðir: Nr. 36—42 Verð: Kr. 4.575.- Teg 463 Stærðir: Nr. 36—42 Litur: Hvitl leður. Verð: Kr. 4.350,- Teg. 462 Litir: Blátt leður eða gulhrúnt leður Stærðir: Nr. 36—42 Verð: Kr. 3.995.- Stærðir: Nr. 36—42 Verð: Kr. 4.975,-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.