Dagblaðið - 22.08.1977, Page 15

Dagblaðið - 22.08.1977, Page 15
DAC.BLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 1977. 15 íþróttir íþróttir Iþróttir Skaginn ekki í annan tíma leikið betur! —og ÍA sigraði Keflavík 4-1 — þrjú mörk Péturs iðvaldsson hefur Jón Einarsson á i Einarsson hafði lagt það upp — -mynd Hörður Vilhjálmsson. Bjöms stig gn íalgleymingi neð26stig Magnús Bergs sendi knöttinn inn í vítateig og þar var Ingi Björn viðbúinn og lyfti knettin- um yfir Framvörnina og Árna markvörð og í netinu lá hann. 2-2 var staðan, þarna var vörn Fram illa á verði og hreinlega ekki búin að stilla sér upp þegar aukaspyrn- an var tekin. Framarar létu sér sannarlega ekki segjast, á sömu mínútu og Valur jafnar bruna þeir upp völlinn og Asgeir Elfasson gefur inn á Pétur Ormslev sem skallar í netið. Laglega gert hjá Pétri en þarna var ráðleysið mikið hjá Valsvörninni sem var alltof sein I svifum. Síðan kom vítið á Fram sem við sögðum frá í byrjun. Hörður Hilmarsson átti þrumuskot að marki Fram. Knötturinn skellur í hönd Ágústs Guðmundssonar. Segja má að Ágúst hafi ekki haft um það nein ráð hvar knötturinn lenti, svo stutt var færið. En — skot Harðar stefndi beint að marki, lenti í hendi Ágústs — allt skeður þetta innan vítateigs. Grétar dómari flautar, dómurinn gat ekki orðið annar en víta- spyrna. Að henni tekinni var jafntefli staðreynd. Skemmtilegum leik var lokið. Valur og Akranes standa jafnt að vígi, eiga bæði eftir einn leik, Akranes gegn Vestmannaeyjum og Valsmenn gegn Víkingum. Ef bæði liðin vinna þá leiki verður aukaleikur um meistara- titilinn í 1. deild. . Sannarlega óskandi fyrir knatt- spyrnuunnendur að geta átt von á honum auk úrslitaleiksins í bikarnum milli Vals og Fram. Víst er að ekki munu áhorf- endur láta sig vanta í Laugar- dalinn. -ÓG. Skagamenn sækja sig stöðugt í fslandsmótinu í knattspyrnu og hafa nú, þegar aðeins ein umferð er eftir, þokað sér að hlið Vals í baráttunni um íslandsmeistara- tign, bæði lið hafa 26 stig. Skaga- menn eru án nokkurs vafa í topp- formi í dag, eftir öruggan og sannfærandi sigur gegn Keflavík, 1-1, á Skipaskaga. Skagamenn hafa svo sannar- lega náð sér á strik undanfarið og á laugardag léku þeir sinn bezta leik í sumar — bókstaflega tættu Keflvíkinga i sig. Mörkin voru orðin fjögur þegar upp var staðið en hefðu allt eins getað orðið sjö. Hinn bráðefnilegi Pétur Péturs- son, miðherji IA, átti leikinn í þess orðs fyllstu merkingu. Á sínu fyrsta keppnistimabili i 1. deild hefur Pétur skorað 15 mörk. Hann er aðeins 18 ára gamall og sannarlega maður framtíðar- innar, eitt mesta efni er fram hefur komið á íslandi lengi, raunar síðan Asgeir Sigurvinsson. Nú, en hvað um það, yfirburðir Skagamanna voru algjörir — en þrátt fyrir það fengu Keflvík- ingar fyrsta tækifæri leiksins er Ólafur Júlíusson komst inn í sendingu Guðjóns Þórðarsonar, ætlaða Jóni Þorbjörnssyni mark- verði. En Ólafur skaut fram hjá og Skagamenn fiáðu forustu á 4. mínútu. Arni Sveinsson tók auka- spyrnu frá hægri, sendi vel fyrir og þar stökk Pétur Pétursson hæst og skoraði glæsilega með skalla I netmöskva IBK, 1-0. í Ayr — Þau voru óvænt úrslitin á Skot- landi í úrvalsdeildinni, báðir risar Glasgow, Rangers og Celtic, töpuðu óvænt. Celtic tapaði óvænt í Ayr, 1-2, og Rangers tapaði fyrir Hibernian á Ibrox, 0-2, sannar- iega óvænt úrslit. Það benti fátt til að Celtic biði ósigur gegn Ayr United — staðan í leikhléi var 1-0 — Joe Craig skoraði á 18. mínútu. Vörn Celtic var traust, þar voru þeir Roddy McDonald og Jóhannes Eðvalds- son kóngar. En það breyttist í síðari hálfleik, Walker McColl skoraði tvivegis á 4 mínútum. Hann jafnaði á 11. mlnútu og á 15. mínútu skoraði hann annað mark Ayr, 2-1, og hinir tryggu áhang- endur Celtic ætluðu vart að trúa eigin augum. Landsliðsnefnd KSl, þeir Árni Þorgrímsson, Arni Sumarliðason, og landsliðsþjálfarinn, Tony Knapp, hafa nú stillt upp 22 manna landsliðshópi fyrir lands- leikinn gegn Hollendingum þann 31. ágúst. Þrátt fyrir að allir sterkustu leikmenn íslands séu i hópnum — það er hann er eins sterkur og hugsazt getur — þá eru ýmsar blikur á lofti. „Landsliðsfyrirliðinn Jóhannes Eðvaldsson er í 22 manna hópn- um, en það eru aðeins „fifty- fifty" líkur á að hann leiki,“ sagði Tony Knapp í viðtali við DB. „Við vonum hið bezta og ljóst verður á laugardag hvort Jóhannes leikur en Celtic hefur vegnað illa undan- farið og við vonum að Jock Stein veiti honum leyfi í landsleikina." Pétur Pétursson var aftur á ferðinni á 20. nrínútu og aftur var það aukaspyrná Arna Sveins- sonar sem var kveikjan að marki Péturs. Arni -tók aukaspyrnu, sendi vel fyrir, knötturinn fór í þverslá og þaðan fyrir fætur Péturs sem skoraði af stuttu færi, 2-0. Á 27. mínútu skoraði Pétur sitt þriðja mark. Rúnar Georgsson brá Kristni Björnssyni og aldrei þessu vant tók Pétur Pétursson spyrnuna og það var ekkert hik á dreng. Hann skoraði af öryggi, 3-0. Keflvíkingar áttu gott tækifæri á 35. mínútu er Jón Þorbjörnsson hirti knöttinn af tám Friðriks Ragnarssonar. Staðan í leikhléi var samt 3-0 og Skagamenn byrjuðu síðari hálfleik rétt eins og þeir enduðu hinn fyrri, mun sterkari en andstæðingurinn, léku af sama örygginu og einkenndi leik þeirra fyrr í sumar, öryggi er einkennt hefur leiki þeirra undir stjórn George Kirbys, þjálfara Skagamanna. Á 24. mínútu varð Rúnar Georgsson fyrir því að senda knöttinn í eigið mark eftir horn- spyrnu Karls Þórðarsonar, 4-0. Keflvíkingar fengu gott tæki- færi á 30. mínútu, er Hilmar Hjálmarsson var á ferðinni, en ágætur markvörður ÍA, Jón Þor- björnsson, rétt náði að slá knött- inn yfir, vel gert þar hjá Jóni. Pétur Pétursson fékk gullvægt tækifæri er hann komst einn inn Celtic sótti síðan mjög, Jóhannes Eðvaldsson var færður framar til að styðja sóknina og samkvæmt þul BBC, en þar var leiknum lýst, þyngdist sókn Celtic til muna við það og allur leikur Celtic lagaðist. En það dugði ekki til, Ayr United sigraði óvænt, 2-1. Celtic hefur því aðeins hlotið 1 stig úr tveimur fyrstu leikjum sínum í úrvals- deildinni. En lítum á úrslitin á Skotlandi. Ayr-Celtic 2-1 Clydebank-Aberdeen 1-3 Dundee Utd.-St. Mirren 2-1 Motherwell-Partick 3-0 Rangers-Hibernian 0-2 Glasgow-risinn Rangers vermir Þá er ljóst að þeir Matthías Hallgrímsson og Teitur Þórðar- son fá aðeins leyfi í leiknum gegn Hollandi — ekki Belgíu. Marteinn Geirsson er og vafasamur í leik- inn gegn Belgíu, en hann á að leika með félagi sínu, Royale Union, daginn eftir Belgaleikinn — 4. september. En landsliðhópur 22 manna er: Árni Stefánsson Fram, Sigurður Dagsson Val, Diðrik Ólafsson Viking, Ólafur Sigurvinsson iBV, Janus Guðlaugsson FH, Marteinn Geirsson Union, Gísli Torfason ÍBK, Jón Gunnlaugsson ÍA, Viðar Halldórsson FH, Ásgeir Sigurvinsson Standard, Atli Eðvaldsson Val, fyrir vörn Keflvikinga en skot hans fór naumlega fram hjá. Á 29. mínútu tók Ómar Ingvason mikinn sprett, lék upp að vítateig og vörn IA hopaði — Ómar skaut góðu skoti og í netmöskvum ÍA lá knötturinn, 4-1. Eftir það var einstefna Skaga- manna: Hörður Jóhannsson var tvívegis nærri að skora, Kristinn Björnsson komst í dauðafæri en tókst ekki að nýta, en allt um það, öruggur sigur IA var í höfn. Já, öruggur sigur lA var í höfn — og þeir Björn Lárusson og Jón Alfreðsson léku afmælisleiki. Björn Lárusson lék sinn 300. leik fyrir IA og Jón sinn 250. leik fyrir IA. En leikurinn var Péturs, hins markheppna miðherja Skagamanna. Lið Skagamanna var annars mjög jafnt. Jón Þor- björnsson var traustur og ágætur markvörður, vörnin sterk með Jón Gunnlaugsson sem hinn sterka mann, Árni Sveinsson góður og Pétur skæður frammi. Já, Skaginn er nú gjörbreyttur, sjálfstraust leikmanna komið á ný og þá er ekki að sökum að spyrja. George Kirby, ágætur þjálfari ÍA, hefur sannarlega sannað gildi sitt á Skaganum 1 sumar eftir hið slæma ár í fyrra. Þjálfun og leik- stjórn er nú allt önnur og betri. Keflvíkingar voru hvorki fugl né fiskur — Ómar Ingvarsson og Þórður Karlsson líflegir fram- herjar og Einar Ólafsson í vörn- inni — meðalmennskan ein- kenndi leik.lBK. KP nú botnsæti úrvalsdeildarinnar, hefur ekkert stig hlotið úr tveim- ur fyrstu leikjum sínum. Ótrúlegt en satt, Celtic og Rangers eru í tveimur neðstu sætum úrvals- deildarinnar. Hibernian sigraði mjög óvænt í Glasgow og þeir Gordon Rae og Des Bremner skoruð mörk Hibernian. Aberdeen trónir nú efst með 4 stig úr tveimur leikjum. Aber- deen sigraði Clydebank 3-1 en Clydebank, er var í 2. deild fyrir tveimur árum og komst síðan upp úr 1. deild síðastliðið vor ásamt St. Mirren, hafði yfir, 1-0. í leikhléi. Larnach skoraði fyrir Clydebank en þeir Graham, Joe Harper og Davidson svöruðu fyrir Aberdeen í síðari hálfleik. Arni Sveinsson IA, Hörður Hilmarsson Val Ingi Björn Albertsson Val, Teitur Þórðarson Jönköping, Matthías Hallgrímsson Halmia, Guðmundur Þorbjörnsson Val, Kristinn Björnsson lA, Asgeir Elíasson Fram, Dýri Guðmundsson Val, Guðgeir Leifsson, Jóhannes Eðvaldsson Celtic. Ásgeir Elíasson er aftur kominn í hóp 22 manna og allar líkur á að hann fari utan og leiki, þá er í landsliðshópnum Kristinn Björnsson, hinn leikni leikmaður IA. Dýri Guðmundsson er eini ný- liðinn í landsliðshópnum en Dýri hefur vaxið mjög í leikjum sínum í sumar með Val. Óvæntur ósigur Celtic Aberdeen efst Blikur á lofti en 22 valdir fyrir HM-leiki Iþróttir Guðgeir til St. Pauli? Guðgeir Leifsson, landsliðs- maðurinn i knattspyrnu, dvaldist í siðustu viku í Þýzkalandi við æfingar. Ætlunin var að Guðgeir héldi til Schalke 04 en þar varð breyting á. Þess í stað hélt Guð- geir til Hamborgar og dvaldi við æfingar með 1. deildarliði St. Pauli í þrjá daga. Enn er ekki Ijóst hvort Guðgeir gerist leik- máður með St. Pauli — það skýrist í vikunni. Hins vegar hefur Guðgeir Leifsson fengið gott tilboð frá 2. deildarliði Bayernhoff, borg í námunda við Mtínchen. Guðgeir dvaldi einnig við æfingar hjá Bayernhoff sem er borg á stærð við Reykjavík. Guðgeir lék síðastliðna tvo vetur með belgíska 1. deildar- liðinu Charleroi en fór þaðan I vor. Stórsigur AZ ’67 Ajax frá Amsterdam, holl- enzku meistararnir, hafa ásamt NEC Nijmegen náð forustu í hollenzku 1. deildinni eftir þrjár umferðir. En þrátt fyrir forustu þessara tveggja liða tilheyrði þriðja umferð AZ ’67 frá borg'inni Alkmaar sem er á stærð við Reykjavík. AZ ’67 sigraði FC Amsterdam 9-2 i Amsterdam. Gifurlegur áhugi er nú i borginni Alkmaar og hafa áhangendur liðsins miklar vonir um góðan árangur. AZ ’67 er í fyrsta sinn í sögu félagsins i Evrópukeppni. Félagið keypti i sumar Jan Peters frá NEC Nijmegen en hann skoraði einmitt bæði mörk Hollands á Wembley — nýjasta stórstjarna Hollands. Hann ásamt hinum þekkta, hollenzka landsliðs- manni, Van Hamegen, eru mennirnir á bak við AZ '67. Já, mikill áhugi er i Alkmaar en eins og áður sagði er hún smá- borg norðarlega í HoIIandi, einkum þekkt fyrir ostamarkað. Borgaryfirvöld hafa veitt miklar fjárhæðir til endurbóta á velli félagsins en AZ ’67 hafnaði í þriðja sæti i hollenzku deildinni síðastliðið vor. PSV Eindhoven lék í Rotter- dam við Feyenoord og varð jafn- tefli, 1-1. PSV er nú i þriðja til fjórða sæti ásamt nýliðum í 1. deild, Volendam, með 5 stig. HSKíl.deild HSK sigraði í keppni 2. deildar í frjálsíþróttum um helgina en keppnin fór fram á Selfossi. HSK hlaut 147 stig en UMSE varð í öðru sæti með 109 stig. Þá kom UMÞ með 94 stig. UMSS hlaut 86.5 stig, HVl — tsfirðingar hlutu 84 stig en lestina rak HSH með 83.5 stig, svo keppnin á botninum gat vart jafnari verið — EN HSK var hinn öruggi sigurvegari og flyzt upp í 1. deild.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.