Dagblaðið - 17.10.1977, Side 9
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 17. OKTÓBER 1977.
1
64. mann-
ránið á Ítalíu
Eiganda verzlunarkeðju var
rænt í borginni Turin a ítaliu i
gær. Er það talið 64. mannranið
þar í landi sem af er liðið þessu
ari.
Eiganda verzlananna, sem
heitir Guglielmo Liore, 64 ara
gamall, var rænt þar sem hann
var a daglegum morgunreiðtúr
nálægt hesthúsum sinum rétt
fyrir utan borgina.
Ræningjarnir hringdu skömmu
síðar i fjölskyldu hins rænda og
vöruðu hana við að hafa nokkurt
samband viö lögreglú ef Liore
ætti að sjast lifandi aftur.
Fyrir tveimur vikum var
fjögurra ára gömlum sonarsyni
auðugs iðjuhölds rænt þar sem
hann var á göngu með ömmu
sinni og lífverði.
Sagt er að krafizt hafi verið
tveggja milljón dollara lausnar-
gjalds fyrir barnið.
Fyrir .viku fannst lik þekkts
lögfræðings í Mílanó bundið við
steinsteypuhnullung á botni
vatns nálægt Bergamo.
Fjölskylda hans segist hafa
greitt um 300.000 dollara í lausn-
argjald fyrir hann.
Austur-þýzkur
sjóliði stakk
sér í Miðjarð-
arhafið
Austur-þýzkur sjóliði hefur
beðið um hæli sem pólitiskur
flóttamaður á ítaliu. Flúði hann
af skipi sinu, sem var i leynileg-
um erindagerðum áMiðjarðarhafi
í siðustu viku, að sögn lög-
reglunnar 1 Napóli 1 Italíu.
Segir hún að sjóliðinn, sem
heitir Franz Johan Folkestein,
fjörutíu ára að aldri, hafi hent
sér fyrir borð eftir að hafa fengið
skot 1 höndina. Var þar skip-
stjórinn sjálfur að verki en
uppþot hafði orðið um borð.
Austur-þýzki sjóliðinn var
nærri sólarhring í sjónum áður en
honum var bjargað upp í fiskibát
frá Sikiley. Telur lögreglan hann
hafa komizt á eigin vegum til
Napolí en fiskimennirnir sem
björguðu honum munu hafa gefið
honum einhverja peninga.
Lfðan sjóiiðans var sögð vera
sæmileg í gærkvöldi. Sagði hann
lögreglunni, sem kannar nú sögu
hans, að hann hefði hugleitt flótta
frá Austur-Þýzkalandi um
nokkurn tíma.
Nafnið á austur-þýzka skipinu
sem á að hafa verið í leynilegum
erindagerðum á Miðjarðarhafi og
Franz Johan Folkestein flúði af
hefur ekki verið gefið upp.
Trufluðu
Carter við
messuna
Hópur ungra andstæðinga
hinnar nýju nevtrónusprengju
trufluðu lltillega messu i kirkju í
Washington, þar sem Carter
Bandarikjaforseti var viðstaddur.
Forsprakkar hópsins reyndu
að „ lesa yfirlýsingu gegn
nevtrónusprengjunni en dyra-
verðir fjarlægðu mótmælendurna
skjótt og urðu lítil messuspjöll.
Sprengjan, er verið var að mót-
mæla, er frábrugðin venjulegum
kjarnorkusprengjum að þvi leyti
að hún eyðir öllu lifi a tak-
mörkuðu svæði en eignatjón af
hennar völdum er tiltölulega litið.
Haft er eftir Carter forseta, að
honum hafi ekki fundizt sér ógn-
að á neinn hátt meðan á mót-
mælunum stóð.
Flugræningjarnir:
Flugræningjar lentu
í Sómalíu í morgun
—lendingabúnaður talinn laskaður
—krefjast 3,3 milljarða krdna lausnargjalds
Vestur-þýzka farþegavélin
með 87 gisla og 4 flugræningja,
sem rænt var á leið frá
Mallorka til Frankfurt aðfara-
nótt föstudagsins, lenti 1 Moga-
dishu höfuðborg Sómalfu
snemma í morgun.
Þangaö kom hún frá Aden en
þar hafði hún lent þrátt fyrir
neitun flugyfirvalda um lend-
ingarleyfi. Aður hafði flugvél-
inni verið neitað um lendingar-
leyfi í Suður-Jemen.
Aður en flugvélin lenti í
Aden, sem er syðst á Arabíu-
skaganum, hafði hún verið
nærri tvff og hálfan sólarhring
á Dubai, eyju á Indlandshafi,
en þar höfðu yfirvöld reynt að
semja við ræningjana, tvo karl-
menn og tvær konur, um að láta
i það minnsta einhverja af gisl-
unum 87 lausa.
Bar það ekki árangur en
kröfur ræningjanna hafa
hingað til verið þær að látnir
yrðu lausir 11 félagar þeirra i
fangelsum Vestur-Þýzkalands
og tveir sem eru fangelsaðir I
Tyrklandi.
Auk þess hafa þeir krafizt 15
milljóna dollara i reiðufé. Er
það meira en þrir milljarðar
islenzkra króna.
Höfðu ræningjarnir, sem
virðast vera í tengslum við þa
sem rændu vestur-þýzka iðju-
höldinum Hans Martin Schley-
er 5. sept. síðastliðinn, hótað að
sprengja flugvélina I loft upp á
hádegi i gær ef ekki yrði þá
búið að uppfylla kröfur þeirra.
Ostaðfestar fregnir hermdu
að hjóla- og lendingarbúnaður
flugvélarinnar vestur-þýzku
væri laskaður, þegar hún fór
frá Aden en ekkert var vitað
um hvernig lending eða mót-
tökur i Mogadishu, þar sem
vélin lenti siðast, voru.
Sómaliustjórn hafði lýst því
yfir að hún mundi ekki leyfa
flugvélinni með ræningjunum
og gfslum þeirra að lenda en
hún væri þó fús til að taka við
föngunum 13, sem krafizt hefur
verið að látnir yrðu lausir.