Dagblaðið - 17.10.1977, Blaðsíða 15
DAOBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. OKT0BER 1977.
15
FYLKIR NÚ í
EFSTASÆTI
í 2. DEILD
— eftir sigur gegn HK í Garðabæ. Grötta sigraði
Leikni á Seltjarnarnesi
Handknattleikur lá að mestu
niðri um helgina — þó fóru fram
tveir leikir í 2. deild Islandsmóts-
ins í handknattleik, á Seltjarnar-
nesi og í Garðabæ. Grótta, er féll
niður í 2. deild í vor, sigraði
Leikni 20-18 og nýliðar HK í
deildinni, máttu þola tap gegn
Fylki í Garðabæ, 17-21.
Báðir leikirnir voru jafnir —
Grótta, sem hefur misst góða leik-
menn sigraði eftir baráttu við
Leikni. Þjálfari Leiknis, Hörður
Sigmarsson, var tekinn úr umferð
og skoraði aðeins 2 mörk — hefur
því skorað 10 mörk i tveimur
fyrstu leikjum 2. deildar í ár.
Leiknir hefur því tapað báðum
leikjum sínum í 2. deild — áður
tapað fyrir Fylki.
Fylkir trónir nú efst i 2. deild
— eftir sigur i Garðabae, 22-17.
Þar var og baráttuleikur — en
reynsluleysi háði hinu unga liði
HK og Fylkir hafði betur á loka-
sprettinum, breytti stöðpnni úr
17-15 í 22-17.
Þróttur átti að fara norður og
leika við KA og Þór — en vegna
verkfallsins varð að fresta þeim
leikjum.
Prófkjör Alþýðuflokksins:
Nærri tvöföld þátttaka íNorðurl.
eystra Ekki talSð f yrr en á morgun
„Þetta er nokkuð langur
róður frá Þórshöfn og Grimsey
sérstaklega," sagði Bragi Sigur-
jónsson á Akureyri I viðtali við
DB í morgun. „Þess vegna
verður ekki hægt að telja upp
úr kjörkössunum fyrr en á
morgun," sagði Bragi. Próf-
kosningar voru á laugardag og
sunnudag um efsta sætið á lista
Alþýðuflokksins við næstu al-
þingiskosningar.
„Við teljum að þátttaka hafi
verið mjög góð,“ sagði Þor-
valdur Jónsson á Akureyri, for-
maður kjörstjórnar. „Okkur
telst til að tala þeirra sem at-
kvæði geriddu hafi losað 2 þús-
und. Þess má geta að við sið-
ustu alþingiskosningar fékk
Alþýðuflokkurinn 1098 at-
kvæði.“
A Akureyri greiddu um 1600
menn atkvæði, á Húsavik 190, á
Dalvík 70, á Olafsfirði 70.
I framboði voru Arni Gunn-
arsson, Bárður Halldórsson og
Bragi Sigurjónsson.
- BS
Benedikt Gröndal í 1. sæti —
Eggert og Vilmundur í 1. og 2. sæti
Framboðsfrestur til próf-
kjörs Alþýðuflokksins fyrir
næstu alþingiskosninar rann
út á laugardag. Þessi framboð
bárust:
Benedikt Gröndal í 1. sæti.
Bragi Jósepsson i 2. og 3. sæti.
Eggert G. Þorsteinsson í 1. og 2.
sæti.
Jóhanna Sigurðardóttir i 3.
sæti.
Sigurður E. Guðmundsson i 1.,
2. og 3. sæti.
Vilmundur Gylfason I 1. og 2.
sæti.
Kosið verður i prófkjörinu
12. og 13. nóvember. Valið er í
þrjú efstu sæti lista Alþýðu-
flokksins við næstu alþingis-
kosningar. Röðun i þrjú efstu
sætin er bindandi, ef frambjóð-'
andi hlýtur 1/5 hluta þeirra
atkvæða sem flokkurinn fékk I
Reykjavik við siðustu alþingis-
kosningar. Þá fékk Alþýðu-
flokkurinn 4047 atkvæði.
- BS
Gunnar Lúðvíksson skorar eitt af mörkum Gróttu i gær. DB-mynd
Bjarnleifur.
Brugge og Standard
með forustu í Belgíu
— Standard sigraði Molenbeekáútivelli
Standard Liege heldur sínu La Louviere-Waregem 0-3
striki í 1. deiidinni belgísku. Lokeren-Beveren 0-2
Sigraði Moienbeek á útivelli um Courtrai-Charleroi 2-2
helgina og er í efsta sæti ásamt Antwerpen-CS Brugge 3-C
FC Brugge með 17 stig. Síðan Boom-Anderlecht 1-1
kom Beveren, Anderlecht og FC Liege-Winterslag 1-1
Winterslag með 16 stig svo það Molenbeek-Standard 1-2
stefnir greinilega í mikla keppni FC Brugge-Lierse 3-C
í deiidinni. Beringen-Beershot 0-C
Danskennsla Þ. R.
íAlþýðuhúsinu
Kennsla íbamaflokkum hefst í dag kl. 4.
Innritaö íalla flokka frá kl. 3.30
— sími 12826. Getum enn bætt við
herrum ígömlu dansana.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
Rauðum Fíat stolið á f östudagsnóttina
Aðfaranótt laugardagsins var
rauðum Fiat 127 stolið þar sem
hann stóð við gatnamót Kára-
stígs og Frakkastígs.
Skrásetningarnúmer bilsins er
Eigandi bilsins gekk frá hon-
um f stæði um miðnættið á
föstudagskvöldið en er til átti
að taka morguninn eftir höfðu
einhverjir fingralangir komizt
inn 1 hann og ekið á brott.
Þeir sem kynnu að hafa orðið
varir við Fiatbilinn Y-1628 eru
beðnir um að láta lögregluna
vita strax.
Y-1628.
@3
Sg
j-
í;
Öryggis-
ráðstöfun
Lítið tæki en nytsamt, leka-
straumrofi kallast það; örugg-
asti varnarbúnaðurinn gegn
því að tjón, hætta og óþægindi
skapist af rafmagni.
Lekastraumrofi rýfur straum-
inn á stundinni ef það leiðir út.
Er hann í rafmagnstöflunni
hjá þér?
Sjálfsögð öryggisráðstöfun á
heimilum og vinnustöðum.
Forðist eldsvoða og slys.
Leitið nánari upplýsinga.
RAFAFL
framleiðslusamvinnu-
félag iðnaðarmanna
Skólavörðustíg 19. Reykjavík
Símar 21700 28022
Leggjum nýtt - lögum gamalt