Dagblaðið - 17.10.1977, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. OKT0BER 1977.
Blaðamenn lýsa stuðningi
við launakröf ur f réttamanna
„Stjórn Blaðamannafélags ts-
lands lýsir fyllsta stuðningi við
kaupkröfur fréttamanna Rikis-
útvarpsins, hljóðvarps og sjón-
varps“ segir í upphafi sam-
þykktar sem stjórn BÍ gerði í
gær.
„Störf fréttamanna og blaða-
manna hafa um mörg undanfar-
in ar verið stórlega vanmetin 1
íslenzku þjóðfélagi og eigi með
samningum BSRB að fast raun-
hæf leiðrétting a kjörum
manna, sem fréttastörf vinna, .
verður að verða veruleg breyt-
ing til hækkunar a stöðu frétta-
manna hljóðvarps og sjónvarps
innan launakerfis BSRB.
Blaðamannafélag íslands
bendir a þa miklu abyrgð, sem
a blaðamönnum og fréttamönn-
um hvilir, þar sem störf þeirra
eru skoðanamyndandi fyrir al-
menning og verða launin því að
vera með þeim hætti, að í þau
veljist menn með góða mennt-
un og hæfileika.
Verði ekki veruleg hækkun a
kjörum fólks, sem þessi störf
vinnur, er veruleg ástæða til að
■óttast um bæði areiðanleik og
gæði íslenzkrar blaða-
mennsku," sagði í aiyktun Bí.
Nýkomið!
8tegundiraf
fallegum náttkjólum,
náttföt og náttkjólar
átáningana,
munstraöir sokkar
fkuldann.
Muniðskozku
ullarnærfötin
Verzlunin____
Glæsibæ — Sími 83210
Einstök þjónusta fyrir Stór-Reykjavík.
Við mælum flötinn og gerum fast verðtilboð.
Þér komið og veljið gerðina, við mælum og gefum yður upp endan-
legt verð - án nokkurra skuldbindinga.
Athugið, að þetta gildir bæði um smáa og stóra fleti.
Þér getiö valiö efni af 70 stórum rúllum eða úr 200 mismunandi gerðum
af WESTON teppum. Við bjóðum mesta teppaúrval landsins í öllum
verðflokkum: 1.260 pr. ferm til kr. 17.000 pr.ferm.
Jll
| ílaiffi Bl íifii iff
n b aa a.p
i ii
Jón Loftsson hf. i is i ffl" f
Hringbraut 121 Sími 10600
Sinfónían gafst ekki upp íverkfalli:
FÍutti alit
sitt íBú-
staðakirkju
—en þar geta hljóðf ærin strandað
meðan á verkfalli stendur
Haskólabíó er lokað vegna
verkfalls eins og kunnugt er, en
tónlistarunnendum líkaði ekki
við þá tilhugsun að fá ekki sinn
haifsmánaðarlega skammt af
klassískri tónlist.
Málið var leyst á sérstæðan
hátt. Framkvæmdastjórinn,
Sigurður Björnsson, sótti um
undanþágu til þess að dyra-
vörður fengi að opna húsið. Var
það góðfúslega leyft, enda
héldu þeir hja BSRB, að hljóm-
listarmennirnir ætluðu aðeins
að sækja hljóðfæri af minni
gerðinni.
Hins vegar tóku þeir sig til og
fluttu allt sitt hafurtask inn í
Bústaðakirkju, þar sem þeir
æfðu f gær og halda tónleika í
kvöld kl. 20.30. (Á efnisskránni
eru valin verk, m.a. Konsert
fyrir klarinett eftir Mozart,
Toecata eftir Frescobaldi og
Vatnasvítan eftir Handel ).
Nú er hins vegar komin upp
sú staða að húsvörðurinn, sem
er í BSRB og sér jafnframt um
flutninga, þó hann hafi ekki
gert það í þetta sinn, er I
verkfalli.
Hljóðfærunum hefur verið
stillt upp í kirkjunni við altarið
og þar fara hljómleikarnir fram
í kvöld.
Torvelt getur hins vegar
orðið að fá leyti til þess að
hreyfa hljóðfærin úr stað, hvað
þá að flytja þau úr kirkjunni.
Kemur það sér illa, því á
sunnudaginn a að ferma í
kirkjunni. -HP-
BUR:
Engin laun en vinna samt
Vegna verkfalls BSRB hefur
ekki verið hægt að greiða starfs-
fólki Bæjarútgerðar Reykjavíkur
laun. Skrifstofa útgerðarinnar er
lokuð og einnig Skýrsluvélar
ríkisins og Reykjavikurborgar.
Þeir sem vinna hjá BUR fá því
engin leun út reiknuð og þar af
leiðandi ekki greidd.
Að sögn Halldórs Péturssonar
sem starfar meðal annars við
skýrslugerð um tímavinnu fólks
hjá BUR hafa menn þar fallizt á
að halda afram vinnu og fá laun
sín greidd þegar verkfall
leysist. Þetta er gert til þess að
verðmæti fari ekki forgörðum.
Hélt Halldór að BUR væri eina
fyrirtækið, sem héldi uppi svona
starfsaðferðum i verkfallinu.
-DS.
Nýjastatízkan:
ÍÞRÓTTAGALLAR
VIÐ ÖLL
TÆKI-
FÆRI
Iþróttaföt elns og þessi eru orðin
nýjasta tfzka og þykja þau hæfa
við öll tækifærl.
Fyrir nokkru var birt mynd af
litlum strakum, söluhetjum Dag-
blaðsins, og sagt eitthvað a þa leið
að búningur sá sem þeir klædd-
ust, iþróttagallar, væri nýjasta
tízka meðal barna. En nú hefur
komið í ljós að það eru ekki ein-
ungis börn sem halda upp á
iþróttaföt. I nýlegu hefti banda-
riska blaðsins Star er grein um
íþróttagallatízku sem gripið hefur
um sig meðal kvenna þar í landi.
Agæti gallanna er þar mjög
rómað og sagt að þá megi nota við
öll tækifæri, hvort heldur er
verzlunarleiðangur eða kokkteil-
boð.
Iþróttafatatizkan er nokkurs
konar afleiðing af þeirri sport-
legu tízku sem undanfarið hefur
verið hæstmóðins. Það þykir
íþróttamannlegt . og jafnframt
hraustlegt að klæðast svona göll-
um og jafnvel þeir sem engar
íþróttir stunda vilja fá það orð a
sig. Ekki spillir fyrir að mjög auð-
velt er að þvo fötin-og þau fara
nær öllum vel.
Fataframleiðendur hafa nú
brugðizt við hart og framleiðsla
svona fata eykst hröðum skrefum.
Og auðvitað er það ekki af tómri
hugsjón, eitthvað græða bjessaðir
mennirnir liklega á þessu.
DS þýddl og endursagði.