Dagblaðið - 02.11.1977, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1977.
Þeir taka fyrstir
við sér á
Hvammstanga:
Undirskriftasöfnun til
stuðnings f rjálsu útvarpi
Nokknr ungir menn á
Hvammstanga hafa ákveðið að
beita sér fyrir undirskriftasöfn-
un í Húnavatnssýslum og víðar,
þar sem skorað er á Alþingi að
samþykkja frumvarp Guð-
mundar H. Garðarssonar um
breytingu á útvarpslögum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir,
að einkaréttur ríkisins til út-
varpsreksturs falli niður og
leyfður verði frjáls rekstur út-
varpsstöðva í eigu einstaklinga
og félaga.
Einn forsprakka undir-
skriftasöfnunarinnar á
Hvammstanga, Guðmundur
Sigurðsson, sagði í samtali við
fréttamann DB, að þeir félagar
teldu að starfsemi lítilla út-
varpsstöðva í hinum ýmsu
byggðarlögum gæti orðið til
mikils gagns hver á sínum stað.
„Það gæti til dæmis verið með
flutningi tilkynninga og frétta,
sem ef til vill eiga ekki erindi
við alla landsmenn, en geta
samt haft gildi til gagns eða
gamans í viðkomandi byggðar-
Iagi,“ sagði Guðmundur.
Þá benti hann á þá öryggis-
þjónustu, sem slíkar stöðvar
yrðu öðrum færari um að láta í
té. „Það er skammt að minnast
þeirrar röskunar, sem varð á
útvarpsþjónustu í landinu í
verkfalli BSRB á dögunum,"
sagði Guðmundur. „Sú reynsla
ætti að nægja flestum til að átta
sig á þvi, að það er aldeilis
óhæft fyrirkomulag til fram-
búðar að hafa aðeins eina stofn-
un til útvarpsreksturs f öllu
landinu og hana með alla sfna
aðstöðu á einum stað.“
Guðmundur Sigurðsson sagði
þá félaga gjarnan vilja ná sam-
bandi við fólk í öðrum byggðar-
lögum og hvatti þá, sem væru
svipaðs sinnis um rekstur út-
varps, til að hringja í sfma 1322
eða 1337 á Hvammstanga
(svæðisnúmer 95).
Undirskriftalistar ásamt
frumvarpi Guðmundar H.
Garðarssonar munu liggja
frammi í nokkrum helztu stofn-
unum í Húnavatnssýslu á næst-
unni. Undirskriftasöfnunin
miðast við átján ára og eldri. ÖY
Var þetta kannski
fyrirboði?
Þessi mynd Snorra Snorra- fyrirboði þess sem koma skyldi?
sonár flugstjóra er gömul, en góð Snorri tók myndina veturinn 1961
engu að síður. Kannski var hún af HEKLU, DC-4 flugvél sem var f
Bifreiðastillingar
NICOLAI
Brautarhotti 4 — Stni 13775
eigu Loftleiða. Á vélina var samt
málað hið enska nafn Flugfélags
Islands, Icelandair, og faxamerk-
ið sómdi sér prýðilega á stéli
vélarinnar.
Þannig stóð á þessu að Flug-
félagið tók vélina á leigu og
nótaði hana til ísleitarflugs við
strendur S-Grænlands. Á sama
tima var unnið að því að setja
radartæki í Sólfaxa Flugfélags-
ins, sem tók síðan við isleitinni
næstu árin. Flugfélagsmenn
flugu Heklu meðan ísetning
radartækjanna fór fram.
I dag eru þessi flugfélög orðin'
að einu. Flugleiðum.
- JBP-
Hjalteyri:
Landsbankinn vill selja
hreppnum og matvæla-
framleiðanda á
Akureyri eignirnar
Enn hefur ekki verið ákveðið
hverjum Landsbanki tslands
selur eignir sínar á Hjalteyri við
Eyjafjörð. Mestan áhuga hefur
bankinn á að samræma tvö tilboð
af þeim þrjátíu, sem bárust í eign-
irnar, þ.e. tilboð Arnarneshrepps
og tilboð Daviðs Kristjánssonar á
Akureyri.
Hreppurinn gerði tilboð í allar
eignirnar, bæði landið og húsin
sem á því standa, eri Davið Krist-
jánsson aðeins í megnið af húsun-
um. Ingimar Brynjólfsson, odd-
viti Arnarneshrepps, hefur lýst
því yfir að hreppurinn treysti sér
ekki til að ganga inn i tilboð
Davíðs en Landsbankinn fyrir-
hugar nú að koma á viðræðum
milli þessara aðila fyrir norðan.
Gerir bankinn sér vonir um að
þær viðræður leiði af sér „sam-
ræmingu tilboða hreppsins og
Davíðs“, þannig að hægt verði að
selja hreppnum landið og Davíð
húsin.
Davíð Kristjánsson hefur í
hyggju að reka matvælaiðju á
Hjalteyri, en hann rekur nú Reyk-
miðstöðina á Akureyri. - ÖV
Gáf u 2 milljón króna
nýja sjúkrabifreið
og hef ja söfnun fyrir snjóbíl
Félagar í Björgunarsveitinni
Oki í Borgarfirði hafa nú yfir að
ráða flúnkunýrri sjúkrabifreið,
en hana fengu þeir að gjöf frá
Borgfirðingum og höfðu félagar í
Kiwanisklúbbnum Jöklum allan
veg og forgang þar um.
70 manns mættu á fundi að
Brún í Bæjarsveit fyrir nokkru
þar sem afhending bílsins fór
fram. Lýsti formaður klúbbsins
því, hvernig fé hafði verið safnað
kr. hagnað af töðugjöldum I
sveitinni. Klúbbfélagar unnu svo
að innréttingu, frágangi og máln-
ingu á bílnum án endurgjalds og
er framlag þeirra metið á 350
þúsund kr. Kostnaðarverð bílsins
við afhendingu var því tæpar 2
milljónir. Sjálfir smíðuðu Oks-
félagar nýtt, upphitað skýli fyrir
nýja farkostinn I Reykholti.
Næsta verkefni klúbbsins er
þegar ákveðið en það er söfnun til
NORRÆNA
HÚSIÐ
Finnbogi Arndal formaður Jökla afhendir Jóni Þórissyni
formanni öks sjúkrabílinn.
til kaupa sjúkrabifreiðarinnar.
Fóru félagar í heimsókn á 270
heimili norðan Skarðsheiðar og
leituðu stuðnings. Söfnuðust á
þann hátt 1.250.000 krónur. Hagn-
aður af dansleikjum er Kiwanis-
menn stóðu fyrir gaf 470 þús. í
aðra hönd. Töðugjaldanefnd i
Andakilshreppi gaf 128 þúsund
kaupa á snjóbfl fyrir Björgunar-
sveitina Heiðar í Mýrasýslu.
Margar ræður voru haldnar við
afhendingu bilsins og m.a. talaði
Hannes Hafstein framkvæmda-
stjóri SVFl og lýsti undrun
sinni yfir hröðum vexti og við
gangi í björgunar- og slysavarna
málum i héraðinu. - ASt
SKÁTAR - SKÁTAR
Muniö kvöldvökuna í íþróttahusi Hagaskólans við
Neshaga í kvöld kl. 20.
Söngur—gleði—gaman. Aögangur kr. 300. BÍS
Kari Skjönsberg lektor frá Osló heldur
tvo fyrirlestra í Norræna húsinu:
Miðvikudaginn 2. nóv. kl. 20:30
„Kjönnsrollemönster í nyere skandi-
naviske barne- og ungdomsböker.“
Fimmtudaginn 3. nóv. kl. 20.30 „Den
kvinnepolitiske situasjon í Norge.“
Norrœna húsið Verið velkomin