Dagblaðið - 02.11.1977, Blaðsíða 19
\<;m..\t>H> Mim iKru \<;n< 2 movkmhkk 1077.
Cirkus tekur upp æfingar á
nýjan leik
—og nú er frumsamið
efni nær eingöngu á
stefnuskránni
Hljómsveitin Cirkus er
byrjuð að æfa á ný eftir að
starfsemi hennar hefur lefiið
niðri siðan i vor. Meðlimir
hljómsveitarinnar dreifðust þá
út um allt, ef svo má segja.
Sumir fóru út á land og aðrir
til annarra landa.
,,Það má segja að við tökum
upp þráðinn þar sem við
hættum, það er að æfa frum-
samið efni eftir meðlimi
hljómsveitarinnar," sagði
Sævar söngvari Sverrisson, er
Dagblaðið heilsaði upp á
meðlimi Cirkuss í vikunni.
,,Við vorum nokkuð komnir á
veg með þessi lög, er við
ákváðum að hætta," bætti
hann við.
Tónskáld Cirkuss eru þeir
Helgi Magnússon hljómborða-
leikari og .gitaristinn Örn
Hjálmarsson. Þorvarður bróðir
Arnar semur textana, — hann
leikur á bassa i hljómsveitinni.
Fimmti meðlimurinn er síðan
Davíð Karlsson trommuleikari.
— Þeir voru beðnir um að lýsa
þeirri tónlist, sem þeir fást við
að leika þessa dagana.
„Þetta er eins konar
jassfunk," svaraði Örn, ,,þó
með danstakti, — engin diskó-
tónlist eins og við fluttum
síðastliðinn vetur, en samt vel
fallin til að dansa eftir."
Textar Þorvarðar eru á
íslenzku — svona vinnutextar
— eins og hann nefndi þá. Þeir
hafa í huga að koma þessu
frumsamda efni á hljómplötu
og hafa þreifað fyrir sér i þeim
efnum.
„Við erum að bíða eftir svari
frá hljómplötuútgefendum
þessa dagana," sagði Þor-
varður, en bætti því við að þeir
b-yggjust þó ekki við við-
brögðum fyrr en séð yrði
hvernig jólamarkaðurinn
þróaðist.
„Anr.ars liggur okkur ekk-
ert á,“ sögðu þeir Cirkusmenn.
Við erum ekki með nógu góð
hljóðfæri þessa dagana, því að
við seldum allt sem við áttum I
vor. Hvenær við byrjun að
CIRKUS — Hafa hug á að bæta einum manni í viðbót í hljómsveitina. DB-mynd: Árni Páll.
spila? Ja, eftir mánuð,
kannski."
Þá bættu þeir því við að enn
vantaði einn mann í hljóm-
sveitina, — hljómborðsleikara,
sem gæti raddað undir með
Sævari og Erni gítarleikara.
Þeir hafa einn mann í huga, —
sem þeir vilja reyndar ekki
nafngreina, — en hann gefur
svar í næstu viku. Þá er stóra
spurningin: Hver er maður-
inn?
-AT-
Hljómsveitin Octopus ýtir á flot
Þegar kvölda tekur og nóttin
færist yfir taka að berast
ókennileg hljóð út úr húsi
einu, gömlu, sem stendur við
Sigtún i Reykjavik (götuna vel
að merkja). Þeir sem nær
ganga eiga vafalaust erfitt með
að fá botn í hljóðin, en ef þeir
gerast svo djarfir að gægjast á
glugga, koma þeir auga á unga
menn í þrekleikfimi.
En ekki gefa tilvonandi
þrekmenni frá sér siik firn af
hávaða að stundum mmmr
helzt á þotuhljóð. Nei, ef
lengra er farið, kemur í ljós að
í hinum endanum er rokk-
hljómsveit við æfingar og
dregur ekki af sér. Þessa
hl.iómsveit skipa fimm manns
ogkalla sig Orlopus.Dagblaðið
heimsótti þá á æfingu á mánu-
dagskvöldið.
„Blessaður, við erum
nýbyrjaðir. Við fengum þetta
æfingahúsnæði fyrir hálfum
mánuði og vorum þá aðeins
komnir með fjögur lög," sagði
gítarleikari Ocopusar, Sigur-
geir Sigmundsson, er hann var
spurður hvort hljómsveitin
hefði komið einhvers staðar
fram opinberlega. Hann bætti
því við að hljómsveitin
skemmti f.vrst á miðvikudags-
kvöldið (í kvöld) á fjölbrauta-
skólaballi.
„Við ætlum að halda okkur
við skólaböllin, þar til
hagurinn hefur vænkazt og við
getum fengið okkur al-
mennileg hljóðfæri," bætti
Sigurgeir við.
Þá voru þeir spurðir hvers
konar tónlist þeir hygðust
aðallega flytja.
„Múísk." Þeir brosa út að
eyrum og ranghvolfa í sér
augunum. „Ætli megi ekki
kalla það alhliða rokk," segja
þeir loks.
Auk Sigurgeirs, sem áður er
nefndur, skipa hljómsveitina
þeir Gústaf Guðmundsson
trommuleikari, Jóhann
Friðrik Klausen píanóleikari,
Birgir Ottósson bassaleikari og
söngvarinn, Eiríkur Hauksson.
— En hvar skyldu þessir menn
hafa leikið áður. Þeir líta hver
á annan.
„Blessaður, við skulum ekki
minnast á það," sagði Sigur-
geir, en einhver, sem ekki vill
því út úr sér að þeir hafi komið
við sögu á Röðli og í Þórskaffi
hér fyrr á árum.
En hvað um það.
Hljómsveitin Octopus er að ýta
á flot.
OCTOPUS — Halda sig við skólana þar til þeir eiga fyrir
almennilegum hljóðfærum. DB-mynd: Árni Páll.
LúdóogStefán:
ISAMA FARIÐ
LUDÓ OG STEFÁN
Utgefandi: SG hljornplotur (SG-107).
UpptökumaAur: Sigurður Ámason.
Utsetningar og hljomsveitarstjorn: Jón Sig-
u'ðsson.
Upptakan fór fram í Tóntækni.
Þessi nýja hljórrplata Lúdó
og Stefáns er beint framhald
af þeirri fyrri sem kom út í
fyrrahaust. Sú hlaut aldeilis
óvæntar viðtökur og eitt lagið,
Öisen. ólsen, hljómaði i út-
varpi langt fram á vor. Svo
rammt kvað meira að segja að
vinsældunum að einn stjórn-
andi i.aga unga fólksins sá sig
tilnevddan að bannfæra lagið í
þætti sínum — hefur kannski
ekki þótt það nógu menningar-
legt til að það fengi að hljóma í
þætti sínum.
Nýja platan ber þess nokkur
merki að nú hefur aftur átt að
leika sama leikinn og áður. En
þarna er enginn Ölsen ólsen né
annað lag sem er vænlegt til
neinna svipaðra vinsælda. Þá
er lagavalið ekki eins ferskt og
á fyrstu plötunni. Sama gerðist
er American Graffiti-plöturnar
voru gerðar. Sú fyrsta var
ágæt en plata númer tvö ekki
svipur hjá sjón.
Hljóðfæraleikur Lúdó-
manna er svipaður og áður og
breytist tæplega úr þessu. Þar
ber ekki á neinum öðrum
fremur. Þeir Stefán, Berti,
Hans og Elvar Berg hafa
starfað meira og minna saman
að hljómsveitamálum síðan
1959 og þekkja orðið hver ann-
an. Þvi eru þeir ekki að glíma
við neitt sem þeir vita að þeir
ráða ekki við heldur koma því
til skila sem þeir ætla sér.
Þetta er stærsti kostur Lúdó og
Stefáns.
Fyrir þessi jól koma út þrjár
plötur sem eru eins konar upp-
rifjun á gömlu lögunum. Auk
Lúdóplötunnar eru þetta plata
Dúmbósextettsins og Gamlar,
góðar lumraur. Markaðurinn
fyrir þessar upprifjunarplötur
ætti því að vera sæmilega
mettaður i bili. - ÁT -