Dagblaðið - 02.11.1977, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 02.11.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1977. it. „Meira drepið en til stóð” —segir Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræöingur um smásildina sem sjómenn fá í veiðarfærin „Ég hygg, að það hafi verið drepið meira þarna en stóð til I upphafi," sagði Hjálmar Vil- hjálmsson fiskifræðingur I við- tali við DB um þær fréttir sem borizt hafa af síldveiðimiðun- um sunnan við landið. Segja sjðmenn þar, að heilar torfur af smásild fljóti þar upp, eftir veiðar hringnótaskipa að undanförnu. „Smásildin lifir af, ef henni er sleppt, áður en verulega er farið að herða að, en enginn vafi er á þvl, að hún drepst, ef margsinnis er kastað á sömu torfurnar, eins og mun vist hafa gerzt,“ sagði Hjálmar ennfremur. Hiálmar var leiðangursstjóri á Arna Friðrikssyni á miðun- um fyrir'siðjistu helgí og sagði hann að þá hefði verið tekin ákvörðun um að loká svæði við Hrollaugseyjar. „Við fylgjumst einnig með veiðisvæðunum austan Ingólfshöfða’ og' á öræfagrunni en þar hafði ástandið skánað, þrátt fyrjr að sildin væri enn töluvert blönd- uð.“ „Við ætlum að kanna enn betur lokaða svæðið . við Hrollaugseyjar i dag,“ sagði Jakob Jakobsson fiskifræðing- ur um borð i Arna Friðrikssyni i gær er DB hafði samband við hann vegna þessa máls. „Ef mikið hefur verið drepið af smásild verðum við að gripa til enn frekari lokunaraðgerða." Sagði Jakob, að aflinn virtist samt vera sæmilegur, hvað varðar stærð sildarinnar, sér- staklega i Lónsvikinni og sagði hann veður á miðunum vera afskaplega gott. - HP SKARTGRIPAÞJÓFAR Á FERÐ Á ÍSAFIRDI — íþriðja sinn sem brotizt er innísömu búðinaþar „Ég verð liklega að hætta að stilla svona fallega út i glugg- ann,“ sagði Axel Eiriksson úr- smiður á Oðinsgötu 1, en hann rekur jafnframt úra- og skart- gripaverzlun á Isafirði. Brotizt var inn i Isafjarðarútibúið aðfara- nótt sl. föstudags og þaðan stolið gripum að verðmæti tæplega 400 þúsund kr. verið að verki. Fyrsta innbrotið, sem framið var fyrir þremur árum, hefur aldrei komizt upp,“ sagði Axel. Að þessu sinni voru það tölvu karlmannsúr sem stolið var, kven- mannsör, gullhálsmen, silfur- og gullhringir, armbönd og ein vasa- tölva. „Þetta er í þriðja sinn sem brot- izt er inn í Isafjarðarbúðina. öll þrjú innbrotin hafa verið með þeim hætti að rúðan í sýningar- glugganum er brotin. Fyrir rúmu ári síðan var stolið fyrir um það bil 200 þúsund kr. Þá var lögregl- an svo snögg að upplýsa málið að hún hafði ákveðna menn grunaða og sótti þá heim strax um nóttina. Voru það heimamenn sem höfðu Guðmundur Sigurjónsson full- trúi bæjarfógetans á Isafirði sagði að unnið væri að rannsókn málsins bæði á Isafirði og I Reykjavík. Er sjálfsagt að biðja fólk að vera á verði ef það verður vart við að einhver býður eitthvað af þýfinu til kaups á „frjálsum markaði" og gera þá lögreglunni aðvart. - A.Bj. Li'W T -Sfc'**-£■ PrBmLT % * *//% n j B Námslán: Tilkynningar sendar út í dag Blikksmiðir berjast gegn vágestinum „Við komumst yfir fyrstu umferðina af erlendum um- sóknum í gær og sendum út tilkynningar til lánabeiðenda og umboðsmanna þeirra," sagði Sigurjón Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Lánasjóðs isl. námsmanna, f viðtali við DB. „Fólk getur því átt von á til- kynningum um haustlánin til þeirra, sem stunda nám er- lendis næstu daga.“ Sigurjón sagði, að sennilega myndi afgreiðsla naustlánanna til námsmanna hér heima drag- ast um viku. „Það er hins vegar ljóst, að ■við getum varla afgreitt nema um 10% af þeim umsóknum, sem nú hafa verið sendar út tilkynningar um,“ sagði Sigur- jón. „Það vantar alltaf geysi- mikið af fylgiskjölum og eins hefur verkfallið tafið fyrir heimsendingum þeirra." - HP Reykjavíkurskákmötið ífebrúar: H0RT 0G SPASSKY GETA EKKIK0MIÐ Hort og Spassky geta hvorugur tekið þátt f 8. Reykjavíkurskák- mótinu i febrúar næstkomandi. Larsen hefur boðað komu sína og nýlega barst bréf frá brezka stór- meistaranum Miles um að hann komi til leiks. Hort getur ekki komið þar sem hann er bókaður í Tito-skákmótið í Tékkóslóvakíu. Hann býst við þvf, að Smejkal geti komið í sinn stað. Einvígi þeirra Spasskys og Korchnois kemur í veg fyrir þátt- töku Spasskys. Það hefst í Bel- grad i Júgóslaviu hinn 15. nóvem- ber næstkomandi. Telur Spassky sennilegt, að einvígið kunni að standa út ailan janúar en Reykja- vikurmótið hefst hinn 4. febrúar, eins og áður hefur komið fram. Bandaríski stórmeistarinn Walter Browne hefur þegið boð um þátttöku. Biður hann í bréfi sínu afsökunar á þvi, hversu seint hann svari, en hann hafi verið svo önnum kafinn undanfarið við að vinna Bandaríkjameistaramótið i þriðja sinn í röð. Hann tekur boð- inu um þátttöku i Reykjavíkur- mótinu með þökkum og kveðst munu láta gamminn geysa. i hverri skák sem hann tefli hér. Von er á Tal og Romanishin til þátttöku frá Sovétrikjunum, enda þótt ekki hafi borizt svar frá þeim enn. Þá er beðið eftir svari frá þeim Ljubojevic og Kurajica frá Júgóslavíu. Frá Bobby Fischer hefur enn ekkert þeyrzt. Ekki er þó útilokað að hann komi á óvart með þátt- töku. Alþjóðlega meistaranum norska, Leif ögaard.hefur verið boðið til mótsins. Þá er talið, að vestur-þýzki stórmeistarinn Hílbner hafi hug á að þiggja boð, ef hann fær það. Þá er einnig rætt um Kavalec og Lombardy frá Bandaríkjunum, og Timman og Sosonko frá Hollandi. Friðrik, Guðmundur og Ingi R. verða með í mótinu eftir því sem bezt er vitað, auk þeirra Jóns L. Árnasonar og Helga Olafssonar. - BS Það er ekkert gamanmál fyrir voðum. Nýlega samþykkti stjórn að vinna að og koma á verklegum þá sem verða fyrir barðinu á elds- Félags blikksmiða á fundi sfnum kennsluæfingtim i brunavörnum fyrir starfsfólk í iðnaðinum. Markmiðið er æfing fyrir hverja blikksmiðju, en þær eru 18 á Reykjavíkursvæðinu. I fyrradag fór fyrsta æfingin fram. Það var 1 Biikksmiðjunni Vogi I Kópavogi, og þar var þessi mynd tekin. DB-mynd BJarnlelfur. r ===== H0LASP0RT = HÓLAGUM—BREIÐHOLTI Nýkominn Sundfatnaður frá SPEED0 ogARENA Merkin sem allirþekkja Allar stærðir, margirlitir VERÐ: Sundbolir fró 2.060—3.100 Sundskýlur fró 900—1.670 Einnig sundgleraugu, sundhettur, sundspaðar, sundboltaro.fi. o.fl. Póstsendum um land allt HÓLASP0RT Hólagarði — Lóuhólum 2-6 Sími 75020 -

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.