Dagblaðið - 02.11.1977, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. NOVEMBER 1977.
7
HOLLAND: ,
CARANSA FRJALS FYRIR
EJNN MIUJARÐ KRÓNA
Hollenzki auðmaðurinn, sem
rænt var í síðustu viku, fannst
heill á húfi í morgun á torgi einu í
Amsterdam.
Að sögn hollenzku lög-
reglunnar munu hafa verið
greiddar tíu milljónir líra í lausn-
argjald fyrir Mauris Caransa.
Mun það jafngilda um það bil
einum milljarði íslenzkra króna.
Caransa er sextíu og eins árs
gamall og hefur að sögn aðallega
auðgazt á kaupum og sölu fast-
eigna.
Hann var við góða heilsu þegar
hann fannst í Amsterdam og fékk
að fara heim til fjölskyldu sinnar
eftir að hafa skýrt lögreglunni frá
reynslu sinni.
Ekki hafa borizt neinar frekari
fregnir af hver rændi Caransa eða
hvernig honum var rænt, en kona
sem var á ferð um götur Amster-
dam varð hans fyrst vör eftir að
ræningjarnir slepptu honum úr
haldi.
Hvort mannræningjarnir voru
félagar í einhverjum hópi öfga-
manna til hægri eða vinstri hefur
ekki komið fram og alveg eins
gætu hér hafa verið á ferðinni
venjulegir glæpamenn sem telja
mannrán arðbæra atvinnugrein.
Fyrstu dagana eftir að Caransa
var rænt bárust litlar fregnir af
honum og þær fregnir sem bárust
voru mjög ruglingslegar.
Taldi lögreglan að flestar væru
blekkingar framkvæmdar af
VINNUMÁLASTOFNUN:
Israel hugleiðir að
fylgja Bandaríkjunum
ísrael hugleiðir nu að fylgja
fordæmi Bandaríkjanna og
segja sig úr Alþjóðavinnumála-
stofnuninni, sem er ein af
hliðarstofnunum Sameinuðu
þjóðanna.
Carter Bandaríkjaforseti
ákvað að land hans hætti þátt-
töku í samtökunum vegna
óánægju með rekstur og stefnu
þeirra en hann telur Bandarík-
in ekki hafa næg áhrif á hana,
sérstaklega þegar haft er í huga
að fjórðungur kostnaðar af
rekstrinum hefur hingað til
verið greiddur af Bandaríkjun-
um. Bandaríkin voru mjög á
móti því í fyrra þegar samþykkt
var að Palestínuarabar fengju
aðild að samtökunum.
Israelsmenn tóku að sjálf-
sögðu undir þá andstöðu og í
gær sagði talsmaður þeirra að
samtökin hefðu sífellt á síðustu
árum verið að fjarlægjast
markmið sitt sem stofnun, sem
ætti að hugsa um vinnu og
vinnandi fólk. I stað þess hefðu
komið afskipti af ýmsum póli-
tískum deilumálum, sem kæmu
markmiði stofnunarinnar ekk-
ert við.
Talsmaðurinn sagði að veeur
Alþjóðavinnumálastofnunar-
írinar minnkaði óneitanlega
mikið þegar stórveldi eins og
Bandaríkin segðu sig úr þeim.
Þess vegna mundi Israelsríki
hugleiða úrsögn úr samtökun-
um, sem stefndu í svo þveröf-
uga átt við það sem þau vildu.
Heimildir í Israel sögðu í gær
að margir áhrifamenn þar í
landi hefðu lengi óskað þess að
ríki þeirra yfirgæfi Alþjóða-
vinnumálastofnunina.
Þó er talið víst að ákvörðun
muni ekki verða tekin um það í
ísrael án þess að málið verði
rætt vandlega í ríkisstjórn
landsins.
meira og minna rugluðu fólki. heyra og gefa til kynna á full-
A sunnudaginn komu ættingjar nægjandi hátt að auðmaðurinn
Caransa þeim boðum til væri 1 þeirra umsjá.
ræningjanna í gegnum fjölmiðla Virðast þessi tilmæli hafa borið
að þeir grátbæðu þá að iáta í sér tilætlaðan árangur.
Iðnaðar- og verzlunarhúsnæði
óskasttilleigu
150-200 fermetrar.
Upplýsingar ísfma 28588.
Símaskráin
1978
Símnotendur íReykjavík,
Seltjarnamesi, Kópavogi,
Garða- og Bessastaöahreppi og
Hafnarfiröi
Vegna útgáfu nýrrar símaskrár er nauðsynlegt að senda
skriflegar breytingar, ef einhverjar eru, fyrir 15. nóv. nk.
til skrifstofu símaskrárinnar, Landssímahúsinu vií
Austurvöll.
Nauðsynlegt er að viðkomandi rétthafi símanúmers til-
kynni skriflega um breytingar^ ef einhverjar eru. Athug-
ið að skrifa greinilega.
Athygli skal nánar vakin á auglýsingu um breytingar í
simaskrána á baksíðukápu símaskrár 1977, innanverðri.
Atvinnu- og viðskiptaskráin verður prentuð í gulum lit
og geta símnotendur birt smáauglýsingar þar, sem eru
ódýrari en auglýsingar í nafnaskrá, enda takmarkaður
fjöldi auglýsinga sem hægt er að birta í nafnaskránni.
Nánari upplýsingar í símum 22356 og 26000 og á skrif-
stofu símaskrárinnar.
Ritstjóri símaskrórinnar.
Strandaði
og missti
réttindin
Yfirvöld i Líberíu hafa
ákveðið að skipstjórinn á
risaoliuskipinu Argo
Merchant skuli missa skip-
stjórnarréttindi sfn vegna
mistaka í starfi.
Úr skipi hans, sem
strandaði á vesturströnd
Massachusettsríkis í Banda-
ríkjunum, munu hafa
runnið um þrjátíu milljónir
lítra af olíu í hafið.
Skipstjórinn Georgios
Papadopoulos var ekki
staddur á stjórnpalli, þegar
atburðurinn varð síðast í
desember.
Fulltrúi skipaeftirlits
Liberíu sagði að ákvörðun
um réttindamissi skipstjór-
ans hefði verið tekin vegna
þess að rannsókn hefði leitt i
ljós, að hann hefði gert ýms-
ar vitleysur við stjórn skips-
ins.
Áskorun
Áhugamenn um að Albert Guðmundsson
haldi áfram að gæta hagsmuna Reykvíkinga á
Alþingi og í borgarstjórn Reykjavíkur hafi
bundizt samtökum um að skora á hann með
símskeytum að gefa kost á sér á listaSjálf-
stæðisflokksins í næstu kosningum.
Fólk er hvatt til að senda Albert Guðmunds-
syni alþingismanni svohljóðandi símskeyti
strax í dag:
„Skorum á þig að halda áfram sem þing-
maður okkar Reykvíkinga fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn næsta kjörtímabil.“
Skeytið má senda á skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins, Háaleitisbraut 1, eða heim til Al-
berts að Laufásvegi 68.
N0KKRIR KJÓSENDUR