Dagblaðið - 02.11.1977, Síða 15

Dagblaðið - 02.11.1977, Síða 15
OAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. NOVEMBER 1977. 15 sróttir iþróttir Iþróttir róttir Iþróttir I ídsleiki í handknattleik kvenna í Barn- r. Þýzku stúlkurnar sigruðu i báðum t frá hér í blaðinu. t fyrri leiknum með idóttir, A, Kristjana Aradóttir, FH, og Is í leiknum. t síðari ieiknum með 15-5. lörkum tslands, Guðrún Sigurþórsdóttir . Myndin að ofan er frá fyrri leiknum. im sinum í leiknum úr vitakasti hjá raði fimm mörk úr vítum í leiknum. ir af leik- iry sigraði li hjá Man. City Idabikarnum knýja fram sigur gegn Luton. Jafntefli 0-0 á Maine Road í Manchester eftir framlengingu. Leikmenn City vildu fá víti í leiknum og mark var dæmt af liðinu. Á lokamínútu leiksins mis- notaði hinn ungi leikmaður Luton, Gary Heale, auðvelt marktækifæri. t 3ja leiknum í deildabikarnum í gær- kvöld sigraði Swindon Portsmouth 4-3 — sigurmarkið skorað eftir tvítekna vitaspyrnu. t ensk-skozka bikarnum sigraði St. Mirren Notts County 2-0 í undanúrslit- um — vann samanlagt 2-1 — og leikur til úrslita við Bristol City í keppninni. Bristolliðið sigraði Hibernian 5-3 í gær- kvöld — 6-4 samanlagt. í 4. umferð enska deildabikarsins leika þessi lið saman: Arsenal — Hull City Bolton — Leeds Bury — WBA Ipswich — Man. City eða Luton Liverpool — Coventry Nottm. For. — A. Villa Sheff. Wed. —vEverton Wrexham — Swindon. KANARÍEYJAR Sunna býður upp á þægilegt dagflug á laugardögum. Hægt er að velja um 1, 2, 3 eða 4 vikna ferðir. Brottfarardagar: 16. okt. 5., 26., nóv. 10., 17., 29. des, 7., 14., 28. jan. 4., 11., 18., 25. feb. 4., 11., 18., 25. marz. L, 8., 15., 29. apríl. Pantið snemma meðan ennþá er hægt að velja um brottfarardaga og gististaði. SUNNA Reykjavik: Lakjargötu 2, simar 16400 og 12070. Akureyri: Hafnarstrati 94, simi 21835 Vestmarmaeyjum: Hólagötu 16, simi 1515. DERBY SELUR 0G KAUPIR Tommy Docherty, hinn nýi framkvæmdastjóri Derby County, heldur áfram kaupum og sölum á leikmönnum. Er á góðri leið með að gjörbylta liði Derby. Að und- anförnu hefur hann selt tvo lelk- menn, Rod Thomas til Cardiff fyrir tíu þúsund sterlingspund, og markvörðinn Graham Moseley til Brighton fyrir 20 þúsund pund. I gær keypti hann svo Bruce Rioch frá Everton fyrlr 150 þúsund sterlingspund — eins og getið var hér í blaðinu í gær. Rod Rhomas er 29 ára bak- vörður og hefur um langt árabil verið fastur leikmaður í landsliði. Wales.Hannhafði lengi leikið með Swindon, þegar hann var keyptur til Derby 1973 — og hefur verið þar fastamaður siðan. Moseley var aðalmarkvörður Derby um tima, þegar Dave McKay réð þar ríkjum. Docherty hefur þá selt fimm leikmenn, Archie Gemmill til Nottm. Forest, Derek Hales til West Ham og Leighton James til QPR áður. James fór á jöfnu fyrir Don Masson, skozka landsliðs- manninn og fyrirliða Skotlands gegn Wales í Liverpool á dögunum. Derek Hales komst strax á skot- skóna á ný þegar hann fór frá Derby. Á mánudag skoraði hann þrjú mörk i ágóðaleik fyrir kunn- asta leikmann West Ham, Trevor Brooking. West Ham lék þá gegn 11 enskum landsliðsmönnum og vann 6-2. Brooking skoraði fyrsta mark leiksins. Hales hefur skorað sex mörk i fjórum leikjum fyrir VH —eða álika og hann skoraði á heilu ári hjá Derby frá þvi hann var keyptur frá Charlton fyrir 280 þúsund sterlingspund. West Ham fékk hann fyrir 100 þusund pund. Og f gær kom Bruce Rioch á ný til Derby, svo Docherty er farinn að ná sér í Skota eins og hann gerði, þegar hann var fram- kvæmdastjóri Manch. Utd. Kom til þess félags úr starfi sem lands- liðseinvaldur Skotlands. Bruce Rioch verður fyrirliði skozka landsliðsins á HM í Argentlnu næsta ár — ef ekkert kemur fyrir hann. Fyrir ellefu mánuðum keypti Everton hann frá Derby fyrir tæp 200 þúsund pund — en honum líkaði aldrei dvölin í Liverpool. Var fljótur að ákveða sig, þegar Derby vildi fá hann á ný. Þar kemur hann til með að leika við hliðina á landsliðsfélaga sínum, Don Masson. Báðir mjög reyndir leikmenn — en farnir að nálgast þritugt. Eftir að Masson fór frá QPR til Derby réðist hann í blaðagrein á sitt gamla félag. Sagði að það seldi sína beztu leikmenn og hefði engan áhuga á að standa sig vel í 1. deildinni. Fyrir tveimur árum munaði hárs- breidd að QPR yrði enskur meist- ari en tap f Norwich í lokin setti strik I reikninginn. Liverpool varð meistari. QPR hefur auk Masson látið þá Dave Thomas (til Everton) og David Webb (til Leicester) frá sér að undanförnu. Alan Dugdale, miðvörðurinn kunni hjá Coventry, hefur verið seldur til Lundúnaliðsins Charlton. Kaupverð 50 þúsund sterlingspund og Elton John, poppstjarna, heldur áfram að styrkja lið sitt Watford, sem er í norðurjaðri Lundúnaborgar Elton John er þar stjórnarfor- maður og Watford efst i 4. deild. Liðið keypti nýlega Dennis Booth frá Lincoln City fyrir 15 þúsund sterlingspund. Það var i Sviss árið 1883, sem Herman THORENS hóf fram- leiðslu sinna fyrstu hljóm- tækja. THORENS verksmiðjan hefur nú um áratuga skeið framleitt plötuspilara fyrir kröfuharða tónlistarunnendur með betri árangri, en flestir aðrir. Við bjóðum fjórar teg- undir THORENS plötuspilara á verði frá kr. 74.700 upp í 188.700 (án tónhöfuðs). THORENS TD-160mkll,sem hér er sýndur, kostar kr. 86.500. Það er kannski hægt að fá ,,glæstari“ plötuspilara en THORENS, en engan betri. •'7 ■ r THOREINIS FYRIR KRÖFUHARÐA TÚNLISTARUNNENDUR Leiðandi fyrirtæki á sviói sjónvarps útvarps og hljómtækja VEBZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 27788,19192,19150

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.