Dagblaðið - 02.12.1977, Page 2
2
DAOBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1977.
t ....
Myndin var ekki sæmileg
heldur snilldarverk
Á íslandi aka yfir
2900BÍLAR
með Lumenition {
Daglega fjölgar þeim bílum, sem aka með þessum búnaöi, enda er
platínulausa transistorkveikjan frá LUMENITION örugg fjár-
festing, sem margskilar hagnaði. Yfir 2ja ára reynsla íslenzkra
ökumanna hefur staðfest tvennt:
• Raunverulegur bensínsparnaður er a.m.k. kr. 8 pr. ltr. Meðaitai sem
miðast við 88 pr. Itr.
• Gangöryggi, sem tryggir stöðuga hámarksnýtingu vélaraflsins.
AlgengUstu gangsetningarvandamál og rykkjóttur akstur með
kaidri vél eru úr sögunni.
Spyrjiö LUMENITION-eigendur um þeirra reynslu.
M5ft ^gg£i ri UAni?p^ug
Skeifunni 3e-Simi 3*33’4S
„Friðarsinni" skrifar:
,,Ekki ber það vott um mikið
vit eða skilning, að gefa því
ádeiluverki meistarans Leslie
Howard, sem sýnt var í sjón-
varpinu lagard. 19. nóvem-
ber, einkunnina „sæmilega
fyndin". En þetta er sú ein-
kunn er sérfræðingur Dag-
blaðsins gaf myndinni. Ef rit-
stjórar þessarar svokölluðu
handbókar, sem sífellt er
vitnað í, eiga sökina þurfa þeir
greinilega á andlegri endur-
hæfingu að halda.
Það er vissulega rétt að
myndni var fyndin. En það er
einmitl sú aðferð er mönnum
svíður sárast undan þegar þeir
eru gagnrýndir. Það þarf meira
en lítinn þurs til að skilja ekki
inntak myndarinnar.
Hinn menntaði og gáfaði
prófessor dregur ómenntaða og
heimska nasista-bjálfa sundur
og saman í háði svo svínfeiti
hershöfðinginn er að verða viti
sínu fjæ>r af Itræði.
Og til þess að bæta gráu ofan
á svart tekst honum, ásamt
nemendum sínum, að frelsa
fjöida merkra manna úr klóm
óargadýranna. Stórgóður texti
og frábær leikur gerir kvik-
mynd þessa ógleymanlega.
Þrátt fyrir að þýzku nasist-
arnir virtust firrtir allri mann-
legri skynsemi voru þeir ekki
þau flón að láta fram hjá sér
fara hver tilgangur friðarsinn-
ans Leslie Howards og fram-
leiðenda myndarinnar var. A
þann, er hefur aðeins ofbeldi,
grimmd og dýrkun djöfullegra
athafna að aðaltakmarki lífs
síns, bítur aðeins eitt vopn —
yfirburða mannvit.
Svo eru hér nokkur orð til
hinnar þýzk-islenzku frUar sem
kvartaði í Velvakanda Morgun-
blaðsins.
Það er sannarlega sárt að
þurfa að hata nokkra mann-
eskju, hvað þá heila þjóð. Þjóð-
verjar nUtímans verða að bíta i
það súra epli að feður þeirra
frömdu þann mesta glæp allrar
mannkynssögunnar. Þau
fórnarlömb þeirra, sem lifðu
djöfulæðið af, og afkomendur,
einnig skyldmenni barnanna
sem sett voru lifandi í
brennsluofn UtrýmingarbUð-
anna. geta ekki gleymt eða
fyrirgefið.
Ég bið frUna að hugleiða
þetta. HUn á ekki sök á því sem
gerðist, vissuiega ekki. En hiin
—við skulum ekki gleyma
of beldisverkum f ortíðarinnar
Leslie Howard var storkostlegur leikari. Þarna er hann í hlutverki
sínu í myndinni Of human bondage, þar sem hann lék á móti Bette
Davis.
getur gert dálítið sem Þjóð-
verjar hafa almennt vanrækt.
HUn getur beðizt afsökunar
eftir því sem það er unnt, það
er vissulega erfitt.
Ungt menntafólk í Banda-
ríkjunum, sem stóð að sífelld-
um mótmælaaðgerðum gegn
stríðsrekstri þjöðar sinnar í
Víetnam, var það sem vakti at-
hygli bandarisku þjóðarinnar á
þessari brjáiuðu morðárás á
þjóð er aldrei hafði gert nokk-
uð á þeirra hlut. Unga k.vnslóð-
in í Þýzkalandi verður að koma
í veg fyrir endurvakningu fas-
ismans. Henni tekst það ef vilji
er fyrir hendi.
Samvizka fólks um allan
heim verður sifellt að vera vak-
andi. Það er í engu samræmi að
hne.vkslast yfir mannránum,
svo andstyggileg sem þau eru,
en loka augum og eyrum þegar
stríðsveldi hefja t.d. fyrirvara-
laust loftárásir á saklaust fólk
(N-Víetnamar og ísraelar á
flóttamannabUðir Palestínu-
manna).
Við skulum aldrei gieyma
glæpum Hitlers-Þýzkalands,
Pearl Harbour, Stalíns-
RUsslandi, Pentagon, CIA,
glæpaverkum nýlenduveld-
anna.
Hér verður upptalningu víst
að ljUka. Listinn gæti orðið
endalaus. Homo sapiens er
kannski vonlaust f.vrirbæri. ,
Það hvarflar oft að manni að
svo sé. En e.t.v. á mannkynið
sér einhverja von. Ef til vill."
Athugasemd frá umsjónar-
manni dagskrárkvnningar.
Mér þykir leitt ef ég hef
móðgað einhvern með því að
gefa mynd Howards einkunn-
ina sæmileg. En minna rná á að
orðið sæmilegur þýðir sam-
kvæmt gamalli merkingu þess
orðs TIL SÖMA. - DS
— Hugsið ykkur þetta. Jóiasveinninn getur bara
sofnað þegar mest er að gera hjá honum. Hann
kiárar áreiðanlega ekki allar jólagjafirnar. Hvað á
ég að gera? Ég verð að segja jólasveinsstráknum
frá þessu, hugsar JúIIi með sér.
— Veiztu bara, jólasveinninn situr í stól og hrýtur.
Hvað eigum við að gera fyrir öll börnin sem ekki fá
•jólagjafirnar sínar? Þetta verða kannski leiðinleg-
ustu jól í þúsund ár.
— Hvað segirðu?! hrópar jólasveinsstrákurinn.
Sefur jólasveinninn?! Ekki klára ég einn allar
jólagjafirnar.
— Ég skal hjálpa þér, segir Júlli. Þá klárum við
þetta — það eru þó ennþá 22 dagar til jóla.