Dagblaðið - 02.12.1977, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 02.12.1977, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1977. frýálzi,áháð dagblað Útgefandi Dagblaöiö hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jonas Kristjánsson. Fróttastjóri: Jón Birgir Pétursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjórnar: Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. Aöstoöarfróttastjóri: Atli Stoinarsson. Handrit: Ásgrímur Palsson. Blaöamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur Sigurðsson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson, Katrín Pálsdóttir, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson, ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Höröur Vilhjálmsson, Sveinn Þormóðsson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M. Halldórsson. Ritstjórn Síðumúla 12. Afgreiösla Þverholti 2. Áskriftir, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11. Aðalsími blaösins 27022 (10 línur). Áskrift 1500 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 8P kr. eintakiö. Setning og umbrot: Dagblaöiö og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda og plötugerð: Hilmir hf. Síöumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 19. Freki frændinn Við lítum á Færeyinga sem frændur og vini. í huga flestra íslendinga er sú þjóð okkur ná- komnust. En þetta rættlætir ekki pólitík stjórnvalda. í stað þess að sækja hart á fiskimið okkar og skerða kjör okkar ættu Færeyingar að sjá sóma sinn í að leyfa íslendingum að búa að sínu. Færeyingar hafa í ár hert sóknina á íslands- mið. í fyrra var hér að meðaltali 3,1 færeyskur togari þá daga, sem þeir veiddu hér við land. í ár hefur þessi tala hækkað í 3,7. í fyrra voru að meðaltali 9,7 færeysk línu- og handfæraskip. Sú tala hefur hækkað mikið í ár og er komin upp í 17,2 skip að meðaltali á dag. Við höfum komið Bretum og Þjóðverjum af okkur, þótt seint gengi. Hér eru enn færeysk, norsk og belgísk veiðiskip. Ráðherrar segjast ekki vilja segja þessum samningum upp og tína ýmislegt býsna lítilvægt til sem rök fyrir af- stöðu sinni. Færeyski samningúrinn leyfir togveiðar tíu tiltekinna skipa, auk línu- og handfæraveiða. Þeir mega veiða allt að sautján þúsund tonn, þar af átta þúsund tonn af þorski. Auk þessa samnings hafa Færeyingar fengið að veiða loðnu. Þegar sjávarútvegsráðherra ver þessar veiðar höfðar hann gjarnan til tilfinninganna með því að útlista, að Færeyingar séu svo skyldir okkur, að hann líti ekki á þá sem aðra þjóð. Þeir séu einnig smælingjar, sem þurfi á aðstoð okkar að halda. í reyndinni hugsa Fær- eyingar um sinn eigin hag. Afstaða þeirra í síðasta þorskastríði okkar við Breta kom okkur illa, þarsem brezkuskipin gátu leitað athvarfs í " Færeyjum og þurftu ekki að sigla alla leið til Bretlands, þegar þeim þótti slíkt henta. í reynd eru Færeyingar ekki þeir smælingjar, sem ráð- herra vill vera láta. Þeir eru yfirleitt á undan okkur í nýjungum í veiðitækni og vinnslu. Þeir búa við hærri laun en fólk á íslandi. Sjávarútvegsráðherra telur það mjög mikil- væga ráðstöfun, þegar hann bannar veiðar íslenzkra skipa í nokkra daga og aflinn minnkar við það kannski um ein tíu þúsund tonn. Átta þúsund tonn, sem Færeyingar hirða, jafngilda veiðibanni á íslenzk skip í viku. ís- lenzkum sjómönnum þykir þessi gjafapólitík gagnvart Færeyingum á kostnað okkar eigin veiða býsna sárgrætileg. Samningar um loðnuveiði eru í undirbún- ingi. Á nýafstöðnu þingi Farmanna- og fiski- mannasambandsins var því harðlega mótmælt. Engin vissa er til staðar um það loðnumagn, sem óhætt er að veiða á miðunum hér við land, án þess að stofninum stafi hætta af. Loðnu- stofninn ætti að vera baktrygging okkar, þegar takmarka þarf aðrar veiðar. Islenzkir sjómenn eiga að vera einir um þær veiðar. Þótt við höfum mikla samúð með Færeying- um, eigum við ekki aó láta þá vaða yfir okkur. Öllum samningum um veioar út'hendinga á ís- landsmiðum á að segja upp, einnig samningun- um við hina freku frændur okkar. Júgóslavía: JOVANKA - TRYGGUR FÖRUNAUTUR TÍTOS HEFUR EKKISÉZT í FIMM MÁNUÐI Fimm mánuðir eru síðan Jovanka, eiginkona Titos, sást á opinberum vettvangi. Búizt hafði verið við að hún kæmi opinberlega fram á þjóðhátíðar- degi Júgósiavíu á laugardaginn var, en svo varð ekki. Opinberir aðilar höfðu sagt erlendum sendimönnum að Jovanka yrði viðstödd móttöku ásamt manni sínum en á síðustu stundu var tilkynnt að hún yrði ekki við- stödd. Fjarvera hinnar fimmtíu og tveggja ára forsetafrúar kostaði að afturkalla varð boð til allra eiginkvenna erlendra sendi- manna sem boðað hafði verið til móttöku á þjóðhátíðardaginn. Mun þetta vera í fyrsta skipti síðan þau Tito forseti gengu í hjónaband árið 1952 að Jovanka stendur ekki við hlið manns síns á þjóðhátíðardag- inn. Sama mun verða uppi á teningnum þegar forsetinn býður fulltrúum erlendra ríkja til haustveiða en það er árlegur viðburður í byrjun desember. Ekkert fréttist af eiginkonu Titos þrátt fyrir að margir hafi talið sig sjá hana í bifreiðum á götum Belgrad. Vegna þess að engar fregnir berast af forseta- frúnni, sem hingað til hefur verið mjög áberandi í opinberu lífi, hefur margur orðrómurinn komizt á kreik. Mikið hefur verið skrifað um fjarveru forsetafrúarinnar í blöð í Vestur-Evrópu en yfir- völd í Belgrad hafa verið þögul sem gröfin ef undanskilin eru tvö skipti. í öðru tilvikinu sagði starfsmaður í júgóslavneska utanríkisráðuneytinu að Joyonka væri heil heilsu og Jovanka og Tito forseti í höll sinni í Belgrad fyrr á þessu ári. dveldist í forsetahöllinni í Bel- grad. Á blaðamannafundi fyrir nokkru sagði háttsettur með- limur kommúnistaflokksins að allar fregnir um rannsókn á starfsemi forsetafrúarinnar væru rangar. Brúðkaup Titos og Jovönku árið 1952, en þá var hún tuttugu og átta ára, kom heim- Umferðarmenning eða „rússnesk rúlletta” Á hverjum degi birta dag- blöðin fréttir um árekstra og umferðarslys. Sagt er frá beinbrotum, höfuðáverkum og öðrum limlestingum í næstum stöðluðu formi. Dauðaslysum er gert svolítið hærra undir höfði, gjarnan nefnd röð þeirra í dauðaslysakeppninni og borið saman við árið á undan. Einstaka sinnum má lesa í blöðunum viðtöl við þá sem starfa að umferðarmálum, bæði lögreglufólk og aðra. Yfirleitt endar viðtalið á því að sagt er mikið óunnið á þessu sviði en fjárskortur sagður þrándur í götu. Fréttamenn sjónvarpsins hafa gert heiðarlega tilraun til þéss að leiða áhorfendur inn á baksvið umferðarslysa með við- tölum við limlest fólk á sjúkra- húsum og er vonandi að því verði haldið áfram. Við, sem enn erum svo heppin að hafa komist í gegnum lífið stórslysa- laust vitum alltof lítið um þær afleiðingar slysanna sem ekki eru taldar fréttaefni dagblaða. I sjónvarpsviðtölum við fólk, sem lent hefur í umferðarslysi, hafa verið sýndar glefsur af framandi tilveru, sem er vörðuð þjáningum og kvíða þess sem var fullfrískur í gær en þarf nú á öllum sínum styrk að halda til þess að reyna að sætta sig við fötlun í þessu þjóðfélagi hins tillitslausa hráða. Tjón af völdum umferðar- slysa verður aldrei metið til fjár af nokkru viti. Þótt hægt sé að mæla eignatjón og dánar- bætur til peningagildis, eru stærri liðir sem aldrei koma inn á hagskýrslur, svo sem sorg, kvalir, fötlun og langur og þreytandi endurhæfingartími. Umferðarslysin kosta þjóðina miklu meira fé en okkur órar fyrir. Dauðsföll af völdum um- ferðarslysa eru ægileg blóðtaka i okkar litla þjóðfélagi og grunurinn um að það sé á valdi okkar, að einhverju leyti, að forða frá dauðaslysum hlýtur að vera hverjum hugsandi einstaklingi með öllu óbærilegur. OBBINN KANN EKKI UMFERÐARREGLUR Flest dauðaslys af völdum umferðar i Reykjavík á árinu eiga rót sina að rekja til brota á umferðarlögum. Næstum þvi hvert einasta gangbrautarslys er vegna framúraksturs ;við gangbrautir sem er brot á úm- ferðarreglu. Enginn þarf að vera lengi á ferli um miðjan dag í Reykjavík til þess að sjá ólöglegan framúrakstur á gang- brautum, brot á þeirri reglu skipta tugum á hverri klukkustund. Mikill meirihluti ökumanna hefur ekki hugmynd um að þetta er bannað, dæmin sanna þá staðreynd. Það blasir við hverjum sem kanna vill að umferðarreglurnar kunna ekki nema sárafáir ökumenn á göt- um borgarinnar og enn færri fótgangendur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.