Dagblaðið - 02.12.1977, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 02.12.1977, Blaðsíða 28
Konan enn án meðvitundar Tíu daga þorskveiðibann á vetrarvertíð: „ÓFRAMKVÆMANLEGT” — segja sjómenn og telja að þetta sé gert til að stöðva flotann lengur Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um veiðar í þorskfisknet og í fjórðu grein þeirrar reglugerðar segir: að allar veiðar með þorskfisknetum skuli bannaðar í 10 daga á vetrarvertíð árið 1978 og auglýsir sjávarút- vegsráðuneytið með að minnsta kosti 7 daga fyrirvara á hvaða tímabili bann þetta skuli gilda. Keglugerðarákvæði þetta hefur valdið nokkrum kurr^meðal sjó- manna og sagði Sigurpáll Einars- son skipstjóri í Grindavík í viðtali við DB í gær að menn hefðu virt Matthías Bjarnason sjávarútvegs- ráðherra hingað til því hann hefði sett reglugerðir, sem hægt hefði verið að fara eftir, þveröfugt við næstu fyrirrennara hans í embætti. ,,En nú hefur hann skipað mönnum að taka upp netin í 10 daga á vetrarvertíð. Þessar reglur eru að mestu óframkvæmanlegar. Það er varla hægt að fara eftir þeim. Um borð í venjulegan neta- bát er ekki hægt að taka öll þau net, sem leyfilegt er að leggja í sjó. Það má þykja gott að helmingur neta í sjö komist fyrir i bátnum, án þess að skipi og skips- höfn stafi hætta af. Ef veður er slæmt sjá menn sér oft ekki fært að draga eina einustu trossu, hvað þá að ferðast með þær í land. Þá er reiknað með því að sjómenn verði kauplausir þessa 10 daga, því varla fara útgerðar- menn að borga ef skipunum er bannað að sækja sjóinn. Það hefur verið erfitt að manna flot- ann og líkur á því að menn hætti áður en þeir þurfa að stoppa. Það er þá ekki nema að ríkissjóður taki að sér að borga sjómönnum þessa 10 daga. Ekki fara menn að leggja á sig tveggja daga auka- starf við að ná upp netum, ef ljóst verður að þeir verði kauplausir .næstu tíu dagana eftir þá fyrir- höfn. Þar sem veiðileyfi verða tekin af bátunum, ef þeir fara ekki eftir reglugerðinni, er augljóst að ráð- herrann ætlar að stoppa stóran hluta flotans með þessari reglu- gerð. U.þ.b. 80% flotans yrðu' dæmd til þes's að brjóta þessar reglur og þeir bátar yrðu þvi að hætta veiðum það sem cftir lifði vetrarvertíðar." JH Garnla konan sem fyrir rúmri viku varð fyrir bifreið í Álfheimum liggur enn í gjör- gæzludeild Borgarspítalans. Hefur hún aldrei komið til með- vitundar og sé um einhverja breytingu á líðan hennar að ræða er það til hins verra að því er talið er. Mikið hefur verið um árekstra og umferðaróhöpp í borginm undanfarna daga enda skyggni slæmt af ýmsum orsökum. I gær urðu árekstrarnir upp undir 30 talsins. Lítið var um slys í þessum óhöppum en þó fékk einn höfuð- högg og tveir aðrir voru fluttir í slysadeild. Af þessari áreksíra- súpu urðu 20 árekstrar á níu minútum. ASt. Óvenju miklar bilanir á hitaveitunni: TVÆR FIOLSKYLDUR FLYJfl KULDANN „þeir eru f Ijótari að loka ef ekki er borgað skilvíslega...” íbúum fjögurra húsa við Spitalastíg í Reykjavík hefur verið svo kalt stðan á sunnu- dagskvöld að tvær fjölskyldur hafa nú flúið íbúðir sínar. Astæðan fyrir kuldanum er sú, að ekki kemur dropi af heitu vatni inn í húsin. ,,Það hefur komið einn sveppur á dag hér inn og viður- kennt að hér væri kalt og að eitthvað þyrfti að gera í mál- inu,“ sagði íbúi á Spítalastíg 4, Garðar Jónasson, í samtali við fréttamann DB í gær. ,,En samt gerist ekkert,“ bætti hann við. „Þeir virðast engan áhuga hafa á að laga þetta. Það eru fjórar íbúðir í þessu húsi og nú hefur fólk flúið úr tveimur." Garðar taldi afleitt að hafa engar skýringar féngið frá hita- veitunni á því hvers vegna ekki hefði farið fram viðgerð á hita- veitukerfinu, þannig að hægt væri að fara úr lopapeysunum og fækka teppunum, sem nauð- synlegt væri að sofa undir um nætur. „Maður er vanur góðum hita og þolír því illa kuldann,“ sagði hann. „Þetta er þó öllu verra fyrir systur mína, sem býr hér með mér, þvi hún er nýlega komin heim af sjúkra- húsi og þolir kuldann sérstak- lega illa. En þeir hafa náttúr- lega enga hugmynd um það, mannagreyin. Þeir eru fljótari að loka fyrir hitann þegar maður borgar ekki skilvíslega en þeir eru nú að koma honum á aftur.“ Dagblaðið sneri sér vegna þessa til Steinþórs Ingvars- sonar hjá bilanadeild Hitaveitu Reykjavíkur, og innti hann eftir ástæðunni fyrir kuldanum á Spítalastíg 4. „Skýringin er sú að þar eru, stíflaðar heimæðar,“ sagði Steinþór. „Eg veit raunar ekki betur en að einmitt núna sé verið að gera við þetta eða blása þær út. Svona nokkuð getur alltaf gerzt, ýmislegt kemur upp úr borholunum, leir og sandur til dæmis, og það endar náttúrlega einhvers staðar, gjarnan í heimæðunum.“ Hann sagði að þær miklu og óvenjulegu bilanir sem urðu á hitaveitukerfinu í Reykjavík um og eftir helgina stöfuðu af þenslu í kerfinu, þ.e. hitabreyt- ingum í jörðu og andrúmslofti. Hefði það m.a. haft þær afleið- ingar að allt heitt vatn hefði farið af heilum borgarhverfum um stundarsakir. „Það hefur verið unnið við viðgerðir á þessu langt fram á nótt síðan og ástæðan fyrir því að þessu er ekki lokið er einfaldlega sú, að við erum yfirkeyrðir, mann- skapurinn er á haus í þessu!“ Hann taldi að viðgerðum ætti öllum að vera lokið fyrir helg- ina. -OV DB auglýsti eftir tunnunni góðu fyrir Tryggva sl. þriðjudag og tveim dögum síðar var hun kömin uín á tún. Var Tryggvi að vonum glaður og þakklátur. DB-mynd: Hörður. „TUNNAN VAR K0MININN A TUN” „Tunnan mín góða var bara komin hér inn á túnið áður en ég vissi af,“ sagði Tryggvi Þorvaldsson íhlaupabóndi að Selási 13A við Norðlingabraut skammt frá Rauðavatni. „Ég veit ekkert hver hefur verið að flækjast með tunnuna og það skiptir ekki máli — ég er yfir mig glaður að fá hana inn í heildarmyndina á ný.“ Ekki höfðu borizt neinar ábendingar til lögreglunnar um tunnuna er hún kom fram og er ánægjulegt til þess að vita að menn sjái að sér, eftir að hafa framið svona afbrot — að stela hluta úr tilveru fólks upp á grín. HP Hluta úr tilveru Tryggva Þorvaldssonar skilað frjálst, óháð daghlað FÖSTUDAGUB 2. DES. 1977. Húsnæðismálakerfið hveturtil bygginga einingahúsa: Greiða % þegarhús verður fokhelt — afganginn 6 mánuðum síðar Framleiðendur og kaupendur einingahúsa, hvort heldur er úr timbri eða steini, hafa nú fengið aukinn stuðning og fyrirgreiðslu hjá Húsnæðismálastofnun ríkisins. Lán til slíkra húsa, sem áður voru veitt eftir sömu reglum og önnur lán Húsnæðismálastofn- unar, þ.e. greidd út í þremur hlutum, verða hér eftir greidd út í tveimur hlutum. Tveir þriðju hlutar heildarláns hverju sinni koma til útborgunar eftir að húsið er fokhelt og þriðjungur síðan sex mánuðum síðar. Sigurður E. Guðmundsson sagði í viðtali við DB um þetta mál, að stjórn stofnunarinnar hefði samþykkt þetta í vor en heimild ráðherra væri nýlega fengin. Með þessum hætti er veru- lega stutt við bakið á þeim sem stunda húsbyggingar í verk- smiðjum eða verkstæðum svo og þeim sem slík hús kaupa. Eftir sem áöur er söluskattur á eininga- húsum, en fram er komið frum- varp á Alþingi þar sem lagt er til að hann verði afnuminn. ASt. Prófkjörí Eyjum: Árni Johnsen feríframboð Ákveðið hefur verið, að próf- kjör Sjálfstæðisflokksins í Vest- mannaeyjum fari fram 10. og 11. des nk. Frestur til að skila framboðum rennur út á laugardaginn kl. þrjú og hefur einu framboði verið skilað, framboði Árna Johnsen, blaðamanns. Tilkynnt hefur verið um tvö önnur framboð Björns Guðmundssonar útgerðarmanns og Guðmundar Karlssonar fram- kvæmdastjóra. Formaður kjörstjórnar er Páll Scheving. HP

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.