Dagblaðið - 02.12.1977, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 02.12.1977, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1977. Ætla samvinnustarfs menn út úr alþýöusambandinu? — „Ekki hrópað húrra fyrir hugmyndum okkar,” segir formaður Landssambands samvinnustarfsmanna „Það hefur komið til tals hjá nokkrum sérsamböndum, eins og t.d. Landssambandi samvinnu- starfsmanna og Starfsmanna- féláginu í Straumsvík, að þau fái að taka viss mál í sínar hendur, sem er auðvitað þvert á okkar stefnu,“ sagði Snorri Jónsson, framkvæmdastjóri Alþýðusam- bands íslands í viðtali við DB, en á fundi sambandsstjórnar samtak- anna núna um helgina var sam- þykkt sérstök ályktun varðandi þetta mál. Segir þar, að sambandsstjórn ASt vari sterklega við því, að fyrirtækjafélög eða sambönd þeirra seilist til þeirra verkefna, sem verkalýðsfélögin hafa sam- kvæmt venjum og hefðum helgað sér. „Við höfum rætt þetta mál við fulltrúa frá samvinnustarfsmönn- um og þær viðræður fóru ákaf- lega vel fram.-Hins vegar er allur varinn góður og því er þessi álykt- un send út,“ sagði Snorri enn- fremur. „Umræðurhópur, sem hefur fjallað um stöðu samvinnustarfs- manna innan verkalýðshreyfing- arinnar, er að ljúka störfum,“ sagði Sigurður Þórhallsson, for- maður LÍS i viðtali við DB. „Þar hefur verið fjallað mikið um þessi mál og okkar sérstöðu, sem aðal- lega er fólgin í ýmiss konar sér- greiðslum og sérsjóðum, sem við erum aðilar að, lífeyrissjóði, fræðslusjóði og sjúkrasjóði, svo eitthvað sé nefnt. Þá hefur at- vinnulýðræði aukizt til muna inn- an samvinnuhreyfingarinnar, við erum með fulltrúa starfsmanna í stjórnum fyrirtækjanna. Við höfum átt viðræður við ASÍ um þessi mál og lagt þar fram hugmyndir okkar,“ sagði Sig- urður ennfremur. „Þær viðræður hafa verið vinsamlegar, en það er auðvitað ekki verið að hrópa húrra fyrir hugmyndum okkar um samningsrétt í sérmálum okk- ar.“ - HP AUKIÐ VÍNVEITINGA- LEYFIRÆTT í EYJUM ÍTALSKARNÚTÍm- KLUKKUR Við höfum aldrei boðið stærra úrval Kinkaumhoð &MRWnd»Mil lönaöarluisiö Ingóll'sslradi Tikin Píla í heimsókn hjá Dagblaðinu. Hún kunni vel við sig hjá útiitsteiknaranum okkar, honum Ragnari Lár. — DB-mynd Bj.Bj. HVAR ERU EIGENDURNIR? Með þessa fallegu tík var komið hingað á DB eftir að hún hafði verið í óskilum í rúma viku. Tíkin birtist allt í einu eins og þruma úr heiðskíru lofti í tíma í viðskipta- deild Háskóla íslands og hefur ekki viljað yfirgefa nemendur þeirrar deildar siðan. Tíkin loit ekki út fyrir að vera mjög svöng er hún fannsl þannig að ekki er talið aö hún liafi verið á flækingi lengi. Hún er sérlei hlýðin og ógeltin og þykir vi skiptafræðingunum tilvonan synd að láta drepa hana. Ef ei andinn finnst ekki er tíkin þvi 1 sölu á kostnaðarverði hjá Hund vinafélaginu. Eins og sést að nokkru leyti myndinni er tíkin svört mi hvítan háls og brjóst og hvítar ( gular lappir. ÍTALSKAR KLUKKUR Fomargerðir lokun hótelsins Fyrir fundi bæjarstjórnar Vest- mannaeyja í gær lá meðal annars umsókn um viðbót við núgildandi vínveitingaleyfi Hótels Vest- mannaeyja. Blaðið Brautin í Eyjum spáði fjörugum umræðum um málið. Birgir Viðar Halldórsson hótel- eigandi sagði í viðtali við DB að það sem hótelið leitaði nú eftir væri leyfi til diskótekshalds þrjá daga í viku, fimmtudaga, föstu- dag og laugardaga, og þar mætti hafa vínveitingar um hönd. Núgildandi vínveitingaleyfi kveður á um vínveitingar aðeins með mat og fyrir hótelgesti. Birgir sagði að viðbótarleyfisins væri leitað einungis af því að hótelreksturinn væri ókleifur annars yfir vetrarmánuðina. Lítið væri að gera yfir veturinn og hefði t.d. hallinn í október numið 700 þúsund krónum. Aðeins kynd- ingarkostnaður hússins yfir vetrarmánuðina væri 1-200 þús- udn krónur á mánuði. Spurningin væri því um hvort loka ætti eða ekki. Kvaðst Birgir hafa lagt fram sundurliðaða rekstursreikninga hótelsins fyrir þrjú sl. ár og teldi þá sýna hverja nauðsyn bæri til að auka reksturinn ef á annað borð ætti að hafa hótel í Eyjum. Birgir Viðar kvaðst allar leiðir vilja reyna til að hafa hótelið opið allt árið. Hins vegar hefði komið í ljós að það vínveitingaleyfi sem fékkst hafi ekki reynzt nægilegt til að tryggja að svo yrði. Bæjarstjóri hefur áður lýst þeirri skoðun sinni að hótel- reksturinn mætti ekki leggjast niður og fyrir forgöngu hans hefur meirihluti bæjarstjórnar verið hlynntur þvi að greiða fyrir rekstri hótelsins. - ASt. — Diskótek með vínveitingaleyf i gæti forðað Vilhjálmur Stefánsson, landkönnuðurinn vestur-islenzki (lengst til hægri) ásamt tveim vísindamönnum Karlukleiðangursins, lff- fræðingnum Johansen og mannfræðingnum Beuchat. Karluk—fylgzt með Vilhjálmi Stefánssyni í norðurhöfum Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur gefið út bókina Karluk, sem sagt er, að fylli I eyður annála um rannsóknarleiðangra í norðurhöf- um og Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður hafi látið liggja í þagnargildi. Höfundur er William Laird McKinlay, sem var einn af leiðangursmönnum með Vil- hjálmi Stefánssyni árin 1913- 1918, en fyrir þann leiðangur var Vilhjálmur sæmdur æðstu orðu bandaríska landfræðifélagsins. Karluk var forystuskip í leiðangri þesgum, brotnaði og sökk í ísnum. Tuttugu og fimm menn voru skildir eftir skipreika á ísnum, meðan foringi þeirra fór í fimm ára ferð norður. í bókinni er lýst örvæntingarfullri baráttu mann- anna. Harmleikar urðu miklir. Atta létust á leið yfir ísinn, einn skaut sig, tveir sultu í hel. í bók- inni eru einstakar ljósmyndir, teknar í leiðangrinum. — Verð 4440 krónur. „Faðir minn, presturinn” — f rá Skuggsjá Faðir minn presturinn heitir ný bók frá Skuggsjá. í henni eru þrettán þættir um þjóðkunna kennimenn og leiðtoga islenzkrar kirkju, skráðir af börnum þeirra. Prestarnir sem sagt er frá eru þessir: Sr. Arni Jónsson, sr. Sig- tryggur Guðlaugsson, sr. Þórar- inn Þórarinsson, sr. Jón Finns- son, sr. Haraldur Níelsson, sr. Stefán Baldvin Kristinsson, sr. Friðrik Hallgrímsson, sr. Sigur- björn Á. Gislason, sr. Bjarni Jóns- son, sr. Asmundur Guðmundsson, sr. Sigurgeir Sigurðsson, sr. Sveinn Víkingur og sr. Sigurður Stefánsson. Bókin kostar kr. 4.320 með sölu- skatti. • BS Breiðf irzkir sjómenn tóku sjávarháska með karlmennsku Bókaútgáfan Skuggsjá gefur út bókina Breiðfirzkir sjómenn eftir Jens Hermannsson. Þar er rakin að nokkru saga sjósóknar á Breiðafirði á opnum bátum við erfiðar aðstæður. t bókinni er sagt frá veður- glöggum, þrautseigum vikingum sem tóku illviðrum og sjávar- háska með karlmennsku. Þeir stækkuðu í stormi og stórsjó og sýndu djörfung í dauðanum enda var llf þeirra helgað hættum, eins og segir á bókarkápu. Bókin kostar 4980 kr. með sölu- skatti. A.Bj. Skýrsla frá nr. Skuggsjá gefur út bókina Skýrsla frá nr. 24 eftir Norð- manninn Gunnar Sönsterby. Höfundurinn stjórnaði fjölda árása andspyrnuhreyfingarinnar norsku á hendur Þjóðverjum á stríðsárunum. Eftir námskeið í Englandi varð hann yfirmaður 24 allra slikra aðgerða í Noregi. Hann lýsir í þessari bók ýmsum sþellvirkjum hreyfingarinnar. Að loknu stríðinu var Gunnar Sönsterby sæmdur æðstu heiðurs- merkjum og útnefndur yfirmaður lífvarðar Noregskonungs. — Verð 3444 krónur. Loftbrúin til Berlínar bland- ■ r *■■■* sem ógnar lífi margra manna og 21 Cf I mHilO nær hámarki i sambandi við loft- brúna til Berlínar. Bókaútgáfan Iðunn hefur sent frá sér skáldsöguna Loftbrúna eftir Hammond Innes. Þýðingu hennar annaðist Álfheiður Kjartansdóttir. Loftbrúin er ellefta bók Innes á íslenzku. Sem dæmi um fyrri bækur má nefna Ofsi Atlantshafsins, Silfurskipið svarar ekki og Kóngsríki Campbells. I Loftbrúnni segir frá fyrrver- andi herflugmanni, sem forðast af sérstökum ástæðum að hitta lögregluna, því að þá þyrfti hann að svara sérstökum spurningum, sem hann langar ekki til. Hann lendir því flugvél sinni á auðufn og yfirgefnum flugvelli á afskekktum stað í Englandi. En staðurinn sá er ekki eins afskekktur og ætla mætti, — þar heyrast raddir sem tala þýzku. Nauðugur viljugur flækist flug- maðurinn i örlagaríkt samsæri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.