Dagblaðið - 02.12.1977, Side 9

Dagblaðið - 02.12.1977, Side 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1977. 9 - Bifreiðaskoðun: EBULEGRA AÐ VHHJRKENND VERKSTÆÐISKODI Bif reiðaeftirlitið fyrst og f remst innheimtustofnun — Koma mætti upp rauðu oggrænu hliði Núverandi fyrirkomulag bifreiðaskoðunar hefur sætt nokkurri gagnrýni og hefur sú gagnrýni, m.a. komið frá FÍB. Bent hefur verið á að Bifreiða- eftirlit ríkisins í þeirri mynd, sem það hefur verið rekið, sé fyrst og fremst innheimtu- stofnun til þess að sjá um að bifreiðaeigendur greiði lög- boðin gjöld sín. Skoðunin sem slík sé hrein málamyndaskoðun enda skoðunarstöð ekki fyrir hendi. Þá bendir FlB og á að ónauð- synlegt sé að festa fjármuni í dýru húsnæði og tækjakosti fyrir bifreiðaeftirlitið á sama tíma og fjármunir liggi í húsnæði, tækjum og starfs- mönnum bifreiðaverkstæðanna í landinu. Á þeim stöðum á landinu, þar sem skortur væri á verkstæðisaðstöðu nýttust fjár- munir betur með því að styðja að slíkri uppbyggingu. FlB telur ábendingar bifreiðaeftirlitsmanna, um að kostnaður við bifreiðaskoðun muni aukast stórlega við að bifreiðaverkstæðin annist hana, rangar. Þrátt fyrir ófull- komna skoðun bifreiðaeftirlits- ins eru bifreiðar landsmanna í miklum meirihluta i góðu lagi. Þvi sé augljóst að skoðunin ein geri ekki ástand ökutækja betra. Hér hafi verkstæðin og starfsmenn þeirra komið til, hvað varðar lagfæringu öku- tækjanna. Meiri hluti bifreiða- eigenda fer með ökutæki sín á verkstæði til viðhalds og athugunar áður en bifreiðin er færð til skoðunar og fyrir þessa þjónustu hafa þeir greitt. Það er því augljóst að yfirlýsing frá viðkomandi verkstæði um ásig- komulag bifreiðar, sem búið er að yfirfara, bætir litlu ofan á þann kostnað, sem kominn er. Það er því mismat að tala um aukinn kostnað þeirra bifreiða- eigenda, sem vilja hafa bifreiðar sínar í lagi, því miklu fremur er verið að taka af þeim viðbótargjald fyrir algerlega óþarfa yfirborðskennda skoðun hjá bifreiðaeftirlitinu. SKOÐUNARKOSTNAÐUR 342 MILLJÓNIR í REYKJAVÍK Björn Ömar Jónsson hjá Lukasverkstæðinu hefur gert útreikninga á kostnaði við skoðun bifreiða í ReykjavíkT)g kemur þar fram að mestur kostnaður felst í vinnutapi bifreiðaeigenda á meðan þeir eru að koma bílum sínum í gegnum skoðun hjá bifreiða- eftirlitinu. Utreikningar hans eru eftirfarandi: 1. Skoðunargjald (ríkið- 500 2. Ljósastilling (verkstæði) 800 3. Vinnutap (vinnuveitenda- tap) 3V4 tfmi á 1800 kr. 6300 ' 3!4tímiál800kr. 6300 7.600 kr. I Reykjavík eru um 45 þúsund ökutæki og er kostnaðurinn þvf 45000 x 7600 samtals 342 milljónir. Þar af er skoðunargjald til ríkisins. 22.5 milljónir og ljósastillingar- kostnaður til verkstæða 36 milljónir. Björn Ömar telur að koma eigi upp því kerfi hérlendis að umráðamaður ökutækis geti valið á milli verkstæðis og bifreiðaeftirlits til að skoða tæki sitt. Hann vill koma upp svipuðu fyrirkomulagi og notað er við tollskoðun á Keflavfkur- flugvelli, þ.e. grænt og rautt hlið. Ef ökumaður vill láta bifreiðaeftirlitið skoða bifreið sína, þá fer hann í gegnum rauða hliðið og er skoðaður þar. Sá sem fer í gegnum græna hliðið á að fá að renna f gegn, sýni hann gilda pappíra frá viðurkenndu verkstæði. Sfðan yrðu teknar ákveðnar stikk- prufur á þeirri skoðun, sem framkvæmd er á verkstæðun- um t.d. athugaður þrítugasti hver bíll. Með þessu raskast ekki mikið það fyrirkomulag, sem nú er á auglýstri aðal- skoðun bifreiða, þar sem aðal- atriðið er að innheimta lög- boðin gjöld, en bifreiðin fengi ekki skoðun fyrr en þau gjöld hefðu verið greidd. Þarna kemur þvf til samstarf bifreiða- eftirlits og verkstæðanna. Ekki náðist í Guðna Karls- son forstjóra Bifreiðaeftirlits rikisins til þess að bera undir hann þessar skoðanir, þar sem hann var fjarverandi úr Reykjavík. Samkvæmt upplýs- ingum fulltrúa bifreiðaeftirlits- ins mun þó engin breyting á fyrirhugaðri skoðunarstöð bifreiðaeftirlitsins, sem væntanlega yrði dýr fram- kvæmd JH ✓ ... Báturíbobba F.ins og skýrt var frá í DB i gær fór Hringur GK á hiiðina i Hafnarfjarðarhöfn, enda var bæði búið að taka úr honum ballest og vél, þar sem hann er í lengingu. Tveir kranar réttu bátinn siðan við og hér má sjá hvar stór krani heldur við bátinn í gærmorgun, en hann hallaðist þó nokkuð. -JH/DB-mynd Sv.Þ. Bolvíkingar geta yljað sér á umf ramorku gúanósins — er niðurstaða frumathugunar. Frekari athugunað Ijúka. Frumathugun verkfræðiskrif- stofu Sigurðar Thoroddsen á þvf hvort nýta megi umframorku loðnubræðslunnar í Bolungarvík til fjarhitunar húsa bendir til þess að svo sé, að sögn Guð- mundar Kristjánssonar, bæjar- stjóraf Bolungarvík. „Samkvæmt þessari skýrslu," sagði Guðmundur, ,,má fá um 4,7 megavött með þvf að nota um- framorku bæði frá þurrkurum og sogkjarnatækjum verksmiðj- unnar. Áætluð aflþörf fjarvarma- veitu fyrir alla Bolungarvfk er um 5 megavött." Frekari athugun er nú í gangi hjá Ásgeiri Sæmundssyni verk- fræðingi f Reykjavík og er von á niðurstöðum hans innan skamms tíma. Guðmundur Kristjánsson sagði að athugun Ásgeirs beindist fyrst og fremst aó tveimur at- riðum: hvort þessi möguleiki væri fyrir hendi, eins og slegið væri föstu f frumskýrslu Sigurðar Thoroddsen, og í öðru lagi hvort rekstrargrundvöllur fyrir slfka fjarvarmaveitu væri fyrir hendi. Engar viðræður hafa enn farið fram f Bolungarvfk við væntan- lega seljendur orkunnar, loðnu- bræðsluna, sem er í eigu Einars Guðfinnssonar og sona hans. Sem stendur nota Bolvfkingar olíu og rafmagn til hitunar húsa sinna, en loðnubræðslan notar svartolíu. Guðmundur Kristjáns- son bæjarstjóri gizkaði á, að heildarorkukostnaður bæjarbúa 1977 yrði 60—70 milljónir, þannig að augljóslega er um mikið hags- munamál að ræða. íbúar í Bolungarvfk eru um 1100. Það hefur sitt að segja f þessu sambandi, að um áramót tekur Orkubú Vestfjarða við rekstri allra raforkustöðva og dreifikerf- is á Vestfjörðum. -ÓV BSRB jól? Opinberir starfsmenn fá margvíslegan glaðning ASÍ-fólk fær 14.319 krónu hækkun „Þetta verða BSRB jól,“ segja gárungarnir. Opinberir starfs- menn hafa að undanförnu verið að fá launahækkun sfna greidda aftur í tímann fyrir síðustu fimm mánuði. Menn hafa fengið þannig frá 20 þúsundum og jafnvel upp i 200 þúsund. Og svo fá þeir hækkun í dag. Meðalkaupið f BSRB verður eftir daginn í gær orðið 50 þúsund •crónum hærra en það var í júlí, komið úr 121 þúsundi i 171 þúsund, miðað við 11. launaflokk. Haraldur Stcinþórsson, fram- kvæmdastjóri BSRB, sagði að lík- lega hefðu margir verið orðnir aðþrengdir i biðinni eftir kaup- hækkun. Þvi hefði mikið af hækkuninni sennilega farið i greiðslur skulda og þess háttar. En eitthvað vcrður eftir til jóla- halds. Hjá BSRB er hækkunin i prósentum, þannig að þcir launa- hæstu fá flestar krónurnar í hækkun. ASl-fölk fær hins vegar í dag allt sömu hækkunina, 14.319 krónur á mánuði. IIH ÞESSIR MUNIR, Þessir munir, ásamt mörgu fleira, verða til sölu á jólabasar Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á laugardaginn 3. des. kl. 13,30 í Lindarbæ. Ennfremur úrval jólaskreytinga, kökur og hið vin- sæla skyndihappdrætti með fjölda góðra vinninga. Sjálfsbjörg, félagfatlaðra Hátúni 12, Reykjavík

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.