Dagblaðið - 02.12.1977, Page 27

Dagblaðið - 02.12.1977, Page 27
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1977. 27 lC útvarp Sjónvarpj] Sjónvarp íkvöld kl. 20,40: Prúöu leikaramir RICH UTTLE KEMUR í HEIMSÓKN Ahorfendur Prúóu leikaranna tóku án efa eftir því í síðasta þætti sem sýndur var aö form þáttanna hefur breytzt nokkuð. Sérlega var þó upphafsatriði þáttarins öðruvísi en hingað tii hefur verið. Litsjónvarpseigandi hér á biaðinu segir að nýja upp- hafið sé aldeilis alveg stórkostlegt í litum. Við hin sem horfðum á í svörtu og hvítu njótum upphafs- ins þótt litina vanti. í kvöld er eftirherman Rich Little gestur Prúðu leikaranna. - DS Sjónvarp íkvöld kl. 21,15: Kastljós ÞORSKLAUSU DAGARNIR í DESEMBER Þekkt andlit kemur aftur á skjáinn í kvöld eftir langa fjar- veru þaðan. Það er andlit Magnúsar Bjarnfreðssonar fyrr- verandi fréttamanns hjá sjón- varpinu. Magnús sér í kvöld um Kastljós. Aðspurður sagði Magnús að meðal annars yrði fjallað um friðunaraðgerðir þær sem grípa á Matthías Bjarnason sjávarútvegs- ráðherra situr með öðrum f.vrir svörum í Kastljósi í kvöld. til núna í desember til verndar þorskstofninum. Rætt verður við Matthías Bjarnason sjávarútvegs- ráðherra og Kristján Ragnarsson formann Landssambands ís- lenzkra útvegsmanna. Einnig verður rætt við nokkra, fulltrúa á fiskiþingi sem staðið hefur yfir og lýkur í dag. Rök- semdir þeirra manna blandast inn í umræðurnar. Eins og getið var um í frétt í DB síðastliðinn mánudag þykir út- gerðarmönnum sem hvergi sé nóg að banna þorskveiðarnar í 12 daga þar sem fiskifræðingar hafi reiknað út að aflinn minnkaði ekki nema um 10 þúsund tonn við veiðibannið. Landssambandið vildi því að veiðarnar yrðu stöðv- aðar í að minnsta kosti 15 daga. Það sagði Matthías að útgerðar- mönnum væri frjálst að gera og myndi hann á engan hátt standa í vegi fyrir slikum aðgerðum. Um þessi atriði og fleiri verður rætt í kvöld og verður án efa gaman að heyra í báðum aðilum í einu um það á hverju standi og hvað sé hægt að gera. Kastljós hefst kl. 21.15 og er í litum. - DS' Sjónvarp íkvöld kl. 22,20: Hermennirnir Brando í hjólastól Btómynd sjónvarpsins í kvöld <t Uermennirnir (The Men). Sú mynd fær fjörar stjörnur i kvik- myndahandbókinni okkar, það allra mesta sem hægt er að fá. og sagt er að hún sé aldeilis frábær. Seint verður þó of varað við því að ckki er þar með sagt að ennþá þyki mikið til myndarinnar koma þvi bókin góða er nokkuð við aldur og margt brevtist með árun- tim. Ilermennirnir eru fyrsta mynd- in þar sem Marlon Brando lék stórt hlutverk. Þykir hann sýna frábæran leik og standa sig með miklum ágætum. Enda var þessi mynd upphafið að löngum frægðarferli hans. Brando leikur ungan hermann sem særzt hefur í stríðinu. Hann er lamaður í fótunum en reynir samt að lifa eins og ekkert hafi í skorizt en gengur vrtaskuld ekki of vel. Hann hafði verið trúlof- aður ungri stúlku en getur ekki hugsað sér að halda sambandinu áfram eftir bæklun sína og slítur því trúlofuninni og heldur á brott. Myndin er gerð árið 1950 í Bandaríkjunum. Með Brando leika Teresea Wright og Jack Webb. Leikstjóri er Fred Sinne- mann og þýðandi Dóra Hafstems- dóttir. Myndin er svörthvít og klukkutími og 25 mínútur að lengd. - DS 4€ Teresea Wright og Marlon Brando i hlutverkum unga mannsins bæklaða og unnustu hans. ^ Sjónvarp 1 Föstudagur 2. desember 20.00 Fróttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 PrúAu leikararnir (L) Eftirherman Rich Uttle heimsækir íeikbrúðurnar. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. 21.15 Kastljós (L). Þáttur um innlend málefni. 22.20 Hermennirnir. (The Men). Banda- rísk bíómynd frá árinu 1950. Leikstjóri Fred Zinnemann. Aðalhlut- verk Marlon Brando. Teresa Wriííht og Jack Webb. Unjíur hermaður hefur særst illa og glatað lifslönííuninni. Hann er heitbundinn ungri stúlku, en slitur trúlofuninni og fer í burtu. Þvðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 23.45 Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.