Dagblaðið - 15.12.1977, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 15.12.1977, Blaðsíða 14
Platini—knatt- spyrnumaður árs- ins íEvrópu Hið virta franska knattspyrnurit — France Football valdi í gær Knattspyrnu- mann ársins í Evrópu. Og sæmdarheitið í ár hlaut einmitt Frakki — Michael Platini. Nú eru 20 ár síðan Frakki hlaut siðast þetta sæmdarheiti en Platini leikur með St. ,Etienne og viðurkenning til hans kemur þó fyrst og síðast vegna hins mjög svo góða árangurs Frakka. Þeir unnu sér rétt i úrslit HM í fyrsta sinn síðan 1966 og þar var Piatini lykilmaður að baki velgengni landsliðs Frakka. Franz Beckenbauer var knattspyrnumaður ársins i Evrópu 1976 — en þar áður hlaut Oleg Blokhin sæmdarheitið. Howe til QPR QPR hefur verið mikið í fréttum undan- farið — bæði keypt og selt leikmenn ört. I gær keypti QPR nýjan leikmann — Ernie Howe frá Fulham. Howe hefur undanfarið átt í deilum við Fulham, sem upphaflega vildi fá 100 þúsund pund fyrir Howe. En félög vildu ekki kaupa Howe fyrir slíkan pening. Málið fór til knattspyrnusambands- ins. Þar var verðið , sem Fulham setti á Howe lækkað úr 100 þúsund pundum í 50 þúsund pund — kaupverð QPR á Howe. Fulham fékk Howe frá Crystal Palace fyrir lítinn pening. Jafntefli i'Dortmund Heimsmeistarar V-Þýzkalands urðu að sætta sig við jafntefli gegn Wales í Dort- mund í vináttulandsleik þjóðanna í gær- kvöld, 1-1. í sjálfu sér sanngjörn úrslit, sem vissulega setja spurningamerki við getu Þjóðverja, hvort þeir hafi nógu sterkt lið í Argentínu til að verja HM titil sinn. Gegn Wales í gærkvöld virtist svo alls ekki vera — en Þjóðverjarnir eru sterkir og þrátt fyrir úrslit sem ekki gefa góð fyrirheit, ein úrslit, er síður en svo rétt að afskrifa þá. Leikur Þjóðverja var nánast í molum í gærkvöld — þeir réðu illa við Leighton James á vinstri vængnum og á hinum hægri var Carl Harris frá Leeds United ávallt skæður. En Wales saknaði illilega miðherja síns, John Toshack, sem er meiddur, hefur raunar lítið spilað með Liverpool í vetur. V-Þjóðverjar náðu forustu þegar á fvrstu mínútu síðari hálfleiks. Abramczik sendi fasta sendingu fyrir og Klaus Fisher skoraði við stöngina fjær. En Wales var greinilega ekki komið til Dortmund til að tapa — Wals- Imenn sóttu í sig veðrið og á 79. mínútu jjafnaði David Jones, Norwich með góðu skoti. 31 þúsund manns fylgdust með leikn- lum — og þeir fögnuðu jafnvel marki Wales ekki síður en heimamanna, slík voru von- brigði áhorfenda með leik sinna manna. Greinilegt að V-Þjóðverjar hafa enn ekki náð að fylla skörð leikmanna eins og Franz Beckenbauer og Gerd Muller. !____________\___________________ Danir sigruðu Júgóslava Danir sigruðu Júgóslava 13-12 í landsleik í Vejle um helgina — og Danir eru ánægðir meö lið sitt. Segja að sigurinn hafi siður en svo verið tilviljun, danska liðið hafi einfaldlega verið mun betra. Varnarleikur var aðall danska liðsins gegn Júgóslövum, sem raunar var ákaflega slakt að sögn BT, hafði ekki góða skyttu og Danir áttu auðvelt með aö verjast skyndiupphlaupum Júgóslav- anna. Um 1400 manns fylgdust með leiknum í Veilje og Danir höfðu frumkvæðið i fyrri hálfleik, leiddu 7-4 í leikhléi. En Júgóslöv- um tókst að jafna í síðari hálfleik, 12-12 — sigurmark Dana skoraði síðan Anders-Dahl Nielsen úr vfti. Danir fóru illa með mörg upplögð tækifæri, sér í lagi misnotuðu langskytturnar góð færi. Mörk Dana skiptust, Anders- Dahl Nielsen 5, Mikhael Berg 4. Thomas Pazyj 2. Heine Sörensen og Palle Jensen eitt mark hvor. Danir fengu 2 víti — Júgóslavar 4 en einum Dana var vfsað af velli, 3 Júgóslövum. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977. íþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir IS HAFW SK5URI UPPGIÖRI V» VAL —í 1. deild íslandsmótsins í körfuknattleik. ÍS sigraði Val89-88. Steinn Sveinsson skoraði sigurkörf u ÍS • 9 sekúndum fyrir leiksiok Stúdentar unnu dýrmætan sigur gegn Val i 1. deild fslands- mótsins í körfuknattleik í gær- kvöld, 89-88 — Steinn Sveinsson skoraði sigurkörfu fS aðeins 9 sekúndum fyrir leikslok. Svo naumur var sigur stúdenta í viðureigninni við Valsménn — hörkuleikur þar sem viðureign Bandaríkjamannanna Dirk Dun- bar hjá fS og Rick Hockenos hjá Val skyggði á flest annað — og Dunbar kom sem sigurvegari. Maður á bak við sigur fS — skoraði 35 stig. Síðustú mínútur leiks ÍS og Vals voru mjög spennandi. Vals- menn höfðu náð að vinna upp 10 stiga forustu ÍS á síðustu þremur mínútum leiksins, breytt stöðunni úr 80-70 í 87-86. Þá voru aðeins um 16 sekúndur eftir — Vals- menn léku maður á mann í von um að ná knettinum. Og það tókst. Kolbeinn Kristinsson hugðist gefa sendingu fram — en sendi beint í hendurnar á Kristjáni Ágústssyni sem átti greiðan aðgang að körfunni — og Vals- menn voru yfir í fyrsta sinn. En stúdentar voru ekki á að leggja árar í bát. Steinn Sveinsson brun- aði fram — stökk upp og skoraði laglega. Raunar var dæmdsóknar- villa á Stein eftir að hann hafði sleppt knettinum. En í körfunni hafnaði knötturinn. Aðeins niu sekúndur eftir — Valsmenn brunuðu upp, Rick Hockenos brunaði upp vinstri vænginn en einmitt þegar hann virtist kominn á auðan sjó missti hann knöttinn útaf — og draumur Vals- manna fór þar með — tvö dýrmæt stig til IS. Að öðrum ólþstuðum bar Dirk Dunbar af — mikil hittni hans reyndist ÍS drji^g, gat nánast hitt íþróttir þegar hann vildi en hann skoraði 35 stig. Þá voru einnig drjúgir Bjarni Gunnar Sveinsson og Jón Héðinsson — Bjarni Gunnar skoraði 15 stig ásamt Kolbeini Kristinssyni, og þáttur hans i sigri tS var stór, þrátt fyrir að mistök Kolbeins hafi nærri kostað sigur. Barátta Steins Sveinssonar var og ekki lítill þáttur í sigri stúdenta, sannarlega ekki á að gefa eftir. Valsmenn misstu af dýrmætum stigum, einmitt þegar þau virtust i höfn'aðeins 15 sekúndum fyrir leikslok. Valsmenn sýndu mikla Æfingabúningar fyrir2ára í fullordinsstærðir Verö frá kr. 3.895.- til8.800.- Póstsendum Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar Klapparstíg 44 — Sími 11783 baráttu er næstum dugði til sigurs þvf stúdentar höfðu i gær- kvöld ávallt frumkvæðið — og baráita Valsmanna í lokin hafði næstum dugað. Rick Hockenos var liðinu drjúgur þrátt fyrir að hann hafi fallið nokkuð f skugga landa síns, Dunbar. Þórir Magnússon átti sinn bezta leik í vetur, hittni hans var drjúg á met- unum þó sigur hafi ekki unnizt, skoraði 24 stig. Þá var Torfi Magnússon sterkur með 17 stig. Staðan í 1. deild eftir sigur tS í gærkvöld er því þannig — ath. reiknað er með sigri Þórs gegn KR á Akureyri, leikur er flaut- aður var af þar sem KR-ingar teppt ust í Reykjavík, 2-0. Njarðvík ÍS KR Valur Þór Fram tR Armann 0 471-382 10 1 515-496 10 2 449-355 8 2 415-382 3 296-312 4 377-419 4 360-464 5 372-485 Það var hart barizt i gærkvöld i leik ÍS og Vals DB-mynd Hörður Auðvelt hjá Dankersen gegn Kremz í Minden — og Dankersen mætir Honved í átta liða úrslitum Dankersen, v-þýzku meistar-. arnir sigldu örugglega áfram í átfa-Iiða úrslit Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik i gærkvöld — Dankersen sigraði þá Union Kremz 21-16 í Minden. Öruggur sigur, leikurinn nánast formsatriði eftir níu marka sigur Dankersen í Austurríki, 25-16. Áhugi á leiknum var ek.ki mikill í Minden — á milli 8 og 900 manns fylgdust með ieiknum. Dankersen náði þegar í upphafi undirtökunum, komst í 9-3 en eftir það slökuðu leikmenn á, kæruleysi hljóp í leik liðsins. Staðan í leikhléi var 10-6 Danker- sen í vil. Dankersen hafði ávallt örugga forustu án þess þó að yfir-, burðir liðsins væru verulegir. Lokatölur 21-16 — í leik sem nánast var formsatriði fyrir leik- menn Dankersen. Von Oepen skoraði flest mörk Dankersen í gærkvöld — 5, Axel Axelsson og Waltke skoruðu 4 mörk hvor. Kramer og Butsch skoruðu 2 mörk hvor — og Ölafur H. Jóns- son 1 mark ásamt þremur öðrum. En róður Dankersen verður áreiðanlega þyngri f átta-liða úr- slitum, þá mætir Dankersen mót- herjum Vals, ungversku meistur- unum Honved. Dönsku meistar- arnir Fredricia KFUM mæta' Slask frá Póllandi. Dukla Prag, Tékkóslóvakíu, mætir a-þýzku meisturunum frá Magdeburg. Þá mæta norsku meistararnir Ref- stad spænsku meisturúnum. I Evrópukeppni bikarhafa ber hæst viðureign Vorwárts frá Frankfurt am der Oder og bikar- meistara V-Þýzkalands, Gummersbach. En FH mætti Vorwárts einmitt í síðustu umferð. KATTIH0LUNNI - STJÖRNUKVÖLD — Sannkallaður íþróttakabarett í Laugardalshöll í kvöld Það verður mikið um dýrðir í I,augardalshöll i kvöld — sann- kallað Stjörnukvöld. Þar verða meðal gesta Omar Ragnarsson, en hann mun opna kvöldið á sinn sérstæða hátt, sem honum og eng- um öðrum er lagið. Þar verða og Ilalli og Laddi, Albert Guð- mundsson, Ellert B. Schram, Kar- vel Pálmason, Jón Armaún Héðinsson, hið sigursæla lið íþróttafréttamanna, landsliðið í handknattleik gegn pressuliði. Þá leika okkar fimm beztu körfu- knattleiksmenn gegn þeim 4 Bandaríkjamönnum er hér leika. Sannkallaður kabarett, sannkall- að Stjörnukvöld. Og • jú, einu gleymdum við — lyftingamönn- unum sem fá það erfiða hlutverk að kljást við íþróttafréttamenn. Dagskráin í kvöld hefst með „upphitun" Ömars Ragnarssonar. Þá verður viðureign fþróttafrétta- manna gegn lyftingamönnum. sem áreiðanlega verða léttir. Eftir slaka frammistöðu dómara undanfarin ár þótti rétt að fá sterkari menn til að veita keppni. Síðan kl. 20.30 hefst leikur þeirra fimm Bandaríkjamanna er hér leika gegn fimm af okkar beztu körfuknattleiksmönnum með Jón Sigurðsson, okkar eigin snilling, innanborðs. Þá verður dagskrárliður kl. 21.15 — enn lítið þekktur en að honum loknum leika „Ómars All- Star" við úrvalslið alþingis- manna. Meðal leikmanna All-Star verða l>eir Halli og Laddi, íþrótta- kempan Gunnár Þórðarson og fleiri. Og þá lokaatriði kvöldsins, rúsínan í pylsuendanum, íslenzka landsliðið undir stjórn Janusz Czerwinski. En íslenzka landsliðið verður þannig skipað: Gunnar Einarsson, Haukum, Kristján Sig- mundsson, Vtking, markverðir. Aðrir leikmenn: Geir Hallsteins- son, FH, Janus Guðlaugsson, FH. Jón H. Karlsson, Val, Bjarni Guð- mundsson, Val, Þorbjörn Guð- mundsson, Val, Björgvin Björg- vinsson, Víking, Ólafur Einars- son, Víking, Árni Indriðason, Vík- ing, Páll Björgvinsson, Víking, og Viggó Sigurðsson, Víking. Pressuliðið er valið hafa Ágúst I. Jónsson Mbl. og Hermann Guð- mundsson útvarpi er þannig skipað: Birgir Finnbogason, FH. Örn Guðmundsson. KR, Þórarinn Ragnarsson, FH, Jón Pétur Jóns- son, Val, Steindór Gunnarsson, Val, Stefán Gunnarsson, Val, Þor- björn Jensson, Val, Gústaf Björnsson, Fram, Þorbergur Aðalsteinsson, Víking, Konráð Jónsson, Þrótti, Ásgeir Eliasson, IR, Þorgeir Haraldsson, Haukum, og Birgir Jóhannesson, Fram. Þriggja stiga forusta Drott í Allsvenskan! - eftir sigur í Lugi í Halmstad, 27-21—Olympia gerði jaf ntef li við Hellas Efstu lióin í Allsvenskan í sænska handknattleiknum, Drott, lið Agústs Svavarssonar, og Lugi, lið Jóns Hjaltalín, mættust í gær- kvöld í Halmstad, heimavelli Drott. Og Drott vann í uppgjöri toppliðanna, sigraði 27-21. Olympia vann dýrmætt stig á heimavelli gegn Hellas, gerði jafntefli 18-18 —og er því í næst- neðsta sæti með 6 stig að loknum 10 leikjum — en neðst er SAAB. Eðlilega vakti uppgjör efstu lið- anna, Drott og Lugi, mesta athygli í Svíþjóð í gærkvöld. Mikil stemmning í Halmstad — og Drott náði fljótlega góðum tökum., á leiknum. Einkum áttu leikmenn Lugi erfitt að verjast hraðaupp- hlaupum leikmanna Drott — en alls skoruðu leikmenn Drott 20 mörk úr skyndiupphlaupum. Heldur bar lítið á Islendingun- um — Ágúst skoraði 4 mörk — STENMARK VANN SINN 24. SIGUR —í Heimsbikamum í gær og er nú langef stur í keppninni Ingemar Stenmark vann sinn 24. sigur í heimsbikarkeppni og jifnaði þar með met Gustavo ’/hoeni en hann hafnaði í áttunda sæti í gær í Madonna á Ítalíu. Hreint frábært hjá hinum 21 árs gamia Svía en hann er einmitt handhafi heimsbikarsins. Eftir sigurinn í Madonna hefur Stenmark tekið örugga forustu, hefur hlotið 75 stig en næstur honum kemur Heini Hemmi frá Sviss með 40 stig. Stenmarlf þurfti sannarlega að hafa fyrir sigri sínum í stór- sviginu í Madonna i gær. Hann hafði forustu eftir fyrri umferð en missti næstum hlið er hann fór hina síðari, sýndi þá einmitt öryggi sitt. Náði sér aftur á braut- ina og sigraði á 2:49.91 — 15/100 úr sekúndu á undan Heini Hemmi, ólymípumeistaranum. ’Stenmark hafði 37/100 úr sekúndu betri tima eftir fyrri! umferðina en beztan tíma i síðari umferðinni hafði Andreas Wenzel frá Lichtenstein. Keppnin í Madonna var hin síðasta í sviginu fyrir áramót og enn er langur vegur áður en heimsbikarnum verður lyft. Heini Hemmi, Svisslendingur- inn sem svo óvænt hreppti gull á Olympíuleiknum síðustu í stór- svigi, var síður en svo óhress eftir að hafa enn hafnað í öðru sæti i stórsvigi á eftir Stenmark. „Hann vann mig þó ekki með tveimur heilum sekúndum eins og í Val D’Isere. Það er mér mikilvægt hve naumur sigur Stenmark hér var,” var það sem Hemmi hafði að segja. En úrslitin í Madonna á Ítalíu í gær urðu: 1. Ingemar Stenmarlc, Svíþjóð, 2. Heini Hemmi, Sviss, 3. Andreas Wenzel, Lichtenst. 4. Klaus Heidegger, Austurríki, 5. Leonard Stock, Austurríki, 6. Jean-Luc Fournier, Frakkl. 7. Phil Mahre, USA, 8. Gustavo Thoeni, Italíu, 9. Bojan Krizaj, Júgóslavíu, F.F. 1:28,61 - 1:28.98- 1:29.29- 1:30.11 - 1:29.27- 1:29.89 ■ 1:30.60- 1:29.65 • 1:29.86- S.F. - 1:21.30= - 1:21.08= - 1:20.80 = - 1:21.02 = - 1:22.29= - 1:21.78= - 1:21.13 = - 1:22.20= - 1:22.09= Samt. 2:49.91 2:50.06 2:50.09 2:51.13 2:51.56 2:51.67j 2:51.73 2:51.85 2:51.95 Olymípumeistarinn Piero Gros var 11. Fékk samanlagt 2:53.23 mín. Eftir keppnina í gær standa stigin þannig: 1. Ingemar Stenmark, Svíþj. 2. Heini Hemtni, Sviss, 3. Klaus Heidegger, Aust. 4. Phil Mahre USA, 5. Franz Klammer, Austur 6. J. L. Fournier, Frakkl. :þar af 3 víti. Jón Hjaltalín skoraði aðeins eitt mark fyrir Lugi. Staðan í leikhléi var 13-9 Drott í vil — og sigur liðsins nánast aldrei í hættu. Drott hefur nú örugga forustu í Svíþjóð — að loknum 10 umferðum hefur Drott '16 stig. I kjölfarið koma Lugi, Víkingarnir og Hellas með 13 stig. Tveir aðrir leikir fóru fram í gær- kvöld — utan leikja Drott — Lugi, 27-21, Olympia — Hellas 18-18, þá sigraði Heim AIK 29-19 og GUIF sigraði neðsta liðið í deildinni — SAAB 13-12. Snjallastur allra snillinga, Omar Ragnarsson. Valur Fnnnar GULLSMIÐUR Lækjartorg Reykjavík Símar 16488 & 40767 SKAUTAR HVITIR. LISTSKAUTAR NR. 34-42 VERÐ KR. 7.991. SVARTIR LISTSKAUTAR NR. 34-46 VERÐ KR. 7.991.- P0STSENDUM H0CKEY SKAUTAR NR. 41-46 VERÐ KR. 10.844. LAUGAVEGI 13 SÍMI 13508

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.