Dagblaðið - 17.02.1978, Blaðsíða 13
Húsgagnadeild
Sími 28601
OPIÐ TIL KL. 61DAG
Jón Loftsson hf. rTT
Hringbraut 121
Sími 10600
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGÚR 17. FEBRÚAR 1978.
8fHiS£Íll.Q .
SH
Nolan flytur
á nýjan stað
Golfkennarinn Nolan hefur nú fengið nýtt
húsnæði til kennslu sinnar. Nýja húsnæðið
er á annarri hæð i Ford-húsi Þóris Jónssonar.
Þar er öll aðstaða tii goifæfinga hin bezta,
góður hiti og'lýsing. I samtali við DB sagði
Nolan að reynsla sú sem fengizt hefði
hingað tii iofaði mjög góðu. Til sín hefðu
komið byrjendur á öllum aldri, auk reyndra
kylfinga sem kæmu til að æfa sig. Nolan
hefur öll tæki sem með þarf fyrir byrjendur,
þannig að þeir þurfa ekki einu sinni að eiga
golfboita. Hann leiðbeinir byrjendum um
vai á golfkylfum við þeirra hæfi, auk þess
sem hann tekur að sér að lagfæra kylfur
fyrir hvern sem er.
Á virkum dögum eru tímar i hádeginu, frá
12 til 13, síðan er opið frá 15 til 21.30. Á
laugardögum og sunnudögum er opið frá 10
tíi 20.
-rl.
Mótaskrá FRÍ1978
Frjálsíþróttasamband islands hefur gefið
út mótaskrá FRÍ 1978. Þar kennir ýmissa
grasa. Landskeppni við Dani i köstum;
Kalott-keppnin i Umeá, Evrópumeistaramót-
ið í Prag svo fátt eitt sé nefnt en mótaskráin
er þannig:
25.-26. febr.: Meistaramót tslands, kariar og
konur, Reykjavik.
11. -12. marz: Evrópumeistaramót, innanhúss,
Mílanó, ttaliu.
25. marz: Heimsmeistaramót í víðavangs-
hiaupi, Glasgow.
3.-4. júní: Meistaramót tslands, fjölþrautir
o.fl. greinar.
24.-25. júni: tsland — Danmörk, kastlands-
keppni i Danmörku.
1. -2. júlí: Meistaramót tslands, sveinar,
meyjar, drengir, stúikur, staðarval óákv.
8. -9. júli: Meistaramót Norðurianda, fjöl-
þrautir unglinga, Reykjavik.
15. -17. júli: Meistaramót islands, aðalhluti,
Reykjavík.
22.-23. júlí: Norðurlandabikarkeppni
kvenna, Árósum, Danmörku.
29.-30. júlí: Kalottkeppnin, Umeá, Sviþjóð.
29.-30. júlí: Meistaramót islands, strákar,
steipur, piltar, telpur, Borgarnesi.
9. -10. ágúst: Reykjavíkurleikar.
12. -13. ágúst: Unglingameistaramót islands,
staðarval óákveðið.
19.-20. ágúst: Bikarkeppni FRÍ I. deild,
Reykjavík. — Bikarkeppni FRÍ II. deiid,
Húsavík. — Bikarkeppni FRt III. deild,
staðarval óákveðið.
26. -27. ágúst: Fjórðungsmótin.
29.8-3.9: Evrópumeistaramótið, Prag, Tékkó-
slóvakiu.
2. -3. sept.: Unglingakeppni FRÍ, Reykjavik.
16. -17. sept.: Island — Frakkland — Bret-
land — Sviss, landskeppni i fjölþrautum,
Frakklandi.
30.9.-1.10.: Bikarkeppni FRt i fjölþrautum,
Reykjavík. Fréttatilkynning frá FRl.
ALIEINSOGTANN-
LAUSTTÍGRISDÝR
— sagði Leon Spinks eftir sigurinn á Ali
Muhammad Áli er orðinn eins
og tanniaust tígrisdýr, sagði Leon
Spinks, hinn nýi heimsmeistari í
þungavigt í hnefaieikum eftir að
hann sigraði Áli í Las Vegas i
fyrrinótt. Ein óvæntustu úrsiit
sem um getur í sögu hnefaleik-
anna — mun óvæntari en til
dæmis þegar Cassius Clay,
ólympíumeistari frá Rómarieik-
unum 1960, gerði sér iítið fyrir og
sigraði björninn mikla, Sonny
Liston, árið 1963 — Liston, sem
taiinn var liklegur til að halda
titlinum um langt, langt árabil
eftir að hafa unnið hann af Floyd
Patterson. En ungi ólympíumeist-
arinn Cassius Ciay iék sér að
honum þá — og síðar aftur. Varð
hinn krýndi konungur hnefaleik-
anna — Cassius Clay, síðar Mu-
hammad Ali, hinn mesti.
I fyrrinótt biðu Muhammad Ali
sömu örlög og Liston hér á árum
áður. Hann tapaði fyrir ólympíu-
meistaranum frá Montreal-
leikunum 1976, Leon Spinks létt-
þungavigtarmeistara.
Þetta var áttundi leikur Spinks
sem atvinnumanns í hringnum og
enginn gaf honum hina minnstu
möguleika á sigri gegn meistaran-
um mikla. En Spinks, sem aldrei
áður hafði keppt fimmtán lotu
leik, reyndist sterkari í lokalotun-
um. Úthaldið brást hinum 24ra
ára Spinks ekki — en hinn 36 ára
Ali var búinn.
Það efast enginn um hæfileika
Leon Spinks sem harðsnúins bar-
dagamanns í hringnum — en
hann er þó aðeins ofþyngdur létt-
þungavigtarmaður — eins og
Patterson á sínum tima — og
varla maður til að sigra Ali eins
og reyndin varð þó f Las Vegas.
Það er einhver ólykt af þessu öllu
saman. Tapaði Ali leiknum til að
losna við að berjast enn einu sinni
við Ken Norton? — Gat hann ekki
unnt Norton þess að vinna heims-
meistaratitilinn af honum? Gaf
hann því eftir til nær óþekkts
hnefaleikamanns til að losna við
auðmýkingu af Nortons hálfu?
Þessum spurningum fæst auð-
vitað ekki svar við — og þegar
þessi grein var skrifuð snemma í
gær var ekki komið í ljós hvort
Ali mun keppa við Spinks á ný.
Heimssambandið í hnefaleik-
um hótaði Ali fyrir nokkrum
mánuðum að hann yrði sviptur
titlinum ef hann keppti ekki enn
einu sinni við Norton. Ali
þráaðist við — sagðist hafa sigrað
Norton nógu oft til þess að hann
ætti ekki enn einu sinni rétt á
keppni 'um heimsmeistaratitilinn.
En heimssambandið hélt fast við
ákvörðun sfna. Annaðhvort
keppni við Norton eða Ali yrði
sviptur titlinum. Eftir ýmsar
málalengingar féllst AIi á að
undirrita samning um keppni við
Norton — en i millitíðinni hafði
hann samið um leik við sigurveg-
arann úr keppni Leon Spinks og
Italans Alfio Righetti — tveggja
hnefaleikamanna sem ekki höfðu
tapað leik sem atvinnumenn.
Spinks sigraði Italann naumlega
á stigum — og framundan var því
keppni við Ali um heimsmeistara-
titilinn. Keppni sem Spinks átti
engan rétt á samkvæmt áliti
heimssambandsins. En Ali fór
sínu fram og keppti við Spinks
með því loforði að berjast síðan
við Ken Norton, annaðhvort í maí
eða júni. Nú eru hins vegar allar
líkur á að af þeirri keppni verði
aldrei — og Norton fái ekki tæki-
færi til að vinna titilinn af Ali
heldur Leon Spinks.
29555
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 9—21
UM HELGAR FRÁ 13-17
HEIMAHVERFI, 70 FM
2Ja hb. glæslleg íbúð, frá-
bært útsýni. Verð tilboð.
LAUGAVEGUR, 65 FM
2ja hb. ibúð. Utb. 4 m.
MIÐTÚN, 60 FM
2ja hb. kjallaraíbúð. Verð
6,5 m. Utb. 4,5-5 m.
AUSTURBERG, 90 FM
3ja hb. falleg ibúð + bíi-
skúr. Verð 11,5 m. Utb. 7,5-8
m.
KVISTHAGI, 100 FM
3ja hb. verulega góð ibúð.
Verð 9-10 m. Utb. 6-7 m.
MÍKLABRAUT, 80 FM
3ja hb. góð ibúð. Oska eftlr
skiptum á 4ra hb. ibúð á 1.-2.
hæð, ekki i úthverfi.
MJÖLNISHOLT, 85 FM
3ja hb. góð ibuð á 1. hæð.
Verð 8-8,5 m. Utb. 5,5 m.
NESHAGI, 85 FM
3ja hb. góð ibúð, ailt sér.
Verð 9-9,5 m. Utb. 6,5 m.
SKIPASUND, 85 FM
3ja hb. góð efri hæð, allt sér,
45 fm bilskúr. Sala aðeins i
skiptum á 3-4ra hb. ibúð á 1.
hæð + bilskúr, fremur i
Hafnarfirði.
SÓLHEIMAR, 95 FM
3já hb. góð ibúð i háhýsi,
skipti á 3ja hb. íbúð í Foss-
vogi.
ÞÓRSGATA, 65 FM
3ja hb. góð risíbúð. Verð 6
m.
ÆSUFELL, 105 FM
3ja hb. sérlega vönduð íbúð.
Utb. 6,5-7 m.
HÁALEITISBRAUT, 100
FM
4ra hb. vönduð ibúð, sala
aðeins i skiptum fyrir 5 hb.
góða ibúð i sama hverfi.
Upplýsingar aðeins á skrif-
stofunni.
LÆKJARKINN, 90 FM
4-6 hb. + bílskúr. öskar eftir
makaskiptum á 3-4ra hb.
íbúð f Reykjavik.
MJÓAHLÍÐ, 120 FM
6-7 hb. vönduð ibúð á 2
hæðum, ca 40 fm bílskúr.
Utb. 14-15 m.
ÆSUFELL, 105 FM
4ra hb. góð ibúð. Utb. 8 m.
BREIDVANGUR, 130 FM
6 hb. vönduð ibúð. Skipti á
sérhæð + bilskúr i Hafnar-
firði eðaGarðabæ.
ESKIHLIÐ, 115 FM
5 hb. góð ibúð. Vilja skipti á
ca 130 fm íbúð í Hliðum.
GAUKSHÓLAR, 138 FM
stórfalleg 5 hb. íbúð í
háhýsi, 3 svalir + bilskúr.
Utsýni yfir alit höfuðborgar-
svæðið. Verð 16,5-17 m.
HJALLABRAUT, 117FM
5 hb. góð ibúð. Verð 14,5 m.
Makaskipti möguleg á rað-
húsi i . norðurbænum
Hafnarfirði.
HVASSALEITI, 117 FM
5 hb. góð fbúð + bilskúr.
Oska eftir makaskiptum á
4ra hb. ibúð á 1.-2. hæð +
bílskúr.
SKAFTAHLÍÐ, 130 FM
5 hb. sérhæð + bilskúr.
RAUÐAGERÐI —
EINBÝLI
Fokheit i mai giæsilegt hús
á tveim hæðum, efri hæð 7-8
herbergi 172 fm, neðri hæð
2ja hb. íbúð + bílskúr og
geymslur.
SMÁÍBÚÐAHVERFI —
EINBÝLI
Tvær hæðir + kjaliari + bii-
skúr.
MOSFELLSSVEIT —
FOKHELT
glæsilegt einbýli á 1. hæð +
42 fm bílskúr. Teikningar á
skrifstofunni.
SELTJARNARNES —
LAUGARNES
ÚTBORGUN 20-24
MILUÓNIR:
Höfum kaupanda að einbýli, ■
fullbúnu eða á byggingar-
stigi, þarf tvöfaldan biiskúr.
HÖFUM KAUPANDA
að ca 4ra herbergja íbúð á
1.-2. hæð, heizt i Hiiðunum
eða Laugarneshverfi, helzt
með sérinngangi. Utb. ca 13
VANTAR
ailar stærðir eigna i Hafnar-
firði.
ÖNNUMST KAUP OG
SÖLU Á ÖLLUM
STÆRÐUM BÁTA OG
SKIPA
NY SOLUSKRA AVALLT
FYRIRLIGGJANDI.
EIGNANAUST
Laugavegi 96 (við Stjörnubíó) Sítnl 2 95 55
SOLUM.: Hjðrtur Gunnarsson, Lárus Huinason, Si^rún Kröyer
LOGM.: SvanuY Þór Vilhjilmsson hdl
STAR
C0MBI
Komið ogskodiö
Vegghúsgögn — Kommóður — Skrifborð — Stereóbekkir
VERÐIÐ ER ÓTRÚLEGA LÁGT
"V
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1978.
13
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Gífurleg breyting vegna
heimsmeistaratitilsins
Áhugi almennings og fjölmiðla hefur blossað upp f Vestur-Þýzkalandi eftir að þýzka liðið sigraði á HM
Minden 13. febrúar 1978.
Eftir 54 daga hlé hér í Bundes-
iígunni vegna heimsmeistara-
keppninnar i Danmörku hófst síð-
ari umferðin um siðustu helgi..
Ymislegt hefur breytzt á þessum
50 dögum fyrir vestur-þýzkan
handknattleik. Vonir manna urðu
að veruleika — Vestur-Þýzkaland
varð heimsmeistari eins og flest
um er nú kunnugt um. Ahrifin
eru gífurleg og hægt er að greina
mikla breytingu hvað varðar
áhuga almennings á þessari
iþrótt. Leikmönnum boðið til ým-
issa merkis-samkvæma og heiðr-
aðir f bak og fyrir.
Blöðin eru yfirfull af viðtölum
við Vlado Stenzel landsliðsþjálf-
ara og flest alla leikmennina í liði
heimsmeiStaranna. Sjónvarpið
hefur tekið gifurlegum breyting-
um hvað varðar þessa íþrótta-
grein. I hverjum iþróttaþætti er
sýnt frá úrslitaleiknum við Rússa
eða viðtöl við leikmenn eða
Stenzel.
Og eftir 14. umferðina um helg-
ina i Bundeslígunni er ekki hægt
annað að segja en sjónvarpið
haldi þessum áhuga fólks vak-
andi, því í öllum 4 þáttunum um
íþróttir um helgina var hand-
knattleikur í öllum. Rætt við
átta leikmenn úr heimsmeistara-
liðinu um Bundeslíguna og
fleira. Sýnt var úr þremur leikj-
um og mörg mörk endurtekin —
það er sýnd hægt. Þetta er ein
mesta handknattleikshelgi sem
við höfum orðið vitni að fram að
þessu. Kannski hefur sjónvarpið
viljað bæta ,um betur það sem
miður fór vegna útsendinga á
leikjum frá Danmörku. Þá voru
leikir sýndir seint á kvöldin og
ekki 1 heild — eins og forráða-
menn þess hefðu ekki búizt við
svo góðum árangri sem raun varð
á. En hvað um það. Áhuginn
hefur vaxið gífurlega. Snúum
okkur.þá að úrslitum leikja.
Gummersbach vann Huttenberg
— 13. sigur liðsins í röð — með
17-14, en Htittenberg var eina
liðið sem unnið hafði Gummers-
bach í fyrri umferðinni. Ekkert
virðist geta stöðvað nú á leið
liðsins í meistaratitilinn. Eftir
leikinn sagði Horst Spengler,
fyrirliði landsliðsins: „Aðeins ef
hinir fjórir heimsmeistarar
Gummersbach, Brandt, Deckarm,
Wunderlich og Fey, meiðast sam-
tímis er möguleiki að hrifsa titil-
inn af liðinu.“
Leikmenn Grosswallstadt eru
þó ekki búnir að gefa upp alla von
í meistaratitilinn. Leikmönnum
Grosswallstadt tókst í fyrsta sinn f
sögu félagsins að sigra Milberts-
hofen í Miinchen, 16-20. Auk
markvarðarins fræga, Hoffmann,
voru hinir heimsmeistararnir í
liði Grosswallstadt, KlUhspies og
Freissler, beztu menn liðsins.
I miðlungsgóðum leik sigraði
GW Dankersen Neuhausen með
Ólafur H.
Jónsson
Handboltapunktar
frá V-Þýzkalandi
VXxel
Axelsson
ellefu marka mun, 22-11, hér I
Minden. t þessum leik var „leyni
vopn landsliðsins“ Waltke einna
frfskastur leikmanna Dankersen
auk markvarðarins Niemeyer.
Vörnin var nokkuð góð en sóknin
ekki sannfærandi þrátt fyrir
mörkin 22. Vegna veðurs komu
leikmenn Neuhausen ekki til
Minden fyrr en 45 mín. eftir að
leikurinn átti að hefjast,45 min.
of seint — en leikmenn Danker-
sen ákváðu þrátt fyrir það að
leika leikinn vegna þeirra áhorf-
enda sem komnir voru — en þeir
voru um 1800. Leikmenn Neu-
hausen höfðu þá verið á ferðalagi
frá þvf klukkan nfu um morgun-
inn — eða í allt tfu klukkustundir
á leiðinni!! þannig að ekki var
von á miklu úr þeirri átt. Liðið
hefur aðeins unnið einn leik á
útivelli en hins vegar unnið
Dankersen, Nettelstedt og
Göppingen heima.
Nettelstedt fékk SPV Hanno-
ver í heimsókn og var það frekar
léttur leikur fyrir heimamenn.
Lokatölur 22-10. Lið Einars
ÍMagnússonar er eftir þessa um-
ferð í næstneðsta sæti og líklega
verður mjög erfitt fyrir það að
halda sér uppi I Bundeslfgunni
eins og nú er ástatt. Fjögur
neðstu liðin falla niður.
I fyrsta skipti í vetur voru
áhorfendur f Kiel — um 6500 f
allt — óánægðir með lið sitt. Leik-
menn Kiel léku hægan göngu-
þolta gegn Hofweier og jafntefli
varð f leiknum 18-18. Hjá Hof-
weier blómstruðu heimsmeistar-
arnir Meffe og Ehret. Úrslitin í
leik Derschiag og Göppingen
komu mjög á óvart. Derschlag
sigraði með 19-16, nokkuð sem
ekki hafði verið búizt við þvf
Derschlag var og er í einu af
neðstu sætunum.
Dietzenbach burstaði Rhein-
hausen 26-17, en upp er komið
mál eitt mikið hér f Bundeslfg-
hausen. Það er Júgóslavi og ef f Nettelstedt 14 7 2 5 16
ljós kemur að hann hóf að leika Göppingen 16 8 0 8 16
of fljótt með Rheinhausen f haust Hútienberg 14 7 1 6 15
gæti það kostað liðið 12 stig — Reinh. 14 7 1 6 15
það er 12 stig tekin af Rhein- Hofweier 13 6 2 5 14
hausen. Ef það skeður fellur Kiel 14 6 2 6 14
Rheinhausen niður f neðsta sæti Dietzenbach 14 5 2 7 12
en óvfst er enn hver niðurstaða Derschlag 14 4 1 9 9
verður f þessu máli. Milbertsh. 14 4 1 9 9
Staðan f Bundeslígunni eftir Hannover 14 4 0 10 8
leiki um helgina er nú þannig: Neuhausen 14 3 0 11 6
Gummersb. 14 12 1 1 25 Kveðja
Grosswallst. 13 9 1 3 19 > Óiafur H. Jónsson
Dankersen 14 8 2 4 18. Axel Axelsson
Styður ÞU
á réttu hnappana?
,,Með DtS 100 styður þú á réttu hnappana"
DTS 100 sýnir heildarsöluverð (jögurra vöruflokka
i samtímis.
DTS veit nákvæmlega hvaða upphæð á að vera
í skúffunni. — (Meira að segja þegar vörum
er skilað og greitt er úr kassa.)
DTS 100 hefur sjálfvirkan margfaldara.
11 DTS 100 er greiðslureiknir.
DTS 100 sýnir sjálfvirkt (með því að styðja
á réttan hnapp) hve mikið gefa skal til baka.\
Skrifstofutækni hf
Tryggvagötu — Reykjavík
Box 454 - Sími 28511
,,Með DTS 100 styður þú á réttu hnappana"
Komið og skoðið úrvalið af bandarískum og frönskum
CHRYSLERbifreiðum í CHRYSLER-salnum
Suðurlandsbraut 10, n.k. laugardag
og sunnudag. Við sýnum hinn glœsi-
lega lúxusbíl CHRYSLER LeBARON,
ferðabílinn MA TRA SIMCA RANCHO,
DODGE ASPEN og PLYMOUTH VOLARE fólksbílana eftirsóttu, rally-sigur-
vegarann SIMCA 1508 og síðast en ekki síst SIMCA 1100.
Missið ekki af þessari glcesilegu sýningu. Veljið ykkur bíl fyrir vorið.
Heimsækið Chrysler-salinn að Suðurlandsbraut 10 og skoðið hina
umtöluðu 1978 bíla frá CHRYSLER.
Opið laugardag 18.2. kl. 10 til kl. 18.
Opið sunnudag 19.2. kl. 14 til kl. 19.
CHRYSLER
O
(HKYSI.KK THtjmoulh
SIMCAÍ 1 Oadgo j
Ifökull hf.
Suðurlandsbraut 10. Símar 83330 - 83454