Dagblaðið - 17.02.1978, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 17.02.1978, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1978. 11 um efndir loforðanna. Halimi skoðar frönsk stjórnmál á ára- bilinu frá 1946-1969, en það ár hætti de Gaulle forseti Frakk- lands afskiptum af stjórnmál- um. Höfundurinn staðnæmdist við árið 1969, svo efni myndar- innar væri ekki blandað við einstakar persónur, sem taka þátt í yfirstandandi kosninga- baráttu. Þeir stjórnmálaleið- togar, sem myndin beinist eink- um að, eru de Gaulle fv. forseti, André Mairaux og George Pompidou fv. forseti. Aðrir sem koma við sögu eru Francois Mitterand leiðtogi sósíalista og Valéry Giscard d’Estaing nú- verandi forseti Frakklands. LOFORÐIN SEM BRUGÐUST Myndin, sem var prufusýnd nýlega, sýnir glögglega franskar baráttuaðferðir stjórnmálamanna. De Gaulle sést ávarpa þjóðina í sjónvarpi með hinum fleygu orðum sín- um „Francaises, Francais" og með miklum og dramatískum tilþrifum. Þessi ávarpsorð eru enn notuð i frönskum stjórn- málum, þegar leiðtogarnir þurfa að koma boðskap sínum til þjóðarinnar. Marcel Barbu, sem keppti að forsetaembættinu árið 1965, gerði þessi ávarpsorð hlægileg, þegar hann sagði: ,,Sé tekið til- lit til þjóðfélagsstöðu minnar verð ég að bæta „Mes copains" (félagar) við ávarpsorðin Fran- caises et Francais. Einnig má sjá hnignun póli- tískrar baráttu í Frakklandi þar sem hún kafnar í orða- gjálfri. Valéry Giscard d’Estaing er sýndur, þar sem hann er ungur maður og drekkur skál með verkamönn- um á meðan á kosningabarátt- unni stendur. Með stuttum skotum eru Pompidou fv. for- seti og miðjumaðurinn Jean Lecanuet sýndir gera hið sama, en myndin er sýnd hægt á meðan. Þá sést d’Estaing núver- andi forseti á unga aldri, þar sem hann er á sérstökum skóla- bekk fyrir pólitíska framagosa. Það er öllu alvarlegri hlið sem sýnd er þegar skoðuð eru kosningaloforð Guy Mollet fyrr- um forsætisráðh. De Gaulles fv. forseta. Mollet lofaði að Frakkar færu frá Alsír á sínum tlma, en Frakkar urðu um Bandarískir stjórnmálamenn kvssa gjarnan smábörn og hér er Carter með eitt slikt. Kjallari á föstudegi VilmundurGylfason tækið Mitsubitsi. I nóvember síðastliðnum mætti sendinefnd frá japanska fyrirtækinu á fund í Landsvirkjun til þess að útskýra tilboð sitt. Það er auð- vitað í hæsta máta eðlilegt. Þar mættu tveir fúlltrúar japanska fyrirtækisins — og Jón G. Sól- nes. Þessa sögu hefur staðfest Eiríkur Briem, forstjóri Lands- virkjunar. Því má svo bæta við, að Hörður Gunnarsson, sem verið hefur skráður umboðs- maður Mitsubitsi, hefur ekki lengur umboð fyrir fyrirtækið, að því er ég bezt veit. Starfsmenn hjá Landsvirkj- un (ekki þó forstjórinn) hafa sagt mér, að þeir hafi orðið orðlausir þegar sendinefndin birtist. Jón G. Sólnes er ennþá formaður Kröflunefndar. Þar getur hann átt eftir að þurfa að standa í viðkvæmum samning- um við japanska fyrirtækið vegna vélanna við Kröflu, eins og gangur mála hefur verið fyrir norðan. Hann er við- skiptalegur fulltrúi rfkisvalds- iris gagnvart þessu fyrirtæki. —, En vera má að Geir Hallgríms- son hafi skipað hann einhvers konar leynilegan sendiherra Japans á Islandi! En hvað í ósköpunum er Jón G. Sólnes að þvælast með þessum mönnum vegna útboðs í allt aðra virkj- un? Hefur maðurinn ekki fengið nóg af Kröfluvirkjun? Er þetta einhver vinargreiði? Eða er hann launaður starfs-, maður þeirra? Þessu veltu þeir í Landsvirkjun að minnsta kosti fyrir sér. Það er svo rétt að um þetta á að spyrja sérstaklega. Gjald- eyrismál þingmannsins í Dan- mörku eru sérstakt mál, sem dómstólar ættu að fjalla um sér- staklega. í EINNI SÆNG Kerfið er samt við sig. Magnús Kjartansson, fyrrver- andi orkumálaráðherra, birti í Þjóðviljanum á þriðjudag ein- hverja þá barnalegustu ritsmíð, sem þar hefur lengi sézt, og er þó af ýmsu að taka. Þar rakti hann fjármálasögu Alþýðu- flokksins í fimmtíu ár og sparaði ekki ályktanirnar. Skarplegar ályktanir hans voru meðal annars á þá leið að þar sem einhver krati hefði stolið einhverju fyrir fjörutiu árum þá hlytu þeir Sighvatur Björg- vinssiin og Vilmundur Gylfason að vera þjófarlíka.Þessar vitur- legu ályktanir hafa senmlega átt að vera innlegg í þetta mál! Magnús er náttúrlega einhver blanda af komma og kerfiskalli og þess vegna engin ástæða til þess að taka þetta nöldur alvar- íega. En einn tók nöldur Magnúsar alvarlega. Það var leiðarahöfundur Morgun- blaðsins daginn eftir. Þar var hann ekki að ræða gjaldeyris- innstæður Jóns G. Sólness í milljónavís á erlendri grund. Nei, hann var að ræða fortíð Alþýðuflokksins — og Alþýðu- bankamálið. Það hefur senni- lega líka átt að vera innlegg í umræðuna um Jón G. Sólnes og innstæður í erlendum bönkum. Og máli sínu til stuðnings vitnaði leiðarahöfundur Morgunblaðsins I vin sinn Magnús Kjartansson. Það skyldi nefnilega ekki fara svo, að í framtíðinni yrði Alfreð Þorsteinsson sem ein- hvers konar Shakespeare við hliðina á þessum köppum? kyrrt. De Gaulle lofaði að Frakkar yrðu áfram í Alsír, en þeir fóru. Vitnað er 1 ræðu André Mal- raux, þar sem hann sagði: Þegar sagnfræðingar skoða þennan tima í stjórnmálasögu okkar komast þeir að þvl að hægri var ekki hægri, vinstri var ekki vinstri og miðjan var ekki í miðjunni. KOSNINGAR ÁN LOFORÐA VÆRU HRYGGILEGAR „Ég vildi gera svona mynd um öll lýðræðisríki," segir Halimi, en það tæki of langan tíma. Hann hefur áður gert mynd um hersetu Þjóðverja í Frakklandi á stríðsárunum og nefnist hún „Sungið undir her- setunni". Hún fjallar um franska listamenn, sem héldu áfram að syngja og dansa undir hernámi Þjóðverja. Eftir þá mynd vildi hann snúa sér að loforðunum. „Loforð eru hluti lífsins," segir hann. „Tökum sem dæmi atvinnuveitanda, sem lofar að athuga með launahækkun næstu sex mánuði. Hvað gerist? Ég vildi fjalla um loforð. Kosn- ingar vekja alls staðar áhuga.“ Til þess að gera myndina heim- ildarlegri hefur Halimi bætt inn í hana viðtölum við stjórn- málamenn og stjórnmálafræð- inga, þar sem fjallað er um kosningaloforð.sem brugðust. I viðtali við stjórnmálamann, sem tapaði I kosningum 1962, kemur fram sú skoðun að kosningar án loforða væru hryggilegar. Frambjóðandinn verður að ljúga, segir hann slðar í viðtalinu. Kjósandinn vill að hann geri það. Hið gagnstæða kemur fram I viðtali við Pierre Mendes- France fv. ráðherra, sem heldur því fram að frambjóð- andinn reyni yfirleitt að segja Mörgum þvkir sem íslenzk stjórnmálabarátta sé farin að taka mið af handarískri í nokkrum mæli og hefur sigurhátíð Alþýðuflokks- manna í Reykjavík verið nefnd sem dæmi um slíkt. Hér eru forvígismenn flokksins reifir eftir sigurinn í prófkjörinu í Reykja- vik. sannleikann og að almenningur verði að álíta hann trausts verðan. Alfred Grosser hefur aðeins eitt um málið að segja: „Þjóðin fær þá stjórn yfir sig, sem hún á skilið." BARÁTTA FYRIR FRELSI Eftir því sem Halimi segir gekk dreifingaraðili myndar- innar út eftir að hafa setið undir sýningunni í 20 mínútur og ákvað að skipta sér ekki frekar af henni. Mendes- France varð hissa er hann heyrði um vandræði myndar- innar, en hann taldi hana fyndna og skemmtilega. Dagblaðið Le Quotidien de Paris sagði að álfta mætti eftir þeim viðtökum.sem myndin hefur fengið, að ekki mætti gagnrýna kosningaloforð, sem slðan stæðust ekki. En margir munu standa með Halimi, sagði blaðið, því þetta er ekki barátta fyrir einni mynd, heldur frels- inu. n i • Eldhröð pappírsfærsla (11 lín./sek.) ® Eldhröð prentun • Leyfilegt er að draga pappírinn upp með hendinni • Bæði Ijósaborð og strimill (mod 2251) GÍSLIJ JOHNSEN •Stórir og skýrir stafir Vesturgata 45 Reykjavík • Fullkomin kommusetning Sími 27477

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.