Dagblaðið - 17.02.1978, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 17.02.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. FEBRUAR 1978. 5 Margvíslegar hækkanir í kjölfar gengisfellingar Verðlagsnefnd er klofin i af- stöðu sinni til verðhækkana í kjölfar gengisfellingarinnar og efnahagsráðstafana, einkum verzlunarálagningar. Agrein- ingurinn kom upp á fundi í verð- lagsnefnd í fyrradag og hefur öll- um ákvörðunum verið frestað til mánudags. Georg Ölafsson verðlagsstjóri sagði í samtali við fréttamann DB, að það hefði tíðkazt í kjölfar gengisfellinga að beita svo- kallaðri 30%-reglu um verzlunar- álagningu. Það er að segja, að verzlunin fái heimild til að hækka álagningu sina um 30% af gengis- fellingunni, sem í þetta skiptið væri um 4.5%. „Þetta þýðir lækkun álagningarinnar í prósentum," sagði verðlagsstjóri, „en á að nægja fyrir beinum kostnaði, sem verzlunin verður fyrir af völdum gengisfelling- arinnar." Þegar þessi ágreiningur kom upp í nefndinni var öllum frekari umræðum hætt og frestað til mánudags. Þá verður einnig tekin fyrir hækkun á t.d. farmgjöldum — verðlagsnefnd klofin í afstöðunni til verzlunar- álagningar „Nýtt” ferðamannaland? Þrjú þúsund Islend- ingar til Júgóslavfu „Þetta er fjórða árið sem við erum með þessar ferðir og okkur telst til að um þrjú þúsund manns hafi farið til Júgóslavíu á okkar vegum,“ sagði Ellen Ingvadóttir hjá ferðaskrifstofunni Landsýn f viðtali við DB, en Júgóslavía er að verða ,,nýtt“ ferðamannaland okkar tsiendinga, ef marka má aðsókn í ferðir þangað. „Við höfum enn ekki gert skrá yfir þá, sem beinlínis hafa farið sér til heilsubótar, en þeir eru fjöl- margir, enda öll aðstaða þarna mjög til fyrirmyndar og hafa LÍV um ógildingu kjarasamning- anna: Stuðlar beinlínis að harðari júgóslavnesk yfirvöld gert mikið úr þeim möguleika," sagði Ellen ennfremur. Ferðir Landsýnar til Júgóslavíu eru að mestu bundnar við baðstrandastaðinn Portoroz við Prian-flóa, sem liggur inn úr Adriahafinu, og er nú orðið beint flug þangað, sem tekur um fjóra klukkutíma. Landsýn er að stórum hluta orðin eign samvinnuhreyfing- arinnar og hafa Samvinnuferðir tekið upp samvinnu við Landsýn um þessar ferðir, sem kosta frá 110 þúsund krónum. og bensini. Arni Ólafur Lárusson, deildar- stjóri hjá Skeljungi hf„ sagði f samtali við blaðið, að nokkuð augljóst væri að bensin myndi hækka á næstunni f kjölfar gengisfellingarinnar. „Það er óvíst hve hækkunin verður mikil," sagði Arni og vildi ekki skýra frá um hve mikla hækkun olfufélögin hefðu beðið. „Margt i þessum verðútreikningum er fast f krónutölu, en ljóst er að cif-verð olfuvara og tollur hækka og sfðan söluskattur f framhaldi af þvf. Annars veldur það erfiðleikum við útreikning olfuverðsins, að gengið er enn mjög óstöðugt og breytist næstum daglega." Arni Ölafur sagði „tregðu í kerfinu" gagnvart öllum hækkun- um og væri það skiljanlegt, til dæmis með tilliti til þess að ekki er langt síðan nokkur hækkun varð á olíuverði. Bensfnlitrinn kostar nú 113 krónur. Manna á meðal er rætt um að hann geti hækkað í 130 krónur á næstunni. -ÓV. Bensindælurnar hafa verið „gíraðar niður", — en það er engu líkara en verðbólgan sé aftur farin að iáta hjóiin i þeim snúast hraðar og hraðar. kröfugerð „Sá þáttur frumvarps ríkisstjórnarinnar, sem nú er til meðferðar á Alþingi og ógildir hluta gildandi kjarasamninga, er bæði rangur og mjög óvitur- legur," segir í samþykkt Lands- sambands islenzkra verzlunar- manna. „Hann veldur litlu um hömlun. gegn verðbólgunni en eyðir trausti og samstarfsmöguleikum milii stjórnvalda og launþega- samtaka, stuðlar beinlfnis að harðari kröfugerð og hindrar að hægt sé að gera samninga til Iengri tíma,“ segir þar enn- fremur. Áherzla er lögð á nauðsyn þess, að kjarasamningar séu vi'rtir eins og aðrar fjárskuldbindingar í þjóðfélaginu. Mál sé komið að nú linni brotum stjórnvalda gegn þessu grundvallaratriði. Verzlunarmenn telja, að ástand f efnahagsmálum hafi sízt versnað frá því samningar voru gerðir á sl. vori. Til þess að kveða niður verðbólguna þurfi að nást samstaða allra meginafla þjóðfélagsins, ef árangurs eigi að vænta. Landssambandið mótmælir harðlega áformum ríkisstjórnar- innar um ómerkingu kjara- samninga eins og ráðgert er I frumvarpi hennar á Alþingi. Hvetur Landssambandið allt verzlunarfólk til samstöðu og baráttu til varnar umsömdum kjörum. -BS. Við höföum hendur í hári þeirra Þær eru margar konurnar sem viö höfum haft hendur í hári á, gegnum árin. Þær sem einu sinni komast undir okkar hendur koma aftur og aftur, flestar viku- lega, sumar sjaldnar. Allar koma þær auðvitað til þess að fá meðhöndlun á hári sínu-og einnig til þess að slaka á og láta sér líða vel - þess vegna eigum við líka stundum kaffi á könnunni handa þeim. Við bjóðum ykkur hárfína þjónustu á öllum sviðum hárgreiðslunnar, það er höfuðmálið Stelpurnar á Sóley Sjáumst á Sóley hámreiðslustofa Reynimelur 86 við Kaplaskjólsveg Sími 18615 Dagblað án ríkisstyrks

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.