Dagblaðið - 25.02.1978, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. FEBRUAR 1978.
Styður þu
á réttu hnappana?
,.Með DtS 100 styður þú á réttu hnappana”
DTS 100 sýnir heildarsöluverð fjögurra vöruflokka
samtímis.
DTS veit nákvæmlega hvaða upphæð á að vera
í skúffunni. — (Meira að segja þegar vörum
er skilað og greitt er úr kassa.)
\ DTS 100 hefur sjálfvirkan margfaldara..
DTS 100 er greiðslureiknir.
DTS 100 sýnir sjálfvirkt (með þvi að styðja
á réttan hnapp) hve mikið gefa skal til baka
Skrifstofutækni hf.
Tryggvagötu — Reykjavík
Box 454 - Sími 28511
,,Með DTS 100 styður þú á réttu hnappana
ÓSKAÐ ER EFTIR TILBOÐUM í BIFR. SEM HAFA
SKEMMZT í UMFERÐARÓHÖPPUM.
Meðal annars:
Tegund Árgerð
V0LV0 144 1973
BLAZER 1974
LAND R0VER DÍSIL 1974
FIAT 127 1974
MERCURY C0MET 1974
MAZDA 1976
DATSUN 1978
Bifreiðarnar verða til sýnis aó
Skemmuvegi 26 Kópavogi mánudag-
inn 27.2. 78 kl. 12—17.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygg-
inga, Bifreiðadeildar, fyrir kl. 17
þriðjudaginn 28.2. 78.
STARFSLAUN HANDA LISTAMÖNNUM ÁRIÐ 1978
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa
íslenskum listamönnum árið 1978. Umsóknir sendist
úthiutunarnefnd starfslauna, menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, fyrir 1. apríl nk. Umsóknir skulu auð-
kenndar: STARFSLAUN LISTAMANNA.
I umsókn skulu eftirfarandi atriði tilgreind:
1. Nafn, heimilisfang, fæðingardagur og ár, ásamt nafn-
númeri.
2. Upplýsingar um náms- og starfsferil.
3. Greinargerð um verkefni sem liggur umsókn til
grundvallar.
4. Sótt skal um starfslaun til ákveðins tíma. Verða þau
veitt til þriggja mánaða hið skemmsta en eins árs hið
lengsta og nema sem næst byrjunarlaunum mennta-
skólakennara.
5. Umsækjandi skal tilgreina tekjur sínar árið 1976.
6. Skilyrði fyrir starfslaunum er að umsækjandi sc ekki
i föstu starfi, meðan hann nýtur starfslauna, enda til
þess ætlast að hann helgi sig óskiptur verkefni sínu.
7. Að loknu verkefni skal gerð grein fyrir árangri starfs-
launanna.
Tekið skal fram að umsóknir um starfslaun árið 1977
gilda ekki i ár.
Reykjavík, 22. febrúar 1978.
ÚTHLUTUNARNEFND STARFSLAUNA
Málningarverksmiðjan er fluttí
Höfðatún4
STJÖRNU ☆ LITIR Vr
Sími23480
Seljum eins ogáðurá verksmiðjuverði
okkar viðurkenndu Stjörnumáiningu
en raunar urðu ekki fleiri ferðir með henni þar sem norðaustan
DB-mvndir Ragnar Th. Sigurðsson.
Krakkarnir bíða eftir skíðalyftunnu
kaldinn stöðvaði lyfturnar.
Húrra, húrra, húrra
— nú höldum við í Bláfjöll
„Húrra, húrra, húrra, ómaði
um skólastofurnar er við sögðum
12 ára börnunum að skíðaferðin
yrði í dag en ekki á mánudag, eins
og raunar var upphaflega gert ráð
fyrir. Islenzk veðrátta er óút-
reiknanleg svo við ákváðum að
nota tækifærið meðan góða veðrið
héldist," sagði Aslaug Brynjólfs-
dóttir yfirkennari I Fossvogsskóla
er blaðamenn DB hittu á annað
hundrað káta krakka í Bláfjöllum
ásamt kennurum sínum i gær.
Sól skein I heiði — útsýnið frá
Bláfjöllum fagurt og tært. Það
var bærilega skjólsamt við skíða-
skálann i kvosinni — en er kom
efst i brekkurnar tók við norð-
austan kaldinn. Þar ríkti vetur
konungur — og svo sterkur var
vindurinn að ekki var hægt að
láta lyfturnar ganga.
Krakkarnir létu það ekki á sig
fá — þeir brunuðu kátir og fim-
lega um brekkurnar. ,,Ég er ofsa
efnilegur en nenni ekki að æfa,“
sagði Jóhannes Ingi Jóhannsson
— ef til vill meir f gríni en alvöru.
„Ég kem hingað stundum með
foreldrum mínum,“ bætti hann
við. Það var annað hljóð í Þórði
Hjörleifssyni — hann æfir af
kappi með Vikingi. „Ég hef sigrað
í þremur innanfélagsmótum Vik-
ings á skfðum — fer i skiðaskála
Vikings svona fjórum sinnum í
viku — þar er ákaflega gott að
vera,“ sagði Þórður.
„Iss, maður, skíðabrekkurnar í
Austurrfki eru miklu betri, skíða-
brekkurnar hér í Bláfjöllum eru
ekki neitt í samanburði við þær.“
sagði Már Mixa þar sem hann
gæddi sér á nesti sínu. „Ég hef
farið fjórum sinnum til Austur-
ríkis en fer stundum hingað upp-
eftir á skfði,“ sagði Már ennfrem-
ur.
Við hittum úti fyrir þær Svan-
hildi Kaaber og Sólveigu Thor-
oddsen kennslukonur ásamt Dani-
el Hansen kennaranema — og
eftir miklar fortölur tókst okkur
loks að fá mynd af þeim. —
„Þegar við komum hingað i fyrra
lentum við i afskaplega vondu
veðri. Nú er hins vegar allt í
blóma, hreinasta paradis," sagði
HESTAMENN
MeÓ einu símtali
er áskrift tryggó
SÍMAR 85111 -28867
Svanhildur. Og Sólveig sagði að
krakkarnir væru mun fimari nú
en fyrir um 10 árum. Utbúnaður
hefði batnað gffurlega og krakk-
arnir næðu þvi meira valdi á skíð-
unum.
Fyrir utan hittum við Sturlu-
syni — unga skáta er fóru í
gönguferð og settu á svið björgun.
„Við björguðum Aslaugu yfir-
kennara úr bráðum háska, dróg-
um hana upp gil. Hún stóð sig
eins og hetja — æfing auðvitað —
og slðan æfðum við okkur í með-
ferð áttavita. Við fórum að leita
að hellum — fundum marga,“
Daníel — Sólveig og Svanhildur:
„Það er allt annað að vera með
krökkunum i stilltu veðri."
Þetta eru Sturlusynir — nýkomnir frá „björgunarafrekinu í Bláfjöll-
um“ þar sem þeir björguðu Áslaugu yfirkennara.
sögðu strákarnir f Sturlusonum.
„Þegar ég byrjaði að vinna hér
fyrir fjórum árum var aðsókn
sáralítil — hún hefur aukizt
hreint ótrúlega. Sjálfsagt eru það
hinar ágætu brekkur, svo og
færið, sagði Guðjón Guðmunds-
son starfsmaður í Bláfjöllum, á
vegum Reykjavfkurborgar „A
næsta ári er reiknað með stórri
skíðalyftu austan við skáiana.
Aðstaðan er þannig smám saman
að batna — þó ef til vill fari hægt.
Það er mikið um að skólar komi
hingað, nú og svo kemur fólk
mikið af Suðurnesjum. Áhugi á
skíðagöngu hefur og aukizt hreint
ötrúlega, sér i lagi með hækkandi
sól,“ sagði Guðjón Guðmundsson.
Já, það var lif og fjör i Bláfjöll-
um i gær er blaðamenn DB komu
þangað — næstum beint úr verk-
fallinu nýafstaðna. Bláfjöll —
paradfs, steinsnar frá þéttbýlinu
á suðvesturhorninu. Vinsældir
svæðisins fara nánast dagvaxandi
■— „verst að maður kemst svo
sjaldan á skiði. Það er svo mikið
að gera hjá okkur, helzt þegar
vont er veður,“ sagði Guðjón Guð-
mundsson — en margur skyldi
ætla að einmitt hann og félagar
hans i Bláfjöllum bókstaflega
skildu ekki skiðin við sig, en svo
er þó greinilega ekki.
H. Halls.
Fúlgum stolið úr mannlausum íbúðum
Það getur verið varasamt að
geyma peningafúlgur heima hjá
sér, þótt aðeins sé yfir nótt. Það
reyndi fólkið i Kleppsholtinu sem
í vikunni varð fyrir því að brotizt
var inn í íbúðina og þaðan stolið
235 þúsund krónum.
Þrjóturinn náðist daginn eftir
með megnið af peningunum. Þar
var um að ræða „vanan mann“.
Vanur maður var einnig að
verki í Smáíbúðahverfinu þar
sem brotizt var inn í Ibúð og stolið
80 þúsund krónum i peningum,
segulbandstæki, vasaúri og
nokkrum fingurbaugum. Sá
þjófur er ófundinn.
Um siðustu helgi var brotizt inn
í fyrirtæki i Sfðumúla i Reykja-
vik. Þar var engu stolið — en
þrjóturinn skeytti skapi sínu á
innanstokksmunum og olli tals-
verðu tjóni. Hann náðist daginn
eftir.
Loks voru brotnar margar
rúður I Flataskóla i Garðabæ um
sfðustu helgi. Skemmdarvargarn-
ir eru ófundnir skv. upplýsingum
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
-OV