Dagblaðið - 25.02.1978, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. FEBRUAR 1978.
7
Risakrani lagjðist á Miðina í Hafnarfirði
— bóman f éll á mannlausa dráttarvél skammt f rá hópi vinnandi manna
Fyrr í vikunni varð óvenjulegt
óhapp á vinnustað vestan Hafnar-
fjarðar þar sem verið ér að undir-
búa byggingu gróðurhúss við
Garðaveg. Stór krani, einn af
þeim stærstu á landi hér, var
kominn á staðinn og átti að fara
að koma honum fyrir með þvi að
skjóta undir hann hliðarstuðningi
og öðru sem til þarf. Vildi þá svo
illa til að bóman slóst út á hlið og
skipti engum togum að kraninn
lagðist á hliðina I öllu sínu veldi.
Kranabóman lagðist endilöng á
jörð niður rétt utan við grunn
gróðurhússins. Fáa metra frá
voru margir menn að vinna og má
mildi kalla að ekki tókst illa til.
Við hlið kranans stóð traktor og
fór bóma kranans á hann rétt
framan við stýrið. Lagðist traktor-
inn þar saman undan þunga bóm-
unnar og telst ekki traktor
lengur. Traktorinn var mannlaus
á þvi augnabliki sem kraninn
lagðist á hann. Var það önnur
mildin við þetta óhapp.
Miklar tilfæringar þurfti til að
reisa kranaferlíkið við en það
tókst þó með aðstoð kraftmikilla
tækja.
- ASt.
„Borgaraleg handtaka” í söluturni
Ungur maður á Langholtsvegi í
Reykjavik sýndi mikið snarræði í
fyrrinótt. Um þrjúleytið sá hann
út um glugga heima hjá sér hvar
tveir piltar voru að fara inn í
söluturninn á Langholtsvegi 176.
Brá hann skjótt við og vatt sér
út. Var þá annar innbrotsþjófur-
inn kominn inn í söluturninn en
hinn stökk á brott og komst und-
an. Sjónarvotturinn fór aftur á
móti inn á eftir þeim sem á undan
fór, handsamaði hann þar og
hringdi á lögregluna.
Innbrotsþjófarnir eru ungir að
árum, fæddir 1961 og 1963.
-ÓV
Kranaferlíkið komið á hliðina. Sjá má hvernig bóman leggst yfir traktorinn. Ljósth. Hafnarfjarðarlög-
reglan, Eðvar Ólafsson.
saasf 17 KEPPA UM FIMM SÆTIÁ USTANUM
— flokkurinn hefur nú fjóra fulltrúa í bæjarstjórninni
ATKVÆÐASEÐILL
í pnáfkjöri Sjálfslæðisfélagonna i Keflavik,
25. og 26. febrúar 1978.
Til þess að afkvæðaseðill sé gildur þarf að kjósa
fæst 5 menn, tölusetta i þeirri röð, sem óskað
er, að þeir skipi sæti ó fromboðslistanum.
Arni R. Ámoson, Votnsnesvegi 22a
Ami Þór Þorgrímsson, Gorðovegi 1
Bjöm Stefónsson, Hóhoh-i 27 -
Einor Guðberg, Hólabrout 10 </>
Einor Kristinsson, Þverholti • 19
Elíos Á. Jóhonnsson, Miðgarði 20 -■*
Gunnlaugur Korlsson, Hólabrout 7 </>
Halldór Ibsen, Austurbraut 6
Ingibjörg Elíosdóttir, Sólvallagötu 16 o
Ingibjörg Hofliðodóttir, Faxabrout 45
Ingólfur Folsson, Heiðarvegi 10a
Ingólfur Holldórsson, Hólobraut 14
Jóhonn Pétursson, Þverholti 23
Jóhanna Geirlaug Pólsdóttir, Hótúni 20
Kristinn Guðmundsson, Miðgarði 11
Tómos Iþsen Halldórsson, Miðtúni 4
Tómos Tómasson, Langholti 14
-• —— .... .
ATH. I auðu linurnar mó bæta við nöfnum og
tilgrcina heimilisfang.
Suðurnesin hafa verið undir-
lögð í prófkjörum síðustu vikur
og nú leggja sjálfstæðismenn í
Keflavík til atlögu. Prófkjör
þeirra til sveitarstjórarkosning-
anna núna i vor fer fram núna um
helgina og hafa sautján manns
gefið kost á sér.
Þeir eru: Árni R. Arnason
framkvæmdastjóri, Arni Þór Þor-
grímsson flugumferðarstjóri,
Björn Stefánsson skrifstofustjóri,
Einar Guðberg framleiðslustjóri,
Einar Kristinsson framkvæmda-
stjóri, Elias A. Jóhannsson banka-
starfsmaður, Gunnlaugur Karls-
son skipstjóri, Halldór Ibsen
framkvæmdastjóri, Ingibjörg
Eliasdóttír húsmóðir, Ingibjörg
Hafliðadóttir húsmóðir, Ingólfur
Falsson vigtarmaður, Ingólfur
Halldórsson aðstoðarskóla-
meistari, Jóhann Pétursson póst-
meistari, Jóhanna Geirlaug Páls-
dóttir póstfulltrúi, Kristinn Guð-
mundsson málarameistari, Tómas
Ibsen Halldórsson bankastarfs-
maður og Tómas Tómasson spari-
sjóðsstjóri.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú
fjóra menn í bæjarstjórn, vann
einn af framsóknarmönnum í
síðustu kosningum .Þeir eru Árni
Arnason, Ingólfur Falsson,
Ingólfur Halldórsson og Tómas
Tómasson. Þeir eru sjálfkjörnir á
prófkjörslistanum.
Kosningaþátttaka í prófkjörum
sem fram hafa farið til þessa á
Suðurnesjum hefur verið góð og
yfirleitt I samræmi við það sem
flokkarnir hafa fengið af at-
kvæðum í undanförnum kosning-
um. Búast sjálfstæðismenn við
þvi að fá um eitt þúsund manns
til þess að greiða atkvæði en
framsóknarmenn og alþýðu-
flokksmenn voru á bilinu sex til
sjö hundruð.
öllum stuðningsmönnum Sjálf-
stæðisflokksins sem hafa
kosningarétt, svo og flokksbundn-
um mönnum, 16 ára og eldri, er
heimil þátttaka 1 prófkjörinu.
Prófkjörsseðillinn er ekki
gildur nema greidd séu atkvæði
með fimm mönnum minnst og
skulu þeir merktir með tölustöf--
um. Þá er gert ráð fyrir því á
kjörseðli að menn geti gert til-
lögur um tvo menn og eru til þess
auðar linur neðst á seðlinum.
Kosið verður í JC-húsinh við
Kirkjuveg í Keflavik, laugardag
frá 14 til 19 en sunnudag frá 10 til
22.
Að sögn Helga Hólm, formanns
uppstillingarnefndar er búizt við
að unnt verði að telja atkvæði
strax á sunnudagskvöldi og ættu
tölur því að liggja fyrir á mánu-
dagsmorgun. HP
Einar QuAbtrg. 30 ára, framlaiflalu-
at|órí
Elnar Kriatinaaon, 46 ára, fram-
kvaamdaatjórí
Ami R. Amaaon, 36 ára, fram-
kvaemdaatjóri
Ami Þór Þorgrímaaon, 46 ára. flug-
umfarflaratjórí
Bjflm Stafánaaon, 53 ára, akrif-
atofuatjórí
Ingóifur HaHdóraaon, 46 ára,
aflatoflarakólamalatarí
Jóhann Péturaaon, 58 ára, póat-
malatarí
Jóhanna Qaéríaug Páladóttk, 53 ára.
póatfufttrúi
mófllr
Ingólfur Falaaon, 38 ára, vtgtar-
maflur
Knatinn Quflmundaaon, 38 ára,
málaramaiatarí
Tómaa Ibaan Halldóraaon, 24 ára, Tómaa Tómaaaon, 53 ára, aparí-
bankaatarfamaflur ajóflaatjóri.
Elíaa Jóhannaaon, 24 ára, banka-
atarfamaflur
Uunnlaogur Karíaaon, 55 ára,
akipatjóri
Halldór Ibaan. 53 ára. framkvamda-
atjóri
móflir