Dagblaðið - 25.02.1978, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. FEBRUAR 1978.
1
Utvarp
Sjónvarp
Sjónvarp í kvöld kl. 21,25:
Óvenjulegur vestri
um ástir og afbrýði
Bíómynd sjónvarpsins í kvöld,
Astir og afbrýði, Johnny Guitar,
er vestri en dálítið óvenjulegur og
öðruvfsi en hinir dæmigerðu
vestrar sem kvikmyndahúsagestir
eiga að venjast, segir íkvikmynda-
handbókinni okkar. Er það talið
myndinni til lofs. Myndin er frá
árinu 1954 og leikararnir ekki af
verri endanum, Joan. Crawford,
Sterling Hayden og Scott Brady.
t myndinni segir frá konu
nokkurri sem á spilavíti sem hún
hefur reist 1 járnbrautarbæ
einum. Hún er upp á kant við
bæjarbúa. Johnny Guitar er gftar-
leikari sem býðst starf í spila-
vitinu. Brátt fer allt f bál og
brand.
Myndin fær þrjár stjörnur f
kvikmyndahandbókinni.
Sýningartími hennar er ein
klukkustund og fjörutfu og fimm
mfnútur. Þýðandi er Kristmann
Eiðsson.
A.Bj.
Guðmundur Gunnarsson og Asa Finnsdóttir stjórna. Það má benda
Guðmundi á að óþarfi er að biðja Ásu að vera sífellt að segja hvernig
stigin standa. Það blasir greinilega við áhorfendum.
Útvarp annað kvöld kl. 21,30:
Opinskáar umræður um kyntíf
Tilf inningalega hliðin vanrækt og nánast engin fræðsla í skólum
„Það hefur lengi verið ætlun
okkar að taka fyrir hugtakið ást-
ina og höfum eiginlega verið að
velta þvf fyrir okkur hvernig
hægt væri að ræða þetta á opin-
skáan hátt,“ sagði Gfsli Helgason í
samtali við DB. Hann stjórnar
þætti er nefnist „Kynlíf“ ásamt
Andreu Þórðardóttur. Þátturinn
er á dagskrá útvarpsins annað
kvöld kl. 21.30.
„Við fengum Asgeir Sigurgests-
son sálfræðing til þess að spjalla
við okkur en hann hefur gert
könnun á þvi meðal 14 ára skóia-
barna hvenær þeir hefja kynlff.
Einnig kemur f þáttinn Helga
Gunnarsdóttir félagsráðgjafi á
kynfræðsludeild Heilsuverndar-
stöðvarinnar og ræðir hún um
helztu vandamálin sem þar
koma upp og á starfsemina á kyn-
fræðsludeildinni. Þá kemur fram
Jón Hilmar Alfreðsson kvensjúk-
dómalæknir. Auk þess koma fram
fjórir aðilar sem ekki eru nafn-
greindir og ræða um reynslu sfna
af kynlífi. Þetta fólk er á aldrin-
um frá tvftugu til sextugs og
hefur flest átt við einhver vanda-
mál f sambandi við kynlff að
strfða.
Þetta fólk tekur þátt f að spyrja
þrjá áðurnefnda aðila og þar
fengust góðar og opinskáar um-
ræður um kynlíf," sagði Gfsli
Helgason.
„I þættinum kemur fram mjög
athygiisverður hlutur en það er
að tilfinningarnar f sambandi við
kynlífið virðast skipta miklu máli
en talið er að sá þáttur hafi verið
mjög vanræktur meðal þeirra sem
eiga að uppfræða unglingana um
kynlffið. Einnig kemur fram að
nánast engin fræðsla er f skólum
um kynlíf," sagði Gfsli.
Þátturinn er fjörutíu og fimm
mfnútna langur.
A.Bj.
/ r
Sjónvarp annað kvöld kL 22y10:
Annað kvöld kl. 22.10 er þáttur
í sjónvarpinu er nefnist Jass. A
myndinni eru, frá vinstri: Arni
Scheving, Jón Páll Bjarnason,
Gunnar Ormslev og Alfreð.
Alfreðsson. Þeir eru allir meðal
kunnustu jassleikara landsins en
myndin er tekin í október '76
þegar þeir léku ásamt öðrum jass-
leikurum á jasskvöldi á Hótel
Sögu.
Aðrir jassleikarar sem
koma fram i þættinum annað
kvöld eru Halldór Pálsson,
Magnús Ingimarsson og Viðar
Alfreðsson. Stjórn upptöku
annaðist Egill Eðvarðsson.
Þátturinn er sendunút í.litum.
A.Bj.
Sjónvarps- og útvarpsdagskrá næstu viku er á bls. 14-15
Veiólaunahafar í7. og8. þætti Gestaleiks
Gestaieik bárust þúsundir bréfa.
4. Birna Gfsladóttir Mánagötu 12,
Reyðarfirði.
5. Þuríður Björnsdóttir Birki-
lundi 4, Akureyri.
Gestaleikur hefur nú runnið
skeið sitt á enda og hefur m.a.
sannazt á þætti þessum að íslend-
ingar eru langt frá þvf að vera
pennalatir. Þættinum bárust
nefnilega þúsundir bréfa með alls
kyns ábendingum, góðum óskum
og jafnvel ferskeytlum.
En það má segja að einn komi
þá aonar fer. í sjónvarpinu sl.
laugardagskvöld hófst nýr
spurningaleikur, talsvert ólfkur
gestaleik, en frá honum er nánar
greint í dagskrárkynningu
blaðsins í dag.
RK
Okkur hafa borizt nöfn þeirra
sem hlutu verðlaun fyrir rétt svör
f 7. og 8. þætti Gestaleiks. I 7.
þætti lék Sigfús Halldórsson tón-
skáld Smaladrenginn eftir Skúla
Halldórsson og í 8. þætti söng
Jónas Arnason gamlan amerfskan
slagara „Embracable you“ með
„Frank Sinatra áherzlum".
Magnús Ingimarsson annaðist
undirleik.
Þeir sem hlutu verðlaun 7.
þáttar eru:
1. Þórunn Björnsdóttir Karfavogi
22, Reykjavík.
2. Marfa L. Eðvarðsdóttir Hrisdal,
Miklaholtshreppi, Snæf.
3. Dóra Ingólfsdóttir Hörgslundi
9, Garðabæ.
4. Sigurjón Vilbergsson Fffu-
hvammsvegi 3, Kópavogi.
5. Asdfs Viggósdóttir Bræðrabýli,
ölfusi, Árnesss.
I 8. þætti hlutu verðlaun:
1. Ingibjörg Kristjánsdóttir
Suðurvangi 14, Hafnarf.
2. Hjörtur Hannesson Herjólfs-
stöðum, Alftaveri, V.-Skaft.
3. Ásmundur Guðjónsson Aðal-
stræti 22, Akureyri.
Sjónvarp í kvöld kl. 20,30:
Spumingakeppni
alltaf vinsæl
Menntaskólinn við Hamrahlíð
ogSundineigastvið
Spurningakeppni sem f taka
þátt fulltrúar allra menntaskól-'
anna f landinu auk Verzlunarskól-
ans hófst á laugardaginn var. Þá
mættust Menntaskólinn á tsafirði
og Verzlunarskólinn. Lauk viður-
eigninni með glæsilegum sigri
Verzlunarskólans. Stjórnendur
keppninnar eru Guðmundur
Gunnasson frá Akureyri og Ása
Finnsdóttir sem þekkt er úr sjón-
varpinu frá gamalli tíð. Upptöku
annaðist Tage Ammendrup.
í kvöld eru það fulltrúar
Menntaskólans við Hamrahlfð og
Menntaskólans við Sund sem eig-
ast við. t hverju liði eru tveir
nemendur og tveir kennarar.
Spurningarnar eru miðaðar við
aimennan fróðleik og gert ráð
fyrir að nemendur hafi fylgzt vel
með fréttaflutningi sjónvarpsins.
Fréttamyndir af myndsegulbönd-
um sjónvarpsins eru óspart notað-
ar f þættinum.
Þátturinn er hálftfma langur og
er hann sendur út í litum.
A.Bj.
Raðhús til sölu
Á einum bezta stað í Árbæjarhverfi er
til sölu raðhús sem á að fara að. hefja
byggingarframkvæmdir við Glæsileg-
ar teikningar.
Allar nánari upplýsingar á kvöldin og
um helgar í símum 40092 og 43281.
29555
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 9—21
UM HELGAR FRÁ 13 — 17
LJÓSHEIMAR, 70 FM
2ja hb. stórfalieg íbúð, þak-
hæð, 20 fm svalir. Verð 9 m.
Utb. 7 m.
GOÐHEIMAR, 140 FM
5— 6 hb. sérhæð + bílskúr.
Verð 21 m. Ibúðin er laus.
ENGJASEL, 216 FM
fokhelt raðhús, 7-8 hb„ 2
hæðir og kjailari. Húsið selt
pússað utan með tvöföldu
gleri. Ofnar og einangrun
f.vlgir. Verð 14 m. Utb. 8,5
m.
MJÓAHLÍÐ, 120 FM
6- 7 hb. mjög faiieg íbúð á
tveimur hæðum, 35-40 fm
bílskúr. Verð tilboð.
FLATAHRAUN HFJ., 138
FM
4-5 hb. mjög vönduð enda-
íbúð, útb. 10-11 fm.
GAUKSHÓLAR, 138 FM
5 hb. mjög góð endaíbúð, 3
svalir + biiskúr. Verð 17 m.
VANTAR:
VIÐ HÖFUM
KAUPENDUR MEÐ ALLT
AÐ STAÐGREIÐSLU Á 4-
5 HB. GÓÐUM ÍBÚÐUM
AÐ ESPIGERÐI 4.
VANTAR:
LÍTIÐ EINBÝLIÍ
HAFNARFIRÐI.
HÖFUM GÓÐAN
KAUPANDA
að 4-5 herb. sérhæð með bíl-
skúr í Reykjavík — Kópa-
vogi. Mikil útborgun.
HÖFUM KAUPENDUR
að góðum 2-3ja herb. ibúð-
um í Re.vkjavík, Kópavogi
og Hafnarfirði.
MIKIL ÚTBORGUN,
VESTURBORG,
í 3ja herb. helzt sérhæð +
bílskúr.
HÖFUM KAUPANDA
með mjög mikla útborgun
fyrir góða 4-5 herb. jarðh.
eða 1. hæð + bílskúr í
Heima- eða Laugaráshverfi.
SELTJARNARNES, 150
FM
2 fokheld einbýlishús + 50
fm bílskúrar, glerjað, teikn-
ingar á skrifstofunni.
HÖFUM FJÁRSTERKAN
kaupanda að Viðlagasjóðs-
húsi i Breiðholti 3.
ÁVALLT NÝ
SÖLUSKRÁ
EIGNANAUST
Laugavegi 96 (vi5 Stjörnubíó) Síml 2 95 55
SÖLUM.: Hjörtur Gunnarsson. Lárus Helgason. Sigrun Kröyer
LOGM.: Svanut- Þór Vilhjálmsson hdl