Dagblaðið - 25.02.1978, Síða 24
Háskólamenn með í verkfallinu en bankamenn ekki:
1EUUM ÞETTfl FALLA
UNDIR NEYÐARRÉTT
Launamálaráð Bandalags
háskólamanna hefur ákveðið að
BHM-menn taki þátt i ólöglega
allsherjarverkfallinu 1. og 2.
marz en Samband bankamanna
verður ekki með að þessu sinni
en kannski í aðgerðum síðar.
Launþegasamtök með 65
þúsund félagsmenn standa því
að verkfallinu.
„Við teljum þessar aðgerðir
falla undir neyðarrétt,“ sagði
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, á fundi með fréttamönn-
um í gær. Hann nefndi dæmi
frá Norðurlöndum og Þýzka-
landi um að slíkur réttur
skapaðist þegar almenningsálit-
ið teldi stjórnvöld fara út fyrir
takmörk sín. Óskar Vigfússon,
forseti Sjómannasambandsins,
nefndi að ekki hefði verið farið
í mál við sjómenn þegar þeir
f.vrir þrem árum sigldu flot-
anum að landi og voru í verk-
falli i 10 daga. Þá var sagt að
engin dæmi væru þess frá hin-
um Norðurlöndunum að mál-
sókn hefði verið hafin út af
verkfalli sem ekki stæði lengur
en tvo sólarhringa, þótt ólög-
legt væri.
Kristján Thorlatius sagði
að auðvitað yrði haldið uppi
heilsugæzlu og öryggisþjónustu
meðan verkfallið stæði.
RUM MANAÐARLAUN
TAPAST
Snorri Jónsson, forseti ASÍ,
sagði að þetta fyrsta sþref, alls-
herjarverkfallið, miindi að
sjálfsögðu ekki nægja til að
knýja fram kröfur launþega-
samtakanna undir kjörorðinu
„Samningana í gildi". Enn væri
ekki búið að ákveða hvert fram-
haldið yrði.
Þá var sýnt með útreikning-
um að launþegar töpuðu
rúmum mánaðarlaunum á 12
mánaða tímabili vegna kjara-
skerðingar ríkisstjórnarinnar
nú.
Formennirnir, Kristján Thorlacius, BSRB, og Snorri Jónsson, ASl, á fundinum með blaðamönnum í
gærdag — neyðarréttur sögðu þeir um aðgerðirnar sem boðaðar eru á miðvikudag og fimmtudag. —
DB.-mynd Bjarnleifur.
Útifundur verður, líklega á
Lækjartorgi, 1. marz,
í samráðsnefndinni, sem
stendur að aðgerðunum, eru
ASÍ, BSRB, háskólamenn, Far-
manna- og fiskimannasam-
bandið, auk Iðnnemasambands-
ins.
HH
Vandræði Þorlákshaf narsjómanna f Aberdeen:
„ENGINN VILDIAKA í fSLENZK A BÁTINN”
frfálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR 25. FEB. 1978,
Ólðgleg
verkföll
BSRBogBHM:
MATTHÍAS
VARAR SÍNA
MENN VIÐ
Fjármálaráðherra hefur skorað
á formenn BSRB og Bandalags
háskólamanna að hætta við fyrir-
hugaðar ólöglegar verkfallsað-
gerðir á miðvikudag og fimmtu-
dag í næstu viku.
„Þessar aðgerðir eru ólöglegar
og varða þá, sem taka þátt í þeim,
bæði refsiábyrgð og frádrætti á
launum,“ sagði ráðherra við for-
mennina.
í fréttatilkynningu frá fjár-
imálaráðuneytinu segir að ráð-
herra hafi bent á að í lögum um
réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna væru ákvæði sem
kvæðu á um frádrátt frá launum
vegna óheimilla fjarvista starfs-
manna, auk þess sem þær gætu
valdið refsingum.
Samkvæmt þessum sömu
lögum er hægt að krefja ríkis-
starfsmenn um tvöfalda þá vinnu,
endurgjaldslaust, sem þeir hafa
verið frá starfi án gildra forfalla,
„eða hlíta því að dregið sé af
launum þeirra sem því nernur,"
eins og segir I lögunum.
-OV
BLAÐAMENN
SAMÞYKKTU
Blaðamenn samþykktu á fundi
sínum í gær að samþykkja
kjarasamning þann sem gerður
hafði verið við útgefendur dag-
blaðanna þá um morguninn.
Sjötiu og fjórir voru samþykkir
samkomulaginu, sautján voru á
móti og fimm fundarmenn
greiddu ekki atkvæði.
Öldubergið AR-18 væntanlegt til íslands á f immtudaginn
Dráttarbáturinn Goði hélt frá
Fredriðshavn í Danmörku í gær-
kvöld áleiðis til Aberdeen í Skot-
landi þar sem Þorkáshafnarskipið
ölduberg ÁR-18 hefur beðið
vélarvana siðan í byrjun þessa
mánaðar. Er gert ráð fyrir að Goði
komi með öldubergið í togi til
Reykjavíkur á fimmtudaginn í
næstu viku.
Goði hélt utan til Svíþjóðar í
byrjun mánaðarins með vélskipið
Sigurð RE sem alvarleg vélarbil-
un varð í. Atti Goðinn siðan að
halda beint til Skotlands til að
sækja öldubergið en þá bilaði
ljósavél Goðans og varð hann að
leita viðgerðar i Danmörku.
Eins og frá var skýrt í DB á
sinum tíma bilaði öldubergið á
siglingu til Islands frá Þýzkalandi
og velktist um i vondum sjó i nær
tvo sólarhringa áður en brezkur
dráttarbátur fékkst til að draga
skipið til hafnar í Aberdeen. Þar
virtist sem skipsmönnum mætti
hinn mesti fjandskapur og fengu
þeir enga fyrirgreiðslu, að mestu
mállausir og fljótlega matar-
lausir.
Eftir nokkra daga veiktist skip-
stjórinn, Jóhann Adolfsson, alvar-
lega af lungnabólgu og var hann
fluttur á sjúkrahús innan
skamms. I bréfi sem DB hefur
borizt frá eiginkonu annars eig-
enda skipsins segir að skipstjór-
innhafilétzt um 12-15 kg í veikind-
um sínum um borð i skipinu.
„Þrátt fyrir fádæma afskipta-
leysi af hálfu ræðismannsins hér
þorðu þeir ekki annað en að
greiða fyrir þvi að maðurinn
kæmist undir læknishendur,“
segir i bréfinu sem skrifað var
daginn sem Jóhann var fluttur á
sjúkrahúsið. „Sennilega hafa þeir
verið orðnir hræddir um að hann
hrykki upp af enda var útlitið
orðið þannig i byrjun vikunnar.
Ekki komu þeir þó með sjúkrabil
heldur venjulegan leigubil."
Siðar i bréfinu segir: „Við höll-
umst helzt að þvi að fálæti ræðis-
mannsins sé af pólitískum toga
spunnið því við höfum orðið vör
við að almenningi er i mun að láta
okkur vita að við séum alls ekki'
illa liðin hér. Ég hitti sjómann í
gærkvöld sem vildi fyrir allan
mun segja mér að sér og öðrum
sjómönnum væri frekar vel við
okkur. En i gær, þegar við komum
hingað til Aberdeen, gekk okkur
heldur illa að fá leigubíl frá járn-
brautarstöðinni og niður í bát
vegna þess að bilstjórarnir vildu
ekki aka i „islenzka bátinn“ af
einhverjúm ástæðum. Það var
ekki fyrr en nokkrir ungir menn
komu okkur til hjálpar að við
fengum bíl. Einn bilstjórinn, sem
ég talaði við, varð alveg æfur
þegar hann vissi hvert átti að aka
og var fljótur að skella aftur
skottlokinu og henda í mig tösk-
unni sem hann var um það bil að
koma fyrir í skottinu! Ég er viss
um að hefði verið hægt að drepa
mig með augnaráðinu væri ég
dauð núna!
Áhöfninni kemur saman um að
brezki dráttarbáturinn, sem dró
þá hingað, hafi talið að þeir væru
frá Færeyjum, annars hefðu þeir
skilið þá eftir úti í hafi! Verðið á
björguninni hefur til dæmis
hækkað úr 2000 pundum í rúm
4000 pund síðan þeir komu
hingað.“
Páll Sigurðsson, forstjóri trygg-
ingafélags Öldubergsins, Sam-
ábyrgðar íslands á fiskiskipum,
sagði I samtali við fréttamann
blaðsins i gær að settar hefðu
verið tryggingar fyrir öllum
greiðslum og væri nú allt útlit
fyrir að mál þetta leystist farsæl-
lega.
-ÓV
Gekk á tengivagn dráttarbíls
Tíu ára gömul telpa fótbrotnaði
á Sundlaugavegi um miðjan dag í
gær í glampandi fögru veðri og
björtu. Vestur götuna fór dráttar-
bifreið með tengivagni aftan í. Er
hún var skammt fyrir austan
Otrateig varð ökumaður þess var í
baksýnisspegli að telpan gekk út
á götuna og á tengivagninn.
Telpan reyndist lærbrotin en um
fleiri eða alvarlegri meiðsli var
ekki vitað. DB-mynd Sveinn
Þorm.
Á fundinum voru samþykkt
mótmæli gegn kjararánsstefnu
ríkisstjórnarinnar. Tillaga sem
gerði ráð fyrir stuðningi við
hugsanlegar ólöglegar vinnu-
stöðvunaraðgerðir var aftur á
móti felld af fundarmönnum með
nokkrum atkvæðamun.
ÖG
Framboð Samtakanna
íReykjavík:
Aðalheiður
í öðru sæti
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
formaður Sóknar, verður i öðru
sæti á lista Samtakanna í Reykja-
vík í þingkosningunum.
Magnús Torfi Olafsson al-
þingismaður verður sem fyrr í
fyrsta sæti. Kári Arnórsson skóla-
stjóri skipar þriðja sætið og Sölvi
Sveinsson kennari hið fjórða. t 5.
sæti er Herdís Helgadóttir bóka-
vörður, 6. Asa Kristín Jóhanns-
dóttir skrifstofumaður, 7. Einar
Þorsteinn Ásgeirsson hönnuður,
8. Anna Kristjánsdóttir náms-
stjóri, 9. Jón Sigurðsson skrif-
stofumaður, 10. Einar Hannesson
fulltrúi, 11. Þorleifur G. Sigurðs-
son plpulagningamaður og 12
Rannveig Jónsdóttir kennari.