Dagblaðið - 10.03.1978, Síða 6
6.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1978.
Sómalir brott frá Ogaden
— Sovétmenn hvattir til að virða vopnahlé á meðanSómalir hverfa á brott
Bandaríkjastjórn hefur beint
því tii stjórnar Sovétríkjanna
að hún stuðli að þvi að bardög-
um verði hætt í Eþíópíu á
meðan Sömalir dragi herlið sitt
frá Ogadan eyðimörkinni.
Tilkynning Bandaríkja-
stjórnar var birt í gærkvöldi,
eftir að forseti Sómalíu, Siad
Barre, hafði greint Carter
Bandaríkjaforseta frá l)ví að
Sómalir hörfuðu með her sinn
frá Ogaden, þar sem bardagar
hafa átt sér stað milli þjöðanna
tveggja undanfarna átta
mánuði.
Enn héfur ekkert svar borizt
frá Sovétmönnum en fjöldi
'sovézkra og kúbanskra her-
manna eru Eþíópíumönnum til
aðstoðar í stríðinu.
Eftir að Bandaríkjastjórn
fékk tilkvnningu Siads Barre
var sovézka sendiráðið í Banda-
ríkjunum þegar látið vita af
henni.
Bandaríkjast jórn hvatti
Sovétstjórnina til þess að virða
Smurbrauðstofqn
BJORNINN
NjáUgötu 49 - Sími 15105
1
Tilkynning
um aðstöðugjald í Reykjavík
Ákveðið er að innheimta í Reykja-
vík aðstöðugjald á árinu 1978 sam-
kvæmt heimild í V. kafla laga nr.
8/1972 um tekjustofna syeitarfélaga
og reglugerð nr. 81/1962 um aðstöðu-
gjald, sbr. lög nr. 104/1973.
Samkvæmt ákvörðun borgar-
stjórnar verður gjaldstigi eins og hér
segir:
0.20% Rekstur fiskiskipa.
0.33% Rekstur flugvéla.
0.50% Matvöruverslun í smásölu. Kaffi, s.vkur og
kornvara til manneldis í heildsölu. Kjöt- og fisk-
iðnaður. Endurtrvggingar.
0.65% Rekstur farþega- og farmskipa.
1.00% Sérlevfisbifreiðir. Matsala. Landbúnaður. Vá-
trvggingar ót.a. Útgáfustarfsemi. útgáfa dagblaða er
þó undanþegin aðstiiðugjaldK Rakara- og hárgreiðslu-
stofur. Verslun ót.a. Iðnaður ót.a. *
1.30% Verslun með kvenhatta, sportvörur, hljóðfæri,
snvrti- og hreinlætisvörur. L.vfjaverslun. Kvikmvnda-
hús. Fjölritun. Skartgripa- og skrautmunaverslun.
Tóbaks- og sælgætisverslun. Söluturnar.
Blomaverslun. úmhoðsverslun. Minjagripaverslun.
Barir. Billjardstofur. Persónuleg þjónusta. Hvers
konar önnur gjaldskvld starfsemi ót.a.
Með skírskotun til framangreindra
laga og reglugerðar er ennfremur
vakin athygli á eftirfarandi:
1. Þeir sem ekki eru framtalsskyldir til tekju- og eignar-
skatts en eru aðstöðugjaldssk.vldir þurfa að senda
skattstjóra sérstakt framtal til aðstöðugjalds, sbr. 14.
gr. reglugerðar nr. 81/1962.
2. Þeir sem framtalsskyIdir eru í Reykjavík en hafa með
höndum aðstöðugjaldsskvlda starfsemi í öðrum sveit-
arfélögum þurfa að senda skattstjóranum í Reykjavík
sundurliðun er sýni hvað af útgjöldum þeirra er
bundið þeirri starfsemi, sbr. ákvæði 8. gr. reglugerðar
nr. 81/1962.
3. Þeir sem framtalsskyldir eru utan Revkjavíkur en
liafa með höndum aðstöðugjaldsskvlda starfsemi í
Reykjavík þurfa að skila til skattstjórans í því
untdæmi sem þeir eru heimilisfastir, yfirliti um út-
gjöld sín vegna starfseminnar í Reykjavík.
4. Þeir sem margþætta atvinnu reka. þannig að útgjöld
þeirra teljast til fleiri en eins gjaldflokks samkvæmt
ofangreindri gjaldskrá. þurfa að senda fullnægjandi
greinargerð um hvað af útgjöldunum tilhevri hverjum
einstökum gjaldflokki. sbr. 7. gr. reglugerðar nr.
81/1962.
Framangreind gögn ber að senda
til skattstjóra fyrir 1. apríl nk., að
öðrum kosti verður aðstöðugjaldið.
svo og skipting í gjaldflokka, áætlað
eða aðilum gert að greiða aðstöðu-
gjald af öllum útgjöldum skv. þeim
gjaldflokki sem hæstur er.
Revkjavík. 8. marz 1978.
SKATTSTJÓRINN Í REYKJAVÍK
vopnahlé, svo og Kúbumenn, á
meðan herlið Sómalíu færi á
brott. Þá var einnig farið fram
á stuðning Sovétmanna við það
að hlutlausir aðilar fylgdust
með brottflutningi herliðsins
til þess að tryggja öryggi her-
mannanna og óbreyttra
borgara.
Skjótra aðgerða er þörf ■
vegna hins alvarlega ástands.
sagði í tilkynningu Bandarikja-
stjórnar og framhaldið er nú
undir Sovétmönnum komið.
Sómalir óttast að blóðbað
f.vlgi í kjölfar brottfarar þeirra
frá Ogaden.
Sómalir hafa nú orðið að hörfa frá Ogadenauðninni. Myndin sýnir unga sómalska sjálfboðaliða, sem
gáfu sig fram í siðasta mánuði. eftir almennt herútboð. Það hefur ekki dugað í baráttunni við
Eþíópíumenn sem eru studdir af Sovét- og Kúhumönnum.
LARRY FLYNT LAMAÐUR
FYRIR NEÐAN MITTI
— tengir skotárásina verölaunum sem hann hefur heitið
fyrir upplýsingar um morðið á Kennedy forseta
Líkur eru á því að Larry Flynt,
útgefandi klámtímaritsins
vinsæla, Hustler í Bandaríkjun-
um, lamist fyrir neðan mitti eftir
skotárásina á mánudaginn.
Læknar gáfu út þessa yfirlýsingu
eftir að Flynt, sem er 34 ára aá
aldri, gekkst undir þriðju
aðgerðina á þremur dögum.
Kúlan sem hæfði Flynt mun hafa
skaddað mænu hans og óvíst er
hvort tekst að fjarlægja öll
kúlubrotin en það er nauðsynlegt
til þess að hann fái mátt í
fæturna.
Flynt sagði í sjúkrahúsinu í
gær að hugsanlegt væri að
skotárásin væri tengd milljónum
dollara verðlaunum sem hann hét
þeim sem.gætu veitt upplýsingar
um morðið á John F. Kennedy
forseta árið 1963.
Flynt öðlaðist fyrst verulega
frægð í Bandaríkjunum eftir að
hann snerist til kristni með hjálp
Ruth, systur Carters Bandaríkja-
forseta.
Lögreglan heldur áfram leit að
árásarmanni Flynts en hefur
orðið lítið ágengt.
Pompei:
MERKUR FORNLEIFAFUNDUR
Merkilegur fornleifafundur
hefur fundizt í Pompei, ítölsku
borginni sem grófst undir hraun
fyrir 1900 árum. 25 bronshlutir
fundust, þ.á m. st.vtta sem er 1.30
m á hæð, lampar. brjóstnálar og
fallega skreytt skál. Þessir munir
fundust í húsi sem tilheyrði
veitingamanni í Pompei.
Foriileifafræðingar hafa þegar
greint að mestu hvernig líf hefur
gengið fyrir sig í hinni fornu borg
um það leyti sem sex metra þ.vkkt
hraunlag Iagðist yfir borgina í
gosi frá Vesúvíusi árið 79 eftír
Krist.
Fornmunasérfræðingar telja
þennan fund einn hinn merkasta
í áratugi og jafnvel er gert ráð
f.vrir að fleiri munir finnist á
næstunni.
Ótrúleg lífseigja 9 mánaða gamals barns:
Gekk jafnvel
fram af læknum
lifði af þrjár hjartaaðgeröir, lungnabólgu,
nýrnasjúkdóm, auk þess sem hjartað stoppaði þrisvar
Níu mánaða gamall drengur,
Steven MeLaughlin, frá
Indianapolis í Bandaríkjunum.
er nú kominn heim af spítala
eftir að hafa lifað af þrjár
hjartaaðgerðir þar sem hjarta
háns var opnað, lungnabólgu,
nýrnasjúkdóm, auk þess sem
hjarta hans stöðvaðist þrisvaV.
Bati drengsins sem hefur átt
í fimm mánaða baráttu er
talinn kraftaverk og læknar
furða sig á lifsþrótti drengsins.
Að sögn móður drengsins muna
læknar ekki eftir að svo lítið
barn hafi þurft að ganga í gegn-
um eins mikið og Steven, og
þeir trúa því varla að hann hafi
lifað þetta af.
Steven fæddist 3. júní sl. með
alvarlega hjartagalla, auk þess
sem æðar sem lágu að hjartanu
voru mikið gallaðar. Er hann
var fjögurra mánaða fékk hann>
kvef er síðar leiddi til lungna-
bólgu. Læknarnir sögðu for-
eldrunum margsinnis að engin
von væri til þess að bjarga
barninu.
Hann gekk undir f.vrsta
hjartauppskurðinn í október,
þar sem saumað var fyriV tvö op
á hjarta hans og tvær svipaðar
aðgerðir f.vlgdu í kjölfarið, auk
vandræða vegna þess að nýrun
brustu, vandræði voru með
blóðrás og tæki það sem hélt
hjarta hans gangandi. Þá
stöðvaðist hjartað þrisvar í
janúar.
Steven litli er nú komin heim
til hamingjusamra foreldra
sinna. Hann vegur aðeins
f.jögur kg og hjartatækið bung-
ar út úr maga hans, þar sem
hann er svo lítill.