Dagblaðið - 10.03.1978, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1978.
Í7
Fyrri hlutiþingkosningannaásunnudaginn:
ALLAR UKUR Á SIGRI
UINQTPI Fl AKKA -geturGiscardD’Estaing
I I Iml I laam^II■ mflrrn starfað meðvinstristjórn?
Kosningabaráttan í Frakklandi
endar á miðnætti í nótt. Og spurn-
ingin sem brennur á vörum
Frakka nú fyrir kosningarnar er
sú hvort íhaldssamur forseti geti
setið á valdastóli með vinstri sinn-
aðri stjórn.
Síðustu skoðanakannanir sýna
fram á sigur vinstri manna í kosn-
ingunum og það beinir huga
manna að því hvernig samstarfið
verði á milli stjórnar og forseta,
en Valery Giscard d’Estaing er
kjörinn forseti fram til ársins
1981.
Leiðtogi sósíalista, Francoise
Mitterand, sem er liklegastur til
þess að verða forsætisráðherra
eftir kosningar, sagði að líklegt
væri að til deilna kæmi um
stjórnarskrána og lýsti því yfir að
Frakklandi væri stjórnað af ríkis-
stjórninni.
Leiðtogi Gullista, Jaques
Chirac, svaraði því til að völd for-
setans lægju í því að mæta raun-
veruleikanum í frönskum stjórn-
málum.
Deilan stendur nú um stjórnar-
skrá fimmta lýðveldisins, þar sem
segir að ríkisstjórn skuli ráða í
öllum aðalmálum í frönsku þjóð-
lífi.
En fyrrverandi forsetar Frakk-
lands, þeir Charles De Gaulle og.
Georges Pompidou, eins og núver-
andi forseti, d’Estaing, hafa allir
talið að endanlegt úrslitavald
væri i höndum foretans en ekki
.þingsins.
Kommúnistar hafa haldið þvl
fram að ef vinstri menn kæmust
til valda yrði forsetinn annað
hvort að taka upp róttæka stefnu
eða segja af sér ella.
Giscard d’Estaing forseti hefur
varað við áhættunni, sem yrði því
samfara að koma vinstri flokkun-
um til valda, þar sem það myndi
skapa upplausn í frönsku efna-
hagslífi. En hann hefur jafnframt
sagt að ef vinstri flokkarnir ynnu
sigur yrði hann nauðbeygður til
þess að taka mark á því og breyta
stefnu sinni.
Fyrri hluti þinkosninganna
verður nú á sunnudaginn og hinn
síðari sunnudaginn 19. marz.
Máekki
bjóöaþér
i hjók
reiöatúr?
Eddie Kidd heitir ofurhugi
sá sem ríður þarna mótorfáki
sinum sem óðast yfir hvað serh
fyrir verður. Eddie er aðeins
átján ára gamall og leikur sem
staðgengill í kvikmyndum, þau
atriði, sem ekki er hægt að
bjóða frægum stjörnum.
Þessi óvenjulegi ökutúr var
myndaður í V-Þýzkalandi, þar
sem verið er að vinna að töku
stríðsmyndar. Þar er Eddie
staðgengill fyrir leikarann
Harrison Ford, sem leikur
enskan flugmann á flótta und-
an þýzkum hermönnum. í
myndinni stekkur hann á
mótorhjóli sínu yfir 35 m
breiða gjá og Ford kallinn
treysti sér ekki til að leika það
atriði, sem engan furðar reynd-
ar á. En Eddie hjólaði yfir eins
og ekkert væri með tusku-
dúkku hangandi aftan ^á
hjólinu, því ekki fékkst nokkur
kvenmaður í hjólreiðatúrinn
með Eddie.
Töluverðar líkur eru á því að
Eddie nái ekki meðalaldri
annarra karla á Vesturlöndum,
ef hann gerir þetta að lífsstarfi
sínu.
s
I
I
1
Kaupið
það bezta
KAUPIÐ CASIO
TÖLVUÚRIN
• Klukkustundir,
mín. 10 sek., 5 sek.,
og 1 sek.
• Skeiðklukka.
1/100 úr sek.
• Fyrir hád., eftir
hád.
• Mánuður, dagur,
vikudagur.
• Sjálfvirk dagatals-
leiðrétting um
mánaðamót.
• Ljóshnappur til af-
lestrar í myrkri.
• Ein rafhlaða, sem
endist ca. 15 mán.
• 15 sek. verk að
skipta um rafhlöðu.
• Árs ábyrgð og við-
gerðarþjónusta.
Verðfrá
kr. 24.000.-
^ CASIO-umhoðið
Bankastræ ti 8—Sími27510
Erlendar
fréttir
Tveir menn fastir
um boið f kafbáti
— á 100 m dýpi í Norðursjó
Björgunaraðgerðir eru
hafnar til þess að bjarga litlum
kafbáti sem fastur er á hundrað
metra dýpi í Norðursjónum.
Um borð í bátkrílinu eru tveir
menn.
Báturinn er. átta metra
langur og tveggja metra hár.
Hann festist í vír í gær er hann
var að fást við athuganir á olíu-
borpalli BP olíufél'agsins. Kaf-
báturinn er fastur 113 km
austur af Hjaltlandi. Mennirnir
hafa vistir og súrefni til átta
daga vistar í kafbátnum.
Að sögn talsmanns P og O
skipafélagsins, sem mennirnir
vinna fyrir, er ástandið ekki
mjög alvarlegt ennþá, en hann
er of djúpt niðri til þess að
hægt sé að senda kafara til þess
að losa bátinn.
Ekki hefur enn verið til-
kynnt af hvaða þjóðerni
mennirnir eru.
Svipað atvik kom fyrir árið
1973 þegar tveir menn festust á
420 metra dýpi í Atlantshafinu,
suðvestur af írlandi. Þeim var
bjargað eftir að hafa dvalizt i
bátnum í 72 klst.
MISHEPPNAÐ SJALFSM0RÐ
— sem tókst þó næstum þ ví
Ungri konu í Vín hepnaðist
ekki að fremja sjálfsmorð er hún
skrúfaði frá gasinu í eldhúsinu
hjá sér. Hún ákvað því að slappa
af og fá sér sígarettu til að róa sig.
En þá varð mikil sprenging og
konan, sem er 26 ára gömul,
brenndist illa og íbúðin sprakk í
loft upp
Konan er nú á gjörgæzlu eftir
þessi mistök í tilraunum til þess
að lifa og deyja.
KllKKl
kr 15900.-
^IKÍVillill
mm |
laiiM
kr 16900.-
1
iIIIAVilfl 14
eIbIqIbIeIeIeIeIöIeIeIöIeIeIbIeIöIeIeIeIbIeIeIeIeIeIeIeIeIeIeIé