Dagblaðið - 10.03.1978, Qupperneq 8
81
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1978.
lönaður, verkamannahústaöir,
fjölhrautaskóli og málefni
Alþýðuflokksins
- í prófkjöri á Akranesi um helgina
Alþýðuflokksmenn á Akranesi
gangast fyrir prófkjöri um skipan
á lista fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar þar í vor. Sex
manns eru í framboði og fer próf-
kjörið fram laugardaginn 11. og
sunnudaginn 12. marz.
Atkvæðisrétt hafa allir þeir sem
búsettir eru á Akranesi 18 ára og
eldri á kjördegi í vor og ekki eru
flokksbundnir í öðrum stjórn-
málaflokkum.
Kjörstaður ei í félags-
heimilinu Röst að Vesturgötu 53
og verður hann opinn frá 14 til 19
báða dagana.
Kosningin er bindandi hljóti
frambjóðandi meira en 20% af
fylgi flokksins við síðustu bæjar-
stjórnarkosningar.
Þá fengu Alþýðuflokksmenn
tvö fulltrúa kjörna, Samtökin og
Alþýðubandalagið í sameiningu
einn, en meirihlutinn er tveir
framsóknarmenn og fjórir sjálf-
stæðismenn.
HP
Rannveig Edda Hálfdánardóttir husmóðm
„Hlúa að þeim sem búa við
skerta starfsorku ”
Rannveig Edda.
„Ég mun beita mér fyrir því að
margskonar félagsleg þjónusta á
vegum bæjarins verði efld,“ sagði
Rannveig Edda Hálfdánardóttir
húsmóðir í viðtali við DB. „Mörg
atriði þar þarfnast endurskipu-
lagningar og mun ég beita mér
fyrir því.“
Rannveig sagði að henni væru
einnig hugleikin hafnarmálin á
Akranesi, sérstaklega aðstaða
fyrir smábáta.
Ekki taldi hún atvinnumálin í
neinu ólagi en vildi helzt reyna að
auka fjölbreytni þeirra. „Þá
verðum við að hugsa þannig til
þeirra eldri og þeirra sem búa við
skerta starfsorku að þeir neyðist
ekki til þess að flytja héðan,“
sagði Rannveig ennfremur.
Rannveig er 41 árs, gift
,Kristjáni E. Fredriksen og eiga
þau þrjú börn.
Þorvaldur Þorvaldsson kennari:
„Fyrirsjáanleg þrengsli í
fjölbrautaskólanum”
„Það er eðlilegt að skólamálin
séu mér hugleikin," sagði Þor-
valdur Þorvaldsson kennari í við-
tali við DB. „A því sviði eru ótæm-
andi verkefni enda þótt ástand í
skólamálum hér á Akranesi sé
nokkuð gott.“
Þorvaldur minnti þar á bygg-
ingu nýs skólahúss fyrir Garða-
skóla, en taldi fyrirsjáanleg
þrengsli í hinum nýstofnaða Fjöl-
brautaskóla á Akranesi. Þar eru
nú um 180 nemendur.
Þorvaldur er 49 ára, kvæntur
Ölínu Jónsdóttur og eiga þau
fjögur börn.
Þorvaldur Þorvaldsson.
Verkfræöingur—
Byggingatæknifræöingur
Ólafsvíkurhreppur óskar eftir verk-
fræðingi eða byggingatæknifræðingi
til starfa hjá Ólafsvíkurhreppi —
íbúðarhúsnæði til boða.
Umsóknarfrestur er til 25. marz nk.
Nánari upplýsingar veitir oddviti í
síma 93-6153.
4
4
í
miAÐin
[frfálst, nháð dagblað
Sendisveina,
11 til 14 ára, vantar á ritstjórn
Dagblaðsins.
mWBIAÐIÐ
Sfmi 27022
Sigurjón Hannesson trésmfðameistari:
„Iðnaður á Akranesi er full-
komlega samkeppnisfær”
„Ég hef mikinn áhuga fyrir
fjarhitunarmálum þessa bæjar
sagði Sigurjón Hannesson tré-
smíðameistari. „1 framhaldi af
því vil ég nefna að ég tel réttara
að bora í bæjarlandinu eftir heitu
vatni, í stað utan þess, eins og nú
er verið að gera“.
Sigurjón nefndi ennfremur, að
Sigurjón Hanncsson.
hann hefði mikinn áhuga, sem
iðnaðarmaður að hlúð yrði að
iðnaði á Akranesi og taldi hann
fullkomlega samkeppnisfæran
við það sem gerðist í Reykjavík,
eftir að samgöngur bættust til
muna með tilkomu Akraborgar-
innar.
Sigurjón er 39 ára, kvæntur
Guðiaugu Bergþórsdóttur og eiga
þau tvö börn.
Skúli Þórðarson framkvæmdastjóri:
„Byggingfleiri
verkamannabústaða”
„Það eru auðvitað mörg verk-
efni í sambandi við bæjarmálin
en mér eru efst í huga ýmis
félagsleg verkefni eins og bygg-
ing verkamannabústaða," sagði
''Skúli Þórðarson formaður verka-
lýðsfélags Akraness í viðtali við
DB. „Ástandið í byggingarmálum
er nokkuð gott en á það er að líta
að ekki hafa verið byggðir hér
neinir verkamannabústaðir frá
árinu 1975.“
Skúli sagði að hann myndi
einnig ýta á eftir framkvæmdum
við hafnarbætur, sem nú er verið
að gera, enda á hann sæti í
hafnarnefnd fyrir Alþýðuflokk-
inn.
Skúli er framkvæmdastjóri
fjfeyrissjóðs Vesturlands, er 48
ára og kvæntur Soffíu Alfreðs-
dóttur. Þau eiga 3 börn.
Skúli Þórðarson.
Ríkharður Jónsson málarameistari og bæjarfulltrúi
„Fótbolti og bæjarmál
hafa engan endi”
„Við síðustu kosningabaráttu
tók ég sérstaklega út íþrótta- og
heilbrigðismálin og hef sinnt
þeim hvað mest á þessu kjörtíma-
bili,“ sagði Ríkharður Jónsson
málarameistari og bæjarfulltrúi í
viðtali við DB. „Þessi mál hafa
haft allverulegan forgang á tíma-
bilinu og ég verð að segja að ég er
nokkuð ánægður með minn hlut
enda þótt ég megi segja að ég
verði enn ánægðari eftir næstu
fjögur ár.“
Ríkharður hefur verið for-
maður sjúkrahússnefndar og
kvaðst nokkuð ánægður með
hvernig staðið hefði verið að
málum þar. Minnti hann á fyrsta
áfanga elliheimilisins og taldi
öruggt að unnt yrði að taka síðari
hluta þess í notkun á þessu ári.
„En þaðÆr með fótboltann eins
og bæjarmál, — þetta hefur
engan endi.“
Ríkharður er 48 ára, kvæntur
Hallberu Leósdóttur og eiga þau
fimm börn.
Ríkharður Jónsson.
Guðmundur Vésteinsson bæ jarfulltrúi:
„Mun halda áf ram að vinna að
málef num Alþýðuflokksins”
„Eg mun halda áfram að vinna
að þeim málum sem Alþýðu-
flokkurinn hefur beitt sér fyrir í
bæjarstjórn," sagði Guðmundur
Vésteinsson tryggingarfulltrúi en
hann hefur átt sæti í bæjarstjórn
fyrir flokkinn undanfarin ár.
„Þar er fyrst að nefna hitaveitu-
málin en auk þess eru fjölmörg
mál sem bíðá úrlausnar."
Guðmundur taldi atvinnumálin
í nokkuð góðu lagi og minnti á
mikið átak sem gert hefði verið til
þess að hlúa að hinum öldruðu
■p
Guðmundur Vésteinsson.
með tilkomu elliheimilisins
Höfða. „Þar er þó enn margt
ógert og fyrir því mun ég beita
mér.“
Guðmundur er 36 ára, kvæntur
Matthildi Traustadóttur og eiga
þau eitt barn.
Starfskraftur
óskast til þess að sjá um kaffistofu hjá
stóru fyrirtæki frá kl. 8-15.
Umsóknir sendist augl.deild Dag-
blaðsins merkt: Gott kaffi 1978.