Dagblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 15
14
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. APRlL 1978.
t íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttEr
Rúmlega 65
þúsund á Ibrox
erRangers
vann stórsigur
Rúmlega 65 þúsund manns mættu á Ibroz t.
Rangers mætti skozkum landsliðsmönnum i 40
manna HM-hópi. Lcikurinn var ágóðaleikur John
Greig en hann hefur um áraraðir leikið með Rangers
og marga landsleiki með Skotlandi.
Rangers vann stóran sigur, 5—0, og Greig skoraði
sjálfur tvö af mörkum liðsins. Russel skoraði og
tvivegis og Derek Johnstonc eitt mark en hann er nú
talinn liklegastur til að verða valinn leikmaður ársins i
Skotlandi.
Celtie vann stóran sigur i gærkvöld á neðsta liðinu í
úrvalsdeildinni skozku, Clydebank, 5—2. í dag eiga
um 30 áhangendur Celtic að koma fyrir dómstóla í
Skotlandi vegna óláta er urðu á Rugb.v Park i
Edinborg — leikvel i Hib.i*nian. Celtic mætti þá
Hibernian og beið ósieur, 4—2.
37 milljaróa velta í
norsku getraunum
t 33. leikviku getrauna tókst engum að fá 12 eða 11
rétta leiki, bezti árangur var 10 réttir, og fyrir 34 raðir
koma kr. 31.000 á hverja röð. Vinningur fyrir 9 rétta
féll niður, þar sem raðafjöldi var svo mikill, að vinn-
ingsupphæðin féll niður fyrir lágmarkið, kr. 1.000 og
var vinningsupphæð 2. vinnings jafnað á raðir með 10
rétta.
Nýlega sendu Norsku getraunirnar (Norsk Tipping)
frá sér rcikningsyfirlit fyrir árið 1977. Heildarvelta
fyrirtækisins í 52 leikvikum nam 37.3 milljörðum ísl.
kr. og var það aukning frá árinu áður um 14.8%.
Mesta vikusala var rúmur milljarður, en meðalviku-
sala var 717 milljónir. Mesta veltan jafngildir 270 kr.
á hvern ibúa Norcgs, samanborið við beztu vikuna
hér, kr. 10 á hvern tsiending. Meðalþátttökugjald fyr-
ir hvern „innveginn” getraunaseðil í Noregi var 384
kr., en hér er samsvarandi gjald 263 kr.
Norska ríkið seilist ekki til neinnar skattheimtu af
getraunum eins og er i Danmörku, en hagnaði er skipt
milli iþróttamála og vfsindastarfsemi að jöfnu. Hagn-
aður á siðasta ári nam tæpum 13 milljörðum kr. og
komu því i hlut iþróttastarfs Norðmanna tæpiega 6
1/2 milljarður króna.
Bastia leikur
á Korsíku
Franska liðið Bastia frá Korsíku hefur nú ákveðið
að leika heimaleik sinn gegn PSV Eindhoven í
Korsiku en ekki á meginlandinu, í Marseilles þar sem
50 þúsund manns hefðu fylgzt með viðureigninni i stað
aðeins 10 þúsund á Korsíku. „Við völdum Korsíku
vegna áhangenda okkar þrátt fyrir að félagið hefði
getað þénað stórpening með því að leika á Marseilles.
En verzlun og túrismi munu hagnast á þessu,” sagði
Furiani, forseti Bastia.
PSV — þegar í úrslitum UEFA-keppninnar og hol-
lenzkur meistari — beið i fyrsta sinn lægri hlut i hol-
lenzku deildakeppninni f vetur. Raunar ofur eðlilegt —
á miðvikudag tryggði PSV sér sæti f úrslitum UEFA-
keppninnar á kostnað Barcelona. Ósigur, raunar
sama og gerðist hjá FC Brugge í Belgiu. Haarlem
sigraði PSV 1-0. Fréttin um ósigur fyllti siður hol-
lenzku blaðanna en AZ ’67 vann öruggan sigur á
Twente Enchede, 4-1. t Amsterdam áttust við Ajax og
Sparta frá Rotterdam, jafntefli varð, 0-0. Þá léku í
Rotterdam, Feyenoord og FC Amsterdam, þar varð
og jafntefli, 1-1.
Staða efstu liða i Hollandi er nú:
PSV Eindhoven
Ajax
AZ ’67
Twente
Sparta
32 20 11 1 71-18 52
32 18 9 5 78-33 45
32 18 8 6 68—30 44
32 18 8 6 60—27 44
32 14 12 6 51-28 40
ValurogVíkingurí
úrslitum 1. flokks
Úrslitakeppni yngri flokkanna í handknattleik fer
fram nú um helgina — á Akureyri og i Hafnarfirði.
Ekki er alveg Ijóst enn hvaða lið mætast í öllum
flokkum en i 1. flokki mætast Valur og Vikingur á
sunnudag — likt og i meistaraflokki þar sem tslánds-
meistaratign er i húfi.
í 2. flokki karla eru Þróttur, FH og Þór frá Akur-
eyri i úrslitum. FH á og lið í 3. flokki en þar leika FH-
ingar við Viking og KA. KR, KA og Þróttur leika í 4.
flokki og í 5. flokki leika Valur, Fram og Þór.
t kvennaflokki eru Haukar og Þór i úrslitum f 3.
flokki og Fram og Völsungur i 2. flokki cftir að
Víkingur hafði verið á þröskuldi úrslitakeppni en
vegna mistaka glatað möguleikum sinum.
Stefán Gunnarsson hefur brotizt i gegn — og brotið gróflega á honum. DB-mynd Hörður.
Meistarar Vals ruddu væng
brotnu liði Fram úr vegi!
— uppgjör Vals og Víkings í Laugardalshöll á morgun
eftir 27-19 sigur meistara Vals gegn Fram
tslandsmeisturum Vals hefur nú nán-
ast tekizt hið ómögulega, að vinna upp
forustu Vfkings i íslandsmótinu i hand-
knattleik. Langt er siðan jafn mikil
spenna hefur ríkt í islandsmótinu —
Haukar misstu af lestinni í sínum siðasta
leik og eftir hroðalega byrjun meistara
Vals eygja þeir nú möguleika á að verja
titil sinn. Valur mætir Viking í lokaupp-
gjöri Reykjavikurrisanna í handknatt-
leik á miðvikudag — þá nægir Víking
jafntefli svo meistaratign náist — Val
hins vegar ekkert nema sigur. Víkingur
hefur nú hlotið 19 stig í 13 leikjum og
1 Valur 18 stig i jafnmörgum leikjum.
Valur ruddi Fram auðveldlega úr vegi
i Laugardalshöll i gærkvöld — með stór-
sigri, 27-19. Frammistaða Valsmanna
var þrátt fyrir það siður en svo sannfær-
andi — þá sjaldan leikmenn Fram náðu
að sýna mótspyrnu virtist Valsliðið i
vandræðum. Sannleikurinn er að Fram
lék einn af sínum lakari leikjum i vetur.
Óþekkjanlegt lið frá því er gerði jafntefli
við Víking á dögunum. Á köflum nánast
sem um byrjendur væri að ræða i iþrótt-
inni — knötturinn engu líkari en eld-
knetti er leikmenn handléku hann og
misstu hann.
Valsliðið verður ekki dæmt af viður-
eigninni við Fram — til þess var and-
stæðingurinn allt of slakur. Ótrúlegt
hvað Fram hefur sýnt misjafna leiki i
vetur. Annað veifið leikur liðið mark-
Newcastle
féll í 2. deild
— beið lægri hlut gegn Aston Villa
— Enska liðið gegn Brasilíu valið
Newcastle United féll i gærkvöld í 2.
deild — beið lægri hlut á Vllla Park,
sem þýðir að félagið er nú endanlega
fallið. Gordon Gowans og And.v Gray
sökktu Newcastle en liðið er nú fallið
ásamt Leicester.
Þrjú lið falla í 2. deild — og nú er
hörð barátta milli West Ham, QPR.
Úlfanna og Chelsea um að forðast fall
þóstaða Úlfanna sé nú mjög alvarleg.
Úrslit leikja i gærkvöld:
Aston Villa-Newcastle 2—0
4. deild:
Southport-Wimbledon 0—5
Ron Greenwood valdi í gær enska
landsliðið sem mætir Brasiliumönnum á
Wembley á morgun. Liðið er mjög
breytt frá viðureign Englendinga I
Munchen gegn heimsmeisturum V-
Þjóðverja.
Þannig leikur Joe Corrigan sinn
annan landsleik þar sem leikmenn
Liverpool oe Nottingham Forest verða
ekki með — félögin leika í deildinni. Joe
Corrigan lék í New York gegn Italíu i
3—2 sigri, þá í síðari hálfleik er ítalir
leiddu 2—0.
Enska landsliðið er skipað: frá
markverði til vinstri útherja: Joe
Corrigan, Manchester City, Mick Mills
Ipswich, Dave Watson Manchester
City, Brian Greenhoff Manchester .
United, Trevor Cherry Leeds, Kevin
Keegan Hamburger SV, Tony Currie,
Leeds, Steve Coppel Manchester United,
Trevor Francis Birmingham, Bob
Latchford Everton og Peter Barnes
ManchesterCity.
Ron Greenwood valdi Alan Hudson
og Trevor Brooking en Hudson fékk
hálsbólgu og Brooking er meiddur. Þá
varð Stuart Pearson að boða forföll
vegna meiðsla. í stað þessara þriggja
komu þeir Tony Currie, sem nú leikur
að nýju með enska landsliðinu og Mike
Channon, Manchester City og hinn ungi
John Deehan frá Aston Villa.
Liðið er mikið breytt frá I Munchen
þannig eru sex þeirra er léku gegn V-
Þjóðverjum ekki með — og munar þar
mestu um leikmenn Liverpool.
vissan og beittan handknattleik en þess á
milli, sem raunar kemur oftar fyrir, er
nánast eins og um byrjendur sé að ræða.
Leikmenn er hafa engan áhuga á verk-
efni sínu. Dómurinn fellur á morgun i
Laugardalshöll — hvert sé bezta hand-
knattleikslið tslands — Víkingur eða
Valur, stórveldin I íslenzkum handknatt-
leik.
Það var fljótlega Ijóst hvert stefndi í
viðureign fyrrum erfðafjendanna í Höll-
inni í gærkvöld. Valsmenn komust i 5-2
en leikmenn Fram náðu öðrum af góðu
sprettum sinum, jöfnuðu 5-5. Siðan var
eins og stungið væri á blöðru — allt loft
var úr leikmönnum Fram og Valur
breytti stöðunni í 11-6. Staðan í leikhléi
var 11-7 Val i vil.
Síðari góði kafli Fram var í byrjun
siðari hálfleiks er Valsmenn gerðu sig
seka um slæmar einfaldar villur og Fram
náði að minnka muninn í aðeins eitt
mark, 11-12. Aftur var eins og allur
vindur væri úr leikmönnum Fram, þeir
virtust þreyttir, greinilega mæddust
ýmsir leikmanna Fram óeðlilega rétt
eins og þeir væru ekki þjálfun. Valur tók
leikinn í sinar hendur — 18-12 sást á
markatöflunni, síðan 24-14 en Vals-
menn slökuðu nokkuð á — létu ekki kné
fylgja kviði og sigruðu með níu mörk-
um, 27-19.
Valsmenn slökuðu á er ljóst var hvert
stefndi. Þannig bar óvenjulitið á Jóni
Karlssyni — greinilegt var, að hann tók
lifinu með ró. Stórleikurinn við Víking á
morgun greinilega ofar I huga. Bjarni
Guðmundsson tók Arnar Guðlaugsson
úr umferð lengst af, mjög vel, auk þess
sem hann var drjúgur í sókninni og þá í
hraðaupphlaupum. Brynjar Kvaran
varði mark Vals allan tímann og stóð sig
vel — varði meðal annars tvö viti frá
Arnari i upphaft. Þá var Jón Pétur
drjúgur með góðum mörkum.
Um lið Fram er bezt að fara sem fæst-
um orðum — liðið var aðeins skugginn
af þvi sem við vitum að það getur.
Greinilegt að leikmenn voru eitthvað
miður sín — ekki með á nótunum. Leik-
urinn var ekki siður mikilvægur Fram
því liðið er enn ekki laust úr fallhættu.
Fram hefur hlotið 12 stig ásamt ÍR, FH
og allar líkur á að KR hljóti 12 stig vinni
KR Ármann. FH og lR leika í Hafnar-
firði í kvöld og geta því forðað sér af
hættusvæði 1. deildar. Sjöunda lið 1.
deildar leikur við næst efsta lið 2. deildar
og eftir ágætan leik KR gegn Haukum
getur allt gerzt.
Mörjj Vals skoruðu — Bjarni Guð-
mundsson 7, Jón Pétur Jónsson 6, Jón
Karlsson 4, Gísli Blöndal 3, Stefán
Gunnarsson og Þorbjörn Guðmundsson
2 og þeir Þorbjörn Jensson, Steindór
Gunnarsson og Karl Jónsson skoruðu
eitt mark hver.
Hjá Fram var Gústaf Björnsson at-
kvæðamestur með 7 mörk, þeir Magnús
Sigurðsson og Jens Jensson skoruðu 3
mörk, Sigurbergur Sigsteinsson, Pétur
Jóhannsson 2 og Atli Hilmarsson og
Amar Guðlaugsson eitt mark hvor.
Leikinn dæmdu þeir Björn Kristjáns-
son og Gunnlaugur Hjálmarsson — i
heild einkenndi festa og öryggi dóm-
gæzlu þeirra.
H Hails
Staðan 11. deild íslandsmótsins er nú:
Víkingur 13 7 5 1 284—246 19
Valur 13 8 2 3 274—245 18
Haukar 14 7 4 3 285-255 18
ÍR 13 4 4 5 266—255 12
FH 13 5 2 6 269—280 12
Fram 14 4 4 6 286—311 12
KR 13 4 2 7 250-255 10
Ármann 13 2 1 10 239—286 5
í kvöld fer fram einn leikur — FH og
ÍR berjast í fallbaráttunni en öll lið utan
þrjú efstu, Víkingur, Valur og Haukar,
eiga á hættu að falla — Ármann þegar
fallinn.
Reykjavíkur-
kálafelli
Stórsvig Reykjavíkurmótsins fór fram
i Skálafelli í flokkum 13 ára og eldri á
laugardag.
Ekki tókst að fá öll úrslitin en Reykja-
vikurmeistarar urðu þessi:
Bjarni Þórðarson KR i karlaflokki.
Svava Viggósdóttir KR i kvennaflokki.
Bryndis Pétursdóttir, Á i flokki stúlkna
13—15 ára.
Árni Þór Árnason Á piltar 15—16 ára.
Haukur Bjarnason KR drengir 13—14
ára.
Iþróttir Iþróttir iþróttir íþró 11 i r
Sigurður Sveinsson, hinn snjalli
leikmaður Þróttar — leikið einn a-
landsleik en kom raunar aldrei inn á í
þeim leik.
„Liðin komu mjög vel undirbúin til
NM. Þannig komu Svíar beint frá
Þýzkalandi þar sem þeir sigruðu þýzka
unglinglandsliðið með 5 mörkum. Við
lékum tvo leiki fyrir NM og þeir töpuð-
ust báðir en vörnin var mikið að lagast i
þeim síðari.
Strákarnir voru því bjartsýnir er þeir
léku sinn fyrsta leik — gegn Svíum
Við komumst i 2—0 en síðan kom hvað
ég kalla liðsbrot, sem ég tel stafa af
íþróttir
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. APRlL 1978.
Jóhann lngi Gunnarsson — hinn ungi þjálfari unglingalandsliðsins — hann hefur náð
athyglisverðum árangri með yngri lið íslands. DB-mynd Hörður.
Mörk íslenzka liðsins skoruðu:
Sigurður Gunnarsson, Víkingi 18
en hann var þriðji markhæsti maður
mótsins ásamt Hanson frá Svíþjóð.
Sigurður Sveinsson, Þrótti 13
Atli Hilmarsson, Fram 13
Árni Hermannsson, Fram 13
Stefán Halldórsson, HK 4
Kristinn Ólafsson, HK 4
Magnús Guðfinnsson, Víking 3
Þráinn Ásmundsson, Ármanni 2
Sigurður Björgvinsson, ÍBK 2
Einar Vilhjálmsson, Ármanni 1
Jón Hróbiartsson 1
íslenzka unglingalandsliðið er hreppti
silfur á NM í Noregi. Sigurður Björg-
ýnsson var valinn bezti varnarleikmaður
mótsins en Sigurður Gunnarsson bezti
sóknarmaður islenzka liðsins. DB-mynd
Bjarnleifur.
Silfurí Noregi!
Nú verdum við að halda um þennan kjarna fyrir HM u-21 árs,
segir Jóhann Ingi, þjálfari íslenzka unglingalandsliðsins
Ég tel betra að lofa ekki um of fyrir-
fram en reyna þess í stað að gera meira
—frammistaðan í NM var að vissu leyti
uppreisn eftir HM i Danmörku.
Sigurinn gegn mjög sterku dönsku liði
ákaflega ánægjulegur og hefnd eftir
ófarirnar i Danmörku,” sagði Jóhann
Ingi Gunnarsson, þjálfari unglingalands-
liðsins eftir komuna frá Noregi þar
sem íslenzka liðið deildi efsta sætinu
ásamt Svium en varð að sjá á eftir
gullinu vegna óhagstæðs markahlutfalls.
„Úrslitin í Noregi sanna að efniviður
er vissulega fyrir hendi í íslenzkum
handknattleik.Strákarnir ' hafa með
árangri sínum sannað að við eigum
framtíð, meðal hinna beztu, aðeins ef
haldið er rétt á málum. Við verðum að
snúa blaðinu við, leggja mejri áherzlu á
unglingastarfið.
Innan tveggja ára fer fram HM undir
21 árs og við eigum að stefna að því að
vera með þann kjarna er myndaðist í
kring um NM þar,” sagði Jóhann lngi
ennfremur en hann sá um þjálfun liðsins
ásamt Steindóri Gunnarssyni, línu-
manninum snjalla úr Val. „Steindór var
ómetanlega styrkur í þjálfuninni og tók
línumerinina í gegn,” sagði Jóhann.
„Við völdum hóp i desember og
hófum þá stífar æfingar um jólin. Við
æfum eftir lotukerfinu og þau tel ég
þarna hafa sannað ágæti sitt. Við vorum
saman 10 daga um jólin.æföum þar
tyivegis á dag. Fyrir hádegi stífar æfing-
ar og siðan var leikið um k völdið. Eftir
HM í Danmörku var æft að Varmá þrjá
daga I einu, það er föstudaga, laugar-
daga og sunnudaga. Endanlegt val
liðsins fór síðan fram um miðjan marz
— mánuði fyrir NM. Um páskana var
keyrt stíft rétt eins og um jólin.
Árangurinn kom í Ijós I Noregi. Sann-
leikurinn er að ég gerði mér vonir um
3. sætið, ef vel gengi annað sætið,” sagði
Jóhann ennfremur. Það stóðst — 2.
sætið varð staðreynd. íslenzku leik-
mennirnir komu á óvart — enginn
þeirra hafði áður leikið úrvalsleiki nema
Finnar náðu að minnka muninn í 21—
20 áður en Sigurður Sveinsson tryggði
íslenzkan sigur, 22—20.
Þetta var á síðasta degi, — tveir
leikir fyrst gegn Finnum og þá Dönum.
Við sáum Dani vinna öruggan sigur á
Svium. Danir lögðu mikla áherzlu á lið
sitt, sem var nánast kópía af danska
HM-liðinu. Þeir voru gífurlega sterkir og
léku Svia grátt — mun betri en Sviar og
sigruðu 13—9. Danir voru því bjart-
sýnir fyrir leikinn gegn okkur. NM-
titillinn í höfn meðsigri gegn íslandi.
Og raunar virtist stefna í öruggan
sigur Dana,’ þeir komust í 10—5 og
staðan I leikhléi var 13—10. Við breytt
um um taktík I leikhléi, komum meir út
móti. Þetta gaf árangur, fiskuðum
knöttinn tvívegis og minnkuðum
muninn í eitt mark, 13—12. Síðan
jafnaði Sigurður Gunnarsson 15—15
um miðjan síðari hálfleik — og sýndi
þá mjög góðan leik. Þrívegis lyfti hann
sér hátt yfir vörn Dana og skoraði með
þrumuskotum, og við náðum forustu
17—15. Og sigur vannst, 21 —19,
annað sætið.
Þessi árangur sannar að við eigum
góðum kjarna á að skipa. Sigurður
Björgvinsson var kjörinn bezti varnar-
maður mótsins — sjaldgæfur heiður i
islenskum handknattleik. Þá var
Sigurður Gunnarsson kjörinn bezti
sóknarleikmaður mótsins. Gífurlegt efni
sem eftir 1—2 ár verður íslenzkur lands-
liðsmaður ef hann heldur áfram á
sömu braut — en óagaður. Árni
Hermannsson var annar leikmaður er
kom mjög vel út. Sigurður Sveinsson var
tekinn úr umferð alla leikina en tókst
þrátt fyrir það að skora 13 mörk. Nú er
að halda rétt á spilunum — og leggja
mun meiri áherzlu á unglingastarfið en
hingað til,” sagði Jóhann Ingi Gunnars-
son hinn ungi þjálfari íslenzka unglinga-
landsliðsins er hreppti silfur i Noregi.
Með honum í stjórn unglinganefndar
voru þeir Hákon Bjarnason og Þor-
varður Áki Eiriksson er var fararstjóri.
litlum aga í íslenzkum handknattleik —
fyrirbrigði sem við þekkjum alltof vel.
Leikmenn fóru að skjóta I tima og
ótíma. Ekki farið eftir því sem fyrir var
lagt. Árangurinn var því líka skellur
gegnSvíum, 14—24.
Strákarnir voru þvi mjög ákveðnir
gegn Norðmönnum og sýndu mjög
góðan leik. Allt small saman, leikfléttur
gengu upp. Vörnin var mjög sterk og
markvarzlan góð. Þetta skóp góðan
sigur, 18—15 en Norðmenn gerðu ein-
mitt jafntefli gegn Dönum.
Þá kom að leiknum við Finna —
islenzka liðið komst í sjö rr.örk ýfir i
leikhléi og svo tiu mörk í byrjun siðari
hálfleiks, 17—7. Þá hins vegar gömul
saga og ný — skot í tíma og ótíma og
UaAiII'CIIOÍiI drlriV — ogstórsvigsmótÁrmanns
VCUUl9|l(llll IdCllldl ClUlli fórframíbhðskaparveðri
Stórsvigsmót Ármanns fór fram í Blá-
fjöllum á sunnudag. Til leiks voru skráð-
ir 204 keppendur en 147 mættu. Kepp-
endur voru allir frá Reykjavík, nema
Valur Jónatansson frá Isafirði sem varð
nr. 3 í karlaflokki og þrir keppendur frá
Akureyri, sem gerðu heldur betur skurk
í röðum Reykvíkinga, einkum Erling
Ingvason sem sigraði með yfirburðum í
flokki drengja 11 — 12 ára. Til allrar
hamingju rættist ekki spá veðurfræðing-
anna og var veður mjög gott til keppni í
Bláfjöllum og fjöldi fólks á skíðum.
Nokkuð bar á þvi að keppendur væru
truflaðir i keppninni vegna gáleysis ann-
arra skíðamanna.
Byrjað var kl. 11.30 og lauk mótinu
um sjöleytið. Verðlaun voru veitt að
loknu mótinu við Ármannsskálann.
Mótsstjóri var Halldór Sigfússon, en
Guðmund Södrin lagði alls 14 brautir.
- Þorri
Stórsvigsmót Ármanns
DRENGIR 10 ÁRA OG YNGRI
1. Kríslján Valdimarsson, ÍR..........59.31
2. Sveinn Rúnarsson, KR...............60.35
3. Þröstur Amórsson, Á................62.00
4. Ragnar Eiríksson, KR...............62.01
5. Amór Ámason, KR....................62.05
16lukukeppni
DRENGIR 11-12 ÁRA:
1. Eriing Ingvason, Ak................62.52
2. Ásmundur Þórðarson, KR.............66.68
3. Ingólfur Gíslason, Ak..............66.86
4. BakJvin Valdimarsson, Á.............68.65
5. Haukur Þorsteinsson, Á.............68.80
22 luku keppni af 22 mættum
STÚLKUR 11-12 ÁRA
1. Dýrierf Guðmundsdóttir, Á..........64.83
2. Þórdís Jónsdóttir, KR..............66.16
3. Tinna Traustadóttir, Á.............66.81
4. Helga Stefónsdóttir, ÍR............68.82
5. Rósa Jóhannsdóttir, KR.............70.36
12 kiku keppni af 13 skráðum til leiks.
STÚLKUR 10 ÁRA OG YNGRI:
1. Bryndís Ýr Viggósd., KR............57.69
2. Guðrún J. Magnúsd., Ak.............58.39
3. Kristín Ólafsdóttir, KR............59.21
11 luku keppni af 12 sem mættu.
KARLAFLOKKUR
20 kepptu og 16 luku keppni.
1. Helgi Geirharðsson, Á. . .. 52.38 53.09 105.47
. 2. Kristinn Sigurðsson, Á ... 54.20 53.32 107.52
3. Valur Jónatansson, ísaf.. . 54.99 52.91 107.90
4. Ámi Sigurösson, Á.....57.25 54.60 111.85
5. Guðjón Ingi Sverrisson, Á. 57.29 54.60 111.89
KVENNAFLOKKUR
3 kepptu og luku allar.
1. Nina Helgadóttir, ÍR..58.12 58.61 116.73
2. Svava Viggósdóttir, KR.. . 58.90 58.13 117.03
3. Hrafnhildur Helgad., A ... . 66.43 67.30 133.73
PILTAR 15-16 ÁRA
18 kepptu og luku 13 keppni.
1. Ámi Þór Ámason, Á .... 55.60 55.89 111.49
2. Einar Útfsson, Á 56.61 57.10 113.71
3. Trausti Sigurðsson, Á . . . 36.92 56.88 113.80
4. Ríkharð Sigurðsson, Á . . 55.82 58.71 114.53
5. Guðmundur Bjömsson, Á 56.54 58.28 114.82
STÚLKUR 13-15 ÁRA
11 kepptu og luku 7 keppni.
1. Bryndis Pétursd., Á 60.25 60.92 121.17
2. Bjöm Harðardóttir, Á .. . 59.95 61.39 121.34
3. Guðrún Bjömsd., Vik.l... 61.74 62.71 124.45
4. Ingibjörg Ýr Pálmad., Á. . 62.55 62.28 124.83
5. Þórunn Egilsd., Á 63.16 63.52 126.68
DRENGIR 13-14 ÁRA
33 kepptu og kiku 27 keppni.
1. Hafliði Bárður Harðars., Á 57.17 58.76 115.93
2. Haukur Bjamason, KR . 55.66 61.15 116.81
3. Theodór Snorrason, Á... 58.19 59.92 118.11
Ámi Guðlaugsson, Á 59.08 59.55 118.63
5. Kristinn Guðmundsson, Á 59.01 59.64 118.65
Árni Þór Árnason — sigurvegari í stórsvigi drengja en hann sigraði einnig í Reykja*
víkurmeistaramótinu. DB-mvnd Þorri. \