Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 18.04.1978, Qupperneq 5

Dagblaðið - 18.04.1978, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978. ■AUGLÝSING■ STJORNMALA FLOKKURINN Hvers vegna styðurþú Stjómmála- flokkinn? Þormóður Guðlaugsson: Ég styð Stjórnmálaflokkinn vegna þess að ég vil fá stjórn, sem þorir. getur og vill taka á vandamálum þeim sem nú steðja að þjóðinni, með festu og af al- vöru, á ég þar ekki sist við verðbólguna Sigurður Ólason, Kríuhólum 2: Ég styð að sjálfsögðu Stjórnmálaflokk- inn, ég hef mætt á fundi hjá þeim og vildi óska að fleiri kynntu sér skoðanir þeirra. Sigurður Þorkelsson, iðnrekandi: Vegna þess, að ég tel koma þar fram ákveðna og rétta stefnumörkun í stjórn- 'arskrármálinu þar sem segir að löggjaf- ar- og framkvæmdavald verði aðskilið. Ég tel ennfremur, aðeinstaklingurinn í þjóðfélaginu eigi að fá að njóta sín og fá að sýna hvað i honum býr. Gömlu flokkarnir vinna allir markvisst gegn því með sósialisma og siauknum umsvifum þess opinbera. Aðdragandinn að stofnun Stjórnmdlaflokksins vikulega yfir stuðningi sínum við Landsmálasamtökin. Og eftir því sem dagar liðu, urðu æ háværari raddir innan samtak- Þau voru tildrög að stofnun Stjórnmálaflokksins að í ágúst- mánuði sl. haust var efnt til skoðanakönnunar undir heitinu Landsmálasamtökin Sterk stjórn. Var því þá jafnframt lýst yfir að tilgangur og markmið Landsmálasamtakanna væri: 1. 2. 3. Að breytastjórnarskrálýðveld isins íslands, meðal annars á þann veg að löggjafar- og framkvæmdarvald verði að- skilin. Að gjörbreyta skattafyrir- komulagi hér á landi og auð- velda í framkvæmd. Að leggja á herstöðvar NATO hér á landi aðstöðu- gjald, sem varið verði til vegagerðar, flugvalla hafnarmannvirkja. og Skemm tilegir og frœðandi kvöldfundir Stjórnmálaflokkurinn hefur staðið fyrir skemmtilegum kvöldfundum undanfarin þriðjudags- og fimmtudags- kvöld í húsakynnum sínum að Lauga- vegi 84, 2. hæð. Þar eð áhugi fyrir þess- um fundum hefur verið mikill, er ákveðið að halda þeim áfram og verða þeir auglýstir á „þriðjudagssíðunni” í Dagblaðinu og sagt frá þeim. Fundarmenn hafa verið flokksmenn sem gerðu grein fyrir stefnu flokksins og svöruðu fyrirspurnum, yfirlýstir stuðn- ingsmenn sem komu með sínar hug- myndir og skoðanir og áhugafólk sem kom til að fræðast. Rætt var um hin auglýstu stefnumál flokksins og kom I Ijós að áhuginn er almennastur fyrir að- stöðugjaldinu á Nato og skilningur fundarmanna augljós fyrir þvi að ekki sé réttlætanlegt að varnarliðsmenn á Is- landi hafi fríðindi umfram islenzka þegna og að stjórnendum landsins beri Flokkssjóðurinn Það er kunnara en frá þurfi að segja, að enginn stjórnmálaflokkur getur hald- ið uppi starfsemi, nema að til komi nokk- urt fjármagn. Ákjósanlegast er, að slíkur stuðningur komi frá mörgum í smærri upphæðum og mun heilbrigðara en stórupphæðir frá fáum. Stjórn Stjórnmálaflokksins mælist eindregið til þess, að sem flestir hinna mörgu velunnara flokksins láti eitthvað af hendi rakna, annaðhvort með því að kaupa happdrættismiðá eða senda viðráðanlega upphæð með bréfi til flokksins. Þeir sem ekki vilja láta nafns sins getið rnega merkja framlög sin, t.d. meðeinhverjum bókstöfum. Kvittað verður fyrir fjárframlög á fimmtu síðu Dagblaðsins næsta þriðjudag eftir að þau berast. Stjórnmálaflokkurinn Pósthólf 192, REYKJAVlK að gera þar á leiðréttingu hið bráðasta og þó fyrr hefði verið. Einnig höfðu fundarmenn orð á því að ekki væri rétt- lætanlegt að það fé, sem þó kemur frá herstöðinni í formi óbeinnar greiðslu, skuli ekki renna til þjóðarinnar í heild t.d. með vegaframkvæmdum, heldur í hendur fárra manna, stjómmálamanna í gömlu flokkunum. En einmitt úr því að svo er, er eðlilegt að þeir stjórnmála- menn sem þiggja peningana, vilji hafa ástandið óbreytt. — Það koma sem sagt peningar frá herstöðinni í formi óbeinnar greiðslu, það eru fáir menn sem fá þessa peninga og nota þá að eigin geðþótta en þegar almennir þegnar vilja að þessir peningar séu greiddir opinber- lega og verði þegnunum til góðs er það kallað landssala. Flestu má nú nafn gefa og það alrangt, allt til þess gert að leyna staðreyndum. Eitt kvöldið var nær eingöngu rætt um stjórnarskrárbreytinguna, sem er eitt höfuðbaráttumál Stjórnmálaflokksins. Kom þá greinilega í Ijós að áhuginn fyrir breytingunni er mikill, en ekki skildu all- ir hvað um er að ræða þvi augljóst er að fólk veit ekki alltaf hvernig ríkjandi ástand er i þingmálum, dómsmálum og framkvæmdamálum þjóðarinnar. Um þau atriði þarf aukna fræðslu, og væri ákjósanlegt að þingmenn tækju sig sam- an og uppfræddu þjóðina um vinnu- brögð sin, hvernig þingsköpum er hátt- að, hvernig mál eru unnin á þinginu og hvernig öll framkvæmd fer fram. Einnig þarf fólk fræðslu um það hvernig Al- þingi Islendinga er uppbyggt og hver sé hinn raunverulegi eðlismunur á lög- gjafar- og framkvæmdavaldi. Á næstu kvöldfundum verður rætt um skattalagabreytinguna, sem er þriðja höfuðbaráttumál Stjórnmálaflokksins. Ef dæma má af fyrri kvöldfundum verða umræðurnar án efa fræðandi og skemmtilegar. Kvöldfundir að Laugavegi 84 2. hæð hvern þriðjudag og fimmtudag kl. 20.30. Æskilegt er að fólk tilkynni komu sína tímanlega á skrifstofu flokksins í síma 14300. Ekki var við stofnun nefndar skoðanakönnunar búist við, að þar væri á ferðinni upphaf nýs stjórnmálaflokks, heldur miklu frekarliuð á sanv.okin sem vísi að þrýstihópi, sem líklegur væri til að verða þess megnugur, að korna á framfæri og hrinda í framkvæmd ýmsum aðkallandi og þýðingarmiklum þjóðfélags- málum. anna um, að stofnaður yrði nýr stjórnmálaflokkur. Fljótlega upp úr sl. áramótum var það skref svo stigið til fulls, og 15. janúar var Stjórnmálaflokkur- inn stofnaður. Formaður Stjórnmálaflokksins Ólafur E. Einarsson. Þess er þó skemmst að minn-. ast að undirtektir urðu svo al- mennar og afgerandi, þrátt fyrir mjög takmarkaða auglýsinga- starfsemi, að hópar manna lýstu Með birtingu þessarar þriðju- dagssíðu Stjórnmálaflokksins má segja að tímamót skapist í hinni stuttu sögu hans, þvi með henni hefst kynningarstarfsemi flokksins, stjórnmálabarátta og undirbúningur að framboðum í komandi alþingiskosningum. Ólafur E. Einarsson Sti6rnarsltrár* 511 rtingcr brey1— ,,.i ^lztabarátt-"13"0 Stjórnmálaflokkurinn leggur til að eftirtaldar breyt- ingar verði gerðar á stjórnarskrá lýðveldisins íslands: 11. Að aðskilja löggjafarvald og framkvæmdavald. 2. Að taka upp nýja kjördæmaskipan, sem miði að því að jafna rétt þegnanna til áhrifa á val þingmanna, jafnframt því að stefnt sé að persónubundnum kosningum. 3. Að Alþingi starfi í einni málstofu og þingmönum verði fækk- að. 4. Að þjóðkjörinn forseti verði meira en sameiningartákn þjóðarinnar, eins og það er nú orðað. Hann verði höfuð ríkis- stjórnarinnar og taki þar með virkan þátt í stjórn landsins. Hann velji ráðherra og leggi ráðherralistann fyrir Alþingi. 5. Að ráðherrar starfi á ábyrgð forseta og að hann hafi vald til að víkja ráðherra úr embætti og skipa nýja, ef þess er álitin þörf. 6. Að kjörtímabil forseta verði 4 ár. 7. Að valfrelsi skuli ríkja innan sýslna og bæjarfél. varðandi embætti, þ.e. kosið verði um sýslumanns- og bæjarfógeta- embætti skv. reglugerð, sem um það yrði si it. Kjörtí nahil þeirra verði 4 ár. 8. Að forseti, meirihluti Alþingis eða 20% atkvæöisbærra manna geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu. Það liggur ljóst fyrir, að í þessum málaflokki er ákvæðið um aðskilnað löggjafar- og framkvæmda- valds höfuðatriðið og raunar sú stjórnlagabreyting, sem allir aðrir þættir þessa málaflokks byggjast á. Vel má vera, að ná mætti settu marki eftir öðrum leiðum en hér hafa verið nefndar, en höfuðtilgangur þessarar lagabreytingar er að sjálfsögðu sá, að stuðla að heil- brigðri og sterkri forystu í stjórn landsins. STERK STJðRN

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.