Dagblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. APRlL 1978.
Erlendar
fréttir
JÓNAS
HARALDSSON
REUTER
Pulitzerverð-
launafhent
Bandaríski blaðamaðurinn Henry
Kamm vann i gær Puli;zer verðlaunin
fyrir fréttir af flóttamönnum í Indókina
en verðlaun þessi eru veitt árlega fyrir
frábæra alþjóðlega fréttamennsku.
Pulitzer verðlaunin, sem nefnd eru
eftir bandarískum blaðaútgefanda,
Joseph Pulitzer, sem fæddur var í Ung-
verjalandi, hafa verið veitt siðan árið
1917 og auk verðlauna fyrir blaða-
mennsku eru veitt verðlaun fyrir skriftir
og tónlist.
Henry Kamm er fimmtiu og þriggja
ára blaðamaður og starfa hann við
New York Times. Kamm er fæddur í
Þýzkalandi. Tveir félagar hans hjá New
York Times fengu verðlaun að auki.
William Safire fyrir fréttaskýringar eg
Walter Kerr fyrir leikhúsgagnrýni.
Pulitzer lézt árið 1911 og hafði þá lagt
svo fyrir að sjóður yrði stofnaður til
styrkja- og verðlaunaafhendingar.
Lítill árangur af tillögum Owens og Vance
Rhódesíuráðstefnan
farin út um þúfur
— vegna harðrar andstöðu bráðabirgðastiórnar Rhódesíu
Litlar líkur eru nú taldar á því að
haldin verði ráðstefna allra
viðkomandi aðila um Rhódesíumálið,
vegna harðrar andstöðu bráðabirgða-
stjórnarinnar í Rhódesíu. Utanrikis-
ráðherrar Breta og Bandaríkjamanna,
Owen og Vance, lögðu fram sameigin-
legar tillögur um ráðstefnu þar sem
Rhódesíuskæruliðar fengju einnig að
taka þátt i umræðum um framtið Rhó-
desíu.
En bráðabirgðastjórnin, undir for-
sæti Ian Smith, leiðtoga hvíta
minnihlutahópsins og með þátttöku
Muzorewa biskups, Sithole og Chirau,
leiðtogum hófsamari blökkumanna-
hópa, tilkynnti utanríkisráðherranum
að bráðabirgðasamkomulagið, sem
gert var fyrir sex vikum, væri heppi-
legasta lausn Rhódesíumálsins. Bráða-
birgðastjórnin sat á fundi með utan-
ríkisráðherrunum tveimur i fimm
stundir í gær og kom þar fram að
vænlegast til friðar væri að treysta
bráðabirgðastjórninni. Stefnt væri að
þvi að koma á meirihlutastjóm
blökkumanna, þar sem allir hefðu
Leiðtogar bráðabirgðastjórnarinnar í Rhodesiu telja hana beztu lausnina til þess að konia á meirihlutastjórn blökkumanna í
Rhódesiu. Frá vinstri, lan Smith forsætisráðherra, Sitholc og Muzorewa biskup.
jafnan atkvæðisrétt og blökkumenn
tækju siðan við um næstu áramót.
í gærkvöldi köstuðu reiðir
stuðningsmenn bráðabirgðastjórnar-
innar eggjum og tómötum i bil
þann sem flutti Vance utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna til flug-
vallarsins í Salisbury, en þaðan flaug
ráðherrann til London. Með í bil
Vance var sendiherra Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum, Andrew
Young.
Samkomulagið sem gert var 3. marz
sl. og leiddi lil stofnunar bráða-
birgðastjórnarinnar hefur ekki tekið
tillit til skæruliða sem undanfarin
fimm ár hafa barizt við að steypa
stjórn hvita minnihlutans í Rhódesiu.
Vængjuð
sknmsli
Það er engu líkara en hér sé skrímsli
eða einhver kynjavera á ferð, sem æðir
áfram. Og í rauninni er þetta ekki eitt
skrímsli heldur mörg og þau af sömu
gerð. Þetta eru Hercules C-130 her-
flutningavélar, magamiklar maskinur og
nytsamlegar til síns brúks. Myndavélin
færir vélarnar nær hver annarri en
raunverulegt er og út kemur skemmti-
leg „symmetría”. Vélar þessar voru
við æfingar í Frankfurt í Þýzkalandi og
fóru í loftið hver á fætur annarri. Það er
því aðeins gott að engu skrimslinu verði
fótaskortur á vellinum.
'i6
HOCNS
Yikulega
nýir k jólar frá Moons
Ný glæsileg
ending frá Sergio Rossi
Fjölbreitt úrval af
öktum jökkum pilsum
m mussum blússum
og buxum
ÞING HOLTSSTRÆTI 1