Dagblaðið - 17.05.1978, Síða 19
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1978.
19
ÁRBLIK — Að öllum Ukindum
koma þeir saman aftur i haust undir
nýju nafni. DB-mynd Árni Páll.
Eina svidshljómsveitin
leggur upp laupana
Hljómsveitin Árblik hefur sungiö
sitt síðasta — í bili að minnsta kosti.
Svanasöngurinn fór fram á fyrstu
hæð Klúbbsins siðasta’'fimmtudags-
kvöld. Síðla nætur aðfaranótt föstu-
dagsins flugu tveir meðlimir Árbliks
siðan áleiðis til Danmerkur þar sem
þeir ætla að eyða sumrinu.
Ekki er loku fyrir það skotið að
meðlimir Árbliks, Reynir Sigurðs-
son, Sigurður Hannesson, Jón Guð-
jónsson, Ingólfur Guðjónsson og
Sigurður Gröndal, eigi eftir að koma
aftur saman í haust og rifja upp
gömul kynni — þó væntanlega undir
öðru samheiti en Árbliki. Ingólfur og
Sigurður Gröndal, sem verða við
byggingavinnu i Danaveldi i sumar,
hafa fengið það hlutverk að kaupa
ný hljóðfæri fyrir hljómsveitina, svo
að tæpast er neinn uppgjafarhugur í
mönnum.
Ekki er hægt að segja að nein
lognmolla hafi ríkt i kringum Árblik
þau þrjú ár sem hljómsveitin var
starfrækt. Þann tíma var hún eina
raunverulega sviðshljómsveitin hér á
landi og skilur því eftir sig ómannað
rúm, þegar hún hættir nú.
Siðustu mánuðina bar þó ákaflega
litið á Árbliki. Hljómsveitin var sára-
sjaldan auglýst í blöðum og skortur á
æfingahúsnæði háði starfseminni
mjög. Erfiðleikarnir voru þó greini-
lega fleiri og stærri en húsnæðis-
leysið eitt, en um þá voru meðlimir
Árbliks ákaflega sagnafáir, við fjöl-
miðla að minnsta kosti. Grunur
leikur þó á, að þar hafi fyrrverandi
umboðsmaður hljómsveitarinnar,
upprennandi fjárglæframaður, átt
stóra sök á.
Jarðarför Árbliks í Klúbbnum á
fimmtudaginn var var ekkert sérstak
lega átakanleg. Enginn klökknaði,
en nokkrir góðglaðir kumpánar, ný-
búnir með vorprófin, héldu uppi
hrópum um stuðmúsík milli laga hjá
Árbliki. Ekki var laust við að með-
limir Árbliks væru hálffeimnir á
sviðinu, þar sem þeir stóðu og léku
frumsami'.i jafnt sem erlend lög. En kvöddu Árbliksmenn og þökkuðu
öll pína tekur enda og um síðir fyrir sig — í síðasta sinn. -ÁT
GEIMSTEINN
Á GEIMFERÐ
OG FLUGI
Geimferð nefnist ný hljómplata
með hljómsveitinni Geimsteini. Það
má með sanni segja að skammt sé
'stórra högga á milli í herbúðum
Geimsteins, því að síðasta plata
hljómsveitarinnar, Geimtré, kom út
á jólamarkaðinn. En síðan þá hafa
talsverðar breytingar orðið á liðs-
skipan Geimsteins.
Athygli vekur, er hlustað er á
Geimferð, hversu hestar koma oft
fyrir í textum, allt frá spretthörðum
fákum til kviðsiginna rugguhesta.
Á blaðamannafundi I tilefni af
útkomu plötunnar sagði Rúnar
Júliusson að í febrúar síðastliðnum
hefði ár hestsins byrjað samkvæmt
.tjörnumerkjakerfi Kinverja og vildi
hljómsveitin minnast þess á veg-
legan hátt. Rúnar kvað fleiri hljóm-
sveitir vera í hestahugleiðingum, til
dæmis Brimkló.
Alls eru tiu lög á Geimferð, sem
var tekin upp í Hljóðrita á rúmlega
fimmtíu timum undir stjórn Jónasar
R. Jónssonar. Allir meðlimir Geim-
steins koma við sögu við gerð laga og
eða texta og jafnframt eiga nokkrir
utanaðkomandi hlut að máli. Má þar
meðal annars nefna Steingrim Thor-
iteinsson, en Vignir Bergmann gítar-
leikari Geimsteins hefur gert lag við
Ferðavísur hans.
Geimferð er þriðja plata Geim-
steins. Allt fram að nóvember
síðastliðnum var hljómsveitin
eingöngu stúdíóhljómsveit, en nú
leikur hún opinberlega á fullum
krafti. Að sögn Rúnars heldur
hljómsveitin sig aðallega við Suður-
nesin, bæði samkomuhúsin þar og
einnig Keflavíkurflugvöll.
í marz siðastliðnum lagði hljóm-
sveitin land undir fót og hélt til
Bandaríkjanna. Þar var hún í þrjár
vikur og lék lengst af á nætur-
klúbbum á Long Island. Á döfinni er
önnur heimsókn til Bandarikjanna í
byrjun ágúst. Þá verður haldið svo-
nefnt Scandinavian-American Festi-
val i Kaliforníu og stendur Geim-
steini til boða að leika þar. Rúnar
Júlíusson sagði að ferð þessi væri
ekki endanlega afráðin.
Það er útgáfufyrirtækið Geim-
steinn, sem gefur Geimferðarplöt-
una út. í ráði er að þrjár til fjórar
plötur til viðbótar komi út hjá fyrir-
tækinu á árinu. Rúnar Júlíusson
vildi ekki á þessu stigi málsins gefa
upp með hverjum þær plötur yrðu.
Hann sagði þó að hugsanlega tæki
hljómsveitin Geimsteinn upp aðra
plötu, ef Geimferð seldist vel.
„Annars eru nokkrar breytingar
að verða á rekstri Geimsteins,"
sagði Rúnar. „Þórir Baldursson er
nú orðinn stór hluthafi í fyrirtækinu
og kemur til með að hafa nána sam-
vinnu við okkur hin."
Þórir er sem kunnugt er meðlimur
i Munic maskínunni frægu. Fyrir
stutto kom út plata með honum og
sænska gítarleikaranum Mats Björk-
lund. — Þórir er sem stendur
staddur í Bandarikjunum við upp-
tökustjórn.
ÁT.
GEIMSTEINN — Léku um þriggja
vikna skeið á næturklúbbum á Long
Island. DB-mynd: Ragnar Th.
ÝR FRÁ ÍSAFIRÐIVÆNTANLEG
í HÖFUÐBORGARHEIMSÓKN
Hljómsveitin Ýr frá ísafirði er nú
sem óðast að búa sig undir kaup-
staðarferð. Hún verður á ferðinni í
höfuðkaupstaðnum, Reykjavik, aðra
helgina i júní og leikur þar í tvö
kvöld. Þriðja kvöldinu verður varið
á Suðurnesjum.
„Við höfum haft nóg að gera
hérna fyrir vestan allt frá því i
febrúar,” sagði Rafn Jónsson
trommuleikari í Ýr, er Dagblaðið
ræddi við hann í síðustu viku.
„Hljómsveitin hætti i nóvember,
en eftir að háveturinn var að baki
komum við saman aftur.”
Auk Rafns leika í Ýr þeir Reynir
Guðmundsson söngvari og
gítarleikari, Vilberg Viggósson sér
um allan hljómborðsleik og bassisti
er Örn Jónsson. Rúnar Þórisson,
sem áður lék meðal annars með
hljómsveitunum Dögg, Dínamit og
Haukum, er aðalgítarleikari í Ýr.
Á ísafirði eru nú-starfandi fjórar
hljómsveitir, sem að sögn Rafns hafa
allar nóg að gera. Auk þess að leika
fyrir dansi í vetur kom Ýr fram á(
nokkrum jazzkvöldum ásamt
fleirum. Hljómsveitarmeðlimirnir '
stóðu reyndar fyrir einu slíku sjálfir.
Fyrir jólin 1975 kom út LP plata
með Ýr. Nú er hljómsveitin byrjuð
að æfa efni á aðra slíka. Rafn sagði,
að fjögur frumsamin lög væru nú á
prógrammi hljómsveitarinnar.
„Að undanförnu hefur lítill tími
gefizt til æfinga á frumsömdu efni,
þvi að Vilberg hefur verið i prófum,”
sagði Rafn. „Vonandi gefst okkur þó
færi á að taka upp þráðinn fljótlega.
Nei, við erum ekki búnir að fá útgef-
anda — framkvæmdir við plötuna
eru ekki komnar svo langt á veg
ennþá. Það hefur jafnvel komið til
álita að taka plötuna upp og bjóða
hana síðan til útgáfu.”
í höfuðborgarheimsókn sinni
leikur hljómsveitin Ýr dagana átt
unda og niunda júní i veitinga-
húsinu Klúbbnum. Laugardaginn
10. júní verður hún í samkomu-
húsinuStapa.
Ýr er ein af sárafáum lands-
byggðarhljómsveitum, sem hefur
sýnt höfuðborgarsvæðinu einhverja
ræktarsemi á undanförnum árum.
Þróunin er ennþá öll í hina áttina,
að Reykjavikurhljómsveitirnar
ferðast um landið þvert og endilangt.
Engar breytingar eru sjáanlegar á
þessum gangi mála — því miður.
ÁT.