Dagblaðið - 06.06.1978, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ1978.
BLAÐBURÐARBÖRN
ÓSKAST STRAX:
Skjólin Aðalstrœti
Hagar Miðbærinn
Uppl. á afgreiöslunni,
sími27022.
MMSBUBW
ARNARFLUG
AÐALFUNDUR
Arnarflugs h/f verður haldinn að Hótel
Sögu Súlnasal mánudaginn 19. júni kl.
20:30. '
Dagskrá samkvæmt samþykktum félags-
ins. Stjórnin
LISTAHÁTIÐ
ö
1978
LEIFUR
ÞÓRARINSSON
V >3
Tónlist
Kvartettbrandarar
Það er ekki um sérlega auðugan
garð að gresja hvað snertir islenska
tónlist á Listahátíð. Hún hefur þó
ekki alveg gleymst og var til dæmis
frumfluttur íslenskur strengjakvartett
í fyrrakvöld. Þetta Þetta var kvartett
nr. tvö eftir Þorkel Sigurbjörnsson en
hann er saminn sérstaklega fyrir
Strokkvartett Kaupmannahafnar sem
hér dvelst á vegum Norræna hússins.
Því verður ekki neitað að þetta stykki
er heldur af léttara taginu og greini-
lega ekki ætlað að skilja við áheyr-
endur í sérlega þungum þönkum. Er
þar talsvert um svokallaða aulafyndni,
á dönsku dumvittigheder, og er ekki
nema allt gott um það að segja, svo
langt sem það nær. Rithátturinn er
líka lipur, eins og vænta mátti af
Þorkatii, og útþvældum klisjum er
raðað saman af mikilli kunnáttu og
starfsgleði. En séu gerðar kröfur til
heiðarlegrar tónhugsunar þá er um
talsverða afturför að ræða síðan i
kvartett nr. I, sem Þorkell samdi á
sinum tíma fyrir annað „Norrænt
hús”, Hasselbyslotið i Svíþjóð. En
menn geta nú ekki alltaf verið jafn-
góðir. Danirnir (Tutter Givskov,
Mogensarnir Durholm og Bruun og
Asger Lund Christiansen), léku þetta
af lifi og sál og skildu eflaust brand-
arana miklu betur en landinn. Þetta er
líka fyrsta flokks kammersveit, það
heyrði maður strax i C-dúrkvartett
Mozarts, þessum meðskritna inngang-
inum, sem var leikinn skýrt og skil-
merkilega og algjörlega án tilfinninga-
semi. Siðast kom svo a-mollkvartett
Schuberts, og 29, og hvað viljið þið
hafa það betra?
Já, það er mikill fengur að þessum
gestum á Listahátíð, sem er annars
heldur slöpp í kammermúsíkinni, og
tilhlökkun í tónleikum þeirra á
fimmtudaginn, þar sem m.a. verður
frumfluttur kvartett eftir Holboe, einn
elskulegasta kvartettsmið sem nú er á
dögum.
LÞ.
Listasafn íslands með yfirlit amerískra teikninga
VIRÐINGIN FYRIR DRÁn-
LIST EYKST STÖÐUGT
Reginald Marsh — Stúlkur á Coney
Island.
I Listasafni íslands stendur yfir
sýning á amerískum teikningum frá
árunum I927 til 1977. Stendur
sýningin rúmlega út listahátíð eða til
I. júlí og er opin frá 13.30—22 á
hverjum degi.
Amerísku teikningarnar koma frá
Minnesota Museum of Art sem leggur
sérstaka áherzlu á að varðveita teikn-
ingar. Sýningin hefur hér ferðalag sem
eftir á að standa lengi og verður farið
víða.Við valá myndum var reynt að
taka sem flestar gerðir teikninga og
með því að gefa sýnishorn af þessari
myndlist í hnotskurn. En eins og geta
má nærri gefur sýningin hvergi nærri
yfirlit um allt það sem teiknað hefur
verið, einfaldlega af því að margt af
því hefur farið forgörðum. Teikningar
nutu framan af ekki mikillar virðingar
en núna er þetta að breytast. Engin list
þykir eins sjálfstæð og öðrum óháð og
dráttlistin, engin eins óbundin af
kreddum og hefðum.
Alls eru til sýnis 75 myndir sem eru
frá 1867 og allt til vorra daga.
DS
Andy Warhole — Mao. Warhole er
frægur fyrir afskipti sin af stjórn-
málum og vinstrisinnaðar skoðanir.
DB kynnir væntanlega þátttakendurf sjórallinu:
V-listinn
Höfum opnað skrifstofu að Hamraborg 7 í
Kópavogi, símar 44199 og 44792.
Skrifstofan er opin frá kl. 13—22 alla virka
daga, sunnudaga frá kl. 13— 17.
BÍLAPARTASALAN
Höfum úrval notaðra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, tildæmis:
Nýkomnir varahlutir í:
Rambler American 1967, Willys árg. '55,
Citroén Ami 8 árg. '72, Peugeot 204 árg. '70,
Vauxhall Viva árg. '69, Fíat 128 árg. '72.
Einnig höfum við úrval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleða.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10 — Sími 11397
— segir annar keppenda á glænýjum 20 féta Dateline-bát
„Ég er gamall sjómaður, var á sjónum
í tiu ár, bæði á fiskibátum og farskipum.
Þ.á.m. hef ég siglt 10 til 12 sinnum
umhverfis iandið og mér sýnist allt i lagi
að sigla svona bát umhverfis það á
þessum árstíma,” sagði Baldur Jóhanns-
son, einn jseirra manna sem skráð hafa
sig í sjórallið. Hann er iðnverkamaður
hjá Flugleiðum. Þrátt fyrir langan
sjómannsferil tók hann 30 tonna skip-
stjórnarréttindin ekki fyrr en hann gekk
í Snarfara og fór að stunda sjóinn sem
afþreyingu.
Bróðir hans, Hermann Jóhannsson,
viðgerðarmaður hjá Kaupfélaginu í
Borgarnesi, á bátinn og er einnig vanur
sjómaður eftir a.m.k. sex ár á sjó. Á
þeim tima sigldi hann m.a. á Akraborg-
inni á meðan hún sigldi alla leið til
Borgarness. Var hann þvi ekki kviðinn á
föstudaginn að vera að leggja upp
þangað frá Reykjavík á glænýjum
farkostinum sem dýft hafði verið i sjóinn
í fyrsta sinn nokkrum klukkustundum
áður.
teljara, snúningshraðamæli og mæli er
gefur til kynna hvaða staða drifhælsins
er heppilegust á hverjum tíma. í metrum
er báturinn 6,10 á lengd og 2,40 á
breidd. Góðar vistarverur eru frammi í
honum. Ganghraði er 36 til 40 milur við
beztu aðstæður og skv. upplýsingum
innOytjandans, Boga Baldurssonar,
kostar svona bátur um 4,7 milljónir
króna. GSJH.P.
DB-mönnum gafst kostur á reynsluferð og var báturinn svifinn yfir 30 mílur fyrr en
varði. — DB-mvnd Ó.G.
Báturinn:
Bátur þeirra bræðra er brezkur, af
Dateline gerð, og nefnist þessi útgáfa
Hawain. Vélin, sem er 198 hestöfl,
nefnist Mercruiser 898 og er innan-
borðs. Drifhællinn aftur úr bátnum er af
sömu gerð. Vélin gengur fyrir bensini.
Drifhællinn er stillanlegur eftir hraða og
sjólagi þannig að óþarft er að setja
„flapsa" á bátinn. Það eru tvær blöðkur
sem settar eru á gafla báta i beinu áfram-
haldi af botninum og hægt er að beina
upp og niður og hafa þannig áhrif á
lárétta stöðu bátsins á sjónum. Þá má
nefna áttavita, hraðamæli og mílu-
Baldur Jóhannsson t.v. og bróðtr hans, Hermann, um borð i bátnum i Reykja-
vlkurhöfn á föstudagínn. DB-mynd Ó.G.
„Sýnistþetta vera í lagiff