Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 06.06.1978, Qupperneq 4

Dagblaðið - 06.06.1978, Qupperneq 4
4 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ1978. BLAÐBURÐARBÖRN ÓSKAST STRAX: Skjólin Aðalstrœti Hagar Miðbærinn Uppl. á afgreiöslunni, sími27022. MMSBUBW ARNARFLUG AÐALFUNDUR Arnarflugs h/f verður haldinn að Hótel Sögu Súlnasal mánudaginn 19. júni kl. 20:30. ' Dagskrá samkvæmt samþykktum félags- ins. Stjórnin LISTAHÁTIÐ ö 1978 LEIFUR ÞÓRARINSSON V >3 Tónlist Kvartettbrandarar Það er ekki um sérlega auðugan garð að gresja hvað snertir islenska tónlist á Listahátíð. Hún hefur þó ekki alveg gleymst og var til dæmis frumfluttur íslenskur strengjakvartett í fyrrakvöld. Þetta Þetta var kvartett nr. tvö eftir Þorkel Sigurbjörnsson en hann er saminn sérstaklega fyrir Strokkvartett Kaupmannahafnar sem hér dvelst á vegum Norræna hússins. Því verður ekki neitað að þetta stykki er heldur af léttara taginu og greini- lega ekki ætlað að skilja við áheyr- endur í sérlega þungum þönkum. Er þar talsvert um svokallaða aulafyndni, á dönsku dumvittigheder, og er ekki nema allt gott um það að segja, svo langt sem það nær. Rithátturinn er líka lipur, eins og vænta mátti af Þorkatii, og útþvældum klisjum er raðað saman af mikilli kunnáttu og starfsgleði. En séu gerðar kröfur til heiðarlegrar tónhugsunar þá er um talsverða afturför að ræða síðan i kvartett nr. I, sem Þorkell samdi á sinum tíma fyrir annað „Norrænt hús”, Hasselbyslotið i Svíþjóð. En menn geta nú ekki alltaf verið jafn- góðir. Danirnir (Tutter Givskov, Mogensarnir Durholm og Bruun og Asger Lund Christiansen), léku þetta af lifi og sál og skildu eflaust brand- arana miklu betur en landinn. Þetta er líka fyrsta flokks kammersveit, það heyrði maður strax i C-dúrkvartett Mozarts, þessum meðskritna inngang- inum, sem var leikinn skýrt og skil- merkilega og algjörlega án tilfinninga- semi. Siðast kom svo a-mollkvartett Schuberts, og 29, og hvað viljið þið hafa það betra? Já, það er mikill fengur að þessum gestum á Listahátíð, sem er annars heldur slöpp í kammermúsíkinni, og tilhlökkun í tónleikum þeirra á fimmtudaginn, þar sem m.a. verður frumfluttur kvartett eftir Holboe, einn elskulegasta kvartettsmið sem nú er á dögum. LÞ. Listasafn íslands með yfirlit amerískra teikninga VIRÐINGIN FYRIR DRÁn- LIST EYKST STÖÐUGT Reginald Marsh — Stúlkur á Coney Island. I Listasafni íslands stendur yfir sýning á amerískum teikningum frá árunum I927 til 1977. Stendur sýningin rúmlega út listahátíð eða til I. júlí og er opin frá 13.30—22 á hverjum degi. Amerísku teikningarnar koma frá Minnesota Museum of Art sem leggur sérstaka áherzlu á að varðveita teikn- ingar. Sýningin hefur hér ferðalag sem eftir á að standa lengi og verður farið víða.Við valá myndum var reynt að taka sem flestar gerðir teikninga og með því að gefa sýnishorn af þessari myndlist í hnotskurn. En eins og geta má nærri gefur sýningin hvergi nærri yfirlit um allt það sem teiknað hefur verið, einfaldlega af því að margt af því hefur farið forgörðum. Teikningar nutu framan af ekki mikillar virðingar en núna er þetta að breytast. Engin list þykir eins sjálfstæð og öðrum óháð og dráttlistin, engin eins óbundin af kreddum og hefðum. Alls eru til sýnis 75 myndir sem eru frá 1867 og allt til vorra daga. DS Andy Warhole — Mao. Warhole er frægur fyrir afskipti sin af stjórn- málum og vinstrisinnaðar skoðanir. DB kynnir væntanlega þátttakendurf sjórallinu: V-listinn Höfum opnað skrifstofu að Hamraborg 7 í Kópavogi, símar 44199 og 44792. Skrifstofan er opin frá kl. 13—22 alla virka daga, sunnudaga frá kl. 13— 17. BÍLAPARTASALAN Höfum úrval notaðra varahluta íýmsar tegundir bifreiöa, tildæmis: Nýkomnir varahlutir í: Rambler American 1967, Willys árg. '55, Citroén Ami 8 árg. '72, Peugeot 204 árg. '70, Vauxhall Viva árg. '69, Fíat 128 árg. '72. Einnig höfum við úrval af kerruefni, til dæmis undir vélsleða. Sendum um allt land. BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10 — Sími 11397 — segir annar keppenda á glænýjum 20 féta Dateline-bát „Ég er gamall sjómaður, var á sjónum í tiu ár, bæði á fiskibátum og farskipum. Þ.á.m. hef ég siglt 10 til 12 sinnum umhverfis iandið og mér sýnist allt i lagi að sigla svona bát umhverfis það á þessum árstíma,” sagði Baldur Jóhanns- son, einn jseirra manna sem skráð hafa sig í sjórallið. Hann er iðnverkamaður hjá Flugleiðum. Þrátt fyrir langan sjómannsferil tók hann 30 tonna skip- stjórnarréttindin ekki fyrr en hann gekk í Snarfara og fór að stunda sjóinn sem afþreyingu. Bróðir hans, Hermann Jóhannsson, viðgerðarmaður hjá Kaupfélaginu í Borgarnesi, á bátinn og er einnig vanur sjómaður eftir a.m.k. sex ár á sjó. Á þeim tima sigldi hann m.a. á Akraborg- inni á meðan hún sigldi alla leið til Borgarness. Var hann þvi ekki kviðinn á föstudaginn að vera að leggja upp þangað frá Reykjavík á glænýjum farkostinum sem dýft hafði verið i sjóinn í fyrsta sinn nokkrum klukkustundum áður. teljara, snúningshraðamæli og mæli er gefur til kynna hvaða staða drifhælsins er heppilegust á hverjum tíma. í metrum er báturinn 6,10 á lengd og 2,40 á breidd. Góðar vistarverur eru frammi í honum. Ganghraði er 36 til 40 milur við beztu aðstæður og skv. upplýsingum innOytjandans, Boga Baldurssonar, kostar svona bátur um 4,7 milljónir króna. GSJH.P. DB-mönnum gafst kostur á reynsluferð og var báturinn svifinn yfir 30 mílur fyrr en varði. — DB-mvnd Ó.G. Báturinn: Bátur þeirra bræðra er brezkur, af Dateline gerð, og nefnist þessi útgáfa Hawain. Vélin, sem er 198 hestöfl, nefnist Mercruiser 898 og er innan- borðs. Drifhællinn aftur úr bátnum er af sömu gerð. Vélin gengur fyrir bensini. Drifhællinn er stillanlegur eftir hraða og sjólagi þannig að óþarft er að setja „flapsa" á bátinn. Það eru tvær blöðkur sem settar eru á gafla báta i beinu áfram- haldi af botninum og hægt er að beina upp og niður og hafa þannig áhrif á lárétta stöðu bátsins á sjónum. Þá má nefna áttavita, hraðamæli og mílu- Baldur Jóhannsson t.v. og bróðtr hans, Hermann, um borð i bátnum i Reykja- vlkurhöfn á föstudagínn. DB-mynd Ó.G. „Sýnistþetta vera í lagiff

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.