Dagblaðið - 06.06.1978, Page 12
12 - _______________ DAGBLADID. ÞRIDJUDAGUR 6. JÚNl 1978.
Tíu mörk
Skallagríms
Skailagrímur frá BorRarncsi vann stór-
sÍRur á Óöni frá Reykjavík er iiðin mættust í
3. dcild íslandsmótsins í knattspyrnu á
laugardap. 3. deildin hófst um helgina — og
Skallagrímursigraði 10-2 i Borgarnesi.
Þeir Gunnar Jönsson op Ævar Rafnsson
skoruðu hvor um sig 3 mörk, Garðar Jóns-
son 2 ok þeir Bergsveinn Simonarson og
Ólafur Helgason 1 mark hvor. Fyrir Óðin
skoruðu þeir Sigurður og Óskar. Skalla-
grímur hóf þcgar sókn er lcikurinn hófst
og hélt henni til loka.
Þá fóru fram tveir aðrir leikir I c-riðli.
Vikingur sigraði Leikni 3-1 í Ólafsvík og
Afturelding lagði Snæfeli, Stykkishólmi, 4-1
í Mosfellssveit.
Huginn og
Einherji
byrjuðu vel
Einherji úr Vopnafirði sigraði Sindra frá
llöfn í Hornafirði 4-1 I 3. deild á laugardag.
Leikurinn fór fram í Vopnafirði. Fyrir Vopn-
firðinga skoruöu Baldur Kjartansson 2,
Steindór Sveinsson og Kristján Daviðsson.
Á Egilsstöðum sigraði Huginn heima-
menn, Hött, 3-1. Huginn frá Seyðisfirði
hafði góð tök á leiknum. Magnús
Guðmundsson skoraði eitt fallegasta mark
er sézt hefur á Austfjörðum — þrumufleygur
í samskeytin beint úr aukaspyrnu. Pétur
Böðvarsson og Ölafur Már Sigurðsson
bættu við mörkum. Snæbjörn Vilhjálmsson
svaraði fyrir Hött.
Selfoss
byrjarvel
Selfoss lék sinn fyrsta leik i 3. deild um
langt árabil við Grindavík á Seifossi á
laugardag. Selfoss sigraði 4-1 en ieikurinn
var í A-riðli 3. deildar. Guðjón Arngrímsson,
Eiríkur Jónsson, Tryggvi Gunnarsson og
Sumarliði Guðbjartsson skoruðu mörk Sel-
fyssinga.
Víðir úr Garðinum sigraði Heklu á Hellu
5-1. Hekla skoraöi sjálfsmark en fyrir Viði
skoruðu Guðjón Guðmundsson 2, Guö-
mundur Knútsson 2 og Jónatan Ingimars-
son. Þá léku í Þorlákshöfn Þór og USVS.
Gestirnir sigruðu 7-2 — voru mun betri þó
markamunur væri helzt til mikill. Þorkell
Ingimarsson skoraði 4 af mörkum USVS,
Sölvar Júliusson, Jón Júlíusson og Guð-
mundur Einarsson bættu við mörkum
USVS. Fyrir Þór skoruðu Páll Svansson og
Sigurður Óskarsson. - SG
Ósigur og
jafntefli
Stefnis
Þrír leikir fóru fram í B-riðli 3. deildar.
Eins og við sögðum frá í gær sigraði Njarð-
vík lið Stefnis frá Suðureyri stórt, 6-1.
Stefnir lék daginn áður, laugardag, við Létti,
Reykjavík, og jafntellir varð þá, 3-3. ÍK
sigraði Bolungarvík 4-2 í Kópavogi.
ÖChummol é"
Hummel æfingaskór til æfinga, í
trimmið, I ferðalagið. Stærðir 33—
45. Mikið úrval.
Fást í öllum helztu sport-
vöruverzlunum landsins.
Sportvöruverzlun Ingólfs Oskarssonar
Klopparstíg 44 Siml 11783
Ódýrir en góðir
æf inga-
skór
Litur
Blátt m/tveim rauðum
röndum.
Stœrðir 27-33 kr. 3.100.
Stœrðir 34-39 kr. 3.280.-
Stœrflir 40-45 kr. 2.495.-
PÓSTSENDUM
neti Svlanna en welski dómarinn Clive Thomas hafði flautað leikinn af
sekúndubrotum áður en Zico hafði náð að senda knöttinn I netið en hann liggur lengst
til hægri.
Á neðri myndinni rifst Zico við dómarann, en Thomas bendir einungis á úrið —
„tlminn var búinn”. Revelino gengur að baki þeirra.
„Þessisamningurer
féíögunum hagstæður”
Verzlun Ingólfs Óskarssonar hefur gert samning
við Reykjavíkurfélögin Fram, KR og Val
„Þrjú af Reykjavíkurfélögunum,
Fram, KR og Valur, hafa gert samning
við verzlun mina um sölu á búningum
fyrir félögin með mcrkjum þeirra — og
þessi samningur getur orðið á breiöari
grundvelli I framtíðinni,” sagði Ingólfur
Óskarsson, landsliðskappinn hér áður
fyrr í handknattleiknum, sem nú rekur
sportvöruverzlun á Klapparstignum í
Reykjavík.
„Hér er um íslenzka framleiðslu að
ræða frá Henson-fyrirtækinu og nú er
félaganna að koma með fleiri tillögur
um hvað þau vilja gera á þessu sviði.
Auk búninga með félagsmerkjum getum
við látið framleiða flest fyrir þau. Við
höfum þegar útbúið oddfána Vals — og
hægt verður að gera félagsmerki úr taui
eða málmi, hringi, fána, könnur, hatta
og fleira, sem að minjagripum lýtur,”
sagði Ingólfurennfremur.
Þeir Bergur Guðnason, formaður
Vals. Steinn Guðmundsson, formaður
Fram, og Marteinn Guðjónsson, vara-
formaður KR, voru á blaðamannafundi,
sem Ingólfur efndi til í þessu tilefni á
laugardag, ásamt Halldóri Einarssyni
hjá Henson.
Bergur sagði, að þessi samningur við
verzlun Ingólfs Óskarssonar væri
félögunum hagstæður. Þau fengju
prósentur af sölunni. Félögin hefðu áður
reynt slíkt sjálf en það hefði ekki gengið
nógu vel — og Steinn sagði, að félögin
hefðu heldur ekki efni á að liggja með
slikt á lager. Marteinn taldi niun betra
að ákveðinn aðili annaðist slika verzlun
fyrir félögin — og það kom einnig fram
hjá formönnunum, að iþróttafélögin
hefðu verið full kærulaus á þessu sviði.
Einstaklingar verið að selja ýmsa hluti i
nöfnum félaga án þess að biðja um leyfi.
Búningarnir, sem nú eru komnir á
-markað, verða eingöngu til sölu i verzl-
un Ingólfs og hjá félögunum þremur,
sem mun bjóða ýmsa hluti, þegar fram í'.
sækir, t.d. á heimaleikjum sínum.
Schön setui
sókn gegn M
— Schön, þjálfari þýzka liðsins, gerði
á liðinu f rá leiknum við Pó
Helmut Schön hefur breytt v-þýzka
landsliðinu mikið fyrir leikinn gegn
Mcxíkó 1 kvöld. Hann hefur stillt upp 4-
3-3 liði en gegn Pólverjum var liðsupp-
stillingin 44-2. Hann hefur sett mark-
hæsta leikmann Bundesligunnar, Dieter
Muller inn I liðið en Muller leikur með
FC Köln. Þá setti hann kantmanninn
snjalla frá Bayern Munchen, Karl-Heinz
Rummenigge. í vörnina kom inn Berhad
Dietz — sókndjarfur bakvörður.
Það er greinilegt að Schön setur allt í
sókn gegn Mexikó. Nú gegnir öðru máli
en gegn Pólverjum, greinilegt að Schön
lítur á Pólverja sem sina helztu and-
stæðinga. „En ég álít okkur ekki eiga
möguleika á að komast í úrslit. Hér i
Argentínu eru mörg mjög góð lið og
okkar lið er ekki eins gott og 1974 e; við
unnum HM,” sagði Helmut Schön —
einn litríkasti landsliðsþjálfari heims.
Eftir HM í V-Þýzkalandi vildi Schön
hætta — draga sig í hlé frá skarkala
heimsins og vera ekki stöðugt í sviðsljós-
inu. En hann var talinn á að halda
áfram. Nú hins vegar er Helmut Schön
staðráðinn i að hætta. „Der Lange” —
sá langi, eins og hann er kallaður í
Þýzkalandi vegna hæðar sinnar, 1,95
metrar, er núna staðráðinn i að hætta.”
Það er kominn tími til að hætta. Mig
langar að komast úr sviðsljósinu, úr
pressunni. Nú hef ég verið í 14 ár í þessu
starfi. Það sem mig langar nú til er
einungis að vera góður eiginmaður.”
Hvort hann sæi eftir einhverju eftir alla
sigrana en hann hefur leitt V-Þýzkaland
til gull-, silfur- og brons verðlauna í HM
auk EM-sigra. „Já og nei. Ég fer hvort
tveggja i senn hlæjandi og grátandi,”
sagði hann.
Lið heimsmeistara Þjóðverja er —
Maier, Vogts, Kaltz, Russmann, Dietz,